Morgunblaðið - 16.07.2021, Side 27

Morgunblaðið - 16.07.2021, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 2021 _ Íslenska kvennalandsliðið í hand- bolta skipað leikmönnum 19 ára og yngri var hársbreidd frá því að komast í undanúrslit í B-deild Evrópumótsins í gær eftir 24:24-jafntefli við Pólland í Skopje. Sigur hefði komið Íslandi áfram en jafnteflið nægði Pólverjum sem luku riðlinum með betri marka- tölu en íslenska liðið. Jóhanna Mar- grét Sigurðardóttir skoraði átta mörk, Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði fjögur og þær Bríet Ómarsdóttir, Rakel Sara Elvarsdóttir og Sara Katrín Gunn- arsdóttir skoruðu þrjú mörk hver. Ís- land fer nú í keppni um 5.-8. sæti á mótinu. _ Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Ís- landsmeistari kvenna í golfi, fór ekki vel af stað á Gant Ladies Open-mótinu í Finnlandi í gær en það er liður í Evr- ópumótaröðinni. Guðrún lék hringinn á 77 höggum, sex höggum yfir pari vallarins, og er í 74.-90. sæti af 112 keppendum á mótinu. _ KR náði fimm stiga forskoti í 1. deild kvenna í fótbolta í gærkvöld en lenti í miklum vandræðum með botn- lið Augnabliks, sem einmitt vann KR í fyrstu umferðinni í vor. Guðmunda Brynja Óladóttir skoraði tvö marka KR og Margrét Edda Bjarnadóttir gerði sigurmarkið. Margrét Brynja Krist- insdóttir og Vigdís Lilja Kristjáns- dóttir, leikmenn U16 ára landsliðsins, skoruðu mörk Augnabliks. _ Franski knattspyrnumaðurinn Oli- vier Giroud kom til Mílanó á Ítalíu í gærkvöld til að gangast undir lækn- isskoðun hjá AC Milan. Hann mun í framhaldi af því skrifa undir tveggja ára samning. Ítalirnir kaupa hann af Chelsea sem Frakkinn hefur leikið með frá 2018 en hann hefur spilað á Eng- landi frá 2012, áður með Arsenal. _ Kristján Viggó Sigfinnsson missti naumlega af sæti í úrslitakeppni há- stökks karla á Evrópumeistaramóti U20 ára í frjálsíþróttum í Tallinn í Eist- landi í gær. Kristján stökk 2,13 metra, jafnhátt og fimm aðrir sem komust áfram, en var með fleiri til- raunir. Hann hafn- aði því í 13. sæti en tólf komust í úrslit. Í dag keppa El- ísabet Rut Rúnars- dóttir og Eva María Bald- ursdóttir í undankeppni í Tallinn, El- ísabet í sleggjukasti og Eva í há- stökki. Eitt ogannað 1. DEILD Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Fram er áfram með níu stiga forskot á ÍBV á toppi Lengjudeildar karla í fótbolta, 1. deild, eftir 1:1-jafntefli liðanna í Safamýrinni í gærkvöldi. Kórdrengir færðu sér það í nyt og eru nú aðeins einu stigi frá ÍBV í öðru sæti. Þrátt fyrir að úrslitin séu ágæt fyrir Framara voru þeir eflaust svekktari en gestirnir frá Vest- mannaeyjum í leikslok. Indriði Áki Þorláksson kom Fram yfir á 71. mín- útu en strax í næstu sókn jafnaði Spánverjinn José Sito fyrir ÍBV. Halldór Páll Geirsson varði víti frá Alberti Hafsteinssyni undir lokin og hefðu Framarar því hæglega getað náð tólf stiga forskoti á toppnum. Davíð Ásbjörnsson var hetja Kór- drengja því hann skoraði sigurmark á 78. mínútu á Selfossi,1 :0. Kór- drengir eru með tvo sigra í röð eftir þrjá leiki í röð án sigurs þar á undan. Selfoss hefur leikið fjóra leiki í röð án sigurs og tapað þremur þeirra. Grótta fagnaði sínum þriðja sigri í röð er liðið vann Fjölni á heimavelli í uppgjöri liðanna sem féllu úr efstu deild á síðustu leiktíð. Lokatölur urðu 2:1. Grótta komst yfir með sjálfsmarki og Kristófer Melsted bætti við marki á 81. mínútu. Helgi Snær Agnarsson minnkaði muninn fyrir Fjölni á lokamínútunni en það dugði skammt. Þá var boðið upp á sjö marka veislu í Mosfellsbænum. Því miður fyrir botnlið Víkings frá Ólafsvík skoraði Afturelding sex þeirra í 6:1- sigri. Spánverjinn José Amat skoraði í sínum fyrsta leik með Víkingi er hann kom liðinu yfir á 8. mínútu. Arnór Gauti Ragnarsson svaraði með tveimur mörkum fyrir hlé og þeir Ar- on Elí Sævarsson, Pedro Vazquez, Kristófer Óskar Óskarsson og Haf- liði Sigurðarson skoruðu svo allir í seinni hálfleik og tryggðu Aftureld- ingu sannfærandi sigur. Afturelding er í sjöunda sæti með 16 stig og Vík- ingur á botninum með aðeins tvö stig. Línurnar farnar að skýrast Línurnar eru verulega farnar að skýrast í deildinni. Allar líkur eru á því að Víkingur falli og annaðhvort Þróttur Reykjavík eða Selfoss fari með niður. Fram vinnur væntanlega deildina og ÍBV, Kórdrengir og Grindavík munu líklegast berjast um annað sætið. Fjölnir missti af góðu tækifæri til að sækja á ÍBV