Morgunblaðið - 07.07.2021, Side 22
22 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 2021
Pepsi Max-deild kvenna
Keflavík – Þór/KA.................................... 1:2
Fylkir – ÍBV.............................................. 1:2
Stjarnan – Tindastóll ............................... 0:1
Þróttur R. – Breiðablik............................ 2:3
Selfoss – Valur .......................................... 1:2
Staðan:
Valur 9 6 2 1 22:12 20
Breiðablik 9 6 0 3 31:15 18
Selfoss 9 4 2 3 14:12 14
Stjarnan 9 4 1 4 11:13 13
Þróttur R. 9 3 3 3 20:17 12
ÍBV 9 4 0 5 15:18 12
Þór/KA 9 3 2 4 9:13 11
Keflavík 9 2 3 4 9:15 9
Fylkir 9 2 3 4 9:18 9
Tindastóll 9 2 2 5 6:13 8
EM karla 2021
Undanúrslit:
Ítalía – Spánn ................................... (frl.) 1:1
- Ítalía vann í vítakeppni, 4:3.
_ Ítalía mætir annaðhvort Englandi eða
Danmörku í úrslitum á Wembley sunnu-
daginn 11. júlí.
Leikur í undanúrslitum í dag:
19.00 England – Danmörk, London
Meistaradeild Evrópu
1. umferð, fyrri leikir:
CFR Cluj - Borac Banja Luka ................ 3:1
- Rúnar Már Sigurjónsson lék allan leik-
inn með CFR Cluj og skoraði.
HJK – Buducnost ..................................... 3:1
Ferencváros – Prishtina .......................... 3:0
Flora Tallinn – Hibernians...................... 2:0
Zalgiris – Linfield..................................... 3:1
Fola Esch – Lincoln Red Imps ............... 2:2
Shkendija – Mura..................................... 0:1
Ameríkubikarinn
Undanúrslit:
Brasilía – Perú.......................................... 1:0
_ Brasilía mætir annaðhvort Argentínu
eða Kólumbíu í úrslitum í Ríó sunnudaginn
11. júlí.
>;(//24)3;(
Vináttulandsleikir kvenna
Frakkland– Noregur .......................... 28:28
- Þórir Hergeirsson þjálfar lið Noregs.
Ungverjaland – Svartfjallaland .......... 28:22
E(;R&:=/D
U16-ára kvennalandslið Íslands gerði
1:1-jafntefli í fyrsta leik sínum gegn
Svíþjóð á opna Norðurlandamótinu í
fótbolta í Ribe á Suður-Jótlandi í
Danmörku í gær. Það var Margrét
Brynja Kristinsdóttir sem skoraði
mark Íslands í fyrri hálfleik eftir lag-
legan undirbúning Kötlu Tryggva-
dóttur en íslenska liðið leiddi 1:0 í
hálfleik.
Ísland leikur alls þrjá leiki á
mótinu sem er með breyttu sniði í ár
en liðið mætir Danmörku 9. júlí og
U15-ára landsliði Danmerkur 12. júlí.
Jafntefli í
fyrsta leik
KNATTSPYRNA
1. deild kvenna, Lengjudeildin:
Kópavogsvöllur: Augnablik – HK....... 19.15
2. deild kvenna:
Valsvöllur: KH – KM ........................... 19.15
3. deild karla:
OnePlus-völlur: KFG – Tindastóll ........... 19
Í KVÖLD!
Berglind Rós Ágústsdóttir og Ce-
cilía Rán Rúnarsdóttir eru báðar í
liði vikunnar í sænsku úrvalsdeild-
inni í knattspyrnu hjá sænska miðl-
inum Aftonbladet. Þær áttu báðar
mjög góðan leik fyrir lið sitt Örebro
sem gerði óvænt markalaust jafn-
tefli á heimavelli gegn toppliði
Rosengård. Cecilía fékk langþráð
tækifæri í byrjunarliði Örebro og
átti margar frábærar vörslur í
leiknum en liðið, sem er í 9. sæti
deildarinnar með 11 stig, hafði tap-
að fjórum deildarleikjum í röð fyrir
leikinn gegn Rosengård.
Í liði vikunnar
í Svíþjóð
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Varsla Cecilía Rán fékk langþráð
tækifæri í byrjunarliðinu.
Landsliðskonan Ingibjörg Sigurð-
ardóttir er í liði 7. umferðarinnar í
norsku úrvalsdeildinni í fótbolta.
Ingibjörg skoraði mark Våler-
enga í 1:2-tapi fyrir Rosenborg á
heimavelli í toppslag norsku úrvals-
deildarinnar á sunnudaginn var.
