Morgunblaðið - 21.07.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.07.2021, Blaðsíða 22
FÓTBOLTINN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Valur og Breiðablik fjarlægjast enn önnur lið í úrvalsdeild kvenna og bæði toppliðin voru á skotskónum þegar þau skoruðu sex og sjö mörk gegn Þrótti og ÍBV í elleftu umferð- inni í gærkvöld. Viðureignar þeirra á Kópavogs- velli 13. ágúst er því beðið með sí- vaxandi eftirvæntingu enda þótt enn verði fjórar umferðir eftir að þeim leik loknum. Valur er áfram með tveggja stiga forskot eftir úrslit gærkvöldsins en Blikar eru með talsvert betri markatölu sem getur skipt máli í lok mótsins. Valskonur unnu Þrótt 6:1 á Hlíð- arenda þar sem sex leikmenn skor- uðu mörkin en Elín Metta Jensen er þó orðin markahæst í deildinni eftir að hafa gert fjórða mark Valsliðsins. „Eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik sáu Þróttarar ekki til sólar í þeim síðari á meðan Valskonur gengu vægast sagt á lagið,“ skrifaði Gunn- ar Egill Daníelsson m.a. í grein um leikinn á mbl.is. Fjögur á lokakaflanum Breiðablik skoraði fjögur mörk á síðustu 20 mínútunum gegn ÍBV og breytti stöðunni úr 3:2 í stórsigur, 7:2. Blikar náðu því að hefna fyrir tapið óvænta, 4:2, í Eyjum snemma á tímabilinu. _ Hildur Antonsdóttir skoraði tvö mörk eftir að hafa komið inn á sem varamaður og er því komin með þrjú mörk í þremur leikjum eftir að hafa byrjað að spila á ný eftir árs fjarveru vegna meiðsla. „Hildur er nýlega snúin aftur á völlinn eftir að hafa slitið krossband í fyrra og hefur innkoma hennar í sumar verið öflug,“ skrifaði Krist- ófer Kristjánsson m.a. í grein um leikinn á mbl.is. _ Miðvörðurinn Heiðdís Lillýjar- dóttir skoraði tvö mörk fyrir Blika í fyrri hálfleik. Fram að því hafði hún aðeins skorað eitt mark í fyrstu 108 leikjum sínum í deildinni. Skagfirðingar úr fallsæti Tindastóll galopnaði fallbaráttuna með því að sigra Fylki 2:1 á Sauðár- króki og skildi með því Árbæinga eftir í botnsæti deildarinnar. Tveir sigrar í þremur síðustu leikjum hafa fleytt Skagfirðingum úr fallsæti. „Amber Kristin Michel í marki Stólanna sannaði enn og aftur að hún er einn besti markvörðurinn í deildinni,“ skrifaði Sæþór Már Hin- riksson m.a. í grein um leikinn á mbl.is. _ Rúmenska landsliðskonan Laura Rus skoraði í sínum fyrsta leik fyrir Tindastól en hún kom lið- inu í 2:0 með hörkuskoti eftir horn- spyrnu. Þór/KA tapar ekki Vonir Selfyssinga um að halda í við toppliðin tvö dvínuðu enn við 1:1- jafntefli gegn Þór/KA. Akureyrarliðið er ósigrað í fimm leikjum í röð en fjórir þeirra hafa endað með jafntefli. „Þegar tuttugu mínútur voru eftir breytti Alfreð Elías Jóhannsson leikskipulagi Selfoss, færði Barbáru Sól Gísladóttur og Evu Núru Abra- hamsdóttur upp á kantana og stillti upp þriggja manna vörn. Sóknir Sel- fyssinga þyngdust verulega eftir þetta og þessar tvær bjuggu til jöfn- unarmarkið,“ skrifaði Guðmundur Karl m.a. í grein um leikinn á mbl.is. _ Eva Núra Abrahamsdóttir skoraði sitt fyrsta mark fyrir Selfoss þegar hún jafnaði metin tíu mín- útum fyrir leikslok. Stjarnan stal sigrinum Stjarnan fleytti sér upp í fjórða sæti með sigri í Keflavík, 2:1, reynd- ar frekar ósanngjörnum eftir gangi leiksins. Keflavíkurkonur eru þar með dottnar niður í fallsæti. _ Arna Dís Arnþórsdóttir skoraði sigurmarkið þegar fimm mínútur voru eftir og Stjarnan nýtti bæði markskot sín sem hittu á mark Kefl- víkinga í leiknum. „Stundum er allt á móti þér þegar þú ert í fallsæti. Þetta eru leikirnir sem Keflavík verður að fá meira en ekki neitt úr í fallbaráttunni, sér- staklega þegar liðið er svona