Morgunblaðið - 21.07.2021, Síða 24
24 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 2021
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. kl. 8-17, fös. kl. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratuga
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Hólmfríður María Ragnhildardóttir
hmr@mbl.is
„Ég ákvað að það væri sniðugt að
prófa að skrifa sem karlmaður, upp-
runalega átti ein aðalsöguhetjan að
vera karlkyns. Ég þótti þó ekki
sannfærandi karlmaður þannig að
ég ákvað að snúa henni aftur. Þá
náttúrulega breyttist heilmikið,“
segir Árelía Eydís Guðmundsdóttir
skáldsagnahöfundur um bókina sína
Slétt og brugðið sem kom út í sum-
ar.
Líkt og tvær fyrri skáldsögur
Árelíu fjallar nýja verkið um líf
kvenna en Slétt og brugðið segir frá
sex vinkonum í saumaklúbbi sem
ákveða einn daginn af kynna sér
gyðjur. Í kjölfarið fer af stað óvænt
atburðarás.
Árelía lýsir bókarskrifunum sem
krefjandi en jafnframt skemmtilegu
verkefni. Upprunalega handrit bók-
arinnar hafði verið skrifað út frá
sjónarhorni karlmanns. Sú útfærsla
reyndist þó ekki sannfærandi og var
hún beðin um að endurskrifa allt
verkið. „Ég í raun skilaði tveimur
handritum. Kannski var líka ágætt
að taka þessa æfingu. Stundum er
maður bara áhorfandi að því hvern-
ig sagan þróast og oft á tíðum þarf
maður að taka hugmyndirnar sínar í
einhverja allt aðra átt eftir að hafa
legið yfir þeim í ákveðinn tíma,“
segir Árelía og hlær við.
Skortur á kvenfyrirmyndum
Aðspurð segir hún upphaf bók-
arinnar mega rekja til tveggja hug-
mynda. Annars vegar vildi hún
segja frá töfrunum sem felast í vin-
áttunni. Hins vegar fannst henni
mikilvægt að fjalla um dauðann, sér-
staklega sem áminningu um að við
mannfólkið höfum öll takmarkaðan
tíma hér á jörðu, en söguþráðurinn
gerist að hluta til á líknardeild á
sjúkrahúsi.
Kveikjuna að þeirri hugmynd að
fá gyðjur inn í söguþráðinn segir Ár-
elía hafa sprottið út frá því að konur
skortir oft fyrirmyndir í sögunni til
að spegla sjálfa sig í. Þótt tímarnir
séu breyttir í dag hafa konur ekki
margar fyrirmyndir sem ná langt
aftur í sögunni í samanburði við
karlmenn. Eru jafnframt konur í
bókmenntum og listaverkum oftar
en ekki hugarsmíð karla.
Að sögn Árelíu hafa gyðjur þó
fyrirfundist í langflestum menning-
arsamfélögum frá örófi alda. Hafa
konur því lengi framan af getað
speglað sig í þeim.
„Gyðjurnar eru náttúrlega eins og
guðlegar verur en þær eru óneit-
anlega með krafta sem við getum
auðveldlega speglað okkur í í sam-
tímanum. Þær hafa einnig þessa
mannlegu eiginleika. Hluti af þeim
er móður-gyðjur en þær geta einnig
verið mjög lostafullar, þær vilja
drottna og berjast mjög illilega fyrir
yfirráðum. Það er í rauninni allur
skalinn á þessu.“
Segir Árelía örlögin hafa stjórnað
því hvaða gyðjur yrðu teknar fyrir í
bókinni en líkt og sögupersónurnar
dró hún spil sem réð úrslitum í þeim
efnum. „Ég stjórnaði ekki hvaða
gyðjur komu, ég leyfði þeim bara að
ráða. Þær sem voru frekastar komu
þarna fram.“
Skáldsögur góð tilbreyting
Auk þess að sinna skáldsagna-
skrifum er Árelía einnig dósent í við-
skiptafræði við Háskóla Íslands.
Hefur hún lagt mikla áherslu á leið-
togafræði í sínum störfum, vinnu-
staðamenningu og rannsóknir á
starfsferli kvenna.
Segir hún skáldsagnaskrifin
skemmtilega tilbreytingu frá
vísindastörfunum enda afar ólíkir
vinnuferlar þar að baki.
„Í skáldsöguforminu getur maður
leikið sér svolítið. Þar er maður
óbundinn af því að þurfa að sanna
mál sitt. Í vísindunum er maður allt-
af að vinna innan ákveðins ramma.