Tapið var það fyrsta hjá Vålerenga
á leiktíðinni og er liðið nú í þriðja
sæti, þremur stigum á eftir toppliði
Rosenborg. Ingibjörg hefur leikið
afar vel á leiktíðinni og er í liði um-
ferðarinnar í þriðja skipti. Hún var
valin besti leikmaður deildarinnar
á síðasta tímabili.
Ingibjörg í liði
umferðarinnar
Morgunblaðið/Eggert
Noregur Ingibjörg Sigurðardóttir
var í liði umferðarinnar í Noregi.
sögum fer af því hvort hann spili í
dag. Einnig er ógetið Norður-
Makedóníumannanna Arijan Ademi
og Stefan Ristovski, sem byrjuðu
báðir alla þrjá leiki liðsins á mótinu.
Haukur Páll Sigurðsson, fyrirliði
Vals, segir að liðsmönnum hafi borist
það til eyrna að báðir Norður-
Makedóníumennirnir spili í dag, án
þess að það hafi þó fengist staðfest.
„Ég veit það svo sem ekki, en ég hef
eitthvað heyrt af því að landsliðs-
menn Norður-Makedóníu verði með.
Annars hef ég enga hugmynd um
það,“ sagði hann í samtali við Morg-
unblaðið. Samkvæmt Sata 24 tekur
fyrirliðinn Ademi ekki þátt í leiknum
í dag.
Krznar sagði einnig að vinstri bak-
vörðurinn, Francois Moubandje, sem
á 21 landsleik að baki fyrir Sviss, missi
af leiknum í dag vegna smávægilegra
meiðsla en gæti snúið aftur fyrir síðari
leikinn. Íranski landsliðsbakvörðurinn
Sadegh Moharrami verður hins vegar
frá í mánuð vegna meiðsla og kemur
því ekkert við sögu í leikjunum tveim-
ur.
Tíðir gestir í riðlakeppninni
Þrátt fyrir fjarveru allnokkurra
lykilmanna er Dinamo-liðið afar
sterkt og hefur á að skipa landsliðs-
mönnum frá Bosníu og Hersegóvínu,
Slóveníu og Kósóvó, auk nokkurra
Króata sem eiga landsleiki að baki en
voru ekki í hópnum á EM. Þá er
franski miðvörðurinn Kévin Théop-
hile-Catherine með reynslu úr ensku
úrvalsdeildinni og frönsku 1. deildinni.
Króatísku meistararnir hafa verið
tíðir gestir í riðlakeppni Meistara-
deildarinnar undanfarin ár. Alls hef-
ur Dinamo komist fimm sinnum í
riðlakeppnina, þar af þrisvar sinnum
á síðustu sex árum, þótt liðinu hafi
ekki enn auðnast að komast upp úr
riðlinum.
Þá náði Dinamo sínum besta ár-
angri í Evrópudeildinni á síðasta
tímabili þegar liðið komst alla leið í
8-liða úrslit keppninnar með því að
slá enska félagið Tottenham Hot-
spur út í 16-liða úrslitum. Þar skor-
aði áðurnefndur Orsic þrennu í síð-
ari leiknum í Zagreb í 3:0-sigri eftir
0:2-tap í Lundúnum.
Haukur Páll sagði Valsliðið því
gera sér fulla grein fyrir því hversu
krefjandi verkefnið sé. „Við erum
mjög vel stemmdir fyrir leikinn.
Þetta er mjög stórt og krefjandi
verkefni sem við erum að fara í en
við erum fullir tilhlökkunar fyrir
því.“
Gerum allt sem við getum
Undirbúningstímabil Dinamo er
nýhafið á meðan Valur er á miðju
keppnistímabili. Telur Haukur Páll
að það muni koma til með að hjálpa
Val eitthvað í viðureigninni? „Hjálpa
okkur og ekki hjálpa okkur. Við vit-
um að við erum að fara að mæta
gríðarlega sterku liði sem fór mjög
langt í Evrópudeildinni í fyrra.
Það þarf margt að spila inn í svo
við getum náð í úrslit á móti þessu
liði, en við ætlum að reyna að gera
allt sem við getum til þess að fara
heim til Íslands þannig að það sé
allavega möguleiki, að það sé hægt
að gera eitthvað í seinni leiknum.
Þetta er bara alvöru, gott atvinnu-
mannalið. Þeir eru á undirbúnings-
tímabili og við á miðju tímabili, en
hvort það gefi okkur eitthvert for-
skot veit ég ekki, það verður bara að
koma í ljós,“ sagði Haukur Páll að
lokum í samtali við Morgunblaðið.
Erfitt verkefni í Króatíu
- Fjöldi lykilmanna Dinamo Zagreb fjarverandi - Hafa komist langt í Evrópu
Morgunblaðið/Eggert
Barátta Hauks Páls Sigurðssonar og félaga í Val bíður verðugt verkefni.
