Morgunblaðið - 21.07.2021, Qupperneq 20
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 2021
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
• Mjög auðvelt og fljótlegt í notkun
• Tilbúið til matreiðslu á 3-5 mínútum
• Afkastamikið og öflugt
• Mjög góð hitastýring á kolum
• Ytra byrði hitnar ekki
• Færanlegt á meðan það er í notkun
• Innra byrði má fara í uppþvottavél
• Taska fylgir
• Mikið úrval aukahluta
STÓRSNIÐUGT GRILL
Í GARÐINN, Á PALLINN EÐA Í FERÐALAGIÐ
SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Á FASTUS.IS/LOTUSGRILL
30 ÁRA Guðrún Linda fæddist
21. júlí 1991 á Landspítalanum, en
ólst upp í Biskupstungum, fyrst í
Laugarási og svo í Reykholti.
„Það var mjög gott að alast þar
upp og mikið hægt að gera.“ Guð-
rún Linda lærði á píanó þegar
hún var barn og söng líka í kór.
Síðan var hún í mörgum íþróttum,
stundaði glímu, fimleika og var í
körfubolta. „Við vorum oft á mis-
munandi aldri í sömu tímunum
vegna smæðar samfélagsins.“
Eftir að hafa lokið grunnskóla-
námi í Reykholtsskóla, sem nú er
Grunnskóli Bláskógabyggðar, fór
Guðrún Linda í Menntaskólann á
Laugarvatni. „Það var ótrúlega
gaman að vera á heimavistinni og
margir vinir og framtíðarbönd
sem koma þaðan.“
Eftir útskrift fór Guðrún Linda
til Reykjavíkur í lyfjafræði í Há-
skóla Íslands. „Mig langaði alltaf í
læknisfræði og hafði líka áhuga á efnafræði, en hugsaði með mér að lækna-
starfið væri svo mikil vaktavinna og lyfjafræðin sameinaði vel þessi tvö
áhugasvið.“ Guðrún Linda útskrifaðist úr meistaranámi í lyfjafræði 2016. Þá
fór hún að vinna hjá Alvotech, í október 2016, þar sem hún er sérfræðingur í
gæðaeftirliti. „Þetta er krefjandi en skemmtilegt starf. Alvotech er mikið há-
tæknifyrirtæki og viðfangsefnin eru skemmtileg. Svo er alveg einstaklega
gott samstarfsfólk þar.“
FJÖLSKYLDA Maki Guðrúnar Lindu er Vignir Sigurðsson, f. 1986, flug-
maður hjá Icelandair, og þau eiga dótturina Svölu Sif, f. 2018, og svo eiga þau
von á öðru barni. Foreldrar Guðrúnar Lindu eru Ásta Rut Sigurðardóttir,
stuðningsfulltrúi í Grunnskóla Bláskógabyggðar, f. 1966, og Sveinn Krist-
insson, f. 1964, vélstjóri í Búrfellsvirkjun.
Guðrún Linda Sveinsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Staldraðu við og íhugaðu hvað
það er sem skiptir raunverulegu máli í líf-
inu. Sveigjanleiki er lykilorðið.
20. apríl - 20. maí +
Naut Félagslífið er blómlegt um þessar
mundir, en þú ert ekki alveg viss hvers er
krafist af þér. Allt sem þú gerir í dag mun
bæta heimili þitt, heimilislífið og samband
þitt við fjölskylduna.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Ekki bera of miklar til væntingar
til nýs verkefnis. Frelsaðu andann með því
að ákveða að gera alls ekki neitt.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Stundum er betra að breiða út
faðminn og stundum að krossleggja hand-
leggina og huga að eigin innri manni. Ef
allir væru sjálfum sér nógir, myndi ver-
öldin ekki ganga.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Ef þú værir tundurskeyti værir þú á
leið til tunglsins, svo einbeittur ertu að
framkvæma fullt næstu fimm vikurnar.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Gerðu þér grein fyrir því að þú
nærð engum árangri án fórna og fyr-
irhafnar. Tækifærin gefast ekki oft.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þú þráir krefjandi samband, æsing og
flugelda. Ekkert virðist of brjálað til að þú
hafir ekki áhuga á því.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú ert á góðri leið með að
taka til í þínum eigin garði. Gættu sér-
staklega að útgjöldunum og dragðu þau
saman eftir mætti.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Það er stundum erfitt að
greina kjarnann frá hisminu en það er
nauðsynlegt að þú gerir það. Þú lætur
heillast af einhverju sem þú átt eftir ólært
og tekur hugsanlega skyndiákvörðun.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Árangur þinn í starfi fer nú
ekki lengur fram hjá yfirmönnum þínum
svo þú mátt eiga von á umbun í einhverri
mynd.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Það væri upplagt að fara út að
borða í hádeginu ásamt félögunum og
ræða málin.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Vertu viss um að þú vitir til hvers
er ætlast af þér áður en þú fylgir fyr-
irmælum yfirmanns þíns í dag. Hugsaðu
þig vel og vandlega um áður en þú tekur
ákvörðun um að fjárfesta.
S
æmundur Sigursveinn
Sigurbjörnsson fæddist á
Þröm í Staðarhreppi 21.
júlí 1936. „Ég flutti í Gróf-
argil á Langholtinu árs-
gamall og við vorum tólf systkinin og
eflaust hefur það verið erfitt fyrir for-
eldra mína.“ Sæmundur var sendur
til frændfólks fram í Lýtingsstað-
arhreppi. „Þegar ég var sjö ára fór
pabbi með mig ríðandi inn í Hvamm-
kot um hávetur og skildi mig eftir hjá
frændfólki og þar var ég um vetur-
inn.“ Þegar hann var 11 ára var hann
í rúmt ár í heildina á Saurbæ í sama
hreppi og fór ríðandi heim í Grófargil
til að hitta fjölskylduna, enda strax
orðinn mikill hestamaður.
