Morgunblaðið - 21.07.2021, Page 15

Morgunblaðið - 21.07.2021, Page 15
MINNINGAR 15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 2021 var til í allt svona skrítið og skemmtilegt og hún var ómiss- andi á öllum okkar gleðistundum. Stúlla vildi ekki heyra á það minnst að það yrði haldin ræða yfir henni að henni genginni. Hún þoldi hvorki oflof né yfirborðs- mennsku og vildi bara þakka öllu samferðafólki sínu fyrir sig og sagði að allir hefðu verið góðir við sig. Mig langar að þakka Stúllu fyrir það hvað hún var alltaf góð við mig og fólkið mitt. Við sökn- um hennar öll. Hafðu þökk fyrir allt og allt elsku Stúlla. Þín tengdadóttir, Kristjana Erlen. Við minnumst ömmu okkar sem góðhjartaðrar, elskulegrar, duglegrar og skemmtilegrar konu. Amma Stúlla hafði afskap- lega hlýja og góða nærveru, nær- veru sem maður sótti í og átti hún marga góða vini. Amma var kona sem hafði alltaf tíma fyrir alla og aldrei sló hún hendinni á móti góðum kaffibolla og spjalli. Hún tók öllum opnum örmum og hlustaði alltaf á allt sem fólk hafði að segja. Amma lifði lengi, upplifði og sá margt og hafði því ótal sögur að geyma, sögur sem við systkinin höfðum gaman af að heyra. Stundum fengum við að taka við hana viðtöl og nota frásagnir hennar í skólaverkefnum um líf hennar í gamla daga og stríðsárin á Reyðarfirði, sem okkur þótti gaman og eru dýrmætar minn- ingar og stundir í dag. Það sem situr ofarlega í minni okkar eru allar spilastundirnar okkar sam- an. Hún kenndi okkur Kasínu og Svarta Pétur svo dæmi séu nefnd og spiluðum við stundum langt fram á kvöld. Amma Stúlla var líka snillingur í að leysa kross- gátur og munum við sennilega alltaf hugsa til hennar þegar við sjáum eina slíka. Hún kenndi okkur líka að vera þakklát fyrir það sem þykir sjálf- sagt í dag eins og til dæmis að sitja á skólabekk. Amma fékk sjálf ekki að elta sína náms- drauma og því hvatti hún okkur systkinin alltaf áfram í námi og vildi sjá okkur ná okkar mark- miðum og standa okkur vel. Hún lét okkur alltaf vita hversu stolt hún var af okkur og okkar árangri, hvort sem það var í námi, íþróttum, tónlist eða á öðr- um sviðum og lét sig til dæmis sjaldan vanta á tónleika hjá okk- ur þegar við vorum öll í tónlist- arnámi. Amma var að okkar mati of- urkona og munum við ætíð minn- ast hennar sem duglegrar og sjálfstæðrar konu og mikillar fyr- irmyndar. Við kveðjum hana með miklum söknuði en á sama tíma þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast henni og sömuleiðis allar góðu stundirnar okkar saman sem munu aldrei gleymast. Uni Dagur Anand, Signý Pála og Hanna Steina Yin. Sigríður Ingibjörg Eiríksdótt- ir Beck var kölluð Stúlla. Hún var vinkona okkar frá barnæsku og okkur langar að minnast hennar í nokkrum orðum. Stúlla var fróðleiksfús, stál- minnug og hafsjór af þekkingu á sögu og örlögum fólks í nútíð og fortíð og margvíslegum málefn- um. Hún sagði vel frá en kunni líka að hlusta. Það var gott að heimsækja Stúllu og Steingrím, sem bæði voru gædd þessum eig- inleikum, þiggja góðar veitingar og spjalla um heima og geima. Á heimilinu var móðir Stúllu, Mar- grét, sem náði háum aldri, fædd 1891 og látin 1982. Faðir Stúllu, Eiríkur Beck, sem lést 1950, var