Morgunblaðið - 17.07.2021, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 17.07.2021, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2021 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar anngjörnu verði og að ki förum við með bílinn n í endurskoðun, þér kostnaðarlausu. á s au þin að Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Tvær eins kílómetra langar sviflínur með farþegasætum verða næsta vor væntanlega komnar í Kambana, við austurbrún Hellisheiðar. Bæjarráð Hveragerðis fól bygginganefnd sveitarfélagsins sl. fimmtudag að fara í skipulags- vinnu, skv. fyr- irliggjandi gögn- um Kambagils ehf. Jafnframt stendur til að reisa útsýnispall skammt frá þjóð- veginum í Kömb- unum, það er á barmi Svartagljúfurs í Reykjadal, sem þarna er falið í landslaginu. Hátt yfir löngu og djúpu gilinu Hugmyndin er sú að fólk fari í ról- urnar frá útsýnispalli sem setja á upp örskammt frá þjóðveginum í Kömbum, nærri fossunum tveimur sem eru við efstu beygjuna þar og blasa við vegafarendum sem leið eiga um. Í Svartagljúfri er hár foss, flestum falinn en verður sýnilegur þegar sviflínurnar verða komnar upp. Hugsunin er sú að frá pallinum í Kömbum verði svifið í rólu hátt yfir löngu og djúpu gilinu niður í dalinn og lent nærri bílastæði við veit- ingastofu sem er í Reykjadal. Auk sæta á línunni verður einnig hægt að bruna niður hana á sleða, það er liggjandi með höfuðið á undan. Auk lendingarstaðar og aðstöðu- húss í Reykjadal er þar margvísleg önnur uppbygging fyrirhuguð, en staðurinn er fjölsóttur vegna heitra náttúrulauga sem eru þar í grennd- inni og marga vilja njóta. „Þetta er spennandi verkefni sem ánægjulegt er að hafi fengið grænt ljós í Hveragerði,“ segir Hallgrímur Kristinsson, forsvarsmaður Kamba- gils, í samtali við Morgunblaðið. Svifbraut með sætum, svokallaðar zip-línur, er til dæmis við Perluna í Öskjuhlíð í Reykjavík, svo fyr- irmynd sé nefnd. Miklar öryggiskröfur Allt verður stærra í sniðum við Kambana en í Öskjuhlíð og kostn- aður við fyrirhugaða uppbyggingu þar hleypur á hundruðum milljóna króna. Ætlunin er sú að í Reykjadal yrði ekið að brekkurótum með fólk, sem svo þyrfti að ganga upp gil og brekku að áðurnefndum palli þar sem flugferðin hefst. „Þetta væri þægileg ganga og leið flestum fær,“ segir Hallgrímur. Í verkefni þessu starfa forsvarsmenn Kambagils ehf. með kanadísku fyrirtæki sem víða um veröld hefur staðið að uppsetn- ingu sviflína og tengdra tækja. „Miklar öryggiskröfur eru gerðar og að mörgu þarf að hyggja. Við leggjum til dæmis mikið upp úr því að allt sem gert verður sé end- urkræft í umhverfi Reykjadals, Svartagljúfurs og Kamba. Und- irbúningur hefur staðið lengi yfir, helstu teikningar og gögn eru tilbúin og fara nú í yfirferð vegna deili- skipulagsvinnu sem tekur einhverja mánuði. Við stefnum ótrauð á að þessi ævintýraveröld verði tilbúin að ári,“ segir Hallgrímur. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Framkvæmd Útsýnispallur verður neðan við efstu beygjuna í Kömbum, sem er næst á þessari mynd. Hér rennur Hengladalsáin fram og áfram niður Svartagljúfur, en yfir henni yrði sviflínan sem fólk færi á frá áðurnefndum palli. Sviflína í Kömbunum - Zip-line í Svartagljúfri - Við þjóðveg - Flugið í Reykja- dal 1 km - Hveragerðisbær samþykkir - Stór fjárfesting Morgunblaðið/Eggert Róla Flugferð á línu yfir stórbrotna náttúru verður ögrun í tilverunni. Urður Egilsdóttir urdur@mbl.is „Við lítum svo sannarlega til bjart- aritíma en heimsfaraldurinn var heilmikill skóli,“ segir Guðmundur Heiðar Helgason, upplýsinga- fulltrúi og mark- aðsstjóri Strætó bs., um stöðu fyrirtækisins í dag. „Það var ansi þungt,“ segir Guðmundur. Árið 2020 var fyrirtækið rekið með 454 milljóna króna tapi sam- anborið við tæplega 37 milljóna tap árið áður. Guðmundur segir þó að fyrirtækið hafi ekki gripið til upp- sagna á síðasta ári. „Við sluppum ágætlega en þurftum að skerða að- eins launakostnað. Á skrifstofunni tókum við til dæmis á okkur 10% launalækkun í smá tíma og þá minnkaði öll yfirvinna,“ segir Guð- mundur. Áætlanir fyrirtæksins gerðu ráð fyrr því að tekjur af fargjöldum yrðu 492 milljónir króna fyrstu þrjá mán- uði þessa árs en þær urðu 438 millj- ónir króna. Guðmundur nefnir að fjöldi farþega í apríl 2020 hafi verið sögulega lágur. „Apríl í fyrra var alveg hræðilegur en þá fækkaði farþegum um allt að helming. Apríl hefur hins vegar tekið við sér í ár en 77% aukning var á milli apríl 2020 og apríl 2021.