Morgunblaðið - 16.07.2021, Page 24

Morgunblaðið - 16.07.2021, Page 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 2021 Límtré • Vatnsfráhrindandi olíuborið límtré • Hægvaxið gæðalímtré • Sérsmíðum eftir máli Gylfaflöt 6-8, 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is 50 ÁRA Hjördís er fædd á Sjúkrahúsinu á Akureyri 16. júlí 1971. Framan af ólst hún upp á Akureyri en flutti á unglingsaldri með móður sinni og bróður til Egils- staða. Hún byrjaði ung að vinna á leikskóla og þá var ekki aftur snúið. ,,Ég hef alltaf haft yndi af börnum og fannst mjög gaman að vinna í leikskóla svo það lá fyrir að hefja nám í leik- skólafræðum. Hjördís lauk námi sem leikskólakennari frá Háskólanum á Akureyri 2001 og hefur starfað víða, m.a. á Leikskólanum Hjalla í Hafnarfirði, Leikskól- anum Ásum í Garðabæ, Leikskólanum Skógarlandi á Egilsstöðum og Leik- skólanum Barnabóli á Þórshöfn þar sem hún hefur einnig gegnt stöðu leik- skólastjóra. ,,Það var góð reynsla að vera leikskólastjóri en ég fann mig samt betur inni á deild með börnunum.“ Hjördís hefur mjög gaman af söng og er í Kirkjukórnum á Þórshöfn. Síðan býr hún í sveit og reynir í frítíma sínum að sinna sveitastörfum eftir bestu getu. ,,En það sem ég hef mest gaman af eru samvistir með fjölskyldunni minni.“ FJÖLSKYLDA Sambýlismaður Hjördísar er bóndinn Eggert Stefánsson og saman eiga þau Friðgeir Óla, f. 8.8. 2003, og Kristínu Svölu, f. 17.1 2009. Úr fyrra sambandi á Hjördís Sigríði Friðnýju Halldórsdóttur, f. 10.1 1992, og Arn- ar Frey Halldórsson Warén, f. 18.3 1995. ,,Ég er líka svo heppin að vera orðin amma sem mér finnst alveg æðislegt en dóttir mín á tvö börn, Hrefnu Dís Þ. Warén, f. 15.10. 2016, og Halldór Steinar Þ. Warén, f. 22.1. 2021. Foreldrar Hjördísar eru Oktavía Halldóra Ólafsdóttir frá Víðirhóli á Hólsfjöllum, f. 4.10.1954, og Henry Henriksen frá Akureyri, f. 12.9. 1952. Á myndinni eru Hjördís og Eggert með yngsta barnabarnið, Halldór Steinar, í skírnarveisl- unni. Hjördís Matthilde Henriksen Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Það þýðir ekkert fyrir þig að öskra til að ná eyrum annarra í dag. Ef þú sérð það ekki, þá ertu kannski ekki um- kringdur því fólki sem þarfnast hæfileika þinn. 20. apríl - 20. maí + Naut Horfðu í baksýnisspegilinn en ekki festast. Ef hugurinn reikar, beindu honum þá aftur að því sem ástvinirnir eru að segja. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þú er líklegur til að draga þig í hlé. Ef þú hefur efni á því að láta eitthvað eftir þér, skaltu gera það. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Ný tækifæri standa þér opin og það ríður á miklu að þú flýtir þér hægt og kannir alla málavexti til fulls. Mundu að þú mátt engum bregðast í frásögn þinni. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Farðu varlega í sakirnar í dag og fáðu þér miðdagslúr ef þú getur. Sýndu þínar bestu hliðar og njóttu stundarinnar. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þú stendur á tímamótum og þarft að gera upp hug þinn til nýrra verkefna. Vertu viss um að hafa tíma til þess að lyfta þér upp. 23. sept. - 22. okt. k Vog Ekkert er meira spennandi en að vera nýorðinn ástfanginn. Með réttu við- horfi gæti þér fundist sem þú hefðir eng- in vandamál - og kannski er það rétt. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Gefðu þér tíma til þess að sinna vandamálum þeirra, sem til þín leita. Haltu fast við áform þín og láttu skoðanir annarra ekki hafa áhrif á þig. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Láttu ekki áhyggjurnar ná tökum á þér í dag. Þú þarft verulega mik- ið á hjálp, viðurkenningu og ást að halda. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Passaðu upp á það að setja af- þreyingu og skemmtun inn á verkefna- listann. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þú hefur engar efasemdir varðandi markmið þín og átt því auðveld- ara með að fá fólk til samstarfs við þig. Slakaðu á og reyndu bara að gera þitt besta því enginn er fullkominn. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Ástin og tilfinningalífið verður með bertra móti í dag og næstu vikur. Tæki- færið býður handan hornsins en vandaðu val þitt. fé inni á Fjalli, nánar tiltekið á Klukkugilsfitjum á Landmanna- afrétti og fórum öll fjölskyldan saman á tveimur traktorum og einum bíl, en einn vinur okkar kom með að hjálpa til.