Morgunblaðið - 05.07.2021, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 2021
5. júlí 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 124.59
Sterlingspund 171.26
Kanadadalur 100.34
Dönsk króna 19.809
Norsk króna 14.391
Sænsk króna 14.501
Svissn. franki 134.58
Japanskt jen 1.118
SDR 177.13
Evra 147.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 177.9371
Hrávöruverð
Gull 1783.5 ($/únsa)
Ál 2481.0 ($/tonn) LME
Hráolía 74.67 ($/fatið) Brent
« Bandarísk
stjórnvöld birtu á
föstudag mæl-
ingar sem sýna
að um 850.000
ný störf urðu til
á bandarískum
vinnumarkaði í
júnímánuði. Er
það nokkuð um-
fram spár sér-
fræðinga sem
væntu 720.000 nýrra starfa og
langt umfram þá fjölgun sem varð í
maí þegar um 583.000 störf bætt-
ust við.
Nýju vinnumarkaðstölurnar féllu í
kramið hjá fjárfestum og hækkuðu
bandarískar hlutabréfavísitölur við
tíðindin. Nam vikuhækkun S&P 500
1,7% og hækkun Nasdaq-vísitöl-
unnar mældist 2%.
Reuters bendir á að viðsnúning-
urinn gangi misvel í ólíkum greinum
atvinnulífsins. Er vöxturinn hvað
hraðastur í afþreyingar- og ferða-
þjónustugeira en þar er fjöldi starfa
samt ekki nema 87,1% af því sem
var áður en áhrifa kórónuveirufarald-
ursins fór að gæta. Til samanburðar
hefur fjármálageirinn náð um 99,2%
af fyrri styrk og í byggingageira
mælist hlutfallið 96,9%. ai@mbl.is
Batamerki á bandarísk-
um vinnumarkaði
Vöntun Víða í BNA
skortir starfsfólk.
STUTT
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Oft er launþegum vandi á höndum
þegar kemur að því að skilja rétt-
indi sín og ganga úr skugga um að
engin mistök hafi verið gerð við út-
reikning launa. Íslenska hugbún-
aðarfyrirtækið UX Design hefur
bætt nýrri virkni í tímaskráninga-
kerfi sitt Curio
Time sem ætti
að gagnast
launafólki og
stórauka
gegnsæi um
kaup og kjör.
Lausnin sem UX
Design býður
upp á nær m.a.
yfir aðildarfélög
Starfsgreina-
sambandsins,
Samiðn, VM, Byggiðn, Matvís,
Rafís, Fit og Félag hársnyrti-
sveina.
Baldvin Baldvinsson er fram-
kvæmdastjóri UX Design en fyrir-
tækið hefur um langt skeið þróað
tíma- og viðverukerfi fyrir vinnu-
staði auk hugbúnaðar til að halda
t.d. utan um verkefnastjórnun,
verkbókhald og sölu. Baldvin segir
starfsmannastjórum og launa-
fulltrúum oft mikill vandi á hönd-
um þegar kemur að því að reikna
út laun enda kjarasamningar flókn-
ir og ótal sérreglur sem eiga við
t.d. um hvernig starfsaldur og
vinnutími hefur áhrif á laun. „Það
er ekki óalgengt að hjá fyrirtæki
þar sem starfa um hundrað manns
þurfi að greiða laun eftir tíu eða
fleiri ólíkum kjarasamningum, og
brýnt að farið sé eftir settum
reglum,“ segir Baldvin. „Það getur
t.d. verið breytilegt eftir stéttar-
félagi hvernig yfirvinna og næt-
urvinna er mæld. Þá eru oft sér-
ákvæði sem t.d. gera greinarmun á
starfsfólki fram til 22 ára aldurs, og
vitaskuld kveðið á um samnings-
bundnar hækkanir eftir t.d. þriggja
og sex mánaða starfsaldur, og þar
fram eftir götunum. Í ofanálag þarf
að uppfæra launatöflur og hækka
upphæðir með reglulegu millibili í
samræmi við það sem samið var um
í síðustu kjarasamningum.“
Reiknar út frá kjarasamn-
ingum 39 stéttarfélaga
Í samvinnu við Stéttarfélög iðn-
aðarmanna og Starfsgreinasam-
bandið hefur UX Design þróað
auka virkni í tímastjórnunarkerfinu
Curio App þannig að launþeginn
getur núna skráð þar inn vinnu-
stundir sínar og notað forritið til að
reikna laun sín út með töluverðri
nákvæmni – löngu áður en launa-
seðillinn berst.
