Morgunblaðið - 07.07.2021, Page 4

Morgunblaðið - 07.07.2021, Page 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 2021 Steinar Ingi Kolbeins steinar@mbl.is Selma Gísladóttir, íbúi í Breiðagerði, tók sig til og sló sjálf grasblettina á þeim helmingi götunnar er sneri að húsinu hennar, frá Melgerði að Sogavegi. Selma segir ástæðuna fyr- ir slættinum vera vanhirðu borgar- innar. „Gatan hjá mér er bara ógeð. Ég hef búið hérna í 18 ár og þetta hefur verið illa hirt áður en þetta hefur aldrei verið svona.“ Selma vildi með færslu sinni á íbúasíðu hverfisins hvetja nágranna sína til þess að munda sláttuvélina og aðstoða sig við að koma götunni í betra stand. Hún sagði þó engan enn vera búinn að slá, en vonar að svo verði. Ósátt við ábendingavef Selma segist ekki hafa sent inn ábendingu í gegnum ábendingavef borgarinnar, en hún hefur ekki góða reynslu af þeirri boðleið. „Ég benti á bilaða ljósaperu í vetur, á stað þar sem börn eru á leið úr íþróttastarfi, og það tók þrjár vikur að laga það. Ég bara ákvað að slá þetta sjálf frek- ar en að standa í borginni.“ Selma telur þá mögulegt að Reykjavíkur- borg sé ekki að fylgja því eftir að verktakar, sem borgin semur við til þess að slá götur borgarinnar, sinni slættinum reglulega. Á borgarvefsjá má fylgjast með framvindu gras- sláttar í borginni í rauntíma, og þar má sjá að Breiðagerði bíður eftir öðrum slætti af þremur í sumar. Hjalti Guðmundsson, skrifstofu- stjóri reksturs og umhirðu borgar- landsins, bendir í skriflegu svari á ábendingavef borgarinnar, ef íbúar hafa athugasemdir um slátt eða aðra umhirðu borgarinnar. Sló sjálf grasið í götunni sinni - Segir götuna aldrei jafn illa hirta Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Orfið mundað Fylgjast má með framvindu grassláttar í rauntíma. Jökulsporðar hopuðu víða um tugi metra á árinu 2020 en nokkrir brattir skriðjöklar gengu svolítið fram. Þetta kemur fram í nýrri grein á heimasíðu Veðurstofu Ís- lands (vedur.is), Afkoma íslensku jöklanna var lítillega neikvæð árið 2020. Íslensku jöklarnir hafa hopað hratt í um aldarfjórðung. Rýrnun þeirra er ein helsta afleiðing og skýrasti vitnisburður um hlýnandi loftslag hérlendis, að því er segir í greininni. „Af þeim jöklum sem mældir eru af sjálfboðaliðum Jöklarannsókna- félags Íslands hopaði Breiðamerk- urjökull mest þar sem kelfir af hon- um í Jökulsárlón, milli 100 og 250 m árið 2020. Einnig brotnaði af Heinabergsjökli í lón við jaðarinn og styttist sporðurinn við það um rúmlega 100 m,“ segir í nýju frétta- bréfi á vegum verkefnisins Hörf- andi jöklar (https://www.vatna- jokulsthjodgardur.is/is/svaedin/- horfandi-joklar). Afkoma íslensku jöklanna hefur verið neikvæð síðan 1995 með einni undantekningu en afkoman árið 2015 var jákvæð í fyrsta sinn í tutt- ugu ár. Afkoman mældist aftur nei- kvæð árið 2016 og eins fyrir Lang- jökul og Hofsjökul árið 2017 en Vatnajökull var þá nærri því að vera í jafnvægi. Jöklarnir þrír voru nærri jafnvægi 2018 en sumarið 2019 var mjög hlýtt og þá mældist afkoma allra þriggja jöklanna nei- kvæð. Sumarið 2020 var nokkru kaldara og var afkoma jöklanna þriggja neikvæð en ekki jafn mikið og árið áður. gudni@mbl.is Jöklarnir hopuðu víða í fyrra Morgunblaðið/ÁsdísUrður Egilsdóttir urdur@mbl.is „Þetta er stór samgöngudagur,“ seg- ir Sigurður Ingi Jóhannsson, sam- göngu- og sveitarstjórnarráðherra, en hann og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, undirrituðu í gær yfirlýsingu um lagningu Sundabrautar. „Þetta er ákveðinn endahnútur á að þetta verði að veruleika,“ segir Sigurður Ingi og nefnir að ráðuneyti hans hafi unnið hörðum höndum allt kjörtímabilið við að koma Sunda- braut á dagskrá. „Þessi viljayfirlýs- ing okkar borgarstjórans í dag stað- festir sameiginlega sýn á að nú sé komin fram þessi leið, valkostir sem eru uppi og hvaða verkefni eru næst,“ segir Sigurður Ingi en næsta skref samkvæmt yfirlýsingunni er að gera félagshagfræðilega greiningu á þverun Kleppsvíkur en að henni lok- inni verði hafist handa við að