Morgunblaðið - 21.07.2021, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 2021
Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar
& sláttuorf
Snjóblásarar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
Sláttutraktorar
40 ár
á Íslandi
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Enginn stjórnmálaflokkanna höfðar
með jöfnum hætti til kjósenda á
landinu öllu og þar getur skeikað
verulegu. Þetta er meðal þess sem
lesa má úr niðurbroti á niðurstöðum
skoðanakönnunar sem MMR gerði í
samvinnu við Morgunblaðið og
mbl.is á afstöðu fólks til helstu vænt-
anlegra framboða í alþingiskosning-
unum sem fram eiga að fara hinn 25.
september í haust.
Það eru ekki ný sannindi að sumir
stjórnmálaflokkar sæki sér frekar
stuðning á sum svæði umfram önn-
ur, frekar í þéttbýli eða dreifbýli.
Það er hins vegar athyglisvert að
enginn af stjórnmálaflokkunum níu,
sem líklegt má telja að eigi mögu-
lega á þingsæti í haust, sé með til-
tölulega jafnt fylgi í kjördæmunum
sex, stór sem þau þó eru.
Framsókn og Miðflokkur
Framsóknarflokkurinn hefur
löngum verið talinn dreifbýlis-
flokkur, allt frá því þessi elsti stjórn-
málaflokkur landsins varð til árið
1916 við samruna Bændaflokksins
og Óháðra bænda. Hann á sér alveg
stuðning á höfuðborgarsvæðinu, en
ekki í neinni líkingu við það sem ger-
ist í landsbyggðarkjördæmunum,
sérstaklega Norðausturkjördæmi,
en lætur áfram undan í Suður-
kjördæmi.
Mynstrið er ekki ósvipað hjá Mið-
flokknum, sem kalla má klofning úr
Framsóknarflokknum. Þar er fylgið
í landsbyggðarkjördæmunum býsna
svipað, en á höfuðborgarsvæðinu er
það líka u.þ.b. jafnlélegt.
Samfylking og Sósíalistar
Mörgum kemur sjálfsagt á óvart
að Samfylkingin skuli vera orðin
eins konar landsbyggðarflokkur,
þegar litið er til kjörfylgis eftir kjör-
dæmum. Að því leyti virðist hún ekki
hafa fyllilega rétt úr kútnum frá af-
hroðinu 2016, þegar hún var nánast
þurrkuð út og náði engum þing-
manni á suðvesturhorninu.
Sömuleiðis láta margir eins og
Sósíalistaflokkurinn sé sella ungs,
róttæks fólks í höfuðborginni, sem
getur svo sem vel verið, en stað-
reyndin er sú að hann sækir fylgi
sitt með miklu eindregnari hætti til
Norðvestur- og Norðausturkjör-
dæma en höfuðborgarsvæðisins. Til
Sunnlendinga miklu síður.
Þá er Flokkur fólksins skrýtinn;
hann á bæði fylgi á landsbyggð og í
Reykjavík suður, en sáralítið í
Reykjavík norður og nánast ekkert í
Kraganum.
Píratar og Viðreisn
Ólíkir flokkar sem Píratar og Við-
reisn eru að flestu leyti, þá eiga þeir
það sameiginlegt að sækja styrk
sinn einkum á höfuðborgarsvæðið en
miklu síður út á land, þótt Píratar
séu raunar með ágætt fylgi á Suður-
landi. Má eiginlega segja um þá báða
að þeir hreyfi varla við fólki í Norð-
urkjördæmunum.
Sjálfstæðismenn
og Vinstri-græn
Fylgi þessara tveggja flokka til
hægri og vinstri er svolítið skrýtið.
Sjálfstæðismenn eiga greinilega
erindi um allt land, þeir einir ná
hvarvetna máli. Hins vegar blasir
við að þeir eru í tómu tjóni í Norð-
austurkjördæmi, tapa fjórðungi at-
kvæða frá síðustu kosningum, sem
þó voru þeim ekki sérlega gjöfular.
Vinstri-græn standa tæpt í tveim-
ur landsbyggðarkjördæmum og ekki
vel nema í einu, Reykjavík suður. Er
það þó ekki kjördæmi forsætisráð-
herrans Katrínar Jakobsdóttur, sem
aðrar kannanir sýna að njóti bæði
vinsælda og trausts. Þá er verra ef
það skilar sér ekki í kjörkassana.
B
Framsókn
C
Viðreisn
D
Sjálfstæðisflokkur
M
Miðflokkur
P
Píratar
S
Samfylking
V
Vinstrigræn
F
Flokkur fólksins
J
Sósíalistar
Fylgi flokka skipt eftir kjördæmum
úr spurningavagni MMR 8. - 14. júlí
0%
5%
10%
15%
20%
25%
30%
RNRSSVSLNANV
0%
5%
10%
15%
20%
25%
30%
RNRSSVSLNANV
0%
5%
10%
15%
20%
25%
30%
RNRSSVSLNANV
0%
5%
10%
15%
20%
25%
30%
RNRSSVSLNANV
0%
5%
10%
15%
20%
25%
30%
RNRSSVSLNANV
0%
5%
10%
15%
20%
25%
30%
RNRSSVSLNANV
0%
5%
10%
15%
20%
25%
30%
RNRSSVSLNANV
0%
5%
10%
15%
20%
25%
30%
RNRSSVSLNANV
0%
5%
10%
15%
20%
25%
30%
RNRSSVSLNANV
Misjafn styrkur flokka í kjördæmum
- Enginn flokkur með sömu skírskotun um allt land - Skautun landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis
2021
2021 ALÞINGISKOSNINGAR