Á þessum tíma var lítið um skóla-
göngu. Sæmundur fór ungur að
heiman til að sjá um sig sjálfur og 15
ára byrjaði hann að vinna sem „tipp-
ari“ hjá Vegagerðinni. „Þá var verið
að malbera Öxnadalsheiðina og við
vorum þrír menn að moka og tveir
með hrífur og þetta var ansi erfitt.“
Hjá Vegagerðinni hófst einnig bíl-
stjóraferill hans, sem hefur nú staðið
yfir í rúm 65 ár. „Ég fékk undanþágu
til að taka meirapróf tæplega tvítug-
ur og fór þá að keyra verkstjórabíl
flokksins og hef ekki hætt að keyra
síðan.“
Á þessum fyrstu starfsárum fór
Sæmundur á vertíð í Vestmanna-
eyjum og vann sem handlangari í
múrverki í Reykjavík. Eftir vega-
gerðarárin var Sæmundur í örfá ár
hjá Landnámi ríkisins, en hóf þá sinn
eigin rekstur í mjólkurbílaakstri, að-
eins 23 ára gamall, og keypti sinn
fyrsta vörubíl af mörgum það sama
ár, 1959.
Fyrsti bíllinn var Dodge með 13
manna húsi og einni hurð. „Ég er með
hann hérna heima bak við hlöðu.“
Sæmundur vaknaði í bítið til að fara
með mjólkina og svo tók hann bænd-
ur með sér inn á Krók til að versla á
þriðjudögum og föstudögum. „Svo
tók ég póstinn með mér af Króknum
og fór með á bæina. Já, ég bjargaði
mér ágætlega.“
Það eru orð að sönnu því Sæmund-
ur keypti sér húsið Úthlíð í Varma-
hlíð 1956. „Það rétt slapp við skriðuna
um daginn og er búið að gera það
mikið upp og nú býr þar ekkja.“ Þeg-
ar ungir menn eru með góðan starfa
og komnir með eigið heimili þarf bara
eiginkonuna, og hún kom árið 1959.
„Við Þorbjörg kynntumst bara hérna
í sveitinni, líklega á einhverju balli í
Varmahlíð.“ Ekki leið á löngu þar til
fjölskyldan fór að stækka og sá Þor-
björg bæði um barnauppeldið og bú-
skapinn og hafði mat á borðum fyrir
mjólkurbílstjórann og hans bílstjóra
hvenær sem var sólarhringsins.
Sæmundur ferjaði mjólk frá 1959-
1974 og var yfirleitt með þrjá menn
með sér í keyrslu, enda var hann með
tvo hreppa. Mjólkurbrúsarnir voru
ekki léttir og Sæmundur var sterkur
og átti það eftir að hjálpa honum síð-
ar. Samhliða mjólkurbílakeyrslunni,
hafði hann verið að ferja áburð á vor-
in og skepnur bæði vor og haust og
svo seldi hann steypumöl úr Héraðs-
vötnum. Árið 1969 flutti fjölskyldan í
Syðstu-Grund, en þá jörð átti Þor-
björg og hafa þau búið þar síðan.
Þegar Sæmundur sást keyra með
áburðinn og féð á vorin var hann kall-
aður vorboðinn af sveitungum, því
það markaði upphaf vorverkanna.
Sæmundur hefur alltaf verið mikill
bílamaður og nýjasti bíllinn hans,
sem hann keyrir enn, er frá 1982 og
er vörubíll með krana og er enn í
topplagi. Í fyrra lenti hann í slysi
þegar hann datt ofan af palli bílsins
og var á sjúkrahúsi í meira en mánuð
og sögðu læknar við hann að ef hann
hefði ekki verið jafn sterkur og í góðu
formi hefði hann aldrei náð sér jafn-
vel og raun ber vitni.
Sæmundur hefur verið hestamað-
ur frá því hann var ungur. „Ég hef
alltaf átt hesta og notað þá mikið á
sumrin. Í fyrrasumar fékk ég um 30
folöld.“ Einnig var Sæmundur þekkt-
ur knapi og keppti á Vallabökkunum,
enda léttur og óhræddur.
„Reiðhestarnir mínir eru litföróttir
og þykja fjörugir, og kannski ekki al-
veg fyrir almenning. Ég man samt að
pabbi setti okkur bræðurna upp á
fola úti í mýri og það gekk alveg, því
þegar þeir byrjuðu að hrekkja þá
gátu þeir það illa því þeir sukku í
mýrina.“
Sæmundur hefur alltaf haft mjög
gaman af söng og dansi en ekki gefið
sér tíma til að vera í kór. Síðustu árin
hefur hann orðið sífellt meiri MAN-
áhugamaður og það hefur glatt hann
að bílaáhuginn erfðist til Gísla, elsta
sonarins, og til sona hans tveggja.
Þegar hann situr úti heima er út-
sýnið engu líkt. „Ég sé alveg til Sauð-
árkróks og sé Tindastól og Varmahlíð
hérna beint á móti.“
Sæmundur Sigursveinn Sigurbjörnsson vörubílstjóri og bóndi – 85 ára
Vorboðinn í Skagafirðinum
Ágúst 2020 Þorbjörg og Sæmund-
ferðast núna á afmælisdögum.
Vörubílstjórinn Sæmundur hefur
unnið við akstur frá því hann var
liðlega tvítugur, eða í 65 ár.
Hestarnir Sæmundur er reiðmaður
góður, enda átt hesta alla tíð.
Til hamingju með daginn