Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.07.2021, Side 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 11.07.2021, Side 4
FRÉTTIR VIKUNNAR 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11.7. 2021 Þ au óvæntu tíðindi spurðust út að sósíalistaforinginn Gunn- ar Smári Egilsson hefði látið undan þrýstingi félaga sinna og fall- ist á að taka sæti á framboðslista flokksins í haust ef eftir yrði leitað. Síðustu skoðanakannanir benda til þess að flokkurinn nái þremur mönnum á þing. Fornminjar í Stöðvarfirði benda til þess að Íslendingar hafi snemma verið á undan sinni samtíð, því þar hafa menn numið land töluvert fyr- ir landnám eða í kringum 800. Bjarni F. Einarsson fornleifafræð- ingur telur þó réttara að tala um landnýtingu, vísbendingar séu um að þar hafi menn aðeins haft sum- arsetu. Upplýst var að Reykjavíkurborg hefði keypt skemmu við Kleppsveg, sem áður hýsti kynlífshjálpar- tækjaverslunina Adam & Evu, og ætli að kosta milljarði króna til þess að breyta henni í leikskóla. Ódýrara væri að jafna hana við jörðu og byggja nýtt. Mikill samdráttur er í þorskveiðum á Atlantshafi á sama tíma og sam- keppnishæfni Kínverja hefur dalað, sem gæti orðið til þess að hækka verð á þeim gula. Bann við einnota plastvöru tók gildi um helgina, en þar á meðal eru plasthnífapör, drykkjarrör og fleira, en eins verður óheimilt að afhenda einnota plastílát með matvöru nema tekið sé fyrir það aukagjald. . . . Eldfjallafræðingar klóra sér í hausnum yfir því að ekki er gott samræmi milli sýnilegrar virkni gígsins í Geldingadölum og hraun- flæðisins. Möguleg ástæða kann að vera breytingar efst í gosrásinni. Erlendir fjölmiðlar fjölluðu lofsam- lega um styttingu vinnuvikunnar á Íslandi, en þær fréttir byggðust á skýrslu áhugasamtaka um tilrauna- verkefni ríkisins og Reykjavíkur- borgar 2015-2019. Þar var hins veg- ar minna rætt um erfiðleika við innleiðinguna og aukinn kostnað. Læknar segja smithættu af völdum kórónuveirunnar hafa minnkað með bólusetningu, en hún sé þó enn til staðar. Þyngri ferðamannastraumur til landsins geri ný smit einnig lík- legri. Bandaríska sendiráðið í Ósló hefur verið í lamasessi í heimsfaraldrinum, sem hefur komið í veg fyrir að norsk- ir námsmenn komist vestur um haf. Sendiráðið á Íslandi hefur hins veg- ar ekki átt í slíkum vandræðum, svo norskum námsmönnum í nauðum hefur verið bent á að ferðast hingað til að fá rétta stimpla í vegabréfið. Miklar framfarir eru fyrirhugaðar í endurvinnslu hjá Sorpu, sem felst í því að krefjast glærra plastpoka ut- an um ruslið, en láta þá sem koma með svarta poka borga 500 kr. auka- gjald fyrir þann hégóma. Framlög úr ríkissjóði til vinnumála og atvinnuleysis reyndust 5,3 millj- örðum króna lægri árið 2020 en ráð var fyrir gert. Hins vegar fóru ör- orkubætur nokkuð fram úr áætlun. Þjóðhátíðarnefnd ÍBV ákvað að falla frá því að fá Ingólf Þórarinsson veð- urguð til þess að stýra brekkusöng á Þjóðhátíð í sumar eftir að fjölmargar ásakanir um ósæmilegt athæfi á hendur honum voru birtar á félags- miðlum. Skrásetjara varð það á hér í liðinni viku, að greina frá því að enn hefði ekki bólað á lúsmýi í landinu. Prent- svertan var ekki þornuð þegar lúsmýið gerði hressilega vart við sig og ber hann þess merki. . . . Það styttist í kosningar eins og best sást á því að samgönguráðherra og borgarstjóri kynntu enn ein áformin um lagningu Sundabrautar. Þau eiga þó ekki að ganga fram fyrr en báðir verða komnir úr embætti. Og ekki nema félagshagfræðileg grein- ing liggi fyrir um brúarsmíðina, hvað sem það nú er. Sigmar Guðmundsson, frambjóð- andi Viðreisnar, telur að heilbrigð- ismálin verði stærsta kosningamálið í haust, en staðfesti að flokkur sinn hefði Evrópumálin enn á oddinum, þar á meðal bindingu íslensku krón- unnar. Hann vildi þó ekki segja á hvaða gengi festa skyldi krónuna við evru, en sagði að það yrði klárt fyrir kosningar. Isavia telur að aftur séu komnar