Skólablaðið - 01.11.1973, Síða 17
5P-
INNKOMAN - AFTURKOMAN.
Kseru félagar.
Þessi orð tákna hlöðufulla endurkomu D.B.F.,
sem ætti að vera öllum þroskuðum nemendum
skólans mikið dreifgleðiefni og ekki ætti
dreifgleðin að minnka við þá dreifbýlis-
legu hugsun að í vetur ætlum við góðu
hirðar félagsins að starfa að tvíefludum
hestöflum að þríeflingu félagsins, eða
eins og bóndinn sagði:- Þrílembd varð hún,
heillin.-
Skammt er að minnast baráttu okkar fyrir
tilveru félagsins er ribbaldalýður innan
skólans reyndi með öllum ráðum að koma okkur
hirðum D.B.F. á krié með innveikluðum blóð-
kreppubrögðum, svo sem kuldarottulegum
heilasogum við.að nema á braut hina einu
og sönnu skráningu hjarðar okkar svo við
stóðum uppi sem bóndinn er týnt hafði
neftóbaksdósunum sínum.
En kæru tryggu tilvonandi félagar.
Nú er D.B.F. að hefja nýtt blómaskeið sem
varpa mun blágulleitu blikki á framtíð
félagsins og leiða félagsmenn þess framhjá
blómaklukkugildrum Bakkusar huldum í heyreyk,
og munið tvífættu sauðir, að hin ástsæla
og góða miðstjórn vakir yfir velferð ykkar
í hinum dreifðu byggðu bólum úti á landi.
Og munið eftir hinum landfleygu orðum D.B.F.■
jafnið byggðinni.-
Det var en mand paa landet
paa landet var en mand
og denne mand paa landet
han var en landemand.
ffrá Íkreifí«í|l i^felag.mu
F.h. D.B.F.
Markari.
Lög og málamyndasamningur D.B.F.
1. Félagið skal heita Dreifbýlisfélagið.
2. Félagið hefur aðsetur sitt í Menntaskólanum-
í Reykjavík. 3. Allir nemendur í Mennta-
skólanumí Reykjavík geta gerst félagar
í Dreifbýlisfélaginu. 4. Fimm menn skulu
sitja í stjórn D.B.F. og skulu þeir skipta
með sér eftirtöldum emtsettum: Ráðsmaður,
Markari, Smali, Fjósamaður og Blaðurskjóða
miðstjórnarinnar. 5. Ef stjórnarmeðlimur
segir af sér störfum, undir sérstökum
kringumstseðum, skal skipa mann í hans stað.
Annars skal kosið í vorkosningunum og hafa
félagar Dreifbýlisfélagsins einir kosninga-
rétt. 6. Lágmarksgjal er 10 krónur til
X 10 krónur. 7. Allur ágóði af starfi
félagsins að liðnum vetri skal ekki afhendast
ríkissjóði að vori. 8. Verði félagið lagt
niður, skulu eignir þess, ef nokkrar eru
ekki renna í ríkissjóð. 9. Félagið skal
stuðla að kynningu á sveitalifi landsins
nú og^til forna, meðal nemenda M.R.
10. Félagið skal stuðla að almennri upp-
fræðslu nemenda M.R. á vanda-málum nútima-
þjóðfélags. 11. Félagið skal berjast gegn
júgurbólgu. 12. Félagið berst gegn blöndun
hins góða íslenzka kúastofns. 13. Félagið
skal birta stefnuskrá og lög sín í fyrsta
eða öðru tölublaði skólablaðsins ár hvert.
14. Félagið ber hagsmuni dreifbýlisbúa sér
fyrir^brjósti. 15. Félagið berst fyrir
réttlátri dreifingu vændisstofnana um landið.
16. Félagið berst gegn auknum þéttbýliskjarna
við Faxaflóa og vill að Reykjavík verði
dreift smám saman út um landsbyggðina.
17. Félagið berst gegn júgurbólgu og fá
þar af leiðandi ekki stelpur í M.R. sem
eru með júgurbólgu inngöngu i félagið.
18. Félagið er óflokksbundið. 19. Stjórnar-
meðlimir skulu því fara dult með stjórnmála-
skoðanir sínar. 20. Stjónmál eiga ekki heima
í Dreifbýlisfélaginu. 21. öheimilt er að
ræða um stjórnmál á fundum Dreifbýlisfélagsins.
22. Dreifbýlisfélagið er ekki vinstrisinnað.
23. Undantekning á reglum No. 18, 19,
20, 21, 22, er heimil og sannar þar með
að þær reglur eru ekki sannar. 24. Félagið
berstgegn útrýmingu þarfasta þjónsins.
