Morgunblaðið - 21.07.2021, Síða 2

Morgunblaðið - 21.07.2021, Síða 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 2021 COSTA DEL SOL 27. JÚLÍ - 6. ÁGÚST - 11 DAGAR FLUG & 4* GISTING Á VERAMAR VERÐ FRÁ: 99.900 KR. *Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN. INNIFALIÐ Í VERÐI FLUG, GISTING, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR INNIFALIÐ Í VERÐI FLUGSÆTI BÁÐAR LEIÐIR FLUG OG HANDFARANGUR FLUG VERÐ FRÁ: 39.900 KR.* WWW.UU.IS | HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓP. | 585 40000 | INFO@UU.IS Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Skemmtiferðaskipið Crystal Endeavor er í jómfrúarferð sinni við Íslandsstrendur, en það er sex stjörnu lúxussnekkja. Skip- ið lagði upp frá Reykjavíkurhöfn til Patreksfjarðar með 200 farþega, flesta Bandaríkjamenn sem komu með flugi til lands- ins. Áhöfnin er jafnfjölmenn. Fyrir vestan hefur um helm- ingur farþeganna farið í ferðir með Westfjords Adventures, en flestir heimsóttu Látrabjarg og Rauðasand. Skipið mun sigla fimm hringi í kringum Ísland í júlí og ágúst. Þeir sem ekki fara í kynnisferðir frá skipsfjöl frílysta sig gjarnan í bænum og setja sinn svip á hann. Auk Patreks- fjarðar er komið við á Ísafirði, Siglufirði, Húsavík, Seyðis- firði, í Heimaey og Reykjavík. Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson Snekkja dólar í Patreksfirði Ari Páll Karlsson Freyr Bjarnason Um þrír af hverjum fimm sem dvelja nú í farsóttarhúsi eru erlend- ir ríkisborgarar en af þeim 50 sem eru nú í farsóttarhúsi eru aðeins 17 Íslendingar. Þetta staðfestir Gylfi Þór Þorsteinsson, forstöðumaður sóttvarnahúsa, í samtali við Morg- unblaðið. „Það eru 50 í farsóttarhúsi núna og bætist bara í,“ sagði Gylfi í gær en þörf er á að opna annað far- sóttarhús á Rauðarárstíg að nýju. „Staðan er bara sú að það eru sí- felt fleiri að sýkjast og þar af leið- andi þurfum við að búa til pláss fyr- ir allt þetta fólk svo ekki fari illa á Landspítalanum. Stríðið heldur áfram.“ Ferðamenn strand á Íslandi Aðspurður hvort aðallega sé um að ræða bandaríska ferðamenn seg- ir hann að svo sé ekki. Vissulega séu bandarískir ferðamenn í farsótt- arhúsi en auk þess séu einstakling- ar frá Argentínu, Ísrael, Indlandi, Bretlandi, Írlandi, Póllandi og Tékklandi. „Við erum eins og Sameinuðu þjóðirnar hérna,“ segir hann, en þó nokkrir af þeim sem dvelja nú í far- sóttarhúsi eru erlendir ferðamenn sem þurftu að framvísa neikvæðu PCR-prófi við heimkomu. „Ef það kemur jákvætt út úr PCR-prófi þá er metið hvort hann þurfi að vera hér í tvær vikur. Ef það er mjög lítið af veirunni þá fer hann í mótefnamælingu og ef það finnst í honum mótefni fær hann að fara, því þá er hann ekki smitandi,“ segir Gylfi. Í gær var greint frá að 44 smit hefðu greinst, þar af 38 innanlands og sex á landamærum. „Þetta sýnir að það er komin töluvert mikil dreifing út í samfélagið og þetta stefnir í veldisvöxt,“ sagði Þórólfur Guðnason í samtali við mbl.is, en flestir sem hafa greinst eru full- bólusettir og meðalaldur þeirra um 30 ár. Fyllist í sótt- varnarhúsi - Erlendir ferðamenn strandaglópar Þórólfur Guðnason Gylfi Þór Þorsteinsson Félagið Domus barnalæknar ehf. hefur, fyrir hönd um það bil 30 barnalækna sem starfað hafa í Dom- us Medica undanfarin ár, tekið á leigu húsnæði í Urðarhvarfi 8 í Kópavogi. Áætlað er að flytja starf- semina um áramótin og verður hún með svipuðu sniði og áður. Einnig flyst kvöld- og helgarvakt barnalæknaþjónustunnar í sama húsnæði og verður hún, samkvæmt tilkynningu, starfrækt alla daga árs- ins eins og verið hefur. Auk barna- lækna flytja í nýja húsnæðið háls-, nef- og eyrnalæknar úr Domus Med- ica og rannsóknarstofan Sameind. Í Urðarhvarfi eru fyrir Orku- húsið, röntgenþjónusta og önnur heilbrigðistengd starfsemi. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Domus Medica Barnalæknar þar hyggjast flytja í Urðarhvarf. Flytja úr Domus Medica

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.