Morgunblaðið - 21.07.2021, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 21.07.2021, Qupperneq 28
Kvintett Gauks & Sölva kemur fram á sumartónleikum Jazzklúbbsins Múlans í Flóa í Hörpu í kvöld, miðvikudags- kvöld, kl. 20. Í for- svari fyrir kvint- ettinn eru munn- hörpuleikarinn Þorleifur Gaukur Davíðsson og saxófónleikarinn Sölvi Kolbeins- son. Kvintett þeirra mun leika sín uppáhaldsdjasslög með áherslu á sveiflu. Sölvi og Gaukur kynntust í Tón- listarskóla FÍH fyrir nokkrum árum og hafa starfað saman að margvíslegum verkefnum. Ásamt þeim koma fram Eyþór Gunnarsson píanóleikari, Nicolas Moreaux bassaleikari og Sigtryggur Baldursson slagverksleikari. Miðar fást í miðasölu Hörpu, harpa.is, og tix.is. Kvintett Gauks & Sölva á Múlanum Sími 555 3100 www.donna.is Vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Honeywell fyrir heimilið Láttu gusta umþig! Viftur Hitarar Lofthreinsitæki MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 202. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Valur og Breiðablik fjarlægjast enn önnur lið í úrvals- deild kvenna í fótbolta og bæði toppliðin voru á skot- skónum þegar þau skoruðu sex og sjö mörk gegn Þrótti og ÍBV í elleftu umferðinni í gærkvöld. Tindastóll vann Fylki og skildi þar með bæði Árbæinga og Keflvíkinga eftir í fallsætum deildarinnar. »22 Valur og Breiðablik með stórsigra ÍÞRÓTTIR MENNING Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Veður, birta, gróður, árstíðir og eldgos, allt setur þetta sinn svip á náttúruna. Frá degi til dags grein- um við ekki svo glöggt breyting- arnar á landinu, skilningur okkar á því verður bestur ef við komum á staði á nokkurra ára fresti. Annars er engu líkt hve víða hér á landi sést frá einum punkti til jökuls, skóga, stórfljóta, eldfjalla og jafn- vel út á haf. Þetta er einstakt,“ segir listmálarinn Tolli Morthens. Nýlega flutti Tolli vinnustofu sína í nýtt hús á Koparsléttu á Esjumelum á Kjalarnesi. Iðnaðar- starfsemi er áberandi í hverfinu; vinnuvélar, járndót og fleira slíkt, en misjafnt er hvað helst vekur eft- irtekt því þegar Morgunblaðið kom við á sléttunni í gær talaði lista- maðurinn um náttúru og staðhætti. Jafnvel þótt Esjan væri falin í þoku. Eldur, vatn og vindur „Niðri í bæ greinir maður ekki hve mikill fjallabálkur Esjan er, að ég tali nú ekki um Kistufellið. Hér á Kjalarnesi er þetta í návígi. Hér finnst mér ég stundum vera kom- inn á Ísafjörð þar sem fjöllin gnæfa yfir bæinn,“ segir Tolli og heldur áfram: „Á hásléttum Kína og Tíbets er ferðast svo dögum skiptir í sama mótífi. Á Íslandi breytast mynd- irnar stöðugt og í jörðu eru fæðing- arhríðir eins og við höfum fylgst með á Reykjanesskaganum að und- anförnu. Eldur, vatn og vindur eru element í auðninni þar sem nærri er oft litsterk flóra.“ Einstaklingshyggja fjalla Sem myndlistarmaður hefur Tolli einkum málað stórar landslags- myndir; fleka sem taka jafnvel heila veggi. Ekki minna en tugur mynda af Herðubreið – þjóðarfjalli Íslendinga – er á vinnustofunni og flestar þeirra eru splunkunýjar. „Ég er gagntekinn af Herðu- breið, sem ég hef bæði gengið á og horfi til á sléttunni. Sé alltaf nýja vinkla í Herðubreið, sem er bæði malerísk og formfögur. Í hindúatrú fylgir fjallinu Shivá austur í Tíbet mikill átrúnaður og væri Ísland ögn sunnar á hnettinum myndi hið sama gilda um Herðubreið. Svo er ég líka heillaður af Lómagnúpi, fjalli sem oft er baðað einstakri birtu. Fá fjöll er skemmtilegra að mála en Herðubreið og Lómagnúp og einstaklingshyggja er góð lýsing á því hve sterkt þau skera sig úr.“ Kraftar streyma Nú er hásumar og landinn á far- aldsfæti. Tolli ætlar nú í vikunni austur á land og leita þar að mynd- efnum. Hyggst stoppa víða á suð- urströndinni, á Austfjörðum, Möðrudalsöræfum og í Ásbyrgi. Vatnslitaferð er svo áformuð í haust. „Frá því um 25. september og fram í miðjan október eru and- stæðurnar miklar,“ segir Tolli. „Skuggarnir sterkir, ljósið oft dramatískt og litapallettan falleg. Anatómían í landinu er aldrei sterkari en á haustin. Annars er náttúran fyrir mér eins og musteri í andlegu ferðalagi. Þegar ég var að koma úr krabbameinsmeðferð og taka mín fyrstu skref í bata var geggjað að fara út, liggja milli þúfna, anda í sárið og finna dásam- lega krafta jarðar streyma í gegn- um líkamann. Líf okkar er í sterku samhengi við jörðina og stór mis- skilningur margra er að telja þetta aðskilið.“ Morgunblaðið/Sigurður Bogi Listmálari Líf okkar er í sterku samhengi við jörðina, segir Tolli, hér með í baksýn spánnýtt málverk sitt af Herðubreið, sjálfu þjóðarfjalli Íslendinga. Á Íslandi breytast myndirnar stöðugt - Kúnst á Kjalarnesi - Herðubreið heillar - Nýir vinklar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.