25. Félagið er á móti innflutningi og
ræktun minka hér á landl, vegna hinnar
geigvænlegu hættu, sem fiðurfé' landsmanna
stafar af þeim ófögnuði. 26. Félagið er
á móti innflutningi Galloway nauta til
landsins vegna hættu á sýkingu af gin og
klaufaveiki. 27. Félagið fordæmir harðlega
þá aðferð sem nú er notuð við frjóvgun
kúa hér á landi og æskir þess að upp verði
aftur teklnn sá siður að kefla kúna. '
28. D.B.F. félagar skulu styrkja kaupfélagið
í einu og öllu og veitir D.B.F. afsláttarkort
i kaupfélaginu. Kaupfélagið er eina og
sanna verzlunin sem viðskipti skal hafa við.
29. Stjórnarmaður D.B.F. hefur aldrei rangt
fyrir sér og skal i einu og öllu fara eftir
hans fyrirmælum. 30. Hafi stjórnarmaður
einhvern tíma rangt fyrir sér, vísast
í grein No. 29.
F.h. D.B.F.
Húsnæðisvandamálið.
Mörgum dreifbýlisnemanum hrýs hugur við því,
hversu gífurlega húseigendaauðvald Reykjavíkur
leikur þá grátt. Getur svo farið að allt
sumarkaupið þeirra fari í að greiða húsaleigu
og fæðiskostnað og oft þarf meira fjármagn
til að gera nemandanum kleift að sækja nám
hingað suður. Verða sumir nemendur að hætta
algjörlega við það að stunda nám eða steypa
foreldrum sínum í skuldahneppi.^Verður
margur dreifbýlisbúinn að búa hér við
þröngan kost og ævarandi merki þess fylgja
honum alla leið að grafarbakkanum. En hverfa
von bráðar, þegar huslað er yfir hann og
rotnun hefst. Margir hafa leitað til okkar
með sín vandamál og er langstærsti hluti
þessara hjálparbeiðna varðandi þetta. Höfum
við reynt að ráða fram úr þessu eins og
kostur er. Og munið að við gerum hvað sem er,
við hvern sem er, hvar sem er og hvenær se
er. Eina haldbæra ráðið sem okkur hefur dottið
í hug, er nú litið dagsins ljós. I stuttu
máli er það þetta. Víða eru til alls konar
kofar heima hjá ykkur t.a.m. sem notaðir
eru undir ónýtt drasl, hrútakofar, hunda-
kofar og allir hinir kofarnir. Þessir kofar
mega foreldrar ykkar ábyggilega sjá af yfir
vetrarmánuðina. Ætlunin er að flytja^þessa
kofa svo hingað suður. Vissulega stríðir
þetta á móti byggðastefu okkar, en ætlunin
er, að setja þessa kofa niður á túnið fyrir
framan Menntaskólann. Og sýna dreifbýlis-
búum fram á hversu þéttbýlið er viðbjóðslegt
í alla staði svo að þeir búi ekki í fram-
tíðinni í þéttbýli. Já, flytja kofana
suður og hola þeim á M.R. túnið. Og þar með
er vandamálið leyst. Viljum við nefna
orfá atriði, sem hafa mjög hagstæðar afleiðingar
fyrir dreifbýlisbúana.
1. Engin hlaup í strætó og allur kostnaður
við það fellur niður.
2. Heitt vatn til þess að hita upp kofana
mætti fá af rennslinu, sem heldur vökinni
í tjörninni fyrir endurnar. Væri sú leiðsla
mjög stutt.
3. Mat fengju þeir á sama hátt og endurnar.
Fólk vendist á að gefa þeim eins og öndunum.
Matarleifar og alls kyns afgangar koma svo
auðvitað þéttbýlisbúar með sér, þegar
þeir koma í skólann. Gætu þannig myndast.
sterk tengsl milli þéttbýlis og dreifbýlis.
4. Borgarstjóri myndi án efa fjölga götu-
ljósum í Lækjargötunni og beint geislanum
af nokkrum þeirra uppá túnið. Þyrfti
þannig ekkert fyrir rafmagnskostnaði að
hugsa vegna ljósa og er það mjög hagstætt,
jafnvel þótt Rafmagnsveita Reykjavíkur
sé á hausnum. Gætu nemar ráðið styrk geislans,
með því að troða því versta, sem að þeim er
hent i stærstu rifurnar eftir þörfum eða
tekið úr þeim aftur. Ekki þarf að óttast
það, að mönnum verði ekki kalt þegar á
ljósi þarf að halda a.m.k. finnst öndunum
það ekkert kalt í tjörninni.
Hefi ég nú aðeins nefnt örfá atriði í þessu
sambandi um það, hversu allýtarlega þetta
verður hagstæð dvöl þarna. Og allt tal
um, að þetta verði hundalíf er eingöngu
runnið úr brjóstum öfundsamra þéttbýlisbúa.
F.h. D.B.F.
Ráðsmaður.
Monthýsið.
Þar sem það er almennt álit þéttbýlisbúa
á Reykjavíkursvæðinu að eigi sé pláss fyrir
"Monthús" Nordals og allra hinna spari-
grísanna á Stór-Reykjavíkursvæðinu, er það
einróma, hjáróma og fimmróma álit stjórnar
D.B.F., að auðvaldskompan skuli rísa af
þaki (sbr. að þetta er pýramíði með þakið
niður til hins fégráðuga en grunnurinn á
pýramíðanum er efstur) utan Reykjavíkur.
