Morgunblaðið - 21.07.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 21.07.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 2021 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Urður Egilsdóttir urdur@mbl.is „Ég held að það sé óhætt að segja að hljóðið í mönnum er misjafnt,“ segir Ólafur Ísleifsson, núverandi þing- maður Miðflokksins í Reykjavík norður. Framboðslisti Miðflokksins í kjördæminu var samþykktur á fé- lagsfundi í fyrradag. Ólafur er ekki meðal sex efstu manna á lista flokks- ins en hann segist ekki hafa sóst eftir sæti á lista til þess að leysa pattstöðu sem upp var komin við uppstillingu framboðslistans í kjördæminu. Vil- borg Þóranna Kristjánsdóttir, lög- fræðingur og sáttamiðlari, leiðir listann. Enn á eftir að stilla upp á lista flokksins í Reykjavík suður en til- laga uppstillingarnefndar var felld í síðustu viku. Félagsmenn munu því kjósa oddvita, eins og kom fram í blaðinu í gær, ekki liggur fyrir hvernig skipað verður í önnur sæti listans. Spurður hvaðan sú ákvörðun kem- ur að margir lykilmenn flokksins, svo sem Karl Gauti Hjaltason, Þor- steinn Sæmundsson og Gunnar Bragi Sveinsson, séu ekki í oddvita- sæti á listum flokksins sem hafa ver- ið birtir hingað til segist Ólafur ekki vilja tjá sig um það enda sé það við- kvæmt. „Það er út af fyrir sig hægt að setja spurningarmerki við það,“ segir Ólafur og bætir við að það séu margar hliðar á málinu. Tekið skal fram að Gunnar Bragi gaf ekki kost á sér áfram í Suðvesturkjördæmi. „Ég hef ekki lokað neinum dyrum að baki mér,“ segir Ólafur spurður hver hans næstu skref séu. „Þessi mál hafa tekið langan tíma og reynt á sums staðar.“ Miðflokkurinn mælist nú með fylgi um og yfir 5%, fékk tæp 11% at- kvæða í síðustu alþingiskosningum. Ekki lokað neinum dyrum - Listi kynntur fyrir Reykjavík norður - Tillaga uppstilling- arnefndar felld - Lykilmenn ekki oddvitar á listum Ólafur Ísleifsson Vilborg Þóranna Kristjánsdóttir Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ekki er gert ráð fyrir skjólbelti meðfram breikkuðum Vesturlands- vegi um Kjalarnes ofan við Kolla- fjörð. Þar var trjábelti sem var fjar- lægt því það stóð í vegstæðinu. Vegagerðin hyggst ekki planta nýju skjólbelti en ætlar að reisa hljóðmön við Grundarhverfi. „Við reyndum að bjarga skjólbelt- inu á tímabili í haust þegar fram- kvæmdir voru að byrja en það var ekki hægt. Það gleymdist að gera ráð fyrir skjólbelti í veghelgunar- svæðinu,“ segir Guðni Indriðason, formaður Íbúasamtaka Kjalarness. Hann segir að fulltrúar íbúasamtak- anna hafi rætt við Vegagerðina um að viðhalda skjólbeltinu, enda hafi það gert sitt gagn. „Þetta skjólbelti hefur komið í veg fyrir að bílar hafi fokið þarna út af undanfarin ár. Áður gerðist það gjarnan nokkrum sinnum á ári. Nú er skjólbeltið farið og það er ekki langt síðan þarna fauk hjólhýsi.“ Anna Elín Jóhannsdóttir, verk- fræðingur hjá Vegagerðinni og verkefnastjóri við breikkun Vest- urlandsvegar á Kjalarnesi, segir að þau tré úr skjólbeltinu sem hægt var að færa hafi verið flutt á skilgreint svæði. Önnur voru felld. Hún kveðst hafa heyrt að Vegagerðin hafi plant- að skjólbeltinu á sínum tíma en hafði ekki séð neina staðfestingu þess. „Við höfum ákveðið fjármagn og reynum að gera veginn fyrir það. Vegagerðin keypti land undir breikkun vegarins. Þessi tré voru inni á einkalandi. Það var ekki keypt land til að planta skjólbelti og það rúmast ekkert meira inni á þessu deiliskipulagða svæði en þegar er komið þar,“ segir Anna. Hún segir skjólbelti af hinu góða, en Vegagerðin sé ekki mikið í því að planta trjám