Morgunblaðið - 05.07.2021, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 2021
Nú bíður Englands tími án laga-
legra takmarkana þar sem Eng-
lendingar munu sjálfir þurfa að
bera ábyrgð á eigin grímunotkun.
Þetta sagði Robert Jenrick, ráð-
herra í ríkisstjórn Boris Johnson,
við BBC.
Jenrick sagði það þá víst að fólk
myndi komast að mismunandi nið-
urstöðum varðandi notkun gríma en
að hann treysti almenningi til að
beita dómgreind sinni.
Samkvæmt afléttingaráætlun er
búist við að öllum takmörkunum
verði aflétt á Englandi 19. júlí. Þó
greindust 24.249 Covid-smit í Bret-
landi í gær og 15 létust.
Í Skotlandi hefur ríkisstjórnin þó
sagt að enn þá sé þörf á grím-
unotkun. Þá mun fólk enn þá þurfa
að bera grímur í almenningssam-
göngum og verslunum eftir að öðr-
um takmörkunum verður aflétt í
Skotlandi 9. ágúst. Skotland, Wales
og Norður-Írland ráða sjálf hvaða
reglur þau setja í baráttunni gegn
kórónuveirufaraldrinum.
Jenrick sagðist vera fullviss um
að öllum takmörkunum verði aflétt
á Englandi 19. júlí sökum þess hve
vel bólusetningar ganga þar í landi.
Samkvæmt Guardian hafa 86% full-
orðinna fengið fyrri skammt af
bóluefni gegn kórónuveirunni og
63,5% hafa fengið báða skammta.
Jenrick sagði þó að smitum gæti
fjölgað verulega samhliða aflétting-
um takmarkana.
„En nú verðum við að hefja nýtt
tímabil þar sem við lærum að lifa
með vírusnum, við gerum varúðar-
ráðstafanir og einstaklingar þurfa
sjálfir að bera ábyrgð.“
AFP
Veira Robert Jenrick, ráðherra í
ríkisstjórn Boris Johnson.
Grímunotkun
verði valkvæð
- 24.249 greindust í gær í Bretlandi
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Breski sellóleikarinn Jacob Shaw lét
heimsfaraldurinn svo sannarlega ekki
stöðva sig í tónlistinni þrátt fyrir
skort á áhorfendum. Tók hann það til
bragðs að halda klassíska tónleika
fyrir kýr.
Í samtali við AFP sagði Shaw að
þetta einkennilega tónleikahald væri í
raun beint framhald af þeirri stefnu
sem hann hafi alltaf haft í tónlist sinni:
Að taka klassíska tónlist út fyrir tón-
listarhúsið. Shaw stofnaði sjálfur
selló-tónlistarskóla, The Scandinavian
Cello School, á landsbyggðinni í
Stevns í Danmörku árið 2016 og
spiluðu hann og aðrir tónlistarmenn í
tengslum við skólann gjarnan fyrir
fólk á svæðinu.
Líkaði augljóslega tónlistin
„Meðan á kórónuveirufaraldrinum
stóð var þetta auðvitað ekki hægt og
við ákváðum að færa okkur yfir á það
næstbesta: Að spila fyrir dýr,“ sagði
Shaw.
Shaw tók sig því til og fékk að spila
fyrir nautgripi tónelskandi bónda í ná-
grenninu.
Bóndinn, Mogens Haugaard, sagði
augljóst frá fyrstu stund að kúnum
líkaði tónlistin vel og sagði hana jafn-
vel hafa bætt heilsu þeirra.
„Þær eru mun rólegri og afslapp-
aðri. Það er auðveldara að nálgast
þær,“ sagði bóndinn.
Eiga sín uppáhaldslög
Sellóleikarinn Jakob Shaw fullyrðir
að kýrnar eigi jafnvel sín uppáhalds-
lög og bregðist mismunandi við tón-
listinni.
„Við prófuðum að spila eitthvað
sem var meira grípandi og nútímalegt
og mörgum þeirra líkaði þetta hreint
ekki og fóru,“ sagði hann og bætti við
að hann hefði þá kenningu að þeim
líkaði best við tónlist sem minnti þær
á eigin rödd, baulið, en það væri ein-
mitt eitt af einkennum sellóleiks sem
væri í miklu uppáhaldi hjá kúnum.