MEISTARADEILDIN
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Íslandsmeistarar Vals mæta króat-
ísku meisturunum í Dinamo Zagreb
á Maksimir-vellinum í Zagreb í fyrri
leik liðanna í fyrstu umferð und-
ankeppni Meistaradeildar Evrópu í
knattspyrnu klukkan 17 í dag. Ljóst
er að afar strembið verkefni bíður
Valsmanna enda lið Dinamo ógn-
arsterkt.
Til marks um hversu sterkt liðið er
tóku átta leikmenn þess þátt á Evr-
ópumótinu í sumar, þar af fimm leik-
menn sem voru í landsliðshóp Króat-
íu, tveir hjá Norður-Makedóníu og
einn hjá Sviss. Búist er við því að
flestir þeirra verði fjarri góðu gamni
í leiknum í dag vegna örstutts sum-
arfrís sem þeir fengu í kjölfar EM.
Í króatíska dagblaðinu Sata 24
hefur verið greint frá því að Króat-
arnir Dominik Livakovic, aðal-
markvörður landsliðsins, vængmað-
urinn Mislav Orsic og framherjinn
Bruno Petkovic verði ekki með, auk
þess sem framherjinn frá Sviss, Mar-
io Gavranovic, muni ekki heldur taka
þátt.
Damir Krznar, þjálfari Dinamo,
staðfesti í samtali við opinbera
heimasíðu félagsins í gær að Petko-
vic og Gavranovic yrðu ekki með í
fyrri leiknum en kæmu til með að
taka þátt í þeim síðari á Origo-
vellinum á Hlíðarenda eftir tæpa
viku. Josko Gvardiol, varnarmað-
urinn ungi sem spilaði alla leiki
Króatíu á EM, er svo nýbúinn að
skipta yfir til RB Leipzig í Þýska-
landi.
Nokkrir EM-farar með?
Þá er ógetið sóknartengiliðarins
Luka Ivanusec, sem tók þátt í þrem-
ur leikjum á EM þótt mínúturnar
hafi ekki verið margar, en engum
EM 2021
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Ítalía leikur til úrslita á Evr-
ópumóti karla í knattspyrnu eftir
dramatískan sigur gegn Spáni í
vítakeppni á Wembley-leikvang-
inum í London á Englandi í undan-
úrslitum keppninnar í gær.
Spánverjar voru sterkari aðilinn
í fyrri hálfleik en tókst ekki að
koma knettinum í netið og staðan
því markalaus í hálfleik, 0:0. Fe-
derico Chiesa kom Ítölum yfir á 60.
mínútu með frábæru marki þegar
hann smurði boltann í hornið fjær,
utarlega í teignum, og Unai Simon
í marki Spánverja stóð grafkyrr á
línunni. Álvaro Morata jafnaði met-
in fyrir Spánverja á 80. mínútu eft-
ir laglegt þríhyrningsspil við Dani-
el Olmo og staðan því 1:1 að
loknum venjulegum leiktíma.
Hvorugu liðinu tókst að skora í
framlengingunni og því var gripið
til vítaspyrnukeppni þar sem Ítalir
höfðu betur, 4:2, en Jorginho skor-
aði úr fimmtu spyrnu Ítala og
tryggði þeim þannig sigur eftir að
Spánverjar höfðu brennt af tveim-
ur spyrnum í vítakeppninni.
Ítalir mæta annaðhvort Englandi
eða Danmörku í úrslitaleik á Wem-
bley sunnudaginn 11. júlí.
_ Ítalía átti eitt skot á markið í
fyrri hálfleik en það kom á 45.
mínútu.
_ Ítalir hafa einu sinni orðið
Evrópumeistarar, árið 1968 eftir
2:0-sigur gegn gömlu Júgóslavíu í
Róm. Þá hafa Ítalir tvívegis hafn-
að í öðru sæti á EM, árið 2000
þegar þeir töpuðu 1:2-gegn Frökk-
um í framlengdum úrslitaleik í
Rotterdam, og árið 2012 þegar
þeir töpuðu 0:4-gegn Spánverjum í
Kiev.
_ Þetta er í tíunda sinn sem
Ítalía kemst í úrslit á stórmóti í
knattspyrnu en aðeins Þjóðverjar
hafa leikið oftar til úrslita af Evr-
ópuþjóðunum eða fjórtán sinnum.
Tíundi úrslitaleikurinn
- Ítalía hafði betur gegn Spáni eftir dramatíska vítakeppni
AFP
Hetja Jorginho fagnar ásamt liðsfélögum sínum eftir að hafa skotið Ítölum
áfram í úrslitaleikinn á Wembley með lokaspyrnu vítakeppninnar.