und- irbúa breytingar á aðalskipulagi borgarinnar, sem feli í sér endanlegt leiðarval Sundabrautar. Sigurður Ingi nefnir einnig að eft- ir eigi að leggjast í umhverfismat og samtal við íbúa og aðra hagaðila. „Breytingar á skipulagi, áframhald- andi hönnun, undirbúningur o.s.frv., suma þætti er hægt að vinna sam- hliða hvor öðrum. Þetta mun síðan að lokum leiða til útboðs,“ segir Sig- urður Ingi og bætir við að þessi vinna muni taka um fjögur til fimm ár. Umhverfismatið eitt og sér muni taka tvö til þrjú ár. Tekin í notkun 2031 „Það er mikil vinna fram undan þó að grafan birtist kannski ekki fyrr en árið 2026,“ segir Sigurður Ingi en stefnt er að því framkvæmdir við Sundabraut hefjist árið 2026 og brautin verði tekin í notkun árið 2031. Sigurður Ingi segir að Sundabraut muni gjörbreyta umferðarmynstri höfuðborgarinnar. „Þetta er miklu betri tenging milli borgarhluta og myndar öryggisleið út úr borginni. Þetta mun einnig tengja Vesturland mun betur við höfuðborgina,“ segir Sigurður Ingi og bætir við að Sunda- braut muni einnig hafa mikil áhrif á umferðarflæði. „Þetta mun létta mikið á umferð í gegnum Mosfellsbæ og Ártúnsbrekku en hefur einnig já- kvæð áhrif á öllu höfuðborgarsvæð- inu sem er ánægjulegt.“ Brú frekar en göng Sigurður Ingi gerir ráð fyrir að frekar verði lagst í gerð Sundabrúar heldur en jarðgöng fyrir legu Sunda- brautar. Samkvæmt skýrslu starfs- hóps á vegum Vegagerðarinnar sem kom út í febrúar er áætlaður heild- arkostnaður við Sundabraut frá Sæ- braut að Kjalarnesi, ef gerð verður Sundabrú, um 69 milljarðar. Sunda- braut verður fjármögnuð með veg- gjöldum og ekki er gert ráð fyrir fjármögnun framkvæmdarinnar úr ríkissjóði. Sundabraut er meðal sex samgöngumannvirkja sem falla und- ir lög um samvinnuverkefni um vegaframkvæmdir sem heimila að eiga samvinnu við einkaaðila um fjármögnun, hönnun, undirbúning og framkvæmdir ásamt viðhaldi og rekstri í tiltekinn tíma. Gjaldtaka skal þó ekki hefjast fyrr en fram- kvæmdum lýkur og stendur að há- marki í 30 ár. Sigurður Ingi segir þessa leið vera svipaða þeim sem farin var með gerð Hvalfjarðarganga. „Verkefnið verð- ur alfarið greitt þegar það er búið með notendagjöldum. Hámark veggjalda verða 30 ár.“ Verkefnið í traustum farvegi „Ég fagna þessari yfirlýsingu og með þessu eru málefni Sundabrautar komin í traustan farveg. Það sem við erum að tryggja með þessari yfirlýs- ingu er að vandað verði til verka og haft samráð við þá sem þetta snertir mest, íbúa beggja vegna vogsins, hafnirnar og aðra hagsmunaðila,“ segir Dagur B. Eggertsson borg- arstjóri. Hann leggur áherslu á að gert verði ítarlegt og gott umhverf- ismat þar sem allir áhrifaþættir verði greindir. Dagur segir að yfirlýsingin í gær sé ákveðin staðfesting á að Sunda- braut verði að veruleika með þeim fyrirvara að umhverfismatið og sam- ráðið sé eftir. „Við þurfum auðvitað að virða þá ferla þannig að það verði traustur grunnur fyrir leiðarvali, hvort um verði að ræða göng eða brú. Huga að íbúðahverfum Rétt útfærð getur Sundabraut orðið samgöngubót og dreift umferð- inni betur. Hún getur opnað nýjar leiðir bæði fyrir þá sem keyra og al- menningssamgöngur, gangandi og hjólandi,“ segir Dagur og bætir við að í sumum útfærslum geti brautin beint mikilli umferð inn í viðkvæm íbúahverfi. „Það sem þarf að gera núna er að fara yfir þau mál líka og tryggja að áhrifin af Sundabraut hafi ekki neikvæðar afleiðingar fyrir við- kvæma hópa.“ Sundabraut að veruleika - Yfirlýsing undirrituð um lagningu Sundabrautar - Staðfestir sameiginlega sýn - Framkvæmdir hefjast árið 2026 - Verður fjármögnuð með veggjöldum Morgunblaðið/Eggert Yfirlýsing Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, undirrituðu yfirlýsingu um lagningu Sundabrautar í gær á bryggjunni við Kjalarvog. SKVÍSAÐU ÞIG UPP FYRIR SUMARIÐ STÆRÐIR 1428 Sundkjóll 15.990 kr Stærðir 42-56 Bikiní haldari 8.990 kr C-H skálar Bikiní haldari 8.990 kr Stærðir 42-54 Verslunin CURVY | Fellsmúla 26 við Grensásveg, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.