Morgunblaðið - 05.07.2021, Side 10

Morgunblaðið - 05.07.2021, Side 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 2021 Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ÿ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ÿ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ÿ alnabaer.is Við erum sérhæfð í gluggatjöldum alnabaer.is SCREEN RÚLLUGARDÍNUR Hólmfríður María Ragnhildardóttir hmr@mbl.is „Stemningin sem var þarna var sturluð. Því fylgja náttúrulega væntingar en þetta verður bara skemmtileg áskorun,“ segir plötusnúðurinn og stemnings- maðurinn Jónas Óli Jónasson, einnig þekktur sem DJ Jay-O. Hann stefnir nú á að opna skemmtistað við Hverfisgötu í Reykjavík undir hinu rótgróna vörumerki b5. Vill hann end- urvekja stemninguna sem var til staðar á gamla b5 sem var áður á Bankastræti 5. Þeim stað var lokað á síðasta ári og þar réðu afleiðingar Covid-19-heimsfar- aldursins. b5 er skráð vörumerki hjá Einkaleyfastofu en Jónas er einn af fyrri eigendum upp- runalega skemmtistaðarins. Hann er sá eini úr þeim hópi sem stendur að opnun nýja staðarins. Jónas segir rekstr- arhugmyndina tiltölulega ný- komna fram en ekki hafi verið áform um að fara aftur í rekstur um leið og b5 á Bankastræti var lokað. Hugmyndin um opnunina kviknaði í vetur þegar allt var lokað niðri í bæ. Hafi þá kitlað að halda vörumerkinu á lífi. Opnað á nýjum stað um miðjan ágústmánuð Hinn nýi b5 verður þar sem Hverfisbarinn var áður, það er á horni Smiðjustígs og Hverf- isgötu. Framkvæmdir standa nú yfir í nýja húsnæðinu en Jónas vonast til að opna um miðjan ágúst. Án þess að vilja gefa of mikið upp varðandi útfærslur á staðnum segir Jónas að gott sé að breyta töluvert til. Ekki sé nóg að mála bara veggi. Aðspurður segir Jónas ekki skjóta skökku við að staður sem dragi nafn sitt af fyrri staðsetn- ingu haldi sama nafni á Hverf- isgötunni. Telur hann b5 vera sterkt vörumerki sem standi al- veg út af fyrir sig, óháð stað- setningu. Jónas bendir á að ekki sé óalgengt að veitingastaðir eða verslanir séu færðar milli húsa og segir hann enga ástæðu fyrir því að hið sama megi ekki gilda um skemmtistaði. Góð tilfinning Jónas hefur lengi verið við- riðinn viðburðabransann. Hann starfar nú sem plötusnúður og kemur einnig að rekstri smáfor- ritsins Stubbs sem sér um sölu miða á íþróttaviðburði en Jónas stofnaði það ásamt félögum sín- um. „Ég hef alltaf verið mikið í kringum viðburði og haft áhuga á hinu og þessu. Það má alveg segja að ég hafi góða tilfinningu fyrir þessu. Ég veit hvernig er að koma fólki í stemningu,“ til- tekur Jónas sem segist hafa mikla trú á sjálfum sér og opnun nýja skemmtistaðarins. Telur hann upprunalega b5 hafa haft mikið til brunns að bera og því synd að stemningin sem fylgdi honum skyldi fara í vaskinn vegna heimsfaraldursins. Mun hann reyna að endurvekja það andrúmsloft á nýjum stað. „Ég skynja alla vega að fólk er mjög jákvætt yfir þessu. Fólk sem veit hvaða stemningu maður hefur fram að færa.