Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.07.2021, Qupperneq 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.07.2021, Qupperneq 32
SUNNUDAGUR 11. JÚLÍ 2021 AVANA model 2570 L 224 cm Leður ct. 15 Verð 509.000,- L 244 cm Leður ct. 15 Verð 529.000,- LEUCA model 3186 L 167 cm Leður ct. 15 Verð 369.000,- L 207 cm Leður ct. 15 Verð 419.000,- STAN model 3035 L 170 cm Leður ct. 15 Verð 399.000,- L 206 cm Leður ct. 15 Verð 449.000,- ESTRO model 3042 L 164cm Leður ct. 15 Verð 379.000,- L 198 cm Leður ct. 15 Verð 419.000,- ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla LEVANTE model 3187 L 204 cm Leður ct. 15 Verð 409.000,- L 224 cm Leður ct. 15 Verð 429.000,- CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (Visa / Euro) í allt að 6 mánuði. Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15 David Coverdale, söngvari og leiðtogi bandaríska málm- bandsins Whitesnake, tilkynnti á dögunum að næsta tón- leikaferðalag bandsins yrði jafnframt það síðasta. Cover- dale verður sjötugur í haust og þykir nú mál að linni. Ekki liggur fyrir hvenær lagt verður í’ann en White- snake hefur bókað sig á tvær stórar rokkhátíðir næsta sumar; Hellfest í Clisson, Frakklandi, 23. júní og Rock Imperium Festival í Cartagena á Spáni 24. til 25. júní. „Meiningin er að sýna þakklæti mitt fyrir allan stuðn- inginn sem ég hef notið gegnum tíðina enda er þetta ekki vinnandi vegur án áheyrenda – svo einfalt er það,“ sagði okkar maður við miðilinn Planet Rock. „Eins og þið sem hafið fylgt mér eftir vitið þá legg ég mig alltaf allan fram hverju sinni. Það hefur verið mitt vinnusiðferði alla tíð.“ Whitesnake hefur í tvígang troðið upp á Íslandi; fyrst á frægum tónleikum í Reiðhöllinni í Víðidal haustið 1990 og síðan í Laugardalshöll haustið 2008. Í fyrra skiptið var talið í tvisvar en Coverdale missti af seinni tónleikun- um vegna veikinda og Pétur heitinn W. Kristjánsson hljóp í skarðið. Í seinni heimsókninni heillaði White- snake ekki gagnrýnanda Morgunblaðsins sem sagði framgöngu bandsins til háborinnar skammar. Hvort bandið kemur við hér á landi á kveðjutúrnum verður að koma í ljós. David Coverdale í Laugardals- höllinni árið 2008. Hann þótti ekki í góðu formi í það skiptið. Morgunblaðið/Golli Svanasöngur Snáksins Íslandsvinirnir í málmbandinu Whitesnake leggja upp í sitt hinsta tónleikaferðalag. Sveitin hefur í tvígang troðið upp hér um slóðir. „Í Hellisgerði sælureit ævin- týraljóma í augum streituþrúg- aðra Hafnfirðinga var leikglatt smáfólk með ævintýraljóma í augum að skríða um gjótur, klifra í trjám og busla í tjörn- inni.“ Þennan hressilega inngang að frétt var að finna í Morgun- blaðsinu 11. júlí 1971 en blaða- maður og ljósmyndari höfðu stungið við stafni í téðum sælu- reit og hitt hressa krakka og barnapíur þeirra. Palli og Siggi höfðu fundið göng inn úr hellinum og stúlk- urnar létu í ljós ósvikna aðdáun á hugprýði þeirra þegar sá í koll- inn á Sigga, sem skreið borgin- mannlega út um hellismunnann, og á hæla honum kom Palli. Blaðamaður rakst líka á unga blómarós sem starfaði sem garðvörður á staðnum. „Við tókum ungmeyna tali og inntum hana eftir heiti. Sagðist hún heita Ragnheiður Kristjóns- dóttir og vinna við að gróður- setja, hreinsa til og reka óþekka krakka út úr garðinum. — Það er oft erfitt að hafa hemil á krökkunum hér, því margar eru freistingarnar fyrir þau í hrauninu. Fyrir kemur líka að krakkarnir detti í klettunum og þá fáum við verðimir það óskemmtilega hlutverk að fara með þau á spítalann.“ GAMLA FRÉTTIN Í sælureit ævintýra Ragnheiður Kristjónsdóttir og vinkona hennar Svava Benediktsdóttir. ÞRÍFARAR VIKUNNAR Danny DeVito kvikmyndaleikari Friðrik Dór söngvari Al Capone glæpaforingi

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.