Morgunblaðið - 21.07.2021, Síða 28
Kvintett Gauks &
Sölva kemur fram
á sumartónleikum
Jazzklúbbsins
Múlans í Flóa í
Hörpu í kvöld,
miðvikudags-
kvöld, kl. 20. Í for-
svari fyrir kvint-
ettinn eru munn-
hörpuleikarinn
Þorleifur Gaukur
Davíðsson og
saxófónleikarinn
Sölvi Kolbeins-
son. Kvintett þeirra mun leika sín uppáhaldsdjasslög
með áherslu á sveiflu. Sölvi og Gaukur kynntust í Tón-
listarskóla FÍH fyrir nokkrum árum og hafa starfað
saman að margvíslegum verkefnum. Ásamt þeim koma
fram Eyþór Gunnarsson píanóleikari, Nicolas Moreaux
bassaleikari og Sigtryggur Baldursson slagverksleikari.
Miðar fást í miðasölu Hörpu, harpa.is, og tix.is.
Kvintett Gauks & Sölva á Múlanum
Sími 555 3100 www.donna.is
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Honeywell
fyrir heimilið
Láttu gusta umþig!
Viftur
Hitarar
Lofthreinsitæki
MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 202. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Valur og Breiðablik fjarlægjast enn önnur lið í úrvals-
deild kvenna í fótbolta og bæði toppliðin voru á skot-
skónum þegar þau skoruðu sex og sjö mörk gegn Þrótti
og ÍBV í elleftu umferðinni í gærkvöld. Tindastóll vann
Fylki og skildi þar með bæði Árbæinga og Keflvíkinga
eftir í fallsætum deildarinnar. »22
Valur og Breiðablik með stórsigra
ÍÞRÓTTIR MENNING
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Veður, birta, gróður, árstíðir og
eldgos, allt setur þetta sinn svip á
náttúruna. Frá degi til dags grein-
um við ekki svo glöggt breyting-
arnar á landinu, skilningur okkar á
því verður bestur ef við komum á
staði á nokkurra ára fresti. Annars
er engu líkt hve víða hér á landi
sést frá einum punkti til jökuls,
skóga, stórfljóta, eldfjalla og jafn-
vel út á haf. Þetta er einstakt,“
segir listmálarinn Tolli Morthens.
Nýlega flutti Tolli vinnustofu
sína í nýtt hús á Koparsléttu á
Esjumelum á Kjalarnesi. Iðnaðar-
starfsemi er áberandi í hverfinu;
vinnuvélar, járndót og fleira slíkt,
en misjafnt er hvað helst vekur eft-
irtekt því þegar Morgunblaðið kom
við á sléttunni í gær talaði lista-
maðurinn um náttúru og staðhætti.
Jafnvel þótt Esjan væri falin í
þoku.
Eldur, vatn og vindur
„Niðri í bæ greinir maður ekki
hve mikill fjallabálkur Esjan er, að
ég tali nú ekki um Kistufellið. Hér
á Kjalarnesi er þetta í návígi. Hér
finnst mér ég stundum vera kom-
inn á Ísafjörð þar sem fjöllin gnæfa
yfir bæinn,“ segir Tolli og heldur
áfram:
„Á hásléttum Kína og Tíbets er
ferðast svo dögum skiptir í sama
mótífi. Á Íslandi breytast mynd-
irnar stöðugt og í jörðu eru fæðing-
arhríðir eins og við höfum fylgst
með á Reykjanesskaganum að und-
anförnu. Eldur, vatn og vindur eru
element í auðninni þar sem nærri
er oft litsterk flóra.“
Einstaklingshyggja fjalla
Sem myndlistarmaður hefur Tolli
einkum málað stórar landslags-
myndir; fleka sem taka jafnvel
heila veggi. Ekki minna en tugur
mynda af Herðubreið – þjóðarfjalli
Íslendinga – er á vinnustofunni og
flestar þeirra eru splunkunýjar.
„Ég er gagntekinn af Herðu-
breið, sem ég hef bæði gengið á og
horfi til á sléttunni. Sé alltaf nýja
vinkla í Herðubreið, sem er bæði
malerísk og formfögur. Í hindúatrú
fylgir fjallinu Shivá austur í Tíbet
mikill átrúnaður og væri Ísland
ögn sunnar á hnettinum myndi hið
sama gilda um Herðubreið. Svo er
ég líka heillaður af Lómagnúpi,
fjalli sem oft er baðað einstakri
birtu. Fá fjöll er skemmtilegra að
mála en Herðubreið og Lómagnúp
og einstaklingshyggja er góð lýsing
á því hve sterkt þau skera sig úr.“
Kraftar streyma
Nú er hásumar og landinn á far-
aldsfæti. Tolli ætlar nú í vikunni
austur á land og leita þar að mynd-
efnum. Hyggst stoppa víða á suð-
urströndinni, á Austfjörðum,
Möðrudalsöræfum og í Ásbyrgi.
Vatnslitaferð er svo áformuð í
haust.
„Frá því um 25. september og
fram í miðjan október eru and-
stæðurnar miklar,“ segir Tolli.
„Skuggarnir sterkir, ljósið oft
dramatískt og litapallettan falleg.
Anatómían í landinu er aldrei
sterkari en á haustin. Annars er
náttúran fyrir mér eins og musteri
í andlegu ferðalagi. Þegar ég var
að koma úr krabbameinsmeðferð
og taka mín fyrstu skref í bata var
geggjað að fara út, liggja milli
þúfna, anda í sárið og finna dásam-
lega krafta jarðar streyma í gegn-
um líkamann. Líf okkar er í sterku
samhengi við jörðina og stór mis-
skilningur margra er að telja þetta
aðskilið.“
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Listmálari Líf okkar er í sterku samhengi við jörðina, segir Tolli, hér með í
baksýn spánnýtt málverk sitt af Herðubreið, sjálfu þjóðarfjalli Íslendinga.
Á Íslandi breytast
myndirnar stöðugt
- Kúnst á Kjalarnesi - Herðubreið heillar - Nýir vinklar