Morgunblaðið - 21.07.2021, Side 21

Morgunblaðið - 21.07.2021, Side 21
DÆGRADVÖL 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 2021 „ALLT HRÁEFNIÐ ER ÚR NÆRUMHVERFINU, ÚTBÚIÐ AF ALÚÐ OG BLÓTAÐ Í HLJÓÐI.“ „LÁTUM OKKUR SJÁ. SAGÐIRÐU AÐ ÞINN VÆRI MEÐ ÞREMUR BLÁUM DOPPUM?“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að standa við áramótaheitin saman. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ERTU AÐ VAKA EFTIR JÓLA? HANN GABBAR MIG EKKI! MÖTUNEYTI Í ÞETTA SINN SKAL ÉG NÁ HONUM! HÓ! HÓ! HÓ! HANN ER VÍST SNILLINGUR Í AÐ DULBÚAST AFBRÝÐISAMUR FYRRVERANDI KÆRASTI? Fjölskylda Eiginkona Sæmundar er Þorbjörg Eyhildur Gísladóttir, f. 26.8. 1936. Foreldrar hennar voru hjónin Gísli Magnússon, bóndi og sýslunefnd- armaður, f. 25.3. 1893, d. 17.7. 1981, og Stefanía Guðrún Sveinsdóttir hús- freyja, f. 29.7. 1895, d. 13.8. 1977. Þau bjuggu í Eyhildarholti, Rípursókn í Skagafirði. Börn Sæmundar og Ey- hildar eru 1) Gísli Magnús, vörubíl- stjóri í Fellabæ og núna hjá Vega- gerðinni, f. 3.7. 1959; Guðrún Kristín, starfsstúlka hjá Hlíð á Akureyri, f. 5.9. 1960; Kolbrún María, hár- greiðslu- og rakarameistari og bóndi, f. 24.3. 1966; Anna Birna, nuddari og lífskúnstner á Tenerife, f. 20.9. 1968, Sveinn Arnar, organisti og kórstjóri á Akranesi, f. 16.5. 1973, og Sæmundur Þorbjörn, tamningamaður og smiður á Stóra-Hálsi í Grafningi, f. 11.7. 1975. Barnabörnin eru orðin 14 og eitt er á leiðinni og barnabarnabörnin 11 og 1 á leiðinni. Systkini Sæmundar eru Hulda Ingibjörg, f. 4.9. 1922, d. 8.9. 2015; Jórunn Birna, f. 3.7. 1925, d. 30.5. 1979; Árni Eymar, f. 29.8. 1927, d. 28.7. 2009; Yngvi Ólafur, f. 20.9. 1930, d. 22.6. 1991; Jón Stefán, f. 2.10. 1932, d. 12.9. 2014; Gunnar Eysteinn, f. 17.9. 1934; Ásta Kristín, f. 11.11. 1938; Gígja Ester, f. 11.6. 1940; María Sigríður, f. 20.9. 1942; Þórhallur Tryggvi, f. 15.7. 1945, og Hugrún Hjördís, f. 7.12. 1949. Foreldrar Sæmundar voru hjónin Kristmundur Sigurbjörn Tryggvason bóndi, f. 30.3. 1896, d. 4.9. 1984, og Jónanna Jónsdóttir húsfreyja, f. 23.1. 1904, d. 14.8. 1969. Þau bjuggu á Grófargili í Seyluhreppi í Skagafirði og víðar. Sæmundur Sigursveinn Sigurbjörnsson Anna Sigurðardóttir húsfreyja í Víðimýrarseli og Mælifellsárseli á Efribyggð, Skag. Björn Finnbogason bóndi í Víðimýrarseli og Mælifellsárseli á Efribyggð, Skag. Ingibjörg Björnsdóttir húsfreyja á Víðimýri, Seyluhr., Skag., og Krithóli á Neðribyggð, Skag. Jón Eyjólfsson bóndi á Krithóli á Neðribyggð, Skag. Jónanna Jónsdóttir húsfreyja á Grófargili í Seyluhr., Skag. Sigþrúður Jónsdóttir húsfreyja á Þverárfelli og í Kálfárdal Eyjólfur Jónasson húsbóndi í Þverfelli, Bólstaðarhlíðarsókn, Hún., bóndi á Þverfelli og í