“ Elli hefur sterkar skoðanir þegar kemur að landbúnaðarmálum, en hann hefur verið bóndi núna í tuttugu saman árið 2001. „Við þekktumst nú bara þá, en síðan hittumst við á árshátíð 2004 og þá fór eitthvað að gerast. Síðan kemur hún til mín í sauðburð um vorið 2005 og þá má segja að hún hafi verið formlega flutt heim að Skarði.“ Þau eiga núna þrjú börn og fjölskyldan er samhent. „Við vorum að koma heim eftir að sleppa E rlendur er fæddur 16. júlí 1981 á Landspítal- anum í Reykjavík, en ólst upp á Hvolsvelli. „Það var frábært að alast upp á Hvolsvelli. Ég var í mjög samheldnum bekk og við fórum sam- an í Fjölbrautaskólann á Selfossi.“ Erlendur var mikið í hestamennsku, en var þó sá eini í sinni fjölskyldu sem stundaði það. „Ég var á hestbaki al- veg frá því ég var smákrakki. Mamma er frá Skarði og ég var þar í sveit, en þar er rótgróin hestamennska. Síðan var ég mikið að keppa og fór á mitt fyrsta landsmót á Vindheimamelum í Skagafirði 1990.“ Erlendi gekk vel í hestamennskunni og var oft í fyrsta sæti í sínum flokki, en síðasta lands- mótið hans var á Melgerðismelum ár- ið 1998. „Þá var ég bara kominn með svo mikinn áhuga á búskapnum, að ég lauk við ungmennaflokkinn og sneri mér alfarið að búskapnum.“ Erlendur, sem er kallaður Elli í Skarði, segir að veran í Fjölbrauta- skólanum hafi verið skemmtileg, fyrir utan bóknámið. „Já, það má eiginlega segja að bóknám er ekki mitt uppá- haldsnám. Ég vissi að ég vildi fara á Hvanneyri og þurfti því einhverjar einingar til að komast í búfræðinámið, en mér fannst allt annað skemmti- legra en að læra heima.“ Elli gekk í ungliðahreyfingu Sjálfstæðisflokksins í Rangárvallasýslu þegar hann var í Fjölbrautaskólanum á Selfossi og segist aldrei hafa kosið annan flokk. „Ég er mikill Davíðsmaður enda er hann toppmaður og ég hef alltaf fylgt flokknum að málum.“ Elli fann sig miklu betur í náminu á Hvanneyri. „Það var alveg frábær tími og þar kynntist ég fólki af öllu landinu. Ég var líka heppinn því ég lenti í mjög góðum og sterkum bekk.“ Hann náði því afreki að ná Morgun- blaðsskeifunni á Hvanneyri árið 2001, en hún er veitt fyrir frumtamningu á hrossi og skoraði hann hæst af nem- endum í keppninni. „Það bjuggust margir við að ég færi á Hóla frekar en á Hvanneyri út af hestunum, en ég vildi alltaf verða bóndi og er ekkert minna fyrir sauðfé en hesta.“ Elli kynntist Berglindi, konu sinni, á Hvanneyri, en þau útskrifuðust ár. „Bændastarfið er krefjandi og sagan segir nú alltaf að það sé ákveðin kjarabarátta eins og í öðrum stéttar- félögum. Margt finnst margt hafa breyst á þessum 20 árum sem ég hef verið bóndi og sumt ekki til batnaðar. Mér finnst þessi kolefnisumræða al- veg gengin út í öfgar. Núna eru menn sem mjólka kýr kallaðir umhverfis- sóðar út af einhverju kolefnisfótspori. Stundum finnst mér þetta vera bara beinar árásir á landbúnaðinn, og ekk- ert gert í því að líta heildstætt á málin og taka tillit til fleiri þátta. Nú erum við sauðfjárbændur að nýta land til beitar, og beit bindur kolefni og af hverju er það ekki hluti af þessum út- reikningum? Þessi fræði öll virðast ekkert komin á hreint og stefnan ekki nógu skýr.“ Hann bendir á málið um miðhá- lendisþjóðgarð, og segir að bændur hafi nytjað hálendi Íslands frá land- námi. „Dómur féll í Hæstarétti á þann veg að ríkið fer með umráðarétt yfir landi, en nytjarétturinn var dæmdur bændum í vil. Í frumvarpi um miðhá- lendisþjóðgarð er ráðherra færð mikil völd. Umhverfisráðherrann kemur nú úr herbúðum Landverndar og hafa þeir verið á öndverðum meiði við okk- ur sem nytjum hálendið. Sem betur fer fór frumvarpið ekki í gegnum Erlendur Ingvarsson bóndi í Skarði á Landi – 40 ára Hestamaðurinn Erlendur á hesti sínum Landmótsstjarna í Hattvin í Jökulgili og sést náttúruperlan Hattur fyrir aftan. Sjálfstæðismaðurinn í Skarði Börnin Hér er Erlendur með afkomendurna. F.v.: Sumarliði, Helga Fjóla, Anna Sigríður og Erlendur. Eiginkonan Berglind var bakvið myndavélina. Sumarið 2010 F.v.: Guðmundur, frændi Ella og hjónin Erlendur og Berglind. Torfajökull er í baksýn. Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.