miklu betri aðilinn. Keflavík er nú í fallsæti eftir fjögur töp í röð,“ skrifaði Jó- hann Ingi Hafþórsson m.a. í grein um leikinn á mbl.is. Toppliðin voru bæði á skotskónum Morgunblaðið/Árni Sæberg Kópavogsvöllur Hildur Antonsdóttir fagnar öðru marka sinna fyrir Breiðablik gegn Eyjakonum í 7:2 sigri Kópavogsliðsins í gærkvöld. - Tindastóll vann og skildi Keflavík og Fylki eftir í fallsætum deildarinnar Ljósmynd/Jóhann Helgi Sigmarsson Krókurinn Kristrún María Magnúsdóttir og María Dögg Jóhannesdóttir úr Tindastóli sækja að Þórhildi Þórhallsdóttur úr Fylki í botnslagnum. 22 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 2021 Enski knattspyrnumaðurinn Luke Shaw spilaði síðustu þrjá leiki Evr- ópumótsins í sumar rifbeinsbrotinn. Hann brotnaði gegn Þýskalandi í 16-liða úrslitum en Shaw virtist kunna vel við sig með brotin rifbein því hann lagði upp tvö mörk í átta liða úrslitunum gegn Úkraínu, lék vel gegn Danmörku í undan- úrslitum og skoraði svo í úrslita- leiknum á móti Ítalíu. Shaw mun væntanlega missa af fyrstu leikjum Manchester United á komandi leik- tíð þar sem hann er enn í fríi eftir EM og að glíma við meiðslin. Lék þrjá leiki rifbeinsbrotinn AFP Skoraði Luke Shaw fagnar marki sínu í úrslitaleik EM á Wembley. Íslendingaliðin CFR Cluj og Midtjyll- and náðu bæði í góð úrslit á útivöll- um í fyrri leikjum annarrar umferð- ar í Meistaradeild karla í fótbolta í gær. Rúnar Már Sigurjónsson lagði upp fyrra mark rúmensku meist- aranna CFR Cluj sem sigruðu Lin- coln Red Imps 2:1 á Gíbraltar, eftir að hafa lent undir í leiknum. Mikael Anderson lék í rúmar 70 mínútur með Midtjylland á Celtic Park í Glas- gow þar sem danska liðið gerði jafn- tefli við Celtic, 1:1, í hörkuleik þar sem bæði lið misstu mann af velli með rautt spjald. Ljósmynd/CFR Cluj CFR Rúnar Már Sigurjónsson og félagar stefna á 3. umferðina. Rúnar lagði upp mark á útivelli Annie Williams (ÍBV) Þóra Björg Stefánsdóttir (ÍBV) Hanna Kallmaier (ÍBV) Dómari: Guðmundur P. Friðbertsson – 8. Áhorfendur: Um 350. SELFOSS – ÞÓR/KA 1:1 0:1 Karen María Sigurgeirsdóttir 34. 1:1 Eva Núra Abrahamsdóttir 80. M Eva Núra Abrahamsdóttir (Selfossi) Barbára Sól Gísladóttir (Selfossi) Unnur Dóra Bergsdóttir (Selfossi) Karen María Sigurgeirsdóttir (Þór/KA) Arna Sif Ásgrímsdóttir (Þór/KA) Hulda Ósk Jónsdóttir (Þór/KA) Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson – 6. Áhorfendur: 107. BREIÐABLIK – ÍBV 7:2 1:0 Heiðdís Lillýjardóttir 5. 2:0 Chloé Vande Velde 12. 2:1 Þóra Björg Stefánsdóttir 20.(v) 3:1 Heiðdís Lillýjardóttir 33. 3:2 Hanna Kallmaier 64. 4:2 Hildur Antonsdóttir 72. 5:2 Selma Sól Magnúsdóttir 83. 6:2 Áslaug Munda Gunnlaugsd., 90. 7:2 Hildur Antonsdóttir 90. MM Heiðdís Lillýjardóttir (Breiðabliki) M Agla María Albertsdóttir (Breiðabliki) Áslaug Munda Gunnlaugsd. (Breiðab.) Ásta Eir Árnadóttir (Breiðabliki) Hildur Antonsdóttir (Breiðabliki) Karítas Tómasdóttir (Breiðabliki) Selma Sól Magnúsdóttir (Breiðabliki) TINDASTÓLL – FYLKIR 2:1 1:0 Murielle Tiernan 7. 2:0 Laura-Roxana Rus 27. 2:1 Helena Ósk Hálfdánardóttir 69. M Murielle Tiernan (Tindastóli) Laura-Roxana Rus (Tindastóli) Amber Michel (Tindastóli) Laufey Harpa Halldórsdóttir (Tindastóli) Þórdís Elva Ágústsdóttir (Fylki) Helena Ósk Hálfdánardóttir (Fylki) Dómari: Birgir Þór Þrastarson – 8. Áhorfendur: 150. VALUR – ÞRÓTTUR R. 6:1 1:0 Ída Marín Hermannsdóttir 18. 1:1 Guðrún Gyða Haralz 33. 2:1 Mary Alice Vignola 44. 3:1 Lára Kristín Pedersen 57. 4:1 Elín Metta Jensen 68. 5:1 Arna Eiríksdóttir 80. 