fæddur 1876, sonur hins kunna Hans Beck á Sómastöðum við Reyðarfjörð. Þannig spanna ævi- skeið Stúllu og föður hennar 145 ár í sögu landsins. Stúlla gekk í barnaskólann á Reyðarfirði þar sem úrvalskenn- arar voru til staðar og fólkið ánægt með stóraukna fræðslu sem þá var farið að veita börnum. Hún fór svo til náms í Gagn- fræðaskóla Reykvíkinga sem stofnaður var 1928. Þann tíma bjó hún hjá Sigríði, föðursystur sinni, og manni hennar, Eysteini Jónssyni, alþingismanni og ráð- herra. Þessi tími var Stúllu dýr- mætur og hún hélt alltaf góðum tengslum við fjölskylduna. Saga okkar er samofin sögu Stúllu. Vitanlega þekktist fólkið vel í fámenninu, en auk þess fylgdust Guðmundur og Stúlla að í barnaskóla og fermdust sama vorið, og þær Anna og Stúlla unnu saman í Kaupfélaginu sem ungar stúlkur. Um 1950 þegar við fluttum til Reykjavíkur hófu Stúlla og Steingrímur búskap á Reyðarfirði. Steingrímur var lengst af bílstjóri hjá KHB en varð svo forstöðumaður Esso á Reyðarfirði. Stúlla var dugnaðar- forkur innan heimilis sem utan, hvort sem var í sláturhúsinu, á síldarplaninu eða í frystihúsinu. Þau Steingrímur eignuðust þrjá drengi, Eirík, Bjarna og Pál. Elsta dóttir okkar, Sigríður, var hjá ættingjum á Reyðarfirði á sumrin í uppvextinum og fékk að kynnast þeim góðu hjónum og leika við eldri strákana með krakkaskaranum á Búðareyrinni eða „innan við á“ eins og einnig var sagt. Við hittum Stúllu og Steingrím af og til í áranna rás og þegar við fluttum aftur heim 1977 varð mikill samgangur milli heimilanna, auk þess sem Arn- björg, yngsta dóttir okkar, og Páll urðu bekkjarfélagar. Þegar eftirlaunaaldri var náð fluttum við í Kópavoginn og þar varð Stúlla aftur nágranni okkar. Frá því í mars 2019 höfum við átt heimili á Hrafnistu í Hafnarfirði og fyrir nokkrum mánuðum fréttum við, okkur til mikillar ánægju, að Stúlla væri flutt inn á hæðina fyrir neðan okkur. Vegna Covid voru hömlur á heimsókn- um og lokað milli deilda, svo við náðum því miður ekki að hittast nema tvisvar. Í fyrra skiptið kom hún til okkar, en í það seinna fóru Anna og Sigríður til hennar. Þótt hún væri orðin fárveik náðu þær að spjalla um heima og geima, haldast í hendur og kveðjast. Tveimur dögum síðar var hún öll. Við þökkum fyrir vinskapinn og trygglyndið og sendum af- komendum, ættingjum og vinum samúðarkveðjur okkar og fjöl- skyldunnar. Megi guð geyma góða vinkonu. Anna Arnbjörg Frímannsdóttir og Guðmundur Magnússon. Sigríður Guðmundsdóttir. Fyrstu minningar mínar um Stúllu, eins og hún var alltaf köll- uð, tengjast jólaboðum á heimili afa míns og ömmu í Hlíð á Eski- firði á árunum upp úr 1950. Stúlla og Steingrímur föðurbróðir minn komu þangað frá Reyðarfirði með strákana sína, Eirík og Bjarna, upppuntaða í matrósaföt- um. Þótt leiðin á milli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar sé aðeins 15 kílómetrar þá var hún ekki fjöl- farin á þessum árum enda bílar ekki almenningseign. En Stein- grímur var þá bílstjóri að atvinnu og mætti í jólaboðin á Eskifirði með fjölskyldu sína á stóra kaup- félagsbílnum. Ég bar mikla virð- ingu fyrir þessum stóra manni og þessum stóra bíl og öllu sem þeim fylgdi. Eftir að foreldrar mínir eign- uðust bíl 1956 