Sum sé, hún- á að rísa úti á hinni dreifðu
byggð landsins, sbr. 15. gr. í lögum
D.B.F. "Félagið berst fyrir réttlátri
dreifingu vændisstofnana um landið." En í
þessari stofnun eru menn "vændir" um að
hafa gefið út innistæðulausar ávísanir eða
falsaðar. Og til þess að fullnægja hinni
fullkomnu byggðastefnu D.B.F. leggjum v,ið
til að sparigrísirnir fái inni í húsi einu
uppi í Borgarfirði. Þar fyrirfinnst eigi
alllítið sportgleðihús, sem autt stendur,
er drápsglaðir menn halda sig frá Grímsá.
Þar geta sparigrísirnir engu að síður verið
hátt uppi eins og á gólfi monthýsi þess,
sem þarna væri gjörlegt að setja niður,
því að þegar að þeir setjast niður á
kvöldin og fá sér glas á barnum að þá geta
þeir verið mjög hátt uppi, vegna þess að
óvanalega hátt er til lofts yfir barnum,
samtals 8 metrar. Efumst við ekki að þeir
endurskoði afstöðu sína og taki þetta
feginshendi. Þar með er byggðastefna D.B.F.
ætíð að stuðla að dreifbýlskri byggð í
landinu og má þar nefna að D.B.F. hefur
margoft lagt til að hús úr Reykjavík verði
flutt út á land. Þar með er ekki grundvöllur
fyrir því að húsið verði flutt til Rvíkur,
og t.a.m. yrði lengara fyrir drápsmennina
að sækja á morgnana.
F.h. D.B.F.
Markari og Ráðsmaður.
Markari og Ráðsmaður.
13-13-3
Ær og kýr.
árgjöldin ódýr.
Þannig hljómar kall það, er við æskjum
þess að felagagjald í D.B.F. sé borgað.
Eins og sjá má á þessu er gjörlegt að
borga inn á giróreikning okkar no 13-13-3
á næsta pósthúsi eða banka. Ameðan dýrfeíðin
vex, og allt ætlar að kafna í holskeflu
kostnararverðbólgu, erum við með sama árgjald
og í fyrra kr. 10 til X; X> 10. Það má benda á
það t.a.m. hefur Framtíðin, félag framagosa og
viðaukanafna ( s.b.r. alla dalina í norðri sem
vefja bergin líni og nota einkennilega stafi,
sem ekki eru notaðir í íslensku sbr Z og
orðið að hækka sín gjöld á ársgrundvelli um
þrefallt. Einnig er auðið að inna þessar greið-
slur til einhvers af stjórnarmeðlimum.
Og munið :
D.B.F.-merkið sem gleður D.B.F.
Hittumst í næsta skólablaði.
Og að lokum hvetjum við alla D.B.F. að skrifa
í síðuna okkar..
Fyrir hönd D,B.F. Ráðsi.
Aðalfundur.
Aðalfundur D.B.F. var haldinn nú um daginn,
erfiðlega gekk að finna fundinum stað í fyrstu
af þeim orsökum sem nú skulu raktar.
1) Þar-sem D.B.F. eru sannir dreyfbílingar
þurfti einn þeirra að dreyfa sér til Keflavíkur
og þótti þetta einkar góður tími til þess: (Sam-
róma áliktun fundarins.)
2) Þar sem dreyfðarhugur var í fundarmönnum, var
ákveðið að hafa fundarsalinn sem minnstan og af
þeim furðusögum varð bóksalan fyrir valinu. Eitt
ljóð var þó i máli þessu Þorarinn nokkur Þórarins-
son var þar (bar hvar) A fundinum var sú
var sú dreifðartillaga mörkuð af öllum
fundarmönnum (þóekki Þ.Þ. sem einungis olli
hávaða er tillagan var mörkuð), tillagan
hljóðaði ekki, en innvolsið var á þá lund
að halda ætti tölu yfir hjörð D.B.F. núlíðandi
vetur, Markið á tillögunni var bitið aftan
eystra, nagað ofan , sprengt neða norðvestra,
Mörgum þykir þetta máske vera markið hans
Gvendar á neðra gufuhvoli, en svo er ekki,
því hans mark er eins og fáir vita heilt
syðra afskorið vestra. A fundinum var
einnig rifist mikið.
Framhald síðar.
Markari D.B.F.
^cir sera urrnu Haðiéi
<W
“L
G-o
Gn
tPAJÍ :
WAJf;
"o\jA
Ce
IhfrA
B.
u ^
HAe*, '1 éoe
-
LAEA ,
I^CneticiföOr
^ MtrAí°
WÍELS
'e .
h°'
y y
\ r
"1/
ABúE&Ð-
víuu gAEBAeoSSA
PKEMTUW :