Kálfárdal Þórdís Jónsdóttir vinnukona í Skollatungu, Fagranessókn, Skag., og í Hólakoti, Fagranessókn, Skag., síðar húsfreyja á Sauðárkr. Guðmundur Guðmundsson sjómaður á Sauðárkróki, húsmaður á Ingveldarstöðum í Fagranessókn, Skag. Hallbera Guðmundsdóttir hjú í Kýrholti, Viðvíkursókn, Skag. Guðmundur Tryggvi Ingólfsson húsmaður á Þönglaskála á Höfðaströnd, Skag., og víðar Ingibjörg Benjamínsdóttir húsfreyja í Bakkakoti í Vindhælishr. og síðar í Naustum á Höfðaströnd, Skag., fór til Vesturheims 1898 Ingólfur „sterki“ Sigmundsson bóndi á Gvendarstöðum á Staðarfjöllum og í Bakkakoti í Vindhælishr. og síðar í Naustum á Höfðaströnd, Skag. Úr frændgarði Sæmundar Sigursveins Sigurbjörnssonar Kristmundur Sigurbjörn Tryggvason bóndi á Grófargili, Seyluhr., Skag., Magnús Halldórsson heyrði við- tal við tófuásetningskonu, – „sú mun sjá um lífdýr á Horn- ströndum. Mér varð hugsað til bóndans í Skjaldfönn“: Leikur á því lítill efi, létt að botna. Indriði mun elska refi, einkum skotna. Tryggvi Jónsson bætti við: Aldrei bóndinn elskar refi á því varla er nokkur efi. Þegar allir þrestir dauðir þá vakna friðunar bjöllusauðir Indriði Aðalsteinsson þakkaði vísurnar með athugasemdinni „illt er að binda ráð sitt við refshala“, segir fornt spakmæli. Örn Arnarson orti um refinn skemmtilegt kvæði tvískipt og er þetta fyrri kaflinn: Refurinn gerir gren í urð, gengur út til veiða. Oft er bágt og bjargarþurrð í búi fram til heiða. Flæmdur er hann á fjöllum einn. Fátt er þar til bjarga. Vininn á hann ekki neinn en andstæðinga marga. Skeytir hann ei um boð né bann, bítur fé í högum dræpur hvar sem hittist hann að hunda og manna lögum. Hjálmar Jónsson sendi mér póst: „Þegar ég hætti á þingi og tók við embætti dómkirkjuprests orti Björn Þórleifsson“: Í móðurkirkjufaðminn trítlar Hjálmar aftur heim, þar hugsar sér í framtíðinni að vera og biðja okkar föður að fyrirgefa þeim sem fatta ekki hvað þeir eru að gera. Anna Dóra Gunnarsdóttir segir svo frá: „Ég á vinkonu sem ekur um á mótorhjóli, er hress og skemmti- leg og vill ekki karlmenn, en lítur konur hýru auga. Fyrir nokkrum árum bauð hún til afmælisveislu og ég hafði þetta meðferðis“: Skemmtileg og skelegg er’ún, skammlaust lætur vaða flest. Hamförum á hjóli fer’hún hraðbyri – ef konu sér’ún sem þjónað getur Beggu best. Þá eru limrur eftir Hallmund Kristinsson: Á því sé enga hængi að ég hjá henni sængi. Ég verð þá ær. Ástríðan fær byr undir báða vængi. Ég ætlaði að segja annað. (Að yrkja er varla bannað.) En rímið það ræður hvað rennur um flæður. Þetta er þar með sannað. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af refum vestur á Fjörðum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.