for- sendur fyrir stækkun flugstöðvar- innar í Keflavík, þar sem nú komi þangað fleiri en tíu þúsund farþegar á dag. Þegar eru nú 20 flugfélög, sem stunda áætlunarflug um völlinn. Sinubrunar í Heiðmörk í vor hafa ekki haft jafnslæm áhrif og margir óttuðust, en þar er þegar farið að gróa yfir á stórum svæðum. Íslenskur fáni, sem áritaður var af herra Sveini Björnssyni forseta og seldur á góðgerðaruppboði í Dan- mörku eftir lok síðari heimsstyrj- aldar, var keyptur af Vinafélagi Þjóðminjasafnsins og verður afhent- ur safninu síðar í sumar. . . . Í skýrslu Efnahags- og framfara- stofnunarinnar (OECD) um íslenskt efnahagslíf kemur fram að þrátt fyr- ir kórónukreppuna hafi efnahags- úrræði stjórnvalda reynst vel og að nú væri óhætt að reikna með öfl- ugum efnahagsviðsnúningi og bull- andi hagvexti. Það á ekki við í flest- um öðrum löndum OECD. Kaupfélag Skagfirðinga kynnti 200 milljóna króna framlag sitt til ým- issa samfélagslegra verkefna í sveit- arfélaginu Skagafirði og Akrahreppi á næstu tveimur árum. Kaupfélagið vakti einnig athygli fyrir örlæti til efnalítilla í kórónukreppuni. Óvissa ríkir um tilraunastöðina á Keldum eftir að ríkið eftirlét Reykjavíkurborg Keldnalandið sem framlag til Borgarlínunnar. Birna Einarsdóttir, bankastjóri Ís- landsbanka, andæfði þeim, sem gagnrýnt hafa sölu á hlutum í bank- anum, og sagði frumútboð og skrán- ingu hafa heppnast afar vel. Verð- lagningin hafi byggt á alþjóðlega viðurkenndum aðferðum. Ruslpoki fannst við Kambana, sem í voru meðal annars beinaleifar. Við athugun reyndust það ekki hafa ver- ið mannabein. Líf er að færast í Miðbæ Reykjavík- ur á ný, en salan í verslunum er þó enn um helmingi minni en var árið 2019. Kaupmenn eru þó ánægðir og bjartsýnir á framhaldið, en veit- ingamenn mala. . . . Háls-, nef- og eyrnalæknir var svipt- ur lækningaleyfi vegna ónauðsyn- legra aðgerða, sem hann hafði fram- kvæmt og sent reikninga vegna til Sjúkratrygginga. Forstjórar Ölgerðarinnar og Coca Cola á Íslandi láta vel af sínum hag, enda er sala á gos- og bjórmarkaði meiri en spáð hafði verið. Stefnir í met hjá Ölgerðinni og kókið selst víst hvergi betur í Evrópu. Rætt er um sameiningu Skaga- byggðar og Skagastrandar nyrðra, en samtals búa þar 570 sálir. Í liðn- um mánuði höfnuðu íbúar þeirra auk Blönduóss og Húnavatnshrepps sameiningu. Tveimur flugumferðarstjórum var sagt upp störfum hjá dótturfélagi Isavia, vegna gruns um að hafa nauðgað nemanda í flugumferðar- stjórn eftir samkvæmi fyrir ári. Samtök ferðaþjónustunar (SAF) efast um heimildir landeigenda til gjaldtöku án þess að neitt komi á móti og eru þar einkum að ræða um lendingargjöld vegna þyrlna við Geldingadali. Guðlaugur Þór Þórðarson utanrík- isráðherra segir að bæði Íslendingar og Bretar vilji dýpka enn á sam- skiptum og viðskiptum landanna, að ekki verði látið staðar numið við þann fríverslunarsamning, sem gerður var þeirra í millum fyrir skömmu. Tveir útlendingar, sem hér voru í leyfisleysi, voru ginntir á skrifstofu Útlendingastofnunar, þar sem þeir voru handteknir og sendir úr landi. Ásakanir komu fram um að þeir hefðu verið beittir harðræði við hand- tökuna, en ríkislögreglustjóri segir myndefni af atvikinu ekki styðja að valdbeitingin hafi verið óhófleg. Sala lausasölulyfja hófst í Staðar- skála í upphafi mánaðar og líður Hrútfirðingum almennt mun betur. Lögregla veitti jeppa eftirför í Reykjavík, en honum var m.a. ekið á ofsahraða á röngum vegarhelmingi á Geirsgötu. Bílstjórinn nam staðar á Sæbraut eftir að eitt dekkjana sprakk, en hann reyndist vera góð- kunningi lögreglunnar undir annar- legum áhrifum. Kosningar nálgast Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra undirrituðu enn eina yfirlýsinguna um Sundabraut, sem ef til vill kemur fyrir heimsslitin, en þó ekki nema að uppfylltum ýmsum óljósum skilyrðum. Morgunblaðið/Eggert 4.7.-9.7. Andrés Magnússon andres@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.