„Notandinn skráir inn ákveðnar
grunnupplýsingar hjá því stéttar-
félagi sem hefur gert samning um
notkun á Curio App fyrir fé-
lagsmenn sína og út frá þeim upp-
lýsingum greinir forritið og reiknar
rétt laun miðað við kjarasamning,
og sundurliðar líka hinar ýmsu
greiðslur og gjöld sem eru tekin af
launum starfsmanns ellegar greidd
af vinnuveitanda,“ útskýrir Baldvin,
en forritið hefur að geyma kjara-
samningsforsendur um 100.000 fé-
lagsmanna hjá 39 íslenskum stétt-
arfélögum.
Baldvin bendir á að það geti
hjálpað launþegum mikið að skilja
betur hvar þeir standa og jafnvel
sjá frá degi til dags hvernig vænt-
anleg útborgun um næstu mánaða-
mót fer hækkandi í takt við fjölda
vinnustunda. Nota má forritið til að
skrá vinnustundir daglega og reikn-
ar forritið út launin jafnóðum auk
þess að útbúa ítarlegan launa-
útreikning í lok mánaðarins.
„Það gildir um mörg fyrirtæki að
þau borga laun sem eru hærri en
taxtar kjarasamninga og getur þá
forrit okkar virkað hvetjandi og
aukið ánægju starfsfólks með því að
bera útborguð laun saman við það
sem það myndi ella fá ef lágmarki
kjarasamninga væri fylgt,“ segir
Baldvin. „Aukið upplýsingaflæði er
líka alltaf af hinu góða og kemur í
veg fyrir misskilning. Ef í ljós kem-
ur misræmi milli þess sem fólk fær
útborgað og þess sem það átti von á
getur forritið hjálpað til að komast
að rót vandans, spara bæði starfs-
manni og launafulltrúa umstang og
vonandi komið í veg fyrir að vísa
þurfi deilumáli til stéttarfélags.“
Hjálpar fólki að skilja launin
Morgunblaðið/Eggert
Í lausu lofti Kjarasamningar eru flókin skjöl og ekki alltaf auðvelt fyrir
fólk að átta sig á ef villa hefur verið gerð við útreikning launa.
- Forrit UX Design á að auka gagnsæi og sýna launþegum hvar þeir standa
Baldvin
Baldvinsson
Kínverska netöryggiseftirlitið fyrir-
skipaði á sunnudag að snjallsímafor-
rit fyrirtækisins Didi skyldi fjarlægt
úr kínverskum snjallforritagáttum.
Segir stofnunin að forrit Didi brjóti
reglur landsins um meðferð per-
sónuupplýsinga.
Starfsemi Didi, sem er með höf-
uðstöðvar sínar í Peking, er á marg-
an hátt svipuð rekstri Uber og býður
fyrirtækið m.a. upp á skutlþjónustu
og heimsendingu á mat víða um heim
auk þess að hafa á undanförnum ár-
um látið að sér kveða sem lánveit-
andi og tryggingafélag. Í lok júní var
Didi skráð á hlutabréfamarkað í
Bandaríkjunum og nemur markaðs-
virði félagsins um 80 milljörðum dala
en með útboðinu tókst Didi að fá 4,4
milljarða dala af nýju hlutafé inn í
reksturinn.
Á föstudag upplýstu kínversk
stjórnvöld að Didi sætti rannsókn
vegna meintra brota á reglum um
netöryggismál. Varð það til þess að
hlutabréfaverð fyrirtækisins lækk-
aði um rösklega 5%. Að sögn Fin-
ancial Times hefur ekki verið upp-
lýst hvaða brot félagið er grunað um
að hafa framið. ai@mbl.is
AFP
Óvissa Bílstjóri í Peking notar forrit Didi til að skutla farþegum.
Kína stígur á
bremsuna hjá Didi
- Loka á forritið skömmu eftir útboð
Sundurliðun launa og gjalda í Curio App varpar m.a. ljósi á það hve mikil
byrði er lögð á bæði launþega og vinnuveitendur í formi launatengdra
gjalda, skyldusparnaðar og alls kyns skatta. Baldvin segir launareiknivél-
ina sundurliða öll gjöld sem standa þarf skil á og upphæðirnar komi
stundum á óvart enda allur gangur á því hvort launaseðlar sýna allan
þann kostnað sem fellur til vinnuveitandamegin. „Fólki finnst tölurnar
oft sláandi þegar það sér heildarmyndina. Þannig má t.d. vænta þess að
starfsmaður sem er með um 1,1 milljón í laun fái ekki nema um 635.000
krónur útborgað, en að heildarkostnaður vinnuveitandans vegna starfs-
mannsins nemi yfir 1,4 milljónum króna.“
Hlutur starfsmanns um helm-
ingur af kostnaði vinnuveitanda
SKERFUR HINS OPINBERA EKKERT SMÁRÆÐI