Morgunblaðið - 21.07.2021, Page 18

Morgunblaðið - 21.07.2021, Page 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 2021 Smáauglýsingar Atvinnuhúsnæði Húsnæði undir fótaðgerða- stofu til leigu staðsett í Samfélagshúsinu Bólstaðarhlíð 43. Allar nánari upplýsingar veitir Ragga í síma 535-2760 eða á netfangið ragnhildur.thor- steinsdottir@reykjavik.is Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi Samfélagshús Opin vinnustofa 9:00-12:30, Göngutúr um hverfið 10:30-11:15, Skák - opinn tími allir velkomnir 13:00-15:45, Kaffi 14:30-15:20 Allir velkomnir, nánari upplýsingar má nálgast á skrifstofu Samfélagshússins eða í síma 411-2701& 411-2702 Árskógar 4 Opin vinnustofa kl. 9 - 12. Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Dansleikfimi kl. 13.30. Þáttur á tjaldinu og popp kl. 14.00. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.30-15.30. Heitt á könnunni, Allir velkomnir. Sími: 411-2600. Bólstaðarhlíð 43 Morgunkaffi í kaffihorninu kl. 10:00 . Frjáls spila- mennska kl. 12:30-15:45. Núvitund með leir kl. 13:00 - 15:00. Opið kaffihús kl. 14:30. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi, spjall og blöðin kl. 8:10-11:00. Opin Listasmiðja kl. 9-12.Tæknilæsi námskeið Apple kl. 9- 12. Hádegismatur kl. 11:30-12:30. Opin Listasmiðja kl. 13-15:30. Tæknilæsi námskeið Android kl. 13-16. Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30. Garðabæ Hægt er að panta hádegismat með dagsfyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá 13:45 -15:15. Poolhópur í Jónshúsi kl. 9:00. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13:00. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11:00. Bridge í Jónshúsi kl. 13:00. Hreyfihópur í garði Ísafoldar farið frá Jónshúsi kl. 13:30. Smiðjan Kirkjuhvol opin kl. 13:00 – 16:00 Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8:30, heitt á könnunn. Félagsvist frá kl. 13:00, allir velkomnnir. Gjábakki Opin vinnustofa í allt sumar í Gjábakka á þriðjudögum og fimmtudögum milli kl.13 og 15. Á staðnum verður boðið upp á málningu, pensla og blöð. Boccia verður alla miðvikudaga í sumar í Gjábakka kl .10. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8:30-10:30. Dans- og stólaleikfimi með Auði Hörpu kl. 10:00. Framhaldssaga kl. 10:30. Opin vinnustofa kl. 13:00-16:00. Korpúlfar Útifjör kl. 9:30 til 10:20. Gönguhópur kl. 10:00, gengið frá Borgum. Félagsvist kl. 13:00 í Borgum. Skákhópur Korpúlfa verður kl. 12:00 til 16:00. Í dag er Strandaferðin, og lagt verður af stað frá Borgum kl. 8:00. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag er píla í setustofu 2.hæð kl.10:30- 11:15. Sumarhátíð Vitatorgs byrjar kl.14:00-16:00 og verður skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Flóamarkaður kl.14:00 (hafið samband í síma 665-7641 ef þið viljið panta borð).Tie-Dye smiðja kl.14:00. Gleðismiðjan flytur ljúf lög kl.14:30. Boðið verður upp á léttar veitingar. Verið öll hjartanlega velkomin til okkar á Vitatorg, Lindargötu 59. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum frá kl. 9, Botsía í salnum Skólabraut kl. 10, handavinna og samvinna kl. 13, Samfélagsmiðlanámskeið kl. 13:30. Skráningarblað fyrir gönguferðina okkar í Hellisgerði er komið inn í krók á Skólabraut einnig er hægt að skrá sig hjáThelmu í síma: 8663927. Vantar þig fagmann? FINNA.is með morgun- !