og alls ekki í land í einkaeigu. Það séu frekar landeig- endur, skógræktarfélög eða sveit- arfélög sem sjái um það. Þá bendir Anna á að tré megi ekki vera of nærri vegi. Séu þau of ná- lægt skapi þau hættu fyrir umferð- ina. Það mundi því útheimta talsverð landakaup ef Vegagerðin ætti að planta skjólbeltum með vegum. Anna sagði að í umhverfismati hefðu verið skilgreindar mótvæg- isaðgerðir vegna hljóðvistar. Því verða gerðar hljóðmanir milli þjóð- vegarins og Grundarhverfis á Kjal- arnesi. Ekki skjólbelti við þjóðveg á Kjalarnesi Morgunblaðið/Unnur Karen Kjalarnes Unnið er að breikkun Vesturlandsvegar. Nýi vegarhelmingurinn er þar sem skjólbelti var áður. - Hljóðmön verður reist hjá Grundarhverfi Andrés Magnússon andres@mbl.is Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráð- herra, kveðst ánægður með stjórn- arsamstarfið þótt stundum reyni á. Á milli forystumanna stjórnarflokk- anna ríki traust og stjórninni hafi orðið vel ágengt við verkefni sín, þar á meðal að koma á stöðugleika og stjórnfestu í landinu. Þetta kemur fram í viðtali við hann í Dagmálum Morgunblaðsins í dag, streymi á netinu sem opið er öll- um áskrifendum. „Það sem helst veldur mér áhyggjum í augnablikinu er hvernig fylgið er að brotna niður í fleiri og fleiri flokka. Kannanir eins og Morg- unblaðið birti nýlega um að enn geti fjölgað flokkum á Alþingi finnst mér ekki góðs viti. Það mun gera verk- efnið enn erfiðara,“ segir Bjarni, en samkvæmt könnuninni gætu níu flokkar náð kjöri á Alþingi. „Ég bara trúi því ekki að það verði niðurstað- an,“ segir Bjarni og segir hörku- kosningabaráttu fram undan. Það þarf aðhald Spurður um ágreining innan ríkis- stjórnarinnar um sóttvarnaaðgerðir þessa dagana vill hann ekki gera of mikið úr honum. „Það er mjög eðlilegt að það þurfi að ræða málin þegar við erum að fara svona fram og til baka. Þá er eðlilegt að menn biðji um gögn og spyrji spurninga.“ Hann segir það eiga við nú. Þar hafi vaknað spurningar um forsend- ur, orsakir og afleiðingar aðgerða. „Þessi ráðstöfun heilbrigðisráð- herrans núna er ekki mjög umfangs- mikil og ekki mjög íþyngjandi. Þótt það hefði verið betra að vera laus við það, þá virði ég þá skoðun. Sótt- varnalæknir hefur ákveðnar áhyggj- ur og heilbrigðisráðherra stígur í áttina að því sem hann bað um. Aðal- málið er hins vegar að við erum laus við allar ráðstafanir hér innanlands.“ Spurður um skeytasendingar heil- brigðisráðherra eftir ríkisstjórnar- fund á mánudag segir Bjarni að það hafi verið kosningalykt af þeim. „Ég veit ekki alveg í hvað heilbrigðisráð- herrann var að vísa,“ segir hann og bætir við að mikil samheldni hafi verið í ríkisstjórninni í faraldrinum. „Oft hvöss skoðanaskipti, þó það nú væri! En mér finnst hafa tekist vel til og held að heilbrigðisráðherr- ann hafi fengið góðan stuðning til þeirra verka.“ Innan Sjálfstæðisflokksins hafi vissulega heyrst ýmsar efasemda- raddir, sem spyrðu spurninga. „Sem er gott. Við þurfum aðhald og eigum ekki að veigra okkur við að svara erf- iðum spurningum.“ Hörkukosningabarátta fram undan - Bjarni Benediktsson í viðtali um þjóðmálin í Dagmálum - Almennt ánægður með stjórnarsamstarfið - Vill ekki gera of mikið úr hnútukasti heilbrigðisráðherra - Spurningar og efasemdir eðlilegt aðhald Umræðuefni Dagmála » Ríkisstjórnarsamstarfið » Sóttvarnir » Áfengisverslun » Ríkisfjármál » Skattalækkanir » Stytting vinnuviku » Atvinnumál » Kosningar Dagmál Bjarni Benediktsson hefur áhyggjur af flokkakraðaki á þingi og telur fjölgun kjördæma skynsamlega.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.