Morgunblaðið - 16.07.2021, Page 32
Níu tónlistarmenn og hljómsveitir koma fram á tónlist-
arhátíð sem haldin verður í Post-húsinu, húsnæði lista-
samlagsins Post-dreifingar að Skeljanesi 21, á morgun,
laugardag, frá kl. 15 til um það bil tvö um nóttina. Fram
koma Countess Malaise, Gróa, Guðir hins nýja tíma,
Holdgervlar, Kælan mikla, Madonna + Child, MSEA,
Necro Bros og Rex Pistols. Einnig verða plötusnúðar,
veganmatur og ólympíuleikar Myrkfælni. Myrkfælni er
samstarfsverkefni tveggja ungra kvenna og markmiðið
að kynna íslenska neðanjarðartónlist.
Tónlistarveisla í Post-húsinu
FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 197. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Fram er áfram með níu stiga forskot á ÍBV á toppi 1.
deildar karla í fótbolta, Lengjudeildarinnar, eftir 1:1-
jafntefli liðanna í toppslag liðanna í Safamýrinni í gær-
kvöld. Kórdrengir, sem leika í deildinni í fyrsta skipti,
færðu sér stigamissi Eyjamanna í nyt, sigruðu Selfyss-
inga á útivelli og eru nú aðeins einu stigi á eftir ÍBV í
þriðja sæti deildarinnar. »27
Fram enn ósigrað og Kórdrengir
í baráttu um úrvalsdeildarsæti
ÍÞRÓTTIR MENNING
Unnur Freyja Víðisdóttir
unnurfreyja@mbl.is
„Ég er ekkert einmana þótt ég sé
einn,“ segir Dagur Fannar Magn-
ússon, 29 ára Selfyssingur og prestur
í Heydölum, sem var staddur í miðri
pílagrímsgöngu uppi á hálendi þegar
Morgunblaðið náði tali af honum. Um
er að ræða tíu daga langa göngu frá
Hólum í Reykholti og lagði Dagur af
stað í hana, einn síns liðs, á fimmtu-
dag.
Segist ekki vanur göngumaður
Hann segir það ótrúlega upplifun
að vera einn í óbyggðum í lengri tíma.
„Maður fer í gegnum allan tilfinn-
ingaskalann. Stundum er maður bara
alveg að missa það og svo horfir mað-
ur upp til himins og þá verður allt
betra,“ segir hann. „Gengið var með
mér fyrstu dagleiðina en þá vorum
við bara tvö. Svo komu nú vígslubisk-
upinn í Skálholti og kona hans og
gengu með mér eina dagleið milli
Hveravalla og Þverbrekkumúla.
Annars er ég bara búinn að vera einn
í þessu.“
Dagur er ekki vanur göngumaður
að eigin sögn. Hann býr þó að reynslu
af íþróttum frá yngri árum sem hann
segir hafa hjálpað sér á göngunni.
„Ég var í sleggjukasti og æfði frjálsar
íþróttir frá 13-20 ára og ég mun alltaf
búa að þeirri reynslu.“
Inntur eftir því segist Dagur ekki
hafa æft sig neitt sérstaklega fyrir
gönguna sem er um 230 km löng. „Við
vorum með svona pílagrímagöngur í
Austfjarðaprestkalli en þær voru
bara einhverjir 7 km einu sinni í viku.
Svo reyndi ég einu sinni að labba 16
km í einni beit með 17 kg á bakinu en
hef ekkert æft neitt meira en það,“
segir Dagur. „Mér var sagt að ég
myndi ganga mig í form í þessari ferð
og það virðist vera að raungerast.“
Ekki síður andleg vegferð
Hann segir gönguna persónulegt
afrek fyrir sig sjálfan en að það jafn-
ist ekkert á við afrek þeirra ferða-
langa sem hann hefur mætt á göng-
unni. „Ég er búinn að hitta alveg
magnað fólk á leiðinni sem hefur bæði
hlaupið og gengið miklu lengra en ég.
Mín ganga bliknar í samanburði við
afrek þessa fólks sem ég hef mætt á
göngunni.“
Þótt gangan taki líkamlega á segir
Dagur hana ekki síður vera andlega
vegferð. „Þetta snýst um að passa að
vera í núvitund allan tímann, íhuga,
hugleiða og biðja bænir,“ segir hann.
Fékk bænum sínum svarað
Á ákveðnum tímapunkti í ferðinni
buðust ferðamenn til að skutla bak-
pokanum hans Dags hluta af leiðinni
þar sem Dagur var orðinn svo sól-
brunninn á bakinu. Hann þáði boðið
og treysti á að geta drukkið lækj-
arvatn úr bollanum sínum næsta legg
leiðarinnar sem var um 20 km langur.
„Svo var bara ekki einn lækur á leið-
inni, glampandi sólskin og ég ekki
með neitt vatn með mér,“ segir Dag-
ur. Þegar hann hafði gengið 10-12 km
af leiðinni var hann svo aðframkom-
inn af þorsta að hann ákvað að leggj-
ast á bæn. „Ég bað guð að sjá mér
fyrir vatni, láta það bara renna úr ein-
hverju grjóti.“ Stuttu seinna var bæn-
um hans svarað þegar bíll kom akandi
hjá og nam staðar við hlið hans.
„Þá var þar fólk sem sagðist hafa
frétt af mér og spurði hvort ég væri
ekki með neitt að drekka og réttu
mér svo kók, Prins Póló og Snickers,“
segir Dagur. „Ég var svo upp með
mér að ég brast bara í grát. Á þessu
augnabliki fékk ég aukna trú á mann-
kynið.“ Síðar hafi þetta sama fólk svo
komið aftur og fært honum þrjár
hálfs lítra flöskur af vatni og lítinn
bakpoka. „Ég upplifði að það hafi ver-
ið sönn bænaheyrsla í gangi þarna,“
segir Dagur.
Helsti lærdómurinn sem Dagur
hefur dregið af ferðinni hingað til er
að pakka létt og ekki bara í bakpok-
ann heldur lífinu yfir höfuð. „Þessi
ferð opnaði augun fyrir því hvað mað-
ur þarf lítið til að lifa. Af hverju að
bögglast með endalaust af verald-
legum hlutum, áhyggjum og kvíða
þegar við þurfum þess ekki?“
Munur á að vera einn
og að vera einmana
- Pílagrímsganga ungs prests breyttist í píslargöngu
Ljósmynd/Gunnar Rögnvaldsson
Göngugarpur Séra Dagur Fannar Magnússon á göngu á Kjalvegi.
Hólar
Skálholt
Þingvellir
Pílagríma-
ganga Dags
Frá Hólum
í Skálholt