fjölgaði ferðunum á Reyðarfjörð og oft var komið við hjá Stúllu og Steingrími, framan af í Seylu, litla húsinu við kirkjuna, sem nú er löngu horfið, og seinna í nýja húsinu sem þau byggðu sér á Eyrarstíg 2. Eftir að Steingrímur lést 1997 flutti Stúlla suður og bjó sér fallegt heimili í Lækjasmára 6 í Kópa- vogi. Þar mætti gestum sama hlýjan og rausnin og á Reyðar- firði forðum, hlaðið kaffiborð með útsaumuðum dúk. Stúlla var stál- minnug og fróð um menn og mál- efni og gaman að spjalla við hana um gamla daga. Ekki alls fyrir löngu sagði hún mér eitt og ann- að um hernámsárin á Reyðarfirði sem varpaði nýju ljósi á þennan óvenjulega tíma. Fulltrúar breska heimsveldisins voru sum- ir hverjir í augum Reyðfirðinga unglingsgrey, illa klæddir, og húsmæður aumkuðu sig stundum yfir þá og gáfu þeim að borða. Ekki var síður gaman að spjalla við Stúllu um málefni líðandi stundar. Hún fylgdist vel með fréttum, myndaði sér skoðanir og setti þær fram af einurð og rök- festu. Ég kveð Ingibjörgu Beck með kærri þökk fyrir langa samfylgd og sendi frændum mínum, Bjarna og Páli, og fjölskyldum þeirra samúðarkveðjur. Sigurborg Hilmarsdóttir. Kveðja til Stúllu. Nú þegar komið er að kveðju- stund minnumst við með mikilli hlýju Ingibjargar Beck (Stúllu). Stúlla hefur nú lagt af stað í sína hinstu ferð og þó að við vitum ekki fyrir víst hvað tekur við þeg- ar lífi okkar í þessari veröld lýk- ur, þá er hún falleg tilhugsunin að nú séu þau Steingrímur samein- uð á ný eftir langan aðskilnað. Steingrímur og Stúlla komu oft við á æskuheimili okkar á Fá- skrúðsfirði á leið sinni inn í Dali, þar sem Steingrímur ólst upp, og þótti foreldrum okkar mjög vænt um þær heimsóknir. Stúlla minntist oft á að Steingrímur hefði orðið glaður að upplifa göngin á milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar, að sjá fallegu sveitina sína um leið og komið væri út úr göngunum. Stúlla bjó yfir einstakri ró sem smitaði út frá sér. Sama hvort það var á Reyðarfirði eða í Kópa- voginum, heimilið einkenndist af ró og yfirvegun. Þar var aldrei neinn æsingur, ósjálfrátt slakaði maður á og fór mun afslappaðri þaðan aftur og þá oftast með rúl- lutertu í maganum en ávallt voru bornar kræsingar á borð, eins og gestirnir væru konungbornir, og sparistellið og silfurbúnaðurinn óspart notaður. Stúlla var líka með allt á hreinu, sama hvort það voru þjóðfélagsmálin eða eitthvað annað og hún hafði skoðanir á hlutunum. Það var gaman að ræða um allt milli himins og jarð- ar við Stúllu, einnig hafði hún mjög skarpt skopskyn og skammt í húmorinn hjá henni. Við eigum eftir að sakna þessa að geta ekki heimsótt og notið sam- veru við hana. Fyrir hönd foreldra okkar, Gunnhildar og Finnboga, send- um við öllum afkomendum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Minningin um Stúllu mun fylgja okkur. Helga og Stefanía. HINSTA KVEÐJA Kveðja til Ingibjargar Beck: Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju hönd. Gáfur prýddu fagurt hjarta gleði bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Vertu kært kvödd. Ólöf Sigríður Björnsdóttir. var gestkvæmt í Skipasundinu, og oft gistu þar ættingjar utan af landi. Gestrisni og þjónustulund var móður minni