Morgunblaðið - 17.07.2021, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 17.07.2021, Blaðsíða 31
DÆGRADVÖL 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2021 Laugavegi 29 | sími 552 4320 | www.brynja.is | verslun@brynja.is GÆÐA VIFTUR FRÁ Opið virka daga frá 9-18 lau frá 10-16 MIAMI 40 cm Verð 11.130,- MIAMI 30 cm Verð 8.980,- LOUISIANA Verð 17.980,- UTAH Verð 14.800,- FLORIDA Verð 15.980,- VIFTA Á FÆTI Verð 11.970 Erum með þúsundir vörunúmera inn á vefverslun okkar brynja.is Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „JÆJA, ÉG HELD AÐ ÞAÐ VÆRI RÁÐ AÐ HÆTTA ÞESSUM TILRAUNUM NÚNA.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að muna eftir greiðslukortinu. MÉR DATT Í HUG AÐ GEFA ÞÉR HEIMATILBÚNA GJÖF Í ÁR… SEM ÉG ÚTBJÓ SJÁLF! HVAÐ ER ÞETTA? SÖLTUÐ FISKIFLUGU- RÚLLA. GJÖRÐU SVO VEL HRÓLFUR! ÞÚ ÆTTIR AÐ TEMJA ÞÉR BETRI BORÐSIÐI! ÞAÐ FINNST MÉR EKKI! SMJ ATT „SEM NÝI LÆRLINGURINN ÞARFT ÞÚ AÐ GERA ALLT SEM ÞEIR BIÐJA ÞIG UM.“ GLEYP Gíslasonar, Tímamót, frá 1937 sem fjallar um Ísland um aldamótin 1900. Þótt Þorvaldur láti af störfum í HÍ í sumar, mun hann halda rann- sóknum sínum ótrauður áfram bæði innan lands og utan. Hann er rann- sóknarfélagi í CESifo við Háskólann í München og heiðursfélagi í Evrópska hagfræðingafélaginu og síðan mun hann sinna listagyðjunni af sama kappi. Fjölskylda Eiginkona Þorvalds er Anna Karit- as Bjarnadóttir, f. 18.12. 1951, kenn- ari, deildarstjóri í Samábyrgð Íslands á fiskiskipum og síðar trygginga- ráðgjafi í Sjóvá og þau Þorvaldur búa í Reykjavík. Foreldrar hennar voru hjónin Bjarni Kristinn Ólafsson, raf- virkjameistari í Reykjavík, f. 18.10. 1914, d. 7.1. 1986, og Hólmfríður Sig- rún Jóhanna Pálmadóttir húsfreyja, f. 11.11. 1923, d. 5.2. 2008. Börn Önnu og fósturbörn Þorvalds eru 1) Jóhanna Andrea Jónsdóttir, starfsmaður Reykjavíkurborgar, f. 23.4. 1972, maki hennar er Árni Tóm- as Ragnarsson læknir. Dóttir Jó- hönnu er Andrea Elizabeth Gavern, f. 2.3. 1999. 2) Bjarni Jónsson raf- magnstæknifræðingur, f. 8.9. 1976, maki hans er Þórlaug Einarsdóttir geislafræðingur, f. 10.7. 1975. Börn þeirra eru Eiður Snorri, nemi í MR, f. 14.3. 2003; Konráð, nemandi í Haga- skóla, f. 15.3. 2006, og Birna Rún, nemandi í Melaskóla, f. 30.9. 2010. Bræður Þorvalds voru Þorsteinn Gylfason prófessor, f. 12.8. 1942, d. 16.8. 2005, og Vilmundur Gylfason, menntaskólakennari, alþingismaður og ráðherra, f. 7.8. 1948, d. 19.6.1983. Foreldrar Þorvalds voru Guðrún Vilmundardóttir, húsfreyja, f. 7.12.1918, d. 15.8. 2010 og Gylfi Þ. Gíslason, prófessor, alþingismaður og ráðherra, f. 7.2. 1917, d. 18.8.2004. Þorvaldur Gylfason Gísli Jónasson vinnumaður í Þingeyjarsýslum, bóndi í Kirkjubæ í Hróarstungu og síðan skipstjóri í Múlasýslum Ingunn Stefánsdóttir húsfreyja í Kirkjubæ í Hróarstungu og víðar Þorsteinn Gíslason skáld og ritstjóri í Reykjavík Þórunn Pálsdóttir húsfreyja í Reykjavík Gylfi Þ. Gíslason prófessor, alþingismaður og ráðherra í Reykjavík Páll Halldórsson smiður í Görðum á Álftanesi og síðan snikkari í Reykjavík Ingibjörg Þorvaldsdóttir húsfreyja í Görðum á Álftanesi og síðan í Reykjavík Jón Sigurðsson bóndi á Fornustekkum í Hornafirði og síðan verkamaður á Seyðisfirði Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja á Seyðisfirði Vilmundur Jónsson læknir á Ísafirði og síðan landlæknir Reykjavík Kristín Ólafsdóttir læknir á Ísafirði og síðan í Reykjavík Ólafur Ólafsson prófastur Hjarðarholti í Dölum Ingibjörg Pálsdóttir Mathiesen húsfreyja, Hjarðarholti í Dölum Úr frændgarði Þorvalds Gylfasonar Guðrún Vilmundardóttir húsfreyja í Reykjavík Gátan er sem endranær eftir Guðmund Arnfinnsson: Á höfði mér fljótt mátti finna. Flatkaka hálf eða minna. Flakkar hann fölur og bleikur. Flinkur á hljóðfæri leikur. Sigmar Ingason á þessa lausn: Karlinn gamli í tunglinu kíkir gegnum ský. Ég kláraði ekki flatkökuna og mána leifði því. Hár á skallatungli mínu varla vex á ný. Víst ég heyrði Mána grípa orgelið í. Helgi R. Einarsson leysir gátuna þannig: Máni er á mínum haus. Máni er kaka góð. Mikael Máni gítar kaus. Máninn í skýjum óð. Sjálfur skýrir Guðmundur gát- una þannig: Mána á höfði má ég flíka. Máni er hluti af flatköku líka. Hálfmáni flakkar um fölur og bleikur. Flinkur hann Máni á orgelið leikur. Þá er limra: Freygerður, frúin hans Mána, sem fór upp á jökulgljána og síðan kom ei, sagði: „ó, key, hann finnst, þegar fer að hlána“. Og síðan er ný gáta eftir Guð- mund: Dvergafar á sónar sæ set og yfir flóann ræ, bind svo fast við festarstein, farmurinn er gáta ein: Kornungur hann kallast má. Kenndur er við skugga sá. Síst á kvennafar hann fór. Frægum syngur hann í kór. Helgi R. Einarsson lét limruna „Listaleysi“ fylgja lausn sinni á gát- unni: Að vaða í villu og svíma við að stuðla og ríma er ósköp trist andans list sem tekur óþarfa tíma. Ég grip Stuðlamál og fletti upp á Ísleifi Gíslasyni á Sauðárkróki. Þar er þessi staka úr „Eddu hinni nýju“: Kærleiksamboð upp hann tók, ástar-gambri hreyfði. En “hárkamba“-eyjan klók engin sambönd leyfði. Lífið á götunni: Sé ég vappa á síðkveldum, síst þó happ að verði, í „ástar-pappa“ umbúðum „ilja-tappa“-Gerði. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Í mánasilfri hvað sem var

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.