Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.02.1973, Blaðsíða 12

Skólablaðið - 01.02.1973, Blaðsíða 12
Speki: Það er ekkert nýtt undir sólinni. Það er ekkert nýtt að blóðugar raddir kúgaðra nemenda brjótist fram í dagsljósið. Við erum fjarri því að vera ánægð. Við kunnum ekki að meta ástandið eins og það er. Okkur geðjast ekki að þeim þurrpumpulega sofandahætti, sem er stimpill á öllu því starfi sem fer fram I skólunum. Við erum ÖANÆGÐ með þursaháttinn, sem einkennir alla kennslu. Kennurum LEIÐIST augljóslega jafnt og okkur. En þeir telja það vera jafn sjálfsagt ogsaltið I grautnum, að allt sé í leiðindadróma. Sögukennslan er til dsmis steingerfingur í náms- skránni eins og hún er nú. Enn styðjast yfirvöld skólanna við barnaskólaspekina, að BELGJA okkur út með sagnfræðilegum STAÐREYNDUM, sem eru okkur viðsfjarri. Ymsu er slegið fram, en fáu eru gerð nokkur skil. Félagsfræðikennslan er eins og botnlaus fata, þar er MOKAÐ og MOKAÐ, en ALDREI fyllist sú fata. Þar leggjast á eitt fremur mis- lukkuð vinnubrögð nemenda, og V VÖNTUN þess, að kennarinn marki í upphafi svo skýra stefnu, að nem- endur viti hver tilgangurinn sé, og að hverju skuli STEFNA. Hvoru tveggja má um kenna. En það af- sakar EKKI NEITT. “Jyv i ^. óíbyljan Margar af deilum skólans þurfa að burðast með námsefni, sem er algjörlega UTAN VIÐ þau svið, sem NEMENDUR hafa sjálfir VALIÐ, SER. Hvað er verið að ÞRÆLA málá!deildum til að grafa sig í líffræði? Hvaða gagn hafa húmanistar af þvi að romsa upp úr sér nöfnum á sykrum ensimum, liffærum, æðum, vöðvum og guð má vita hvað? Tíminn, sem þessu námsefni er ætlaður er svo skammur,að kennslan er öll í HANDASKOLUN og nemendur komast ekki yfir að LÆRA nema örlitinn hluta allrar þessarar grautargerðar. Fyrir nú utan það, að SKILNINGUR er enginn. Nemendum hefur skilist á ýmsum KENNURUM, m.a. í líffræð- inni, að beir séu OANÆGÐIR með þessa námstilhögun. Þeir telja SLÆGAR undirtektir standa í beinu sambandi við HJARÆNULEGA SKIPU- LAGNINGU á námsefni og kennslu- tilhögun. Það mætti ætla að okkur væri ætlað að ljúka EMBÆTTISPRÖFI í hverri einustu grein á METTlMA... Svona er þessi STOFNUN. Svipuð daani má taka úr stærðfræðideildunum Þau eru trúlega litið betri. Þá eru það MÆTINGARNAR. Himinn og jörð ætla að hrynja ef vantar nokkurn mann i timana. Skólastjórinn vill herða agann. Meiri AGA. Svipunni er veifað og hún þýtur við eyrun á okkur. En þetta þyrfti skólastjórn að VITA: Það virðist tilhneiging kennaranna, að skipta sér sem minnst af mætingum hafi sett HNEFANN I BORÐIÐ. VA- MANNS KOPPI. Þetta skapar óvild nemenda í hennar garð. En hverju varðar skólastjornina un það? En það má núa henni þessu um nasir: Hnýsni þessi og kukl hafa litinn árangur borið. Nemendur LEIÐA HJA sér þetta kák, og láta sig EINU GILDA hvað taglhnýtingar þessara steinrunnu aðferða segja. Maður skyldi ætla, að það væri metnaður skólayfirvalda, að fylgjast með HUGARFARSBREYTINGUM ungs fólks, og koma til móts við þær. En það er nú eitthvað annað. NU eru horfur á þvi, að yfirvöld FRÆÐSLUMALA svo og SKÖLAYFIRVÖLD muni einangrast í enn ríkara mæli en verið hefur.. Sjái VALDHAFINN ekki hvert stefnir, horfir MUN VERR, en okkur nemendur óráða fyrir. Það er bezt að sleppa umræðu um félagslíf og félagsaðstöðu. En eitt