Morgunblaðið - 17.07.2021, Side 10

Morgunblaðið - 17.07.2021, Side 10
STANGVEIÐI Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Það er eitthvað að gerast. Í fyrra- dag veiddust 24, svo 16 í gær. Þetta er allt í lagi,“ segir Rafn Valur Al- freðsson leigutaki Miðfjarðarár um ganginn í veiðinni fyrir norðan. Á miðvikudag höfðu veiðst þar 206 laxar og þar af samtals í síðustu viku 132, um 1,4 laxar á stöng á dag að meðaltali. Á sama tíma í fyrra hafði 337 verið landað í Miðfirðinum en eins og allir vita sem fylgjast með laxveiðinni þá hefur laxinn gengið afar seint í flestar ár lands- ins í sumar og vonuðust margir eft- ir sterkum göngum í stóstreyminu í upphafi liðinnar viku. „Það kom alveg inn einhver slatti af fiski,“ svarar Rafn þegar spurt er um hverju þessi síðasti stóri straumur hafi skilað. „Og það er komið svolítið af smálaxi, fínir fisk- ar, vel haldnir og fallegir.“ Rafn segir erfitt að spá um fram- haldið, hver útkoman verði hvað laxagöngur sumarsins varðar, það sé engin leið fyrr en líður á ágúst- mánuð. Hann minnir á að lengi hafi síðasta vika júlímánaðar og þær fyrstu í ágúst þótt vera þær bestu í Miðfjarðará, þá hafi mest gengið af laxi. „Ég vona að þannig verði það núna,“ segir hann. „En það veit enginn. Það gæti komið ein gusa núna og svo allt verið búið…“ Aðstæður hvað vatn og veður varðar segir Rafn hafa verið „ömur- legar“ undanfarnar vikur. „Það er mjög lítið vatn og hefur verið mjög heitt, vatnshitinn farið í 18 gráður,“ sem er ekki vænlegt í laxveiði. „Vegna vatnsleysis erum við líka bara að veiða hluta af ánni, það er svo lítið vatn í Vesturá að enn hefur ekki sést fiskur fyrir ofan Túnhyl. Þetta eru rosalega erfiðar að- stæður. Veiðin í Austurá hefur hins vegar verið mjög fín,“ bætir Rafn við en hún nýtur vatnsmiðlunar úr vötnum á Arnarvatnsheiði. Afar rólegt í Rangánum Samkvæmt síðustu vikutölum Landsambands veiðifélaga hefur mest veiðst við Urriðafoss í Þjórsá en á miðvikudaginn var höfðu 668 laxar verið færðir þar til bókar á dagsstangirnar fjórar. 533 laxar höfðu veiðst í Norðurá, þar er nú veitt á 15 stangir. 400 höfðu veiðst á stangirnar 14 í Þverá-Kjarrá, og 265 á sex stangir í Haffjarðará. Þegar horft er á hinar vikulegu veiðitölur í ánum er mikilvægt til að átta sig á ganginum að skoða á hversu margar stangir er veitt og hver er meðalveiðin á stöng. Þannig lauk holl í Haffjarðará veiðum í gær með 34 landaða laxa sem gerir tvo að meðaltali á stöng á dag sem er stórfín veiði. Svipað má segja um Elliðaárnar en 97 laxar veiddust í vikunni, rúmlega tveir á stöng á dag. 132 laxar veiddust í liðinni viku í Þverá/Kjarrá, um 1,4 laxar á dag. Við aflahæsta veiðistað sumarsins til þessa, Urriðafoss, var meðalveiði á hverja stöng tæpir þrír laxar. Það er ljóst að staðan í Rang- ánum er allt önnur og veiðin rólegri en allir aðstandendur ánna von- uðust til. Veiðimaður sem rætt var við við Ytri-Rangá í gær sagði stíg- anda vera þar en „engar stórar göngur“. Í Ytri veiddust 105 laxar í liðinni viku, sem er minna en lax á stöng á dag, ef veitt er á allar 18 dagsstangirnar, en í Eystri-Rangá veiddust á sama tíma 131 lax, sem er nokkurn veginn lax á hverja dagsstöng. Á miðvikudaginn var höfðu veiðst 319 laxar í Eystri- Rangá og 171 í Ytri-Rangá og vesturbakka Hólsár. Á sama tíma í fyrra höfðu veiðst í þessum systur- ám 1.572 og 575 laxar. „Þetta eru rosalega erfiðar aðstæður“ - Laxveiðin hefur glæðst en engar risagöngur komið í ár Happafengur Lukkulegur veiðimaður með sannkallaðan stórlax sem hann veiddi á svæði 2 í Miðfjarðará í vikunni. Nú gengur þar líka smálax. 