Morgunblaðið - 21.07.2021, Síða 25

Morgunblaðið - 21.07.2021, Síða 25
Ljósmynd/Theatre Royal Windsor, Marc Brenner Breski leikarinn Ian McKellen fer með hlutverk Danaprins í leikritinu Hamlet eftir William Shakespeare sem Theatre Royal Windsor setur upp í leikstjórn Seans Mathias. Þetta er í annað sinn sem McKellen túlkar Hamlet, því hann lék hann fyrir um 50 árum þegar hann sjálfur var um þrítugt og þar með nær per- sónunni í aldri. „Mér fannst ég ekki góður í því hlutverki. Og það fannst heldur engum öðrum!“ segir Mc- Kellen í samtali við The Guardian um eldri uppfærsluna sem Robert Chetwyn leikstýrði og sýnd var víðs vegar um Bretland og Evrópu 1971. Nýju uppfærslunni hefur verið lýst sem „aldurs-, lita- og kynja- blindri“, en sem dæmi leikur Fran- cesca Annis föður Hamlets. Meðal annarra leikara eru Alis Wyn Davies sem leikur Ófelíu og Jenny Seagrove leikur Geirþrúði. Í samtali við The Guardian segir McKellen uppfærsl- una tilraun til að skoða „hversu mik- ið við þyrftum að sjá það sem við heyrum.“ Forsýningar hófust í sein- asta mánuði og frumsýnt var í gær- kvöldi og því hafa enn engir leik- dómar birst í breskum fjölmiðlum. Svo mikil eftirspurn var eftir miðum að sýningartímabilið var lengt um þrjár vikur og lýkur sýningum því ekki fyrr en í lok september. Ósætti leikara veldur uppnámi Aðeins örfáum dögum fyrir frum- sýninguna var tilkynnt að tveir leik- arar uppfærslunnar væru hættir og nýir leikarar teknir við hlutverkum þeirra. Þetta eru þau Steven Berkoff sem leika átti Pólóníus og Emmanu- ella Cole sem átti að leika Laertes. Samkvæmt heimildum Mail on Sunday kom upp ósætti milli leik- aranna tveggja á æfingu með til- heyrandi orðaskaki með þeim afleið- ingum að McKellen „táraðist“ og „upplifði mikið álag“. Í samtali við The Guardian segir leikstjórinn að Berkoff hafi þurft að segja sig frá verkefninu þegar sýningartímabilið var lengt þar sem það stangaðist á við önnur verkefni. Leikstjórinn kannast ekki við ágreining leik- aranna og segir alvanalegt að leik- arar takist á. Í frétt blaðsins kemur engu að síður fram að Cole hafi sent stéttarfélagi leikara formlega kvört- un vegna Berkoff. Haft er eftir Cole að Berkoff hafi gert lítið úr henni á æfingum og verið ruddalegur við hana. Berkoff vísar á bug öllum ásökunum um ósæmilega hegðun. Ian McKellen leikur Danaprins - Aldurs-, lita- og kynjablind upp- færsla á Hamlet eftir Shakespeare Efinn Ian McKellen sem Hamlet. MENNING 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SCARLETT JOHANSSON FLORENCE PUGH DAVID HARBOUR O–T FAGBENLE RAY WITHWINSTONE RACHEL ANDWEISZ SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI Franskir dagar fagna 25 ára afmæli í ár og ber dagskráin þetta árið þess glögg merki. Hátíðin verður sett á morgun og stendur til sunnudags, en þegar var byrjað að hita upp fyrir hana á þriðjudaginn var. Frítt er inn á flesta viðburði en selt inn á nokkra tónleika. Meðal þess sem boðið verður upp á í ár eru tónleikar með Stebba og Eyfa í Skrúð annað kvöld kl. 21. Á föstudag kl. 16 verður boðið upp á dorgveiðikeppni við bæjarbryggj- una; tónleika með KK í Fáskrúðs- fjarðarkirkju kl. 18, brekkutónleika við Búðagrund kl. 21, flugeldasýn- ingu kl. 23.30 og tónleika, undir yfir- skriftinni Skrúðsgleði, sem hefjast á miðmætti. Á laugardag verður meðal annars boðið upp á helgistund í Frönsku kapellunni kl. 12; minningarathöfn um franska sjómenn í Franska graf- reitnum kl. 13; blöðrudýrakennslu Lalla töframanns á hátíðarsvæði á Skólavegi eða í Skrúð kl. 12.30; Íslandsmeistaramót í franska kúlu- spilinu Pétanque við Skólamiðstöð- ina kl. 17, Sumarfjarðaball með Birni og Albatross fyrir ungmenni í Skrúð