Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.07.2021, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.7. 2021
EM Í KNATTSPYRNU
E
kkert lið mætti eins
peppað og glatt til leiks
á EM í knattspyrnu í
sumar og Ítalir. Það var
engu líkara en þeir
kæmu þráðbeint af hugarfars-
námskeiði hjá Jóni Jónssyni og
Friðriki Dór í Hafnarfirði eða Voda-
fone-fjölskyldunni dansandi í sjón-
varpinu. Ljóst var frá fyrsta leik að
þeir ætluðu að skemmta sér og öðr-
um eftir eymd plágunnar, út-
göngubönn, samkomutakmarkanir
og almenn leiðindi.
Samheldni þeirra hefur verið al-
gjör í leikjunum og liðsandinn til
fyrirmyndar. Nóg er að maður kom-
ist fyrir skot þá er hann fimmaður
og kjassaður í drasl – ef ekki hrein-
lega kysstur á munninn. Hámarki
náði sú athöfn þegar vinstri-
bakvörðurinn Leonardo Spinazzola
varði skot frá Romelu Lukaku á
marklínu í átta liða úrslitunum gegn
Belgum. Á brast hópknús ársins ef
ekki áratugarins með þeim afleið-
ingum að bæði Þórólfur og Víðir
kaldsvitnuðu heima í stofu. Tveggja
metra reglan er í eðli sínu óvinur
ítalska liðsins.
En það er ekki bara glaðværðin
og stemningin, ítalska liðið hefur
leikið glimrandi vel á mótinu. Það er
gömul saga og ný að þeir kunni að
verjast; Giorgio Chiellini og Leon-
ardo Bonucci eru hoknir af reynslu
með á annað hundrað landsleiki
hvor og hafa séð þetta allt áður.
Enda bekkjarbræður Rómulusar og
Remusar úr barnaskóla. Útilokað að
koma þeim félögum í opna skjöldu.
Chiellini er rosaleg týpa og hlýtur
að vera launsonur Tony Adams,
fyrrverandi landsliðsfyrirliða Eng-
lands. Getur fengið látna menn til að
skila sínu – alltént uns leikurinn er
flautaður af. Alvöru fyrirliði eins og
sást glöggt þegar hann tók Manuel
Locatelli strax undir sinn vernd-
arvæng eftir að hann klikkaði á
fyrsta vítinu gegn Spáni. Lét hann
ekki ganga einan og óstuddan af
velli í skömm, eins og varð hlutskipti
Kylians Mbappés fyrr á mótinu.
Hver er aftur fyrirliði Frakka? Ein-
mitt, þið þurftuð að fletta því upp!
Óárennilegt ungtröll
Fyrir aftan þá fóstbræður stendur
ungtröllið Gianluigi Donnarumma
og hleypir tuðrunni helst ekki
framhjá sér. Þá sjaldan það gerist
bíður skyttunnar slíkt augnaráð
móðgunar og illsku að hún sefur
ekki í marga sólarhringa á eftir.
Gaman að þessum pilti, maður er
vanari því að markverðir Ítala séu á
fimmtugsaldri.
Giovanni Di Lorenzo er til þess að
gera nýr af nálinni en hefur ekki
stigið feilspor á mótinu. Hvað þá
fyrrnefndur Spinazzola sem reyndar
heltist úr lestinni gegn Belgum –
sleit hásin í einu valhoppinu fram
völlinn. Margir vilja sjá hann krýnd-
an mann mótsins, þó ekki væri nema
fyrir nafnið. Ég meina, Leonardo
Spinazzola. Það er einhver gullin
blanda af festu og hrynjandi í nöfn-
um þessara manna sem hefur þá
ósjálfrátt yfir okkur dauðlega menn.
Varamaður Spinazzolas, Emerson,
er augljós stílbrjótur en hefur það
sér til málsbóta að hann fæddist í
Brasilíu. Mögulegur veikur hlekkur
á vellinum líka, myndu enskir ætla.