í öðru sæti. ÍBV tókst ekki að saxa á Fram - Kórdrengir einu stigi frá öðru sæti - Grótta fór upp fyrir Fjölnismenn Morgunblaðið/Unnur Karen Safamýri Kyle McLagan miðvörður Framara með boltann í einvígi topp- liðanna. Framarar eru enn taplausir eftir tólf umferðir í deildinni. Milwaukee Bucks jafnaði í einvígi sínu og Phoenix Suns í úrslitum NBA-deildarinnar í körfuknattleik í 2:2 eftir annan sigur liðsins í röð á heimavelli í fyrrinótt, 109:103. Khris Middleton fór fyrir Bucks og skoraði 40 stig en þeirra helsta stjarna, Grikkinn Giannis Ante- tokounmpo var sömuleiðis feikilega öflugur með tvöfalda tvennu. Skor- aði hann 26 stig og tók 14 fráköst. Devin Booker fór á kostum í liði Phoenix og skoraði 42 stig en fram- lag frá samherjum hans var ekki sérlega mikið. Staðan er orðin jöfn í einvíginu AFP Frábær Khris Middleton fagnað af samherjum sínum í Milwaukee. Guðmundur Ágúst Kristjánsson er meðal efstu manna eftir fyrsta hring á Euram Bank Open- golfmótinu í Ramsau í Austurríki en það er liður í Áskorendamótaröð Evrópu. Guðmundur lék hringinn á 65 höggum, fimm undir pari, í gær og er í 5.-13. sæti, tveimur höggum á eftir efstu mönnum. Haraldur Franklín Magnús er í 22.-32. sæti á þremur höggum undir pari, Andri Þór Björnsson í 47.-66. sæti á einu höggi undir pari og Bjarki Pét- ursson er í 84.-100. sæti af 155 keppendum á einu höggi yfir pari. Meðal þeirra efstu í Austurríki Ljósmynd/seth@golf.is Austurríki Guðmundur Ágúst Krist- jánsson lék á 65 höggum í gær. Suður-Afríkumaðurinn Louis Oost- huizen er með forystu eftir fyrsta hring á The Open á Royal St. George‘s-golfvellinum í Kent á Englandi, en mótið er eitt fjögurra risamótanna. Oosthuizen lék fyrsta hringinn í gær á 64 höggum, sex höggum undir pari. Bandaríkja- mennirnir Jordan Spieth og Brian Harman koma næstir á fimm högg- um undir pari. Forystusauðurinn lék afar öruggt og gott golf og fékk sex fugla og engan skolla. Oosthuizen, sem er 38 ára, hefur einu sinni unn- ið risamót en hann vann einmitt The Open árið 2010. Hann hefur verið í öðru sæti á öllum hinum þremur risamótunum. Englendingarnir Justin Rose og Tommy Fleetwood léku báðir á þremur undir pari og sterkir kylf- ingar á borð við Justin Johnson og Sergio Garcia á tveimur undir. Rory McIlroy er á pari í 48. sæti. Stjarnan Phil Mickelson átti hins vegar afleitan hring og er á tíu höggum yfir pari og í neðsta sæti. AFP Efstur Louis Oosthuizen fagnar fugli á góðum fyrsta hring í gær. Oosthuizen lék best allra á fyrsta hring Tíu leikmenn úr ensku úrvals- deildinni eru á leiðinni á Ólympíu- leikana í Tókýó með landsliðum sinna þjóða og verða því ekkert með liðum sínum á undirbúnings- tímabilinu en keppni í úrvalsdeild- inni hefst föstudaginn 13. ágúst, fimm dögum eftir að leikunum lýkur. Á Ólympíuleikum spila lið skip- uð leikmönnum 23 ára og yngri en í Evrópu eru það liðin sem hófu síðustu Evrópukeppni 21-árs landsliða. Nú eru leikmennirnir hinsvegar 24 ára og yngri þar sem leikunum var frestað um eitt ár. Þá má hvert lið vera með þrjá eldri leikmenn. Flestir úr úrvalsdeildinni á Eng- landi eru í liði Brasilíu en með lið- inu spila Richarlison, sókn- armaður Everton, Douglas Luiz, miðjumaður Aston Villa, og Gabr- iel Martinelli, sóknarmaður Arsen- al. Með liði Fílabeinsstrandarinnar eru tveir frá Manchester United, kantmaðurinn Amad Diallo og miðvörðurinn Eric Bailly. Með Frökkum er Niels Nko- unkou, tvítugur vinstri bakvörður frá Everton. Með liði Nýja-Sjálands eru Chris Wood, sóknarmaður Burnley, og Winston Reid, varnarmaður West Ham. Með liði Argentínu er Alexis MacAllister, sóknarmaður Brig- hton. Með lið Ástralíu er Daniel Arz- ani, ungur sóknarmaður frá Man- chester City sem var samherji Jóns Dags Þorsteinssonar hjá AGF í Danmörku á síðasta tímabili sem lánsmaður. Tíu úr ensku deild- inni fara til Tókýó AFP ÓL Richarlison fer beint úr Ameríkubikarnum til Tókýó. KNATTSPYRNA Mjólkurbikar kvenna, undanúrslit: Eimskipsvöllur: Þróttur R. – FH............. 18 Kópavogsv.: Breiðablik – Valur .......... 20.15 1. deild karla, Lengjudeildin: Grindavíkurv.: Grindavík – Þór ............... 18 2. deild kvenna: Hertz-völlur: ÍR – Fram...................... 19.15 GOLF Hvaleyrarbikarinn, sem er hluti af stiga- mótaröð GSÍ, fer fram á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði og er annar keppnisdagur í dag. Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.