$#"nu ✝ Guðrún Eggertsdóttir fæddist á Bjargi í Borgarnesi 25. mars 1940. Hún lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Brákarhlíð í Borgarnesi 10. júlí 2021. Foreldrar henn- ar voru Aðalheiður Lilja Jónsdóttir, f. 8.8. 1910, d. 29.3. 2001, og Egg- ert Guðmundsson bóndi í Vatns- horni og Bakkakoti í Skorradal, síðar á Bjargi í Borgarnesi, f. 20.10. 1897, d. 19.8. 1979. Guð- rún var næstyngst fimm systk- ina. Systkini hennar eru: 1) Kristín, f. 16.9. 1931, d. 4.9. 2007. 2) Guðmundur, f. 24.4. 1933, maki Bergþóra Elva Ze- bitz, f. 16.4. 1930, d. 31.8. 1985. Dóttir þeirra er Aðalheiður Lilja, f. 2.5. 1968, maki Einar Garibaldi Eiríksson, f. 22.1. 1964, dóttir þeirra er Bergþóra Elva, f. 31.7. 2015. Uppeldis- Fjölskylda Guðrúnar fluttist að Bjargi árið 1938. Hún gekk í barnaskóla í Borgarnesi og lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum á Akureyri 1961. Hún var við verslunarnám og skrif- stofustörf í Kaupmannahöfn 1962-63 og vann skrifstofustörf hjá Véladeild SÍS 1964-70. Árið 1970 flutti Guðrún aftur að Bjargi og var starfsmaður Kaupfélags Borgfirðinga frá 1971, lengst af sem for- stöðumaður bókhaldsdeildar kaupfélagsins. Hún lauk námi frá endurmenntunardeild Há- skóla Íslands 1993. Guðrún sat í stjórn Verslunarmannafélags Borgarness 1972-75 og var for- maður félagsins 1976-80 og 1982-83. Hún sat í stjórn Lands- sambands íslenskra verslunar- manna 1977-87 og var ritari Al- þýðusambands Vesturlands 1977-1981. Hún sat um tíma í stjórn Sparisjóðs Mýrasýslu og í undirkjörstjórn Borgarnes- kjördeilda. Guðrún opnaði gisti- heimili á Bjargi ásamt fjöl- skyldu sinni 1994 og eftir að dóttir hennar tók við aðstoðaði hún við reksturinn meðan heils- an leyfði. Útför Guðrúnar fer fram frá Borgarneskirkju í dag, 21. júlí 2021, klukkan 14. dóttir er Guðrún Ara Arason, f. 19.6. 1960, dóttir hennar er Hjördís Stef- ánsdóttir, f. 19.9. 1979. 3) Jóna, f. 10.1. 1937. 4) Jón Agnar, f. 5.1. 1946, d. 11.2. 1993, maki Ragnheiður Jó- hannsdóttir, f. 27.7. 1955. Synir þeirra eru: a) Eggert Sól- berg, f. 17.12. 1984, maki Þuríður Gísladóttir, f. 18.4 1981, börn þeirra eru: Jón Gísli, f. 18.4. 2012, Kristín Lilja, f. 24.3. 2015, og Eyþór Kristinn, f. 6.11. 2018. b) Magnús Elvar, f. 20.1. 1987. Dóttir Guðrúnar er Heiður Hörn Hjartardóttir, f. 3.12. 1970, sambýlismaður hennar er Þorsteinn Arilíusson, f. 27.9. 1972. Börn þeirra eru: Anna Margrét, f. 21.1. 1998, Inga Lilja, f. 17.4. 1999, Jón Ingi, f. 15.10. 2006, og Vigfús Arnar, f. 29.9. 2008. Lítil falleg stúlka liggur í vöggu og um leið og pabbi hennar geng- ur fram hjá strýkur hann yfir hár- prúðan kollinn og segir með hlýrri röddu „elsku litla dúfan mín“. Dúfa, mín kæra móðir, ljúf og blíð með sterka ævintýraþrá. Unn- andi náttúrunni og haldandi verndarhendi yfir stóru sem smáu með einstöku næmi og hlýju. Gjöful án þess að vilja nokkuð í staðinn, heiðarleg og traust. Minningar brjótast fram og einkennast af ást og hlýju. Hönd í hönd í miðjum sauðburði á Bjargi, gangandi út veg klofandi snjó upp að mitti og allt gert til að auðvelda litlum fótum ferðina. Uppi í rúmi að hlusta á þig þýða Andrés Önd úr dönsku fyrir svefninn, á ferð um landið og vakna í tjaldi inni í miðri nautgripagirðingu, að ógleymdum öllum ferðunum til annarra landa til að upplifa ólíka menningarheima og bragða á framandi mat. Barnabörnin nutu góðs af að hafa ömmu Dúfu í næsta húsi og laumuðust ósjaldan í heimsókn því þar var alltaf eitthvað gott að finna og margt skemmtilegt að skoða. Amma var líka alltaf tilbú- in til að