Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.02.1973, Blaðsíða 16

Skólablaðið - 01.02.1973, Blaðsíða 16
sp: Hvað finnst þér að móðerni ? sv: Ekkert J Eg vil bara faðerni líka. Mér finnst að bæði faðir og móðir ættu að hugsa um börnin. Það er leitt, að margir karlmenn enn séu fjarri heimilinu meiri hluta dagsins og sjái sjaldnast börnin sín nema þegar þau eru leidd fram að kvöldi þvegin og /purninqar ob svör. , þæg, til að bjóða góða nótt. Eaðirinn myndi þekkja börnin sln betur ef hann fengi tækifæri til að sjá þau undir öllum kringum- stæðum -bæði góðum og slaamum- Móðirin myndi llka hafa meiri ánægju af börnum slrium, þvl að ef hún væri ekki ein um ábyrgðina á þeim, myndi henni ekki þykja þau eins mikil byrði. Það er mjðg erfitt að koma á samábyrgð I kjarnafjölskyldunni og er það ein af ástæðunum fyrir áhuga á hóp- fjölskyldum, sp: Heldurðu ekki, að sumum konum llki einfaldlega að vera og hugsa um börnin ? Eg meina, sumar konur myndu ekki vera hamingjusamar ef þær gerðu eitthvað annað. sv: Jú,ég held að sumar konur vii vilji þetta. Og ég held að nokkra karlmenn langi virkilega til þess llka. Það myndu örugglega fleiri karlmenn sitja heima og sjá um börn sln, ef þjóðfélagið almennt samþykkti það. Vandamálið er, að ef kona vill ekki sitja heima og eignast börn, er þvl haldið fram að hún sé ekki sönn kona, sömu- leiðis er maður sem vill sitja Sheima, varla sannur karlmaður. Eg held að fólk aatti að þróa hæfi- leika sína og velja lífsstarf sitt á grundvelli getu og áhuga, en ekki á grundvelli kyns síns. I>að er næstum jafn fráleitt og að halda þvl fram að dökkhært fólk ætti að vinna þjónustustörf, á meðan ljós- hært fólk ynni við sérhæfð störf, hvaða hæfileika hver einstaklingur hefði að bera. sp: I Biblíunni stendur "maðurinn var skapaður til- dýrðar drottni og konan til dýrðar manninum" Hvað finnst þér um það ? sv: Það sýnir án efa að karlmenn rituðu Biblíuna, en ekki konur. sp: Hvar heldur þú að staður kon- unnar sé ef hann er ekki á heimil- inu ? sv: Mér finnst að hvorki konur né karlmenn eigi að hafa neinn sér- stakan stað. hver og einn ætti að finna sér stöðu I samræmi við á- huga og getu. Kynið eitt ætti ekki að dæma manneskju á einn eða annan"stað"í þjóðfélaginuj sp: Hvað er rangt við að vera kven- leg ? sv: Kvenleiki og karlmennska eru goðsagnir. "Kvenlegt" á að þýða allt sem er ljúft, viðkvæmt og hjálparvana og I "karlmannlegt" á að felast eiginleikar eins og harka, styrkur og úrræði. I raun og veru hafa allir bæði karlar og konur þetta til að bera. sp: Því eru svo fáir karlmenn I kvenfrelsishreyfingunni ? sv: Af þvl sem ég bezt veit, hefur það aldrei atvikast að kúgari hafi tekið þátt I þvl að frelsa hina kúguðu. Ef við konur eigum að öðlast frelsi, verðum við að frelsa okkur sjálfar. eveiyn Þvl er enn haldið á lofti að konan sé óæðri manninum frá náttúrunnar hendi og þar með sé hún óhæf til að taka þátt I ábyrgðarmeiri störfu störfum þjóðfélagsins. En það er ekki náttúran, sem kom þessu þannig fyrir, heldur er það stétta- þjóðfélagið, sem hamrar slfellt á móðurtilfinningunni og gerir hana að einhverju óskiljanlegu fyrir^ bæri. Til þess að konur geti sætt sig við stöðu slna sem annars flo flokks borgarar, eru mæður helgar, krýndar geislabaugi og blessaðar með sérstökum eðlishvötum, til- finningum óg vizku ofar skilningi karlmanna. Evelyn Reed Engels sagðf um fjölskyldu nltjándu aldar:"Karlmaður er kapltalistinn; kona vinnuaflið, verksmiðjan; börn- in eru vinnan. Hjónabandið I dag er aðeins aðferð til að ná I ódýrt vinnuafl, — það er einfaldlega sparnaður. Glorla Steinem, 197o. Margar ykkar hafa eflaust orðið fyrir þvl að vera neitað um atvinnu á þeim grundvelli að vinnan væri einungis fyrir karlmenn, þið væruð alltof veikbyggðar og afllitlar. Ætlið þið svo að láta segja ykkur að þið séuð fæddar veikbyggðari en karlmenn ? Hafið þið nokkurn tlma fengið áð^þjálfa og styrkja vöðva ykkar ? Allar götur frá barnsaldri hefur ykkur verið