kl. 20.30 og dansleik fyrir full- orðna á sama stað sem hefst á mið- nætti. Á sunnudag verður meðal annars boðið upp á fjölskyldustund á Búðagrund kl. 13.30 þar sem hægt verður að fara í froðurennibraut, hoppukastala og taka þátt í frisbí- golfmóti. Allar nánari upplýsingar og dag- skrána í heild má nálgast á tix.is. Franskir dagar fagna 25 árum - Vegleg dagskrá og fjölbreytt í til- efni afmælisins Morgunblaðið/Eggert Gítar Tónlistarmaðurinn KK kemur fram á tónleikum í Fáskrúðsfjarðar- kirkju á föstudag kl. 18 þar sem hann deilir tónlist sinni og sögum. Bandaríska tónlistarkonan Britney Spears tilkynnti ný- lega í færslu á Instagram að hún hyggist ekki stíga aft- ur á svið á meðan hún er undir stjórn föður síns, Jamies Spears. Hann hefur frá 2008 verið lögráðamaður henn- ar og hefur hún síðustu misseri reynt að losna undan honum. Hún kom fyrir rétt í Los Angeles í seinasta mánuði og bað dómara um hjálp við endurheimta líf sitt frá föður sínum, en hafði ekki erindi sem erfiði strax. Dómarinn féllst engu að síður á að leyfa henni að ráða sinn eigin lögmann til að meðhöndla lögráðamál henn- ar. Málið verður næst tekið fyrir hjá dómara í september. „Það að vera með lögráðamann hefur drepið alla drauma mína,“ skrifar Britney Spears í færslunni um helgina og bætir við að hún eigi vonina eina eftir. „Ég mun ekki koma fram á neinu sviði á næstunni meðan pabbi stjórnar því hverju ég klæðist, hvað ég segi, geri og hugsa,“ skrifar Spears, sem ekki hefur komið fram opinberlega síðan síðla árs 2018. Í frétt BBC kemur fram að Spears hyggist lögsækja föður sinn fyrir að misnota stöðu sína sem lögráðamaður. Hann stýrir auðæfum hennar sem nema 60 millj- ónum bandaríkjadala sem samsvara 7,5 milljörðum íslenskra króna. Kemur ekki fram undir stjórn föður síns Britney Spears Danski rithöfund- urinn og skáldið Vita Andersen er látin 78 ára að aldri. „Með fráfalli Vitu Andersen hef- ur danski bók- menntaheimurinn misst mikinn og merkilegan höf- und. Verk hennar munu lifa áfram í formi þeirra áhrifa sem þau hafa haft á verk yngri höf- unda og í hugarheimi fjölmargra les- enda,“ segir Jacob Søndergaard, for- stjóri forlagsins Gutkind. Vita Andersen þreytti frumraun sína árið 1977 með ljóðasafninu Tryghedsnarkomaner (Öryggis- fíklar) þar sem hún fjallar um konu sem var vanrækt í æsku og á fullorð- insárum þyrstir í ást, staðfestingu og öryggi. Jafnframt skrifar hún um kröfur neytendasamfélagsins til kvenna, þar sem öllu skiptir að vera sæt og fullkomin. Søndergaard bendir á að Andersen hafi skrifað um líf og reynsluheim kvenna í Dan- mörku á nýjan og frumlegan hátt. Ári síðar sendi Andersen frá sér smásagnasafnið Hold kæft og vær smuk (Haltu kjafti og vertu sæt) sem hún hlaut fyrir hin virtu dönsku bók- menntaverðlaun Gyllta lárviðar- sveiginn. Á ferli sínum sendi Andersen frá sér fjölda ljóða, smásagna, leikrita og skáldsagna. Árið 2018 var hún til- nefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir skáldævisög- una Indigo – Roman om en barndom (Indígó – Skáldsaga um barnæsku) þar sem hún kafar ofan í það hvað gerðist í raun og veru þegar henni var í bernsku komið fyrir ýmist á vistheimilum eða hjá vandalausum. Danski rithöfundurinn Leonora Christina Skov, sem var yfirlesari skáldsögunnar Sig det ikke til nogen (Ekki segja neinum frá þessu) sem Andersen sendi frá sér 2012, segist umsvifalaust hafa heillast af áköfum, reiðum og titrandi tóninum í skrifum Andersen sem og hugrekki hennar til að lýsa skuggahliðum tilverunnar eins og þær eru. Andersen skilur eft- ir sig tvær dætur og einn son. Vita Andersen Misst mikinn og merki- legan höfund

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.