rétta hjálparhönd ef á þurfti halda, líka þegar frystirinn var fylltur af snjóboltum. Lífið reyndist ekki alltaf sann- gjarnt eða auðvelt en ávallt tókstu öllu með æðruleysi og skilningi, þú varst kletturinn sem margir treystu á. Gleðin og húmorinn voru samt aldrei langt undan og þér tókst jafnvel að sjá spaugilegu hliðarn- ar á hlutunum þrátt fyrir erfið veikindi síðustu mánuðina. Vængjaþytur þagnar, allt er kyrrt. Dúfan okkar kæra hefur nú kvatt hótel jörð en eftir sitja margar minningar, þakklæti og hlýja. Minningar um einstaka konu, móður og ömmu, sem hafði heiðarleika og manngæsku að leiðarljósi og óendanlegt þakklæti fyrir öll ævintýrin, þau munu fylgja okkur um ókomna tíð. Heiður Hörn og fjölskylda. Guðrún Eggertsdóttir, Dúfa, kær föðursystir mín, er ætíð var hlý og björt, hefur nú kvatt en lifir þó áfram með okkur. Bjargsfjöl- skyldan er náin og Dúfa hefur verið til staðar í lífi mínu frá því að ég man eftir mér sem smástelpu á Bjargi í sveit hjá ömmu og afa, Aðalheiði Lilju og Eggerti. Fögur og blíð framkoma hennar snart mig ávallt ásamt óendanlegri þol- inmæði jafnt við handverkið sem hún kenndi mér svo vel, prakk- arastrik okkar Heiðar innan húss sem utan eða gagnvart skepnun- um á bænum sem Dúfa sinnti af einurð á meðan búskapur var enn á Bjargi. Sauðburður, lömbin kátu lifa enn með mér og hund- urinn Kátur ásamt ótal ævintýr- um upp um móa og út í fjöru að ná í laxinn, bleika fiskinn ljúffenga. Mörg sumur svaf ég með Dúfu og Heiði á háaloftinu í gamla bænum en síðar umbreyttist hlaðan í fal- legt heimili hennar ásamt fjósinu og smám saman tóku „farfuglar“ yfir önnur útihús, hlað og grösuga bala. Ljúft augnaráðið vakir yfir mér, milda röddin og skarp- skyggnin því hvert orð, hver setn- ing, var vönduð og hugsuð af nær- gætni er leyndi ekki góðum gáfum. Hógvær og mild fram- koma Dúfu með ákveðni er fyr- irmynd sem ég hef reynt að til- einka mér og efalítið annað samferðafólk. Næstu kynslóðir njóta þegar gjafa hennar og leið- sagnar, dóttir mín við útsaum og skrift, og börn Heiðar, því hand- bragðið sem við lærðum af henni býr í okkur frænkunum, nánast alsystrum í huga og lífi. Dúfa miðlaði til mín mikilvægi þolin- mæði og umburðarlyndis því hún skipti ekki um skap þótt álag væri mikið, hvort sem það var vegna vinnu eða veikinda nákominna sem hún sinnti af alúð. Í mesta lagi mátti greina smá svipbrigði og síðan tók fegurðin ein við, hlý og mild. Víðlesin og skarpgreind opnaði Dúfa líka fjarlæga heima í huga okkar og heillaðist hún mik- ið af Mið-Austurlöndum. Ég man glöggt eftir ljómandi glampa í augum hennar í rigningunni í Par- ís þegar hún var snortin af hinum austurlenska menningarheimi í fjölmenningu stórborgarinnar og í ljós kom í samræðum djúp þekk- ing hennar á íslamskri arfleifð. Dúfa leyndi á sér og gaf ætíð meira en nokkur gat gert sér í hugarlund eða jafnvel þegið. Ég og fjölskylda mín vottum Heiði Hörn innilega samúð okkar enda voruð þið mæðgurnar ætíð samferða í lífinu fagra. Þorsteinn og barnabörnin fjögur, Anna Margrét, Inga Lilja, Jón Ingi og Vigfús Arnar, eiga okkar samúð alla. Með hlýjum samúðarkveðjum, Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir. Það fækkar í hópi gamalla skólasystkina með hækkandi aldri. Þegar við fögnuðum sextíu ára stúdentsafmæli á Akureyri fyrir örfáum vikum saknaði mað- ur margra látinna, en líka kærrar vinkonu, Guðrúnar Eggertsdótt- ur, sem um þær mundir háði sína lokabaráttu við