Morgunblaðið - 21.07.2021, Side 11

Morgunblaðið - 21.07.2021, Side 11
FRÉTTIR 11Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 2021 Garðatorg 6 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is Ten Points Madeleine Nú 11.893 kr. 16.990 kr. 40-60% afsláttur af útsöluvörum Útsala Auðjöfurinn Jeff Bezos fór í sína fyrstu geimferð í gær um borð í geimflauginni New Shepard sem er í eigu Blue Origin. Fyrirtækið er í eigu Bezos og mun annast ferðir ferðamanna út í geim. Ferðin tók um tíu mínútur og var geimfarinu flogið í rúmlega hundrað kílómetra hæð þar sem finna má Karman-línuna, en hún markar enda gufuhvolfsins og byrjun geimsins. Geimfararnir upp- lifðu því þyngdarleysi og sáu sveig sjóndeildarhringsins. Með í för New Shepard var bróðir Bezos, Mark Bezos, hin 82 ára gamla Wally Funk og hinn 18 ára gamli Oliver Daemen. Í geimferðinni voru því elsti og yngsti einstaklingurinn sem hafa ferðast út í geim. „Besti dagur sem ég hef upplifað,“ sagði Bezos eftir að geimfarið lenti á jörðu niðri. Fyrr í mánuðinum lét auðjöf- urinn Richard Branson skjóta sér upp í geim en sú ferð fór upp í 85 kílómetra hæð. Blue Origin er því í samkeppni við fyrirtæki Bransons, Virgin Galactic, í geimferða- mennsku. AFP Geimferð New Shepard flaug í um 107 kílómetra hæð þar sem má finna Karman-línuna sem markar enda gufuhvolfsins og upphaf geimsins. Bezos í sinni fyrstu geimferð - Geimfarið New Shepard flaug í 107 km hæð Söngleikjahöf- undurinn And- rew Lloyd Webb- er segir breska leikhúsiðnaðinn vera „á hnján- um“ vegna reglna yfirvalda um sóttkví og einangrun. Webber ætlaði að frumsýna söng- leik um Öskubusku í síðustu viku en varð að aflýsa sýningunum vegna smits sem greindist hjá leikhópnum og þurfti því hluti hópsins að fara í sóttkví. Webber segir núverandi takmarkanir vera „gjörsamlega til- hæfulausar.“ Hann segir leikhúsið ekki geta starfað ef fólk þurfi að fara í sóttkví í hvert skipti sem ein- hver er með mögulegt smit. Webb- er segir yfirvöld ekki átta sig á mikilvægi leikhússins, hvorki menningarlega né efnahagslega. Óvíst er hvenær sýningar á söng- leik Webbers hefjast. BRETLAND Segir leikhúsiðn- aðinn að kikna Andrew Lloyd Webber Ástralskur maður hefur verið hand- tekinn eftir að honum tókst að brjót- ast út af fjórðu hæð á sóttkvíarhót- eli. Hann hafði verið skyldaður til dvalar þar. Telegraph greinir frá. Maðurinn kom til borgarinnar Perth frá Brisbane með innanlands- flugi en borgirnar eru hvor í sínu fylki Ástralíu. Umsókn hans um að fá að heimsækja fylkið var hafnað og þurfti hann því, samkvæmt sótt- varnareglum þar í landi, að yfirgefa fylkið innan 48 tíma og var færður á áðurnefnt sóttkvíarhótel í millitíð- inni. Rétt fyrir klukkan eitt aðfaranótt þriðjudags barst lögreglu tilkynn- ing um að sést hefði til mannsins klifra út af fjórðu hæð hótelsins með reipi sem hann hafði búið til úr sam- anbundnum lökum og sængur- fötum. Lögregla fann manninn um átta klukkustundum síðar og handtók hann. Hann hefur síðan þá greinst ósmitaður. KLIFRAÐI ÚT UM GLUGGANN Strauk með bundn- um sængurfötum Hótel Sóttkvíarhótel í Brisbane. Andrés Magnússon andres@mbl.is Efnahagsáhrif heimsfaraldurs kór- ónuveirunnar eru enn að koma fram og óttast er að þau kunni að reynast langvinn. Það eykur mönnum svo ekki bjartsýni að víða er ný bylgja smita tekin að rísa, en hún getur reynst skeinuhætt í þeim fjölmörgu löndum þar