meinað að að breyta ykkur. "Það er stráka- legt að leika fótbolta, hjálpaðu heldur mömmu að þvo diskana." "Stelpur eiga ekki að leika sér með blla, þær eiga að fara I mömmuleik með dúkkurnar sínar." "Það er ókvenlegt að slást, þú átt að vera bllð og góð stúlka." Leikfimin gerir ekki einu sinni ráð fyrir að þið þurfið að nota kraftana. "Einn, tveir, hopp, liðugur, mjúkar, stúlkur." (0, ég sé hana Frlðu fyrir mér.) Systur, sjáið til þess að næsta kynslóð kvenna verði ekki gerð að veikbyggðum, hjálparvana aumingjum, sýnið fram á að konan geti verið jafnsterk karlmanninum á öllum sviðum, ef hún einungis fær að þróast óhindrað. Olga Sverrisdóttir um einlífi- Ein hindrunin á leiðinni til frelsis er gerfikynþörfin. Henni verður að ryðja úr vegi, annars er krafa okkar kvenna um frelsi dauðadæmd. Við horfum upp á það, að stúlkur sem hafa frelsað hug sinn algjörlega og sjá glöggt un ondirokun slnaj þær reyna viljandi og næstum móðursýkis- lega að gera sig aðlaðandi fyrir karlmenn, sem þær bera enga virðingu fyrir, hata þá jafnvel, allt vegna "kynferðis- legra og tilfinningalegra þarfa." S'éx er ekki llfsnauðsyn, eins- og að borða. Sumt fólk hefur aldrei neitt af þvl að segja allt sitt líf, þar af hlýlegt og hamingjusamt fólk. Það eru aðeins kerlingabækur, að án þess verði fólk biturt og skorpið. Fordómarnir um ei- lífðarmeydóm eru reknir undan rifjum karlmanna, því að þeirra áliti hefur konan ein- ungis líffræðilegu hlutverki að gegna I lífinu. Nú ef hún gegnir ekki þessu hlutverki er hún bara beygluð og skrlt- in. Hins vegar eru hreinir sveinar aldrei fordæmdir. Þeir eru I verstu tilfellum sakaðir um kynhræðslu eða sjálfselsku, aldrei álitnir neitt afbrigðilegir. Aðeins einbllnt á kostina I llfi þeirra."Hann helgaði líf sitt starfinu, hafði engan tlma eða orku til að standa ‘I krefjandi sambandi við konu" Skæruliðar rlða ekki. Þeir borða þegar þeir geta en þeir rlða ekki. Þeir þurfa að vlnna áríðandi störf, sem krefjast allrar llkamsorku þeirra. Þeir sleppa sexi því það er óhentugt, tlmafrekt, orkufrekt og algjört auka- atriði. Þrá okkar eftir sexi er skipu- lögð og alið á henni til þess að selja neyzluvörur. Sex er valdatæki kvenna (það eina, sem þær hafa). Það er aftur öfugt valdataaki fyrir karl- menn og beitt á konur, þvl að kynferðislöngun þeirra beinist til karlmanna. Við lika þýtt af olqu verðvun að gera okkur þáð:. ljóst, að kynþörfin er ekki svo mikilvæg, það hefur verið gert allt of mikið úr henni og hún hreinlega mis- skilin. Venjulega er það, sem fólk heldur vera kynþörf I raun og veru löngun til atlota, viðurkenningar eða ástar, löngun til að sigra, auðmýkja eða öðlast vald, eða bara löngun til sams skipta við fólk. Vlð verðum að gera okkur ljóst, að við þurfum ekki á sexi að halda, að einllfi er ekkert til að til að hræðast, heldur er það mjög æskilegt ástand og I mörgum tilfellum æskllegt fyrir sex. Finnst þér ékki I rauninni viðbjóðslegt að leggjast með karlmanni, sem fyrirlltur þig og hræðist og vill bæla þig niður ! Er það ekki viðurstyggilegt að rlða I svo virðingarsnauðu andrúms- lofti ? En þvl þá að vera að þvl ? Þú þarfnast þess ekki. Kynorka er aðeins lífskraftur og þáð er eins hægt að eyða þeim krafti I skemmtileg og áhugavekjandi störf. Ast, alúð og viðurkenningu er alveg eins hægt að saakja til félaga, sem elska þig fyrir það, sem þú ert en ekki vegn vegna þess, hve sæt, kynæs- andi og undanlátsöm þú ert. Sú ást er einlægnari og hrein- skilnari, þar ert þú alla vega manneskja, en ekki hlutur, þú ert virk, en ekki hlutlaus. Nú ef þú verður fyrir kynörv- andi áhrifum, geturðíi allt eins reynt sjálfsfróun. Hér er ekki verið .að segja fólki að lifa einllfi, heldur viðurkenna það sem sæmandi valkost, betri kost heldur en hið niðurlægjandi kyn-, ferðislega samband karls og konu. En þvl aðelns munum við öðlast frelsi ef við viðurkennum með sjálfum okkur tllhugsunlna um einlífi. 41.

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.