Morgunblaðið - 21.07.2021, Page 10

Morgunblaðið - 21.07.2021, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 2021 Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar & sláttuorf Snjóblásarar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði Sláttutraktorar 40 ár á Íslandi Andrés Magnússon andres@mbl.is Enginn stjórnmálaflokkanna höfðar með jöfnum hætti til kjósenda á landinu öllu og þar getur skeikað verulegu. Þetta er meðal þess sem lesa má úr niðurbroti á niðurstöðum skoðanakönnunar sem MMR gerði í samvinnu við Morgunblaðið og mbl.is á afstöðu fólks til helstu vænt- anlegra framboða í alþingiskosning- unum sem fram eiga að fara hinn 25. september í haust. Það eru ekki ný sannindi að sumir stjórnmálaflokkar sæki sér frekar stuðning á sum svæði umfram önn- ur, frekar í þéttbýli eða dreifbýli. Það er hins vegar athyglisvert að enginn af stjórnmálaflokkunum níu, sem líklegt má telja að eigi mögu- lega á þingsæti í haust, sé með til- tölulega jafnt fylgi í kjördæmunum sex, stór sem þau þó eru. Framsókn og Miðflokkur Framsóknarflokkurinn hefur löngum verið talinn dreifbýlis- flokkur, allt frá því þessi elsti stjórn- málaflokkur landsins varð til árið 1916 við samruna Bændaflokksins og Óháðra bænda. Hann á sér alveg stuðning á höfuðborgarsvæðinu, en ekki í neinni líkingu við það sem ger- ist í landsbyggðarkjördæmunum, sérstaklega Norðausturkjördæmi, en lætur áfram undan í Suður- kjördæmi. Mynstrið er ekki ósvipað hjá Mið- flokknum, sem kalla má klofning úr Framsóknarflokknum. Þar er fylgið í landsbyggðarkjördæmunum býsna svipað, en á höfuðborgarsvæðinu er það líka u.þ.b. jafnlélegt. Samfylking og Sósíalistar Mörgum kemur sjálfsagt á óvart að Samfylkingin skuli vera orðin eins konar landsbyggðarflokkur, þegar litið er til kjörfylgis eftir kjör- dæmum. Að því leyti virðist hún ekki hafa fyllilega rétt úr kútnum frá af- hroðinu 2016, þegar hún var nánast þurrkuð út og náði engum þing- manni á suðvesturhorninu. Sömuleiðis láta margir eins og Sósíalistaflokkurinn sé sella ungs, róttæks fólks í höfuðborginni, sem getur svo sem vel verið, en stað- reyndin er sú að hann sækir fylgi sitt með miklu eindregnari hætti til Norðvestur- og Norðausturkjör- dæma en höfuðborgarsvæðisins. Til Sunnlendinga miklu síður. Þá er Flokkur fólksins skrýtinn; hann á bæði fylgi á landsbyggð og í Reykjavík suður, en sáralítið í Reykjavík norður og nánast ekkert í Kraganum. Píratar og Viðreisn Ólíkir flokkar sem Píratar og Við- reisn eru að flestu leyti, þá eiga þeir það sameiginlegt að sækja styrk sinn einkum á höfuðborgarsvæðið en miklu síður út á land, þótt Píratar séu raunar með ágætt fylgi á Suður- landi. Má eiginlega segja um þá báða að þeir hreyfi varla við fólki í Norð- urkjördæmunum. Sjálfstæðismenn og Vinstri-græn Fylgi þessara tveggja flokka til hægri og vinstri er svolítið skrýtið. Sjálfstæðismenn eiga greinilega erindi um allt land, þeir einir ná hvarvetna máli. Hins vegar blasir við að þeir eru í tómu tjóni í Norð- austurkjördæmi, tapa fjórðungi at- kvæða frá síðustu kosningum, sem þó voru þeim ekki sérlega gjöfular. Vinstri-græn standa tæpt í tveim- ur landsbyggðarkjördæmum og ekki vel nema í einu, Reykjavík suður. Er það þó ekki kjördæmi forsætisráð- herrans Katrínar Jakobsdóttur, sem aðrar kannanir sýna að njóti bæði vinsælda og trausts. Þá er verra ef það skilar sér ekki í kjörkassana. B Framsókn C Viðreisn D Sjálfstæðisflokkur M Miðflokkur P Píratar S Samfylking V Vinstrigræn F Flokkur fólksins J Sósíalistar Fylgi flokka skipt eftir kjördæmum úr spurningavagni MMR 8. - 14. júlí 0% 5% 10% 15% 20% 25% 30% RNRSSVSLNANV 0% 5% 10% 15% 20% 25% 30% RNRSSVSLNANV 0% 5% 10% 15% 20% 25% 30% RNRSSVSLNANV 0% 5% 10% 15% 20% 25% 30% RNRSSVSLNANV 0% 5% 10% 15% 20% 25% 30% RNRSSVSLNANV 0% 5% 10% 15% 20% 25% 30% RNRSSVSLNANV 0% 5% 10% 15% 20% 25% 30% RNRSSVSLNANV 0% 5% 10% 15% 20% 25% 30% RNRSSVSLNANV 0% 5% 10% 15% 20% 25% 30% RNRSSVSLNANV Misjafn styrkur flokka í kjördæmum - Enginn flokkur með sömu skírskotun um allt land - Skautun landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis 2021 2021 ALÞINGISKOSNINGAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.