sem bólusetning er ekki hafin, líkt og víða utan Vesturlanda, eða gengið dræmlega, eins og víða á meginlandi Evrópu. Margvíslegra skammtímaáhrifa getur þó gætt frá degi til dags. Á mánudag hríðféllu þannig hlutabréf á Wall Street í New York-borg, vegna fregna um aukin smit og ótta við að Delta-afbrigði veirunnar trufli efnahagslega viðreisn vestanhafs og víðar, en við bættust hríðversnandi samskipti Bandaríkjanna og Kína. Sömuleiðis féll olíuverð og ávöxtun- arkrafa skuldabréfa. Í gær tóku menn hins vegar gleði sína á ný og notfærðu sér kauptæki- færi í ódýrum hlutabréfum, svo verð- fallið gekk mikið til baka. Kaupa- héðnar líta flestir svo á að ávöxtunar sé helst að vænta í hlutabréfum. Það er þó víðar en vestanhafs sem skjálfti er í kauphöllinni. Það átti líka við í Ósló, þar sem hlutabréf féllu skarpt eftir að OPEC+-ríkin ákváðu að auka olíuframleiðslu á ný til þess að örva hagkerfi heimsins. Hún dróst mjög saman í upphafi farald- ursins. Af framvirkum samningum má ráða að markaðurinn telur að olíuverð eigi eftir að lækka talsvert meira á næstu mánuðum. Það að baki búa vafalaust vísbend- ingar um að bólusetning dugi ekki fullkomlega gegn veirunni. Þótt hún dragi mikið úr útbreiðslu hennar og alvarlegum veikindum af hennar völdum, þá megi búast við að veiran gjósi reglulega upp öðru hverju næstu misseri eða lengur. Taugaveiklun á mörkuðum - Miklar verðsveiflur á mörkuðum vegna áhyggna af kórónuveirunni Ný tilfelli Ný dauðsföll Ein vika nýrra Covid-19 tilfella 243.400+ tilfelli Bandaríkin 154.400+ 344.100+ Íran 63.000+ Írak 125.300+ Indónesía 50.400+ Indland 269.800+ Thaíland 70.100+ 82.300+ Malasía 82.600+ Filippseyjar Brasilía 284.800+ Paraguay 68.600+ Argentína 106.200+ Mexíkó 65.500+ Suður-Afríka 95.500+ Tyrkland 1.840+ látnir 1.270+ 2.570+ 7.560+ 3.410+ 5.340+ 880+ 8.520+ 2.700+ 510+ Túnis 1.150+ 5.420+ 770+ 1.480+ 1.330+ 750+ 550+ Kólumbía 190.700+ Spánn 57.900+ Frakkland 318.200+ Bretland 51.800+ Holland Perú 1.350+ Búrma 510+ Namibía Bangladesh Chile 630+ Rússland 174.200+ 20 lönd þar sem sóttin sækir mest á. 13. til 19. júlí Oregon-ríki glímir nú við eina mestu skógarelda sem komið hafa upp í Bandaríkjunum. Tæplega 1.500 ferkílómetrar af landsvæði ríkisins hafa orðið eldinum, sem hefur hlotið heitið „Bootleg- eldurinn“, að bráð. Yfirvöld á svæð- inu meta ástandið mjög hættulegt en þó er búið að ná tökum á eldum á þriðjungi svæðisins. Skógareld- arnir hafa staðið yfir í rúmar tvær vikur. Um tvö þúsund íbúar hafa þurft að yfirgefa heimili sín og að minnsta kosti 160 heimili hafa orðið eldinum að bráð. Engin dauðsföll hafa verið staðfest. „Eldurinn er svo mikill og býr til svo mikla orku og mikinn hita að hann breytir veðrinu,“ segir Marc- us Kauffman, talsmaður skógrækt- ar ríkisins, og bætir við að í venju- legum aðstæðum segi veðrið til um hvernig eldurinn muni haga sér, en nú sé því öfugt farið. Eldarnir í Oregon eru á meðal 80 annarra skógarelda sem finnast í 13 ríkjum í vestanverðum Banda- ríkjunum. Þar hafa hundruð látist vegna hitabylgja sem hafa staðið yfir frá því í júní. Sérfræðingar segja að búast megi við að loftslagshlýnun auki tíðni öfgakenndra veðuratburða, svo sem hitabylgja, en flókið sé að tengja einn tiltekinn atburð við hlýnunina. Mestu eldar sem bandaríska þjóðin hefur glímt við Skógareldar herja á Bandaríkin AFP

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.