Þó að Shaw leiki oftast einleik fyrir
kýrnar slást ósjaldan í för með honum
aðrir hljóðfæraleikarar. Shaw segir að
það að spila úti í náttúrunni fyrir
þennan ógagnrýna hóp áhorfenda
minnki til muna álagið sem oft fylgi
tónleik og hjálpi hljóðfæraleikurum
að njóta sín betur.
Roberta Verna er ein þeirra sem
hefur fengið að leika fyrir nautgrip-
ina. Hún flutti verk eftir Reinhold
Gliere og Bela Bartok á Stradivarius-
fiðlu ásamt Shaw.
„Þetta er mjög áhugavert þar sem
þær eru virkilega að hlusta. Þær bera
virðingu fyrir okkur,“ sagði fiðluleik-
arinn ungi.
Shaw stefnir á að halda áfram að
leika fyrir kýrnar og hlakkar til að
fylgjast með komandi kynslóðum tón-
elskra nautgripa.
Heldur tónleika fyrir kýr
- Danskar kýr njóta þess að fá heilsubætandi einkatónleika í sveitinni
- „Þær eru mun rólegri og afslappaðri. Það er auðveldara að nálgast þær.“
AFP
Náttúra Hljóðfæraleikararnir Jacob Shaw og Roberta Verna fluttu verk eftir Reinhold Gliere og Bela Bartok fyrir
danska nautgripi en Shaw segist ná að njóta sín áhyggjulaus við tónflutning úti fyrir þessa einstöku áhorfendur.
AFP
Tónleikar Danskar kýr á landsbyggðinni í Stevns í Danmörku njóta þess að
hlusta á fiðluleik Robertu Verna og sellóleik Jacob Shaw á matmálstíma.
Frans páfi hefur
verið lagður inn
á spítala í Róm
vegna rist-
ilvandamáls og
mun hann gang-
ast undir aðgerð,
að því er segir á
vef breska rík-
isútvarpsins.
Matteo Bruni,
talsmaður Vatíkansins, segir að
fleiri upplýsingar muni berast eftir
aðgerðina.
Þetta mun vera í fyrsta skipti
sem páfinn er lagður inn eftir að
hann tók við embætti árið 2013.
Í tilkynningu Vatíkansins segir
að um sé að ræða meðhöndlun á
þrengslum í ristli. Líklegasta út-
skýringin er hliðstæður sjúkdómur
sem lýsir sér með bungum í maga-
þörmunum sem orsakar þrengslin.
Páfinn hefur áður glímt við hin
ýmsu heilsufarsvandamál og er
meðal annars með settaugarbólgu.
VATÍKANIÐ
Páfinn lagður inn á
sjúkrahús í Róm
Frans páfi
Að minnsta kosti 45 eru látnir og
tugir að auki slasaðir eftir að
filippseysk herflugvél brotlenti í
suðurhluta landsins í dag. Þetta er
eitt mannskæðasta flugslys í sögu
landsins.
Á meðal hinna látnu eru 42 her-
menn og þrír óbreyttir borgarar en
um eitt hundrað nýútskrifaðir her-
menn voru um borð í vélinni þegar
hún brotlenti. Nokkrir hermenn
sáust hoppa úr flugvélinni áður en
hún skall til jarðar.
Flugvélin, sem var af tegundinni
C-130 Hercules, var að reyna að
lenda á flugvellinum á eyjunni Jolo
þegar hún brotlenti.
Vélin var á leið með hermenn frá
borginni Cagayn de Oro til eyj-
unnar Mindanao. Hermennirnir
áttu að aðstoða við baráttu við ísl-
amskar hersveitir, svo sem Abu Sa-
yyaf-sveitina.
Embættismenn segja að engar
vísbendingar hafi komið fram um
að einhver hafi stuðlað viljandi að
slysinu.
FILIPPSEYJAR
Að minnsta kosti 45
látnir eftir flugslys