6:1 Clarissa Larisey 90. M Arna Eiríksdóttir (Val) Cyera Hintzen (Val) Elín Metta Jensen (Val) Elísa Viðarsdóttir (Val) Fanndís Friðriksdóttir (Val) Ída Marín Hermannsdóttir (Val) Lára Kristín Pedersen (Val) Mary Alice Vignola (Val) Sólveig Jóhannesdóttir Larsen (Val) Guðrún Gyða Haralz (Þrótti) Dómari: Jóhann Atli Hafliðason – 8. Áhorfendur: Um 300. KEFLAVÍK – STJARNAN 1:2 0:1 Alma Mathiesen 5. 1:1 Aerial Chavarin 37. 1:2 Arna Dís Arnþórsdóttir 86. M Ísabel Jasmín Almarsdóttir (Keflavík) Cassandra Rohan (Keflavík) Amelia Rún Fjelsted (Keflavík) Aerial Chavarin (Keflavík) Naya Lipkens (Stjörnunni) Arna Dís Arnþórsdóttir (Stjörnunni) Anna María Baldursdóttir (Stjörnunni) Alma Mathiesen (Stjörnunni) Málfríður Erna Sigurðardóttir (Stjörn.) Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson – 7. Áhorfendur: 100. _ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot- bolti. Pepsi Max-deild kvenna Breiðablik – ÍBV....................................... 7:2 Tindastóll – Fylkir ................................... 2:1 Selfoss – Þór/KA ...................................... 1:1 Valur – Þróttur R ..................................... 6:1 Keflavík – Stjarnan .................................. 1:2 Staðan: Valur 11 8 2 1 30:13 26 Breiðablik 11 8 0 3 42:17 24 Selfoss 11 5 3 3 16:13 18 Stjarnan 11 5 1 5 13:16 16 Þróttur R. 11 4 3 4 23:23 15 Þór/KA 11 3 4 4 11:15 13 ÍBV 11 4 1 6 18:26 13 Tindastóll 11 3 2 6 8:16 11 Keflavík 11 2 3 6 10:18 9 Fylkir 11 2 3 6 10:24 9 Markahæstar: Elín Metta Jensen, Val ............................... 9 Agla María Albertsdóttir, Breiðabliki....... 8 Brenna Lovera, Selfossi ............................. 7 Delaney Baie Pridham, ÍBV ...................... 7 2. deild kvenna Sindri – Einherji....................................... 4:1 Staðan: FHL 9 8 0 1 43:12 24 Völsungur 9 7 1 1 22:10 22 KH 8 7 0 1 30:5 21 Fram 8 6 0 2 23:11 18 Fjölnir 8 5 1 2 32:10 16 Sindri 8 4 0 4 18:19 12 Hamrarnir 9 3 2 4 21:19 11 ÍR 8 3 1 4 17:19 10 Hamar 8 2 3 3 14:18 9 Einherji 9 1 3 5 7:19 6 SR 8 1 1 6 15:20 4 Álftanes 8 1 0 7 6:16 3 KM 8 0 0 8 1:71 0 Meistaradeild karla 2. umferð, fyrri leikir: Lincoln Red Imps – CFR Cluj................. 1:2 - Rúnar Már Sigurjónsson lagði upp fyrra mark CFR og var skipt af velli á 90. mín- útu. Celtic – Midtjylland ................................. 1:1 - Mikael Anderson lék fyrstu 72 mínút- urnar með Midtjylland og Elías Rafn Ólafs- son var varamarkvörður liðsins. Alashkert – Sheriff Tiraspol ................... 0:1 Dinamo Zagreb – Omonia Nikósía ......... 2:0 Ferencváros – Zalgiris Vilnius................ 2:0 Rapid Vín – Sparta Prag ......................... 2:1 Sambandsdeild karla 2. umferð, fyrri leikir: Domzale – Honka ..................................... 1:1 Prishtina – Connah’s Quay...................... 4:1 Kauno Zalgiris – The New Saints........... 0:5 Folgore – Hibernians Paola .................... 1:3 50$99(/:+0$ Vináttulandsleikur kvenna Noregur – Svíþjóð ............................... 32:25 - Þórir Hergeirsson þjálfar lið Noregs. Vináttulandsleikur karla Noregur – Svíþjóð ................................ 26:26 .$0-!)49, Norðurlandamót U20 karla Leikið í Tallinn, Eistlandi: Finnland – Ísland ................................. 65:86 57+36!)49, KNATTSPYRNA 1. deild kvenna, Lengjudeildin: Kópavogsvöllur: Augnablik – ÍA......... 19.15 Vivaldi-völlur: Grótta – FH ................. 19.15 Varmá: Afturelding – Víkingur R....... 19.15 Ásvellir: Haukar – Grindavík .............. 19.15 Meistaravellir: KR – HK ..................... 19.15 3. deild karla: Sindravellir: Sindri – Höttur/Huginn...... 19 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.