Morgunblaðið - 17.07.2021, Side 19

Morgunblaðið - 17.07.2021, Side 19
19 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2021 18. júlí er merk- isdagur í sögunni, því deild íslenska fjár- hundsins í Hundarækt- arfélagi Íslands helgar hann íslenska fjár- hundinum. Og dag- urinn er hátíðisdagur um víða veröld, allra eigenda fjárhundsins íslenska, en hann er víða elskaður og dáður. Dagurinn er afmælisdagur afreks- mannsins Marks Watson sem var breskur heiðursmaður og einstakur bjargvættur fjárhundsins okkar. En Watson fæddist 18. júlí 1906. Hann ferðaðist mikið um Ísland á árunum eftir 1930 og hreifst mjög af þessum fagra hundi með hringaða rófu, og skynjaði að kynið var komið í útrým- ingarhættu svona eins og geirfugl- inn og haförninn síðar. Watson bjó einnig í Kaliforníu og víða en í björg- unarstörfum sínum flutti hann bæði hunda og tíkur héðan vestur um haf til að rækta og varðveita stofninn. Íslenski hundurinn var þá enn til inn til dala en stofninn kominn að dauða- mörkum. Páll A Pálsson yf- irdýralæknir skynjaði málið og gekk til liðs við Watson sem síðar flutti ræktun sína til Englands og leyfi fékkst svo til að flytja par hingað heim til framræktunar. Heið- urskonan Sigríður Pét- ursdóttir á Ólafsvöllum í Skeiðahreppi hóf svo sitt mikla rækt- unarstarf með íslenska fjárhundinn og gerði það í samstarfi við bæði Watson og Pál A. Páls- son. Sigríði fylgdi svo hópur ræktunarfólks bæði í sveitum og þéttbýli. Snati kom með Ingólfi Arnarsyni Saga íslenska hundsins hófst með landnáminu. Landnámsmenn tóku með sér búsmala, þar á meðal hunda. Lítið er ritað um hunda í Ís- lendingasögunum og nánast ekkert um fjárhunda. Sámur Gunnars á Hlíðarenda fær veglega umfjöllun því hann er öðruvísi hundur og tal- inn hafa verið írskur úlfhundur með afl og vitsmuni manns. En íslenski hundurinn varð eigi að síður mjög frægur sem gersemi, ekki síst á mið- öldum. Í Bretlandi var íslenski hundurinn þekktur meðal heldra fólks. Marteinn Beheim skrifar 1492 að Íslendingar selji hunda sína háu verði en gefi börn sín svo þau fái mat. Enn fremur skrifaði Olaus Magnus 1555 að íslenskir hundar séu vinsælir hjá aðalsfrúm og prest- um. Shakespeare nefnir einnig ís- lenskan hund í leikriti sínu um Hin- rik V. Þórhildur Bjartmarz minntist Mark Watson fyrir sex árum með þessum orðum. „Að láta drauma sína rætast og gera þá að veruleika á þann hátt sem Mark Watson gerði hér á landi er einstakt. Að sjá örfáa hunda af fágætu hundakyni í fjar- lægu landi og ákveða svo að bjarga kyninu frá því að deyja út segir margt um einstakan mann.“ Hún bætir við; „Mannsins sem hvatti til stofnunar og var heiðursstofnfélagi í Hundaræktarfélagi Íslands. Ekki nóg með það hann studdi baráttu dýraverndunarsinna á Íslandi, gaf þjóðinni dýraspítala og ómetanlegan arf.“ Mark Watson var heiðraður með fálkaorðunni, stórriddarakrossi með stjörnu 1965. Stöndum vörð um fjárhundinn okkar Það var gæfa mín sem alþingis- manns og síðar landbúnaðarráð- herra að koma að baráttunni um verndun og ræktun íslenska fjár- hundsins. Ég flutti þingsályktun með nokkrum mætum þingmönnum um að vernda fjárhundinn og hrein- rækta hann. Þarna átti ég ógleym- anlegt samstarf við Pál A. Pálsson yfirdýralækni, Sigríði Pétursdóttur á Ólafsvöllum, Guðrúnu Guðjónssen, formann félagsins, Guðríði Þ. Val- geirsdóttur, hundaræktanda á Arn- arstöðum í Flóa, og Stefán Að- alsteinsson, doktor í búfjárfræðum. Og síðar marga forystumenn bæði karla en ekki síst kvenna í Íslands- deildinni um fjárhundinn. Að hafa getað verið þjónn þessa fólks í mik- ilvægum björgunarstörfum var ógleymanlegt. Alþingismenn gerðu sér þá flestir grein fyrir að hætta var á ferðum og fjárhundurinn komst til ríkisstjórnarinnar og alla leið í landbúnaðarráðuneytið. Sjálf- sagt fannst einhverjum málið bros- legt og sögðu mig „kominn í hundana.“ En Friðjón Þórðarson, sá snjalli höfðingi og hagyrðingur, gladdi þingheim með ódauðlegri vísu: Ó, íslenski fjárhundur, lifandi listaverk með ljómandi augu sem höfða til rétt- lætiskenndar. Með hringaða rófu og hálsband um loðna kverk, nú heiti ég á þig að komast til allsherj- arnefndar. Vinir íslenska fjárhundsins draga fána að húni á sunnudaginn og gleðj- ast með hundaræktarfólki hér heima og erlendis. Hann er í dag ræktaður um víða veröld og er talinn með bestu varðhundum heimsins. For- feðrum okkar var hann tryggur vin- ur í harðri lífsbaráttu. Í dag er hann stolt eigenda sinna í sveit og borg. Stöndum vörð um dýrmætan félaga forfeðranna og einstakan vin eig- enda sinna. Friðrik mikli Prússa- konungur sagði svo forðum þessi fleygu orð: „Því meir sem ég kynnist mannfólkinu þykir mér vænna um hundinn minn.“ Eftir Guðna Ágústsson » Það var gæfa mín sem alþingismanns og síðar landbúnaðar- ráðherra að koma að baráttunni um verndun og ræktun íslenska fjárhundsins. Guðni Ágústsson Höfundur er fyrrverandi alþingismaður og ráðherra. 18. júlí er dagur íslenska fjárhundsins! Inga Björg Gunnarsdóttir Tignarlegur Arnarstaða-Askur er hér á myndinni en hann er af tegund íslensks fjárhunds.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.