Morgunblaðið - 05.07.2021, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 2021
Ljósmyndakeppni
mbl.is
Vilt þú vinna farsíma frá Samsung eða
glæsilegan ferðavinning frá Icelandair?
Allar myndir sem sendar eru inn birtast á mbl.is og þemað er flug.
Það er líka hægt að taka þátt á Instagrammeð myllumerkinu #mblflug
1.-2. Sæti Samsung Galaxy s21+
3. Sæti 100.000 kr. gjafakort frá Icelandair
„FINNST ÞÉR ÞETTA FALLEGT? LOFAR
KRÖKKUM ALLS KONAR DÓTI SEM
FORELDRARNIR HAFA EKKI EFNI Á.“
„LILJA, KÍKTU HVORT ÞAÐ ER EITTHVAÐ Í
FRÉTTUM UM ÞETTA.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að muna.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
NÚ ER
DESEMBER …
NOTIÐ VIÐEIGANDI
AUKAHLUTI
AÐ SJÁ ÞIG! ÞAÐ VANTAR ALLT
FRUMKVÆÐI Í ÞIG!
RÉTT HJÁ
ÞÉR!
ÞAÐ ER TÍMABÆRT AÐ FARA Á
FÆTUROG SÆKJA KODDA!
Fjölskylda
Eiginkona Sveins er Gerður K.
Guðnadóttir, fv. flugfreyja og banka-
starfsmaður. Áður átti Sveinn son-
inn Frederik Lönstad, f. 1967.
Sveinn og Gerður eiga soninn
Hallgrím Svein, f. 12.5. 1972, bú-
fræðikandídat og tölvunarfræðing,
vinnur hjá Advania. Hann er kvænt-
ur Helgu Jensínu Svavarsdóttur, f.
31.10. 1973, M.Ed., skólastjóra
Grunnskóla Borgarfjarðar. Börn
þeirra eru Guðrún Karítas, f. 2002;
Sveinn Svavar, f. 2006 og Kristján
Karl, f. 2008. Fósturdóttir er Rósa
Björk Jónsdóttir, f. 18.6.1981, hönn-
uður og kynningarfulltrúi LBHÍ.
Sambýlismaður hennar er Kevin
Martin, f. 19.10. 1980, fornleifafræð-
ingur í doktorsnámi við HÍ. Sonur
þeirra er Kiljan Kormákur, f. 2014.
Foreldrar Sveins voru Hallgrímur
Sv. Sveinsson, bóndi á Hálsi í Eyr-
arsveit, síðast búsettur í Reykjavík,
og Guðríður Stefanía Sigurðardóttir,
póst- og símastjóri í Grafarnesi, síð-
ast búsett í Reykjavík. Þau skildu.
Sveinn
Hallgrímsson
Þórkatla Jóhannsdóttir
húsfreyja á Dalli, Fróðársókn,Snæf.
Pétur Frímann Guðmundsson
bóndi á Dalli, Fróðársókn, Snæf.
Ingibjörg Pétursdóttir
húsfreyja á Suður-Bár í
Eyrarsveit, Snæf. Síðast búsett
í Borgarnesi og Rvk.
Sigurður Eggertsson
skipstjóri og bóndi á Suður-Bár
í Eyrarsveit, Snæf.
Guðríður Stefanía
Sigurðardóttir
póst- og símastjóri í
Eyrarsveit, síðast búsett í
Reykjavík
Jóhanna Guðmundsdóttir
vinnukona á Móbergi og
Kirkjuhvammi, Saurb.sókn og
var á Suður-Bár í Eyrarsveit
Eggert Eggertsson
bóndi á Miðbæ og Hvallátrum,
Breiðavíkursókn, Barð.
Þorbjörg Kjartansdóttir
húsfreyja í Miðgörðum,
Kolbeinsstaðasókn, Hnapp.
Eggert Eggertsson
bóndi í Miðgörðum,
Kolbeinsstaðasókn, Hnapp.
Guðný Anna Eggertsdóttir
húsfreyja á Hálsi,
Setbergssókn, Snæf.
Sveinn Sveinsson
búfræðingur frá Ólafs-
dalsskóla, bóndi og kennari á
Hálsi, Setbergssókn, Snæf.
Kristín Eggertsdóttir
húsfreyja á Örlygsstöðum, síðar
á Hálsi, Setbergssókn, Snæf.
Sveinn Jónsson
bóndi á Örlygsstöðum og síðar
Hálsi, Setbergssókn, Snæf.
Drukknaði í Kirkjufellsá.
Úr frændgarði Sveins Hallgrímssonar
Hallgrímur Sveinn Sveinsson
bóndi á Hálsi í Eyrarsveit,
síðast búsettur í Reykjavík
Á laugardag fyrir viku rúmri
sendi Hjálmar Jónsson mér
tölvupóst: „Ég ók norður í Húna-
vatnssýslu í dag. Á leiðinni yfir Víði-
dalinn mundi ég vísu eftir afa minn,
Kristin Bjarnason frá Ási í Vatns-
dal. Hann bjó um tíma á Gafli í Víði-
dal. Á þeim árum orti hann m.a.:
Léttum glaumi af Litluhlíð
liggur straumabandið.
Bergá saumar sína tíð
silfurtaum í landið.
Svo ók ég þvert yfir Vatnsdalinn
og þá rifjaðist upp vísa eftir móður-
bróður minn, Ásgrím Kristinsson
frá Ásbrekku, ort eftir sauðburð og
rétt áður en fé var sleppt á afrétt-
arlöndin:
Græn eru túnin, gripum stráð,
glit á brúnu lyngi.
Unaðsrún er ennþá skráð
yfir Húnaþingi.
Um daginn rifjaðist upp vísa eftir
Kristin afa:
Vægir rosa og veðraþyt,
vermist flos á steini.
Gegnum mosans gróðurlit
Guð er að brosa í leyni.“
Þá sendi Helgi R. Einarsson mér
tölvupóst með athugasemdinni:
„Það er ekki öll vitleysan eins, sem
betur fer“:
Heilabrot
Í upphafi brotið var blað
er blágresið leitaði að
betri tíð
í Barmahlíð.
En brotið, hvað varð um það?
Stælt og stolið
Vetur, sumar, vor og haust
vakna sæll og glaður.
Allt fram streymir endalaust
enda gæfumaður.
Sigrún Haraldsdóttir orti þessa
vísu um hestinn sinn, hann Tinna:
Ör í sinn eykurinn,
eyðir lyndistrega,
töltið spinna Tinna finn
títt og yndislega.
Frú Ásthildur Thorsteinsson
bauð Ólínu Andrésdóttur að hlýða á
Guðmund skáld Friðjónsson lesa
upp ljóð eftir sig:
Eigirðu kost á ilmgresi
úr andans nægta hlöðu
illt er að blanda útheyi
innan um slíka töðu.
Ísleifur Gíslason á Sauðárkróki
orti:
Sóttu tveir um sálina
sjúklingsins með „takið“.
Fjandinn þreif í fæturna,
faðirinn hélt í bakið.
Leikurinn þannig lengi stóð,
litlar fengust náðir.
En – hvorugum sýndist sálin góð
svo þeir – slepptu báðir.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Góðar vísur gamlar og nýjar