“ Fólk getur farið fyrr út á lífið Spurður út í umræðuna sem komið hefur upp um hvort loka eigi skemmtistöðum fyrr á næt- urnar en nú er raunin segist Jónas telja að það ætti í raun að vera í höndum þeirra sem reka staðina hve lengi þeir hafi opið. „Ég held að það hafi sýnt sig núna í Covid að fólk getur al- veg farið fyrr út á lífið. Engin ástæða fyrir því að vera með boð og bönn. Það eru líka ekkert allir staðir sem vilja vera með opið til hálffimm á nóttunni. Margir virka betur ef það er bara opið til eitt til dæmis. Sjálf- um finnst mér líklegt að nýi b5 muni nýta allan þann afgreiðslu- tíma sem býðst en um slíkt hefur þó engin ákvörðun verið tekin enn,“ segir Jónas Óli Jónasson að síðustu. Ætlar að opna b5 á nýjum stað í miðborginni Morgunblaðið/Unnur Karen DJ „Veit hvernig er að koma fólki í stemningu,“ segir Jónas Óli, sem hefur lengi verið viðloðandi skemmtanabransann í Reykjavík. Kitlaði að halda vörumerkinu á lífi „Myndirnar eru ómetanlegar og segja mikla sögu. Sjónarhornið er líka svo listrænt, Kristni tókst til dæmis að kalla fram fegurð þar sem við sjáum barnaleikföng í rústum brunninna húsa. Slíkt endurspeglar vel andstæðurnar í þessum hrikalegu náttúruhamförum, segir Kristín Jó- hannsdóttir, forstöðumaður Eld- heima í Vest- mannaeyjum. Þangað barst nýlega stórt safn ljósmynda sem Kristinn Helgi Benediktsson (1948-2012) tók fyrir Morg- unblaðið í Heima- eyjargosinu árið 1973. Nokkrar myndanna voru birtar í Newsweek og fleiri fjöl- miðlum Dóttir Kristins, Hildur Sigrún, kom með myndasafnið til Eyja og því var veitt formleg viðtaka á Gos- lokahátíð í Eyjum um helgina. Kristinn Helgi Benediktsson var ljósmyndari á Morgunblaðinu 1970- 1975 og fréttaritari í Grindavík lengi eftir það. Fjallaði mjög mikið um sjávarútvegsmál, bæði í greinum og myndum. Hann var á vettvangi fyrir Morgunblaðið meðan á Eyjagosinu stóð og tók þá þúsundir ljósmynda, sem allar hafa varðveist á filmuformi. Kristín Jóhannsdóttir segir verkefnin næstu missera að skanna filmurnar og gera fljótlega hluta myndanna að- gengilegar á vefsetrinu eldheimar.is. Dýrmæt viðbót „Myndirnar eru dýrmæt viðbót við myndasafn okkar úr eldgosinu. Ég er spennt fyrir því að geta nú farið að skoða allt sem Kristinn lagði til sögu Heimaeyjargossins. Stóra verkefnið er að koma þessum myndum á netið, því nú eru ekki nema eitt og hálft ár í 50 ára afmæli Eyjagossins og 60 ár frá upphafi Surtseyjarelda sem stóðu í um fjögur ár,“ segir Kristín. sbs@mbl.is Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson Eldheimar Kristín Jóhannsdóttir forstöðumaður og Hildur Sigrún Krist- insdóttir, til vinstri, þegar hún afhenti einstakt myndasafn föður síns. Gosmyndir Kristins eru nú komnar í Eldheima - Myndaði fyrir Morgunblaðið í Eyjum - Listræn fegurð Morgunblaðið/Kristin Benediktsson Gosmynd Elín Pálmadóttir, blaðamaður Morgunblaðsins, í Eyjum árið 1973. Saman sinntu þau Kristinn fréttaöflun á vettvangi þessara hrikalegu atburða. Kristinn H. Benediktsson - Jónas Óli Jónasson er fæddur árið 1986 og starfar nú sem plötusnúður og forrit- ari. Hann lauk stúdentsprófi úr Verzlunarskóla Íslands og útskrifaðist með B.Sc.-gráðu í fjármálaverkfræði úr Háskól- anum í Reykjavík árið 2009. - Nýlega stofnaði Jónas Óli smáforritið Stubb og sér um rekstur þess ásamt tveimur félögum sínum. Hefur jafn- framt mikið starfað á vett- vangi knattspyrnudeildar KR. Hver er hann? Morgunblaðið/Freyja Gylfa Skemmtanalíf Dansinn dunar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.