10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2021 and i v e 35% AFSLÁTTUR 35% AFSLÁTTUR 100% NÁTTÚRULEGAR AFURÐIR 20% FERSKT KJÖT Kauptúni 3, Garðabæ | www.fisko.is Opið: Mán.-Fös. 10-19, Laug. 10-18, Sun. 12-18 ..kíktu í heimsókn DENTAL CARE SKIN COMPLEX STRENGTH & VITALITY Árleg skötumessa í Garði í Suð- urnesjabæ verður næstkomandi miðvikudag, 21. júní, en hefð er fyrir því að veislan sé á þeim degi vik- unnar næst Þorláksmessu á sumri sem er jafnan 20. júlí. Samkoman verður í Gerða- skóla og hefst kl. 19. Að venju er boðið upp á skötu, saltfisk og plokkfisk með til- heyrandi tólg, kartöflum, rófum og rúgbrauði. Dagskrá kvöldsins er fjöl- breytt og góð. Þórólfur Þor- steinsson og Baldvin Arason leika á harmóníkur, Páll Rúnar Pálsson frá Heiði í Mýrdal syngur og félagarnir Davíð Guðmundsson og Óskar Ívarsson taka lagið. Ræðumaður kvöldsins verður Óttar Guðmunds- son geðlæknir. Þá tekur ung söng- kona frá Hellu, Karen Guðmars- dóttir, nokkur lög en hún stundar nú söngnám í London. Jarl Sigur- geirsson tónlistarmaður stjórnar fjöldasöng. Í lokin flytja Rúnar Þór og hljómsveit hans nokkur þekkt lög. „Styrkur Skötumessunnar birt- ist í því að það eru allir sem koma og leggja okkur lið sem eru þátttak- endur í því að leggja okkar veikari bræðrum og systrum lið og góðum samfélagslegum málum,“ segir í fréttatilkynningu um verkefni þetta, þar sem Ásmundur Friðriksson al- þingismaður er í forystu. Árlega hafa um 450 manns mætt á Skötumessuna, sem er orðin föst í sessi. Messan er nú í þriðja skipti haldin í sameinuðum Suðurnesjabæ og er því tækifæri fyrir íbúa að gera þetta að sinni árlegu bæjarskemmt- un, mæta vel og styðja við góð mál- efni. Styrkir kvöldsins, sem eru veg- legir, fara meðal annars til þeirra sem standa höllum fæti eftir kór- ónuveirufaraldurinn. Þá eru greidd- ar skólamáltíðir fyrir ungt fólk og aðstoð veitt á ýmsan hátt. Aðgöngumiði á hátíðina kostar 5.000 kr. og best þykir að greiða fyr- irfram á reikningsnúmerið 0142-05- 70506 með kennitölunni 580711- 0650. Helstu bakhjarlar Skötumessu eru Fiskmarkaður Suðurnesja, Ice- landair Cargo, Suðurnesjabær og Algalíf. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Guðni Einarson Veisla Skötumessan er jafnan fjölsótt og sjávarfanginu eru gerð góð skil. Skötumessan nú haldin 21. júlí - Gleði í Garðinum á Þorláksmessu Karen Guðmarsdóttir Sundlaugin að Krossnesi á Strönd- um var opnuð að kvöldi föstudagsins 9. júlí eftir gagngerar endurbætur. Meðal annars var byggt við búnings- klefana og sturtuaðstaðan end- urbætt. Einnig var aðstaða fyrir starfsfólk sundlaugarinnar bætt. Breytingarnar á klefunum urðu meiri en gert hafði verið ráð fyrir í byrjun en ekkert hafði verið gert fyrir þá síðan sundlaugin var byggð árið 1954. Verkið hófst um miðjan ágúst í fyrra og var unnið að því í haust og vetur. Til verksins fékkst veglegur styrkur frá Öndvegissjóði brot- hættra byggða. Reynt var að hafa laugina opna af og til meðan á fram- kvæmdunum stóð, að því er fram kemur á Facebook-síðu laugarinnar. Krossneslaug er ein af sérstæð- ustu sundlaugum landsins. Hún stendur í fjörunni og fær heitt vatn úr hverum ofar í hlíðinni. Sundlaug- argestir geta notið einstaks útsýnis út á opið hafið og stundum má sjá hvali og seli í sjónum. Sundlaugin hefur verið opin allt árið frá kl. 7.00- 23.00 að því er segir á vefnum strandir.is. gudni@mbl.is Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson Krossneslaug Búningsklefarnir og sturtuaðstaðan voru endurbætt og stóðu framkvæmdir yfir í haust og vetur. Laugin var nýlega opnuð aftur. Krossneslaug löguð - Búningsklefar stækkaðir - Sturtu- aðstaðan löguð - Einstakt útsýni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.