“ 20% ferðuðust minna Í könnun sem gerð var fyrir Strætó í mars sl. kom í ljós að innan við helmingur, eða 47,3%, hafði farið í strætó á síðustu 12 mánuðum. Þeg- ar spurt var um ástæður þess að við- komandi notaði ekki strætó oftar sögðu um 20% að þau hefðu ferðast minna vegna faraldursins. Segir fyrirtækið, að áherslur í markaðs- málum í sumar og haust miði sér- staklega að því að sækja aftur á þennan 20% hóp. Þar sé leiðakerf- ið lykilatriði og forðast verði að skerða þjónustu á næstu misserum. „Við erum bjartsýn á að skólarnir fari að skila sér í haust en þeir eru náttúrlega gríðarlega stór hópur hjá okkur. Það hafði gríðarlega mikil áhrif á reksturinn hve skólarnir voru lokaðir lengi og mikið um fjar- kennslu,“ segir Guðmundur og nefn- ir einnig alla þá vinnustaði sem hafi lagt áherslu á fjarvinnu. „Það er mjög stór hluti af fólki sem er að taka strætó í vinnu. Við er- um því bjartsýn á að farþegum fjölgi með haustinu,“ segir Guðmundur. „Við erum bara nokkuð brött. Nú tekur við hjá okkur vinna að nýju leiðaneti sem aðlagar strætókerfið að borgarlínuverkefninu. Markmiðið er að borgarlínuleiðirnar verði svo- kallaðar stofnleiðir og strætóleiðirn- ar verða inni í hverfunum sem tengj- ast svo við borgarlínukjarna. Við lítum svo á að þetta séu ekki tvö að- skilin kerfi heldur verður þetta í framtíðinni eitt almenningssam- göngunet.“ Heimsfaraldurinn heilmikill skóli - 454 milljóna króna tap á rekstri Strætó í fyrra - Sluppu við uppsagnir - Tekjur af fargjöldum drógust saman um 25% - 20% segjast ferðast minna með strætó vegna Covid-19 - Bjartsýn á haustið Farþegafjöldi Strætó Þúsundir farþega eftir mánuðum 1.500 1.250 1.000 750 500 250 0 2018 2019 2020 2021 Heimild: Strætó bs. jan. feb. mars apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. 731 383 725 1.102 1.204 829 572610 956 1.077 Guðmundur Heiðar Helgason Hólmfríður María Ragnhildardóttir hmr@mbl.is Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra telur fulla ástæðu til að ráð- ast í rannsókn á starfsemi vöggu- stofa í Reykjavíkurborg eins og borgarstjóri hef- ur boðað. Mun hún beita sér fyr- ir því að þingið aðstoði í þeim málum. Þann 7. júlí síðastliðinn til- kynnti Dagur B. Eggertsson borgarstjóri að borgin hygðist hefja úttekt á vöggustofum. Sagði Dagur þá að rannsóknin yrði mögulega háð því að Alþingi veitti rannsóknarteym- inu lagaheimild til að hægt yrði að rannsaka málið til fullnustu, enda eru sjúkraskýrslur og önnur per- sónugreinanleg gögn nauðsynleg í framgangi málsins. Katrín segir borgina hafa aðra stöðu en þingið og framkvæmda- valdið í því og þar af leiðandi mik- ilvægt að samstarf ríki milli þeirra tveggja við rannsókn málsins. „Borgarstjóri hefur rætt það við mig að það kunni að þurfa einhvers konar lagaheimildir til þess að slík rannsókn gæti orðið fullnægjandi og ég mun að sjálfsögðu reyna að greiða veg þess sem þörf er á.“ Óhugnanlegar lýsingar Stefnir borgarstjóri á að rann- saka Vöggustofuna að Hlíðarenda og Vöggustofu Thorvaldsensfélags- ins. Fimmmenningarnir Árni H. Kristjánsson, Fjölnir G. Bragason, Hrafn Jökulsson, Tómas V. Alberts- son og Viðar Eggertsson hafa hvatt til þess að starfsemi vöggustofanna verði rannsökuð. Sendu þeir greinargerð til borgarstjórnar þar sem greint var frá ómannúðlegum starfsháttum sem voru þar við lýði. Kom meðal annars fram í greinargerðinni að börn hefðu verið látin liggja af- skiptalaus í rúmum sínum og starfs- fólki bannað að taka þau upp að nauðsynjalausu. Fengu foreldrar ekki að heimsækja börn sín nema á fyrirfram ákveðnum tímum og börn- in voru þá höfð bak við glerskilrúm. Vill beita sér fyr- ir rannsókninni - Vill að Alþingi veiti lagaheimildir til að auðvelda rannsókn á vöggustofum Katrín Jakobsdóttir Hallgrímur Kristinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.