í blóð borin. Þegar efnahagur foreldra minna braggaðist og ferðir til sólar- landa urðu almennar, voru þau dugleg að nýta sér alla möguleika á að eyða sumarleyfum í suður- höfum og oft var þar glatt á hjalla þegar vinir og vinnufélagar komu þar saman og þegar haft var sam- band til Spánar til að kanna hvernig dvölin væri, var alltaf sama svarið hjá henni móður minni: „þetta er bara alveg meiri- háttar“ og höfum við gjarnan notað þetta orðatiltæki þegar fjölskyldan kemur saman. Mamma sá alltaf jákvæðu hlið- arnar og þær voru oftar en ekki „alveg meiriháttar“. Þegar komið er að leiðarlokum rifjast upp heimsóknirnar til mömmu sem voru margar, í kaffi og auðvitað „meððí“ og í leiðinni að fá fréttir af fjölskyldunni, hvað hver væri að gera eða ferðast. Allar þessar fréttir var hægt að fá á einum stað, enda fylgdist móðir mín grannt með hvað fólkið hennar aðhafðist og komu þessar heim- sóknir að hluta til í stað lesturs samfélagsmiðla nútímans. Komið er að kveðjustund og vil ég þakka kærri móður minni fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman, umhyggjuna, takmarka- lausu móðurástina og ekki síst vinskapinn og vil ég enda þessi orð á áðurnefndu orðatiltæki hennar: þú varst alltaf meirihátt- ar! Jóhann P. Jónsson. Ég kveð nú elskulegu móður mína með einlægu þakklæti í hjarta fyrir alla þá elsku sem hún hefur gefið mér. Stórt skarð hefur verið höggvið í fjölskylduna en minningin lifir í hjarta mínu um ókomna tíð. Hjartans eldur hefur brunnið, horfið það sem áður var, lífsins starf svo lengi unnið með ljósi margan ávöxt bar. Þú sem gafst mér ást í æsku sem entist vel á lífsins braut, í faðmi þínum frið og gæsku fann ég leysa hverja þraut. Þú sem gegnum unglingsárin áhyggjurnar mínar barst, þú sem vildir þerra tárin, í þjáningu mitt skjól þú varst. Þú gafst mér alltaf gæsku þína svo glaðlegt bros þú sendir mér. Þín fagra birta fær að skína og fylgja börnum hvert sem er. Þig var best í heimi að hitta, þín hlýja ávallt styrkti mig. Þú sem varst mér stoð og stytta, ég stend í þakkarskuld við þig Hjartans eldur hefur brunnið, horfið það sem áður var. Æviskeið á enda runnið en ávallt lifa minningar. (Kristján Hreinsson) Þín dóttir Hafdís. Elsku yndislega mamma er far- in frá okkur. Söknuðurinn er óendanlega mikill þar sem hún skipaði stóran sess í lífi okkar fjöl- skyldunnar. Mamma var einstök að svo mörgu leyti. Persónuleiki hennar einkenndist af glaðværð, já- kvæðni, kærleika og einstaklega miklu jafnaðargeði. Hún sagði þó alltaf sínar meiningar og lá ekkert á skoðunum sínum þegar það átti við. Það var ekki margt sem fór í taugarnar á henni en ég man sér- staklega eftir einu og það voru rifnar gallabuxur. Ég man eftir því fyrir nokkrum árum þegar við mæðgur skelltum okkur í Smára- lind og fórum inn í fataverslun. Þar sér hún rifnar gallabuxur hangandi á slá. Hún vindur sér að afgreiðslumanninum og spyr hvort hann sé virkilega að selja svona buxur á 20.000 kr. „Maður hefði bara verið lokaður inni í gamla daga ef maður hefði klæðst þessu,“ sagði hún við hann. Ef barnabörnin komu í slíkum bux- um til hennar þá bauðst hún alltaf til að gera við þær fyrir þau, því það var alltaf stutt í húmorinn hjá henni. Þessi