Ég segist alltaf nota vinstra heila-
hvelið í skáldsögurnar og hægra
þegar ég er í vísindaskrifum. Þetta
er mjög ólíkt. Kannski eru tengslin
samt þau að ég er alltaf að pæla í
mannlegri hegðun.“
Ánægð með viðtökur
Árelía kveðst ánægð og þakklát
með viðtökurnar sem bókin hefur
fengið en verkið var komið á met-
sölulista skömmu eftir útgáfu.
„Þegar maður gefur út bók verður
maður bara að sleppa tökunum og
vonast til þess að hún fái einhverja
vængi blessunin. Hún er alveg að
spjara sig.“
Viðskiptafræðin og vísindalegar
pælingar eru þó aldrei langt undan
hjá Árelíu en í september er von á
annarri bók eftir höfundinn sem hún
skrifaði ásamt Herdísi Pálu Páls-
dóttur, og fjallar sú um breytingar á
vinnumarkaðnum.
„Þannig að þetta árið koma út
tvær bækur eftir mig sem eru unnar
hvor með sínu heilahvelinu,“ segir
Árelía að lokum hlæjandi.
Þótti ekki sannfærandi karlmaður
- Árelía Eydís gaf út skáldsöguna Slétt og brugðið í sumar - Verkið fjallar um vinskap kvenna
- Bókin fór beint á metsölulistann - Árelía Eydís telur að konur geti speglað sig í gyðjum fortíðar
Morgunblaðið/Eggert
Rithöfundur Árelía Eydís Guðmundsdóttir segir góða tilbreytingu frá vísindastörfunum að skrifa skáldsögu.
Gítarleikarinn Guðmundur
Pétursson kemur fram á sumar-
tónleikum Norræna hússins
fimmtudaginn 22. júlí kl. 21.
„Guðmundur hefur starfað í
fremstu röð í íslensku tónlistarlífi
um árabil og átt viðkomu með
ólíkum listamönnum allt frá Pine-
top Perkins til Patti Smith. Hann
hefur gefið út nokkuð af plötum
með tónlist sinni og samið verk
meðal annars fyrir Kammersveit
Reykjavíkur, Stórsveit Reykja-
víkur og SinfoNord. Guðmundur
hefur hlotið Íslensku tónlistar-
verðlauninn fyrir bæði gítarleik
sinn og tónsmíðar. Á tónleikunum mun hann flytja einleiksverk sem hann
tileinkar þeim hverfum Reykjavíkur sem hann spilar í hverju sinni og eru
sérstaklega samin fyrir tilefnið. Hann mun einnig flytja annað efni af sín-
um fjölbreytta ferli,“ segir í tilkynningu. Miðar fást á vefnum tix.is.
Guðmundur leikur í Norræna húsinu
Fingrafimi
Guðmundur
Pétursson
gítarleikari.
Morgunblaðið/Golli
Old (Öldruð) nefnist nýjasta kvik-
myndin í leikstjórn M. Night Shya-
malan. Um er að ræða hrollvekju
sem fjallar um fólk í sumarfríi sem
ætlar að njóta lífsins í sólinni á
afvikinni suðrænni strönd. Ætlunin
er að slaka þar á í nokkra tíma en
fljótt kemur í ljós að allir sem á
ströndinni dvelja eldast með ógnar-
hraða þar sem einn dagur jafnast á
við heila mannsævi. Eins og í sönn-
um hrollvekjum virðist ekki hlaup-
ið að því að sleppa burt. Myndin er
lauslega byggð á frönsku teikni-
myndabókinni Château de sable
(Sandkastali) eftir Pierre Oscar
Levy og Frederik Peeters frá 2010.
Myndin var frumsýnd í New York í
fyrradag og er tekin til sýningar í
íslenskum kvikmyndahúsum í dag.
AFP
Listafólk Leikhópurinn og leikstjórinn fögnuðu frumsýningu kvikmyndarinnar Old í New York á mánudag. Luca
Faustino Rodriguez, Aaron Pierce, M. Night Shyamalan, Kylie Begley, Gael García Bernal, Vicky Krieps, Rufus
Sewell, Kailen Jude, Alex Wolff, Nolan River, Alexa Swinton, Mikaya Kenzie Fisher og Nikki Amuka-Bird.
Ótímabær öldrun á ströndinni
Prúðbúin M. Night Shyamalan, ásamt eiginkonu sinni, Bhavna Vaswani, á
frumsýningu myndarinnar Old í Lincoln Center í New York í fyrradag.