illvígan sjúkdóm. Við Dúfa, eins og hún var þá jafn- an kölluð, áttum samleið öll menntaskólaárin og strax tókst með okkur góð vinátta sem entist ævilangt. Hún var prúðmannleg í framgöngu, hækkaði aldrei róm- inn og bar það með sér að henni var ávallt óhætt að treysta. Það blundaði þó í henni ævintýraþrá og hún íhugaði ýmsa möguleika á að fara út í heim og kynnast fram- andi þjóðum. Hún var góður námsmaður, margir vegir hefðu henni verið færir en mér fannst alltaf að greinar tengdar myndlist hefðu verið henni best að skapi. En fyrir sextíu árum var lang- skólanám talsvert torfærara en nú, einkum af fjárhagsástæðum. Dúfa fór til Kaupmannahafnar skömmu eftir stúdentspróf og vann þar við skrifstofustörf jafn- framt námi tengdu þeim. Hún hélt þar heimili með eldri systrum sínum, Kristínu og Jónu. Á þeim árum voru margir Ís- lendingar í Kaupmannahöfn við nám og mikið var um félagslíf og gleðskap í þeirra hópi. Þær systur voru gestrisnar og góðar heim að sækja bæði þá og síðar þegar þær bjuggu saman í Reykjavík í nokk- ur ár. Eftir að Guðrún eignaðist dótt- ur sína, Heiði Hörn Hjartardóttur, fluttist hún á æskuheimili sitt að Bjargi í Borgarnesi og hóf störf við Kaupfélag Borgfirðinga þar sem hún vann við bókhald, lengst af sem aðalbókari. Á miðjum aldri hóf hún svo nám í viðskiptagrein- um við Endurmenntun Háskóla Íslands og lauk því. Námið stund- aði hún með fullri vinnu og ók þrisvar í viku til Reykjavíkur og aftur heim, Hvalfjörðinn í öllum veðrum og oftar en ekki í nátt- myrkri. Þetta var sem sagt fyrir daga Hvalfjarðarganga. Á Bjargi var íbúðarhús sam- byggt við hlöðu og gripahús í burstabæjarstíl þó úr steinsteypu væri. Guðrún hófst handa að inn- rétta sér íbúð í hlöðunni og bjó sér þar einkar smekklegt og fallegt heimili eins og hennar var von og vísa. Seinna jók hún svo við húsnæð- ið og hóf ferðaþjónustu, bænda- gistingu eins og það hét þá. Fyrst í smáum stíl, en af alúð og snyrti- mennsku eins og allt annað sem hún lagði hönd að. Seinna var svo bætt við, og af auknum krafti eftir að dóttir hennar og tengdasonur komu inn í verkefnið. Nú reka þau þar glæsilegt lítið gistiheimili sem orð fer af og hefur verið að góðu getið í erlendum túristabókum, t.d. Lonely Planet. Það ríkti líka ævinlega mikil gestrisni á Bjargi. Systkini Guð- rúnar og vinir þeirra voru ávallt velkomin á heimili foreldra henn- ar, rausnarkonunnar Aðalheiðar Jónsdóttur og sómamannsins Eggerts Guðmundssonar. Fjöl- skyldan á Bjargi var alltaf sam- heldin. Guðrún bjó í sambýli við móður sína og var henni stoð í elli hennar og nú seinustu árin bjó hún sjálf í skjóli dóttur sinnar og fjöl- skyldu hennar á erfiðu lokaskeiði ævi sinnar. Kannski má segja eins og stundum var sagt í gamla daga: Hún verður hvíldinni fegin. Hanna Dóra Pétursdóttir. Guðrún Eggertsdóttir Ástkær sonur minn, bróðir, mágur og frændi, BJARKI ÞÓRHALLSSON, Berjahlíð 2, Hafnarfirði, lést á heimili sínu 12. júlí. Útför fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 27. júlí klukkan 13. Þórhallur Ægir Þorgilsson Baldur Þórhallsson Felix Bergsson Ólöf Þórhallsdóttir Ármann Ingi Sigurðsson og fjölskyldur Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, PÁLMA ÞÓRS ANDRÉSSONAR frá Kerlingardal. Guðrún Áslaug Árnadóttir og fjölskylda Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðn- ir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein- göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.