skoðun mömmu á rifnum gallabuxum er til komin vegna þess að hún var mikil saumakona og byrjaði að sauma föt snemma á unglingsárunum. Hún sótti ýmiss konar saumanámskeið og var svo dugleg að prófa sig áfram. Þegar ég var barn þá saumaði hún á mig úlpur, snjóbuxur, jólakjóla og margt fleira. Þær voru ófáar stundirnar sem hún eyddi í þvottahúsinu í Skipasundinu við saumaskap. Hún var vandvirk og allt sem hún gerði þurfti að vera vel frágengið á röngunni. Ef mað- ur keypti sér flík þá byrjaði hún á því að skoða fráganginn á röng- unni og dæmdi svo flíkina út frá því. „Maður hefði nú ekki skilað þessu svona frá sér,“ sagði hún oft ef flíkin var ekki vel unnin. Einn veturinn dreif hún sig á námskeið í bútasaumi sem er mikill ná- kvæmnissaumur. Þá saumaði hún dúka, rúmteppi, púða og margt fleira. Prjónaskapurinn lá nú líka vel fyrir henni og í seinni tíð prjón- aði hún margar peysurnar á barnabörnin. Fram á síðasta dag þurfti hún alltaf að „vera með eitt- hvað í höndunum“ eins og hún kallaði það. Mamma og pabbi höfðu verið gift í 62 ár þegar hann lést árið 2014. Það var erfitt fyrir mömmu þegar hann fór því þau voru ein- staklega samrýnd hjón. En mamma var sterk. Fyrir um það bil mánuði sagði mamma mér að hana hefði dreymt pabba og þau hefðu verið að fara í ferðalag. Ég spurði hana hvert þau hefðu verið að fara, kannski til Spánar? „Æ ég man það ekki,“ sagði hún. Nú veit ég að pabbi hefur tekið vel á móti þér elsku mamma og þið eruð saman á skemmtilegu ferðalagi. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig elsku mamma mín. Ég sakna þín svo mikið en á marg- ar yndislegar minningar sem ég ylja mér við. Kristrún. Nú er amma Soffía farin til afa. Amma Soffía var ein af jákvæð- ustu og glöðustu manneskjum sem við höfum kynnst og hún dreifði þessari jákvæðu orku til sinna nánustu. Amma var mjög fé- lagslynd og átti auðvelt með að spjalla við fólk og eignast góða vini. Það var alltaf gott að koma til ömmu. Þegar við vorum í pössun hjá henni og afa þegar við vorum litlir þá var alltaf farið í leikinn að fela hlut, sem okkur þótti gríðar- lega skemmtilegt. Þegar við urðum eldri komum við oft til hennar eftir skóla, feng- um okkur „kaffi“ og ræddum mál- in. Það var alltaf nóg á boðstólum, brauð, kex og kökur. Ömmu var mjög umhugað um okkur og vildi alltaf vita hvað væri að frétta og hvernig okkur gengi í skólanum. Okkur þótti ofsalega vænt um ömmu og við söknum hennar mik- ið. Takk fyrir allt, elsku amma Soffía. Vigfús Máni og Sindri Jón. Nú er komið að kveðjustund kæra systir mín. Við systurnar vorum þrjár, Soffía elst, síðan Bára sem lést ár- ið 2014 og ég, Fríða, yngst. Við fæddumst á Siglufirði og slitum þar barnsskónum. Við fluttumst síðan til Reykjavíkur og stofnuð- um hver sína fjölskyldu. Það sem einkenndi Soffíu frá fyrstu tíð var glaðværð og einstak- lega gott skaplyndi og var hún mikill húmoristi. Hún var glæsi- leg, heilsteypt og vönduð kona. Alla tíð voru samskipti okkar mikil og góð. Þá var ýmsum tíma- mótum, stórum og smáum, fagnað saman. Greiðasemi og hjálpsemi Soffíu var einstök en hún var snill- ingur í allri handavinnu og mikil saumakona. Þær voru ófáar flík- urnar sem hún saumaði fyrir mig og