Annar Ítalíu-Brassi með til-
þrifalítið nafn er Jorginho sem er, til
að bíta höfuðið af skömminni, fædd-
ur í Imbituba. Það sem lagt er á
menn í þessu lífi. Imbituba?!! En
jæja, Jorginho hefur risið eins og
fuglinn Fönix upp úr þessum rústum
æsku sinnar og uppruna á EM og
bundið saman miðjuna hjá liðinu
með bravör, eða „miðsvæðið“, eins
og sérfræðingarnir kalla það. Og
hvar ráðast úrslitin í þessum leik?
Væntanlega á miðsvæðinu? Ójú. Þar
er allt svalasta fólkið í samkvæminu.
Með Jorginho á miðjunni í úrslita-
leiknum verða væntanlega Marco
Verrati og Nicolò Barella, allt gaur-
ar á toppaldri, 24 til 29 ára, og klárir
í hlaup og átök. Aðalsmerki liðsins á
EM hefur verið hápressan – Ítal-
irnir sækja að andstæðingum sínum
úr öllum áttum, eins og býflugur.
Hversu mörg mörk og færi hafa
komið upp úr þeim aðgerðum?
Óvenju markheppnir
Ítalir hafa oft teflt fram stærri
stjörnum í fremstu víglínu, en Lo-
renzo Insigne, Ciro Immobile og Fe-
derico Chiesa hafa allir staðið sig
með stakri prýði á EM. Allir hafa
þeir komist í tvígang á blað, eins og
Manuel Locatelli og Matteo Pessina,
sem að óbreyttu hefja úrslitaleikinn
á tréverkinu.
Ítalir gerðu strax sjö mörk í riðl-
inum, sem þeir rúlluðu upp en lentu
svo í smá basli með aðra tónelska
þjóð, Austurríkismenn, í sextán liða
úrslitunum en það hafðist fyrir rest í
framlengingu. Svo unnu þeir fræk-
inn sigur á nautsterkum Belgum og
sprækum Spánverjum. Flestum
spekingum ber raunar saman um að
Spánverjar hafi verið ívið sterkari
aðilinn í undanúrslitunum en úrslit
réðust, eins og við þekkjum, í víta-
keppni. Í raun fyrsti leikurinn þar
sem Ítalía sýndi ofurlítil veik-
leikamerki. Ekki ber þó að lesa of
mikið í það enda leikstíll Spánverja
og Englendinga ólíkur.
Úrslitaleikir eru Ítölum ekki
framandi; þetta er sá tíundi á HM og
EM. Fjórum sinnum hafa þeir orðið
heimsmeistarar en aðeins einu sinni
Evrópumeistarar, 1968. Lutu í gras í
úrslitum 2000 og 2012.
55 ára bið á enda
Þar standa þeir Englendingum
langtum framar en þeir eru, sem
frægt er, á leið í aðeins sinn annan
úrslitaleik á stórmóti frá upphafi.
Eru raunar með 100% árangur til
þessa – unnu HM á heimavelli 1966.
55 ára bið er sumsé loks á enda; svo
langt er síðan England lék síðast til
úrslita að enginn man eftir þeim leik
í landinu nema Elísabet II.
Hveitilengjur eða nýrnabaka?
EM 2020 í knattspyrnu rennur sitt skeið á enda á sunnudag með úrslitaleik sem hefur alla burði til að
verða epískur. Lýkur meira en hálfrar aldar eyðimerkurgöngu Englendinga á heimavelli eða stela hinir
tápmiklu Ítalir senunni? Dregur VAR jafnvel einhverjar skrautlegar kanínur upp úr hattinum?
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Miðjulímið Jorginho
og hinn ótrúlegi leið-
togi Ítalanna, Giorgio
Chiellini, verða í
stórum hlutverkum
í úrslitaleiknum.
AFP
5