má BENDA A: DEYFÐIN í félagslífinu er svo ÖSKAPLEG, að hún er að ganga að félögunum DAUÐUM. Nemendur er gersam- lega útkeyrðir að skóladeginum loknum, og ekki hvarflar að þeim að eyða þar meiri tíma en brynustu nauðsyn ber til ÞETTA ASTAND A RÖT SlNA AÐ REKJA TIL STEINRUNNINS SKÖLAKERFIS OG AFDANKAÐRA SKOÐANA YKKAR, VALDHAFAR. Þetta eru því miður ekki stóryrði Skólayfirvöldin og meiri hluti kennar- ana lita á sig SEM HEILAGAR KYR eða GOÐ A STALLI. Þar má enginn nálægt koma. Þið getið spurt hvaða nemanda sem er að þessu. Svörin munu verða á einn veg. Svörin munu dæma ykkur. Nemendum finnst sem hinn illi andi þessa drepandi gerræðis skríði með skuggum, jafnt a skólatima sem utan hans, gjótandi Utundan sér augunum, og bíði þess að stökkva á okkur og hefja tröllslega GANDREIÐ KUGUNAR- INNAR um hugi okkar. Þetta er dæmt til að tapast. I skólanum er ÖLGA. Gremjan i garð skólayfirvalda fer SIVAXANDI. Fátt virðist vera fyrir nemendur að taka til bragðs. Öll skoðanamyndun er BARIN NIÐUR, harðri hendi. En það er skemmra í að upp úr sjóði, en margan grunar. Þess eru þegar merki, að nemendur hjá nemendum. Margir láta eins og þeir VITI EKKI AF hinu ljóta KUGUNARTÆKI, sem a að geyma SYNDA- REGESTUR nemenda. En það er eitt einkenni skólayfirvaldanna, að þau eru löngum með nefið OFAN I HVERS U. nemend nýjar hugmyndir brjótast í gegn. starfsgleðin verður fararnesti á ný hið óvirkjaða afl skólaæskunnar mun sópa burtu aflóga "stjórnendum". þeir munu falla fyrir hugarfars- byltingunni miklu. hláturinn breytir ekki neinu. við höldum áfram að stefna að markmiðinu. "þið" sofið og étið kökur. reykið og talið í hring. en á meðan munum við markvisst vinna að því að brjota ykkur á bak aftur. hverjum verður þá skemmt? STOFNUNIN SKÖLI, ER ÞVINGUM I DAG. við erum einangruð frá venjulegu lífi. kennarnir lifa i eigin heimi, hræddir um að missa BRESTUR BYLTINGAR OKKAR lætur þegar í eyrum ykkar. Eða hafið bið ekki heyrt neitt, VALDHAFAR? Skilaboð til ykkar frá okkur: REYNIÐ AÐ SYNA VIÐLEITNI. SNUIÐ BAKI VIÐ YKKAR FJARSTÆÐUKENNDU UTÖPIU. SEINT ER BETRA EN ALDREI. Eg slæ þá botn i þessa lastastafi. En margir munu reiða penna sína og hefja máls á ný, eftir að ég set hér siðasta punktinn. aávarpió bpfjs Irnmi ? B þess komi? þú: það hlýtur að vera. ég: I alvöru. líttu á ástandið I dag, hvernig var það í gær? þú: það er satt, við verðum að svipta þeim úr sessi. VIÐ: ÞEIR SKULU FA GOLDINN RAUÐAN BELG FYRIR GRAAN. verður þetta skólablað ritskoðað? fær blaðið að birta greinar sem þessar óbrenglaðar, eða koma menn- irnir með strokleðrið og gömlu hugmyndafræðina? verður rektor og andlit sitt og sjálfsvirðingu er þeir kennurum skemmt þegar þeir lesa blanda við okkur geði. sumir gera það. það eru fyrstu svikararnir á stétt ykkar. ýannar að senn kemur að uppgjörinu. par kemur, að allir telja sér gleði og ánægju að sækja skóla; við skulum sameinast í því að grafa undan ráðamönnum skólanna. þú: nema þeir skipti um afstöðu. ég: en heldurðu í alvöru að til þetta? verði þeim skemmt, verður okkur skemmt. þá vitum við, að þeir fljóta sofandi að feigðarósi, verði þeim ekki skemmt, gleðjumst við. þá er von til þess að þeir TAKI SÖNSUM. lifi frjáls hugsun nemenda. lifi frelsið. BYLTIR.

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.