á mín börn og hjálpaði þegar þörf var á. Á heimili Nonna og Soffíu voru ætíð allir velkomnir og vel tekið á móti öllum sem þangað komu. Ekki var síðra að bjóða Soffíu heim, því orðatiltæki hennar var „þetta var alveg meiriháttar“ þeg- ar hún var að þakka fyrir sig, líður seint úr minni. Hinn 28. júní sl. var 90 ára afmælisdagur Soffíu, ég og afkom- endur hennar hittumst heima hjá henni í kaffiboði til að gleðjast sam- an á fallegum degi sem skilur eftir sig fallegar og ljúfar minningar. Hlýjar kveðjur til þín ég hugsa, staldra við. Sendi ljós og kveðju hlýja. Bjartar minningarnar lifa ævina á enda. (Hulda Ólafsdóttir) Kæru systkin, Jóhann, Hjálm- ar, Hafdís og Kristrún, og fjöl- skyldur, okkar innilegustu samúð- arkveðjur frá fjölskyldu okkar. Hólmfríður (Fríða) og Kristján. Mikil sómakona hefur kvatt þennan heim. Soffíu G. Jóhanns- dóttur kynntist ég í kjölfar þess að við Jóhann Pétur, frumburður hennar og Jóns heitins Hjálmars- sonar, urðum bekkjarbræður 12 ára gamlir í B-bekknum hans Ingimundar Ólafssonar í Lang- holtsskóla. Við Jóhann urðum bestu vinir og hefur sú vinátta haldist síðan. Soffía og Jón bjuggu þá í Skipasundi 35 í Reykjavík og heimilinu stýrði Soffía röggsam- lega með liðstyrk Petrínu móður sinnar. Báðar einstaklega hjarta- hlýjar og brosmildar. Ég fann það fljótlega eftir að kynni okkar Jó- hanns hófust að það var grund- vallaratriði í þeirra lífi að Jóhann skorti aldrei neitt. Ég held mér sé óhætt að segja að báðar hafi þær borið hann á höndum sér. Mér er minnisstætt frá tán- ingsárunum okkar að reglulega birtist Jói í nýjum buxum, nýrri skyrtu og svo kom nýr jakki eða blússa. Varstu að kaupa þér nýjar buxur? Nei, mamma saumaði þær. En skyrtan? Mamma saum- aði hana líka. Þetta þótti mér með ólíkindum. Þessi myndarskapur Soffíu gilti auðvitað einnig gagn- vart systkinum Jóhanns. Soffía saumaði á þau öll árum saman enda var hún dugnaðarforkur og laghent í betra lagi. Þess skal þó getið að þar kom að Jóa, eins og okkur hinum, var lífsnauðsyn að kaupa skyrtur, boli og uppháa leð- urskó í tískubúðunum Karnabæ og Faco. Um árabil bjó ég úti á landi. Þá var oft langt á milli heimsókna og sjaldgæft að hitta Soffíu og Jón. En alltaf urðu það fagnaðarfundir og jafnan hélt Soffía uppi fjörinu, hress, kát og hreinskiptin. Sam- verustundir í sumarfríi á Spáni fyr- ir mörgum árum eru ógleymanleg- ar. Þá var oft „meiriháttar“ gaman, svo gripið sé til þess lýsingarorðs sem Soffía notaði til að lýsa því sem henni þótti best eða skemmti- legast. Á síðari árum lét Soffía oft í ljós að henni þætti vænt um langa og góða vináttu okkar Jóa. Vænt- umþykja Soffíu um þau vinabönd yljar mér um hjartarætur. Fyrir nokkrum árum kom Soffía í heimsókn á heimili okkar Höllu. Þar er margvíslegt dót en hún tók sérstaklega eftir gömlum koffortum eða kistum. Fannst þær greinilega stinga í stúf við annað og varð að orði: „Er þetta nú orðið stofustáss?“ Alltaf hrein og bein. Soffía var hlý og góð manneskja sem lifði vel og lengi. Fjölskylda hennar og vinir munu sakna hennar í bráð og lengd. Við Halla vottum börnum Soffíu og fjölskyldum þeirra inni- lega samúð okkar. Eiríkur G. Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.