Morgunblaðið - 07.07.2021, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 2021
Björn Bjarnason rifjar á vef
sínum upp brot úr ferli
Gunnars Smára Egilssonar, nú
sósíalistaforingja og
-frambjóðanda. Björn rekur leik-
ritið undanfarna
daga um framboð
foringjans, skipuð
hafi verið með
slembivali 30
manna kjörnefnd
en um leið tilkynnt
að Gunnar Smári
gæfi kost á sér til
Alþingis. Ríkis-
útvarpið hafi rætt við hann og
fengið þetta svar: „Það hefur ver-
ið skorað á mig og kjörnefndin
var að tala við mig og ég lofaði
þeim að svara núna um helgina.
Ef að þau geta notað mig þá er ég
til.“
- - -
Þetta leikrit um framboðið er
auðvitað spaugilegt ekki síst
þegar haft er í huga framboð sem
Gunnar Smári kynnti fyrir nokkr-
um árum. Um það segir Björn:
„Áður en Gunnar Smári stofnaði
Sósíalistaflokkinn í kringum sig
fyrir fjórum árum og eftir að
hann kvaddi Fréttatímann vildi
hann að Ísland yrði fylki í Noregi
og var kallaður til viðtala í fjöl-
miðlum um þá hugmynd. Þar á
meðal í ríkisútvarpinu en á ruv.is
sagði 11. ágúst 2014:
„Hugmyndir Gunnars Smára
Egilssonar um að Ísland verði
fylki í Noregi hafa vakið gríð-
arlega athygli og nú stendur til að
stofna stjórnmálaafl um málið.
Fylkisflokkurinn verður stofnaður
formlega í haust og fólki er nú
boðið að skrá sig sem stofnendur.“
- - -
Orðalag þessarar tilvitnunar
sýnir hvernig fjölmiðlamenn
kokgleypa það sem frá Gunnari
Smára kemur. Nú segir á ruv.is að
Gunnar Smári segi Sósíalista-
flokkinn tilbúinn að mynda nýja
ríkisstjórn eftir næstu kosningar
bjóðist tækifæri til þess.“
Gunnar Smári
Egilsson
Nýr flokkur,
nýtt leikrit
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
lagði fram sextán skriflegar fyr-
irspurnir í gær og óskaði eftir svör-
um ráðherra. Hann vildi meðal ann-
ars vita hver tók ákvörðun um að
kalla ferðaávísun ríkisins „ferða-
gjöf“, hvernig neysluskammtur
fíkniefna væri skilgreindur og hvort
fjórði orkupakkinn lægi fyrir. Hann
spurði líka hversu mörg kyn væru
að mati forsætisráðuneytisins.
Logi Einarsson gagnrýndi Katr-
ínu Jakobsdóttur forsætisráðherra
fyrir kyrrstöðu í heilbrigðismálum
og hélt því fram að það væri vegna
þess að Vinstri græn og Sjálfstæð-
isflokkurinn gætu ekki unnið sam-
an. Katrín sagði það rangt að kyrr-
staða hafi verið í heilbrigðismálum
á kjörtímabilinu og bætti við að hún
ætlaði ekki að fara í stjórnarmynd-
unarviðræður við háttvirtan þing-
mann í þessum óundirbúnu fyr-
irspurnum.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
gagnrýndi Svandísi Svavarsdóttur
heilbrigðisráðherra fyrir að skýla
sér bak við Covid þegar biðlistar í
heilbrigðiskerfinu voru ræddir og
spurði hvers vegna hún vildi ekki
gera samninga við einkaaðila.
Andrés Ingi Jónsson spurði Katr-
ínu hvort hægt væri að treysta því
að VG láti ekki einkavæða Lands-
bankann eins og Íslandsbanka.
Katrín svaraði að samkvæmt stefnu
VG skyldi ríkið eiga Landsbankann.
Ekki nauðsynlega alla bankana.
Inga Sæland vakti athygli á því í
sinni fyrirspurn að fólk sem orðið
hefur fyrir kynferðislegu ofbeldi
leiti til dómstóls götunnar því dóms-
kerfið bregðist því. Hún telur þetta
ógna réttarríkinu. Einstaklingar fái
ekki tækifæri til að svara fyrir
meint brot. „Mér finnst ekki hægt
að taka fólk úr umferð án dóms og
laga.“
Biðlistar, bankar og brigðult dómskerfi
- Óundirbúnar fyrirspurnir Alþingis í gær - Sigmundur Davíð krefst 16 svara
Tryggvi Ingólfsson, fv.
verktaki á Hvolsvelli,
lést sl. mánudag, 5. júlí,
71 árs að aldri. Tryggvi
var fæddur í Neðri-Dal
undir Vestur-
Eyjafjöllum 16. mars
1950, sonur hjónanna
Ingólfs Ingvarssonar
og Þorbjargar Egg-
ertsdóttur. Tryggvi
ólst upp í foreldra-
húsum og lauk gagn-
fræðaprófi frá Skóga-
skóla árið 1966. Fór í
kjölfar þess út á vinnu-
markaðinn, og reri sex
vertíðir frá Eyjum og Þorlákshöfn
en hóf vörubílaútgerð árið 1973.
Sneri sér svo að rekstri vinnuvéla og
jarðvinnu. Hann stofnaði verktaka-
fyrirtækið Jón og Tryggvi ehf. með
Jóni Óskarssyni árið 1980 og stóð
rekstur þess næstu 26 árin. Sinntu
þeir félagar mörgum stórum verk-
efnum, svo sem gerð íþróttavalla í
Mosfellsbæ, að Laugarvatni og í
Laugardal í Reykjavík.
Tryggvi var virkur í félagsmálum,
svo sem á vettvangi Sjálfstæðis-
flokksins í Suðurlandskjördæmi.
Var í hreppsnefnd Hvolhrepps 1986-
1998 og gegndi jafnhliða því ýmsum
trúnaðarstörfum í héraði.
Vorið 2006 lenti
Tryggvi í hestaslysi,
féll af baki, hlaut
mænuskaða og lam-
aðist fyrir neðan háls.
Eftir sjúkahúsvist í
kjölfar þess var
Tryggvi næstu árin á
hjúkrunarheimilinu
Kirkjuhvoli á Hvols-
velli, eða fram í desem-
ber 2017 að hann fór til
læknismeðferðar í
Reykjavík. Fékk hins
vegar ekki að snúa aft-
ur á Kirkjuhvol, og var
næstu misserin á
sjúkrahúsinu. Fékk að lokum inni á
hjúkrunardeildinni Ljósheimum á
Selfossi og dvaldist þar síðustu árin,
uns yfir lauk. Eftir slysið þurfti
Tryggvi mikillar umönnunar við og
aðstoð við allar helstu athafnir dag-
legs lífs.
Á nýársdag 1972 kvæntist
Tryggvi Elísabetu Andrésdóttur frá
Vatnsdal í Fljótshlíð. Þau stofnuðu
heimili á Hvolsvelli, byggðu sér hús
og bjuggu þar alla tíð. Börn þeirra
eru Finnur Bjarki, Berglind Elva,
Þorbjörg og Aníta Þorgerður, sem
öll búa á Selfossi. Fyrir hjónaband
átti Tryggvi soninn Guðmund sem
býr í Reykjavík.
Andlát
Tryggvi
Ingólfsson