Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.02.1973, Blaðsíða 24

Skólablaðið - 01.02.1973, Blaðsíða 24
Þröstur: Þarna byrjar líka pólitlsk skifting. Halldóra: Já, hór áður fyrr var flokkaskifting með embættismönnum þjóðarinnaralltaf rakin til Menntaskól; Þröstur: Samkeppniskvötin sem alið hefur verið á frá í barnaskóla, þarna er hún fyrst sett inni þjóðfelagslegt sam- hengi. Menn fara að klifra upp þjóð- felagsstigann og sjá eitthvert tak- mark i þjóðfelaginu og byrja því að klifra upp, þéttá áiSersbakiéga við karlmenn, byrja að klifra upp stigann i felagslifinu, með það svo fyrir augum að nota það sem stökkpall upp í Háskóla og þaðan í þjóðfelagið., Guðmundur: Eg veit ekki að hve miklu leyti þetta er meðvitað. Þar sem eg var í mennta- skóla, á Akureyri, þá var mjög mikið atriði,ef maður haf ði ekki nein plön, að pá væri allavega tryggara að hafa stúdentspróf; þá gæti maður allt. Þröstur: Þarna byrjar það sem er mikilvægast, það er sundurgreiningin milli kynjanna Aður hefur þetta verið skyldunám, sem allir fara í gegnum, nokkurs konar þjóðfelagsleg kvöð, sem allir verða að sinna. En þegar þau fara í menntaskólanám, þá eru hlutverkin sem ætlast er áf nemendunum, þá eru þau orðin tvö. Halldóra: Karlmennirnir fara þarna upp til að taka þátt í atvinnulífinu. og komast í efri lög þjóðfelagsins. Þröstur: Kvenfólkið fer þarna inn til að verða kvalifiserað sem fallegar konur borgaranna. Guðmundur: Já, til að komast i efri lögin þannig. SYMP osirn. orðið alveg meðvitað, og þá er stefnt markvisst að ákveðnum lífsstandard. Páll: Hvaða meðul notar konan til að ná sér í mann? Halldóra: það er sexapíllinn. Það er alveg ákveðin framkoma á hverjum tíma. Konur ættu að vera mun meira byltingarafl, en karlar sem eru svona miklir þrælar kerfisins, en þær eru bara í svo sterkum fjöfcrum þessarar framkomu sem ætlast er til af þeim. Þröstur: TiX að hópur geti verið byltingarafl, þá verður hann að finna til sameigin- legra hagsmuna. Það er unnið gegn því með konuna ..... cq Þröstur: Það er ekki nema óbeint, það er bara í gegnum mennina. Halldóra: Þær ætla sér aldrei útí atvinnulífið. Guðmundur: Það er mjög langt síðan það var farið að kalla sumar deildir Háskólans biðsali hjónabandsins. Þetta vita menntaskólanemendur ekkert um, því stúlkum í menntaskóla, þeim er það bókstaflega ekki meðvitað að þær séu að leita sér að karlmanni. Halldóra: Þær eru líka að kvalifisera sig til að geta menntað menntabörn. Guðmundur: Upphaflega fer kvenmaðurinn i mennta- ' skóia vegna þess að foreldrannir henni,þangað og foreldrarnir hugsa nátturlega fyrir velferð stúlk- unnar, hún lendi nú ekki i einhverju verkamannsskrímslinu . Fái ekki drykk- felldan verkanwnn, heldur verkfræðing eða helst lækni. Það má geta þess hér í tilefni af þessu, að það þykir viðburður á stjarnfræðilegan mæli- kvarða, ef manni tekst að ljúka læknisnámi ógiftum. Eg held að það sé bara síðast '65 að manni tókst að ljúka prófi ógiftum. Þröstur: Við getum sagt að þetta sé það sem umhverfið ætlar þeim og það verður síðar þeirra meðvitaða takmark. Guðmundur: Þegar komið er í Háskólann er þetta Halldóra: Konan er í neikvæðri samkeppni innbyrði|S eins og kúgaður raci, ef húngerir ekki uppreisn er hún að leita að accept- eringu kúgarans. Guðmundur: Þetta kemur þannig fram hjá því kven- fólki sem er forljótt og veit af því, Þær steypa sér útí taugaveiklunarkennda námsæðiskrampa og ætla sér að höfða til karlmanna á þann hátt, á þessu intellektúel plani. Þetta gengur oft. Nú ef það gengur'ekki og kvenmaðurinn sér í gegn um plottið, þá verða þetta oft ágætiskonur. Þröstur: Þarna eiga þær sér líka mótpart meðal karlmanna. Þar er samsvörun og dæmið gengur upp. Þeir sem ná sér ekki í einhverja úr mennta eða háskóla, þeir fá hjúkrunarkonurnar á Garðsböllunum. Guðmundur: Einhverja af þessum svokölluðu stúdentamellum. Guðmundur: Ekki nema í algerum undantekningum. Halldóra: því þá eiga þær á hættu að missa sexapílinn. Þröstur: Um leið og karlmenn fara að rækta intelligens og virðulegt útlit, þá fara þær að rækta með sér sexapílinn. Halldóra: Sem er visst gildismat karimanna á kvenfólki. Það á að uppfylla einhverja vissa mynd og ef það bregður útaf vanabundinni hegðun, það er nefnilega 4 sexapílsfjötrum, þá missir það sexapílinn sem gefur því öryggið. Þröstur: Ef þær fara útí felagslífið, fara að streða þar, keppa við karlmanninn, þá missa þær sexapílinn í allflestum tilfellum. Páll: Þær fá á sig ákveðinn stimpil, van- þóknunarstimpil. Halldóra: Þó geta sumar verið að leika sér eitthsað i felagslífinu innan vissra takmarka. Þröstur: Ef litið er á embættismannatal,þá má sjá að kvenfólk er í vissum stöðum Þær eru aldrei i toppstöðum, heldur í stöðum eins og leiknefnd og bók^ menntadeild, svona í listageira skólalifsins. Páll: Og scríbu. Halldóra: Skrifari, vélritunarstúlka, þjónn Inspectors, það er ekki virðuleg staða. Skrifa niður orð og gjörðir intelligensins. Guðmundur: Þó held eg að ef maður skoðar mengi kvennemenda annarsvegar og mengi karl- nemenda hinsvegar, þá hugsa eg að það sé hlutfallslega meira af kven- fólki sem fer á þessa menntabraut af einskærum áhuga á námi, en karlar Mér hefur einhvern veginn fundizt það, eg hef engar tölur í höndunum um þetta. Halldóra: Það er alveg eins og hjá mönnum, við erum ekki að tala um það að enginn hafi áhuga á að læra. Það er bara 49.

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.