Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.08.2021, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.8. 2021
LÍFSSTÍLL
Við setjumst út í bakgarð á heimili Ísa-
bellu og foreldra hennar, enda er
hitastigið tuttugu stig og ekki hægt
að vera inni. Hin átján ára Ísabella Tara
Antonsdóttir er heima í sumarfríi, en hún
stundar dansnám við háskóla í Hollandi. Ísa-
bella heillaðist af dansi strax í æsku og hefur
verið dansandi síðan.
Elti drauma sína
„Ég hef verið dansandi frá því að ég var
pínulítil. Mamma skráði mig í dans hjá
Brynju Scheving þegar ég var þriggja, fjög-
urra ára gömul því ég var alltaf dansandi,“
segir Ísabella og segist hafa verið þar í dans-
námi þar til hún var níu ára, en þá skipti hún
yfir í Listdansskóla Íslands.
„Þar hef ég verið síðan, þar til í fyrra þeg-
ar ég fór út í nám,“ segir Ísabella, sem dreif
sig út í heim aðeins sautján ára gömul til að
elta sína drauma.
„Ég var í Versló í eitt og hálft ár og út-
skrifaðist í raun með nokkurs konar stúd-
entspróf, eða verslunarpróf, sem var var nóg
til að komast inn í háskóla í Hollandi,“ segir
Ísabella sem lagði hart að sér og tók stíft
sumarnám áður en hún fór út.
„Mér fannst í raun ekki svo erfitt að yf-
irgefa vini mína í Versló því ég eyddi nánast
öllum stundum í Listdansskólanum og var
því lítið í félagslífinu í Versló.“
Nútímadansinn heillar
Ísabella segist hafa lært mikið í Listdans-
skóla Íslands og auk þess hafi dansarinn og
danshöfundurinn Chantelle Carey kennt
henni mikið.
„Hún hefur hjálpað mér mikið en ég
kynntist henni í gegnum Billy Elliot, en ég
dansaði í því verki. Hún kenndi mér líka að
koma fram á sviði,“ segir Ísabella sem dans-
aði einnig í We Will Rock You og veit fátt
skemmtilegra en að vera á sviði.
„Mér finnst svo gaman að koma fram; að
standa á sviði. Það er ein aðalástæða þess að
ég er í dansi og er auðvitað stór hluti af því
að vera dansari,“ segir hún og segist í byrjun
hafa lært ballet.
„En fyrir þremur árum fór ég að færa mig
hægt og rólega yfir í nútímadans og er mjög
hrifin af honum. Þó ég hafi grunn í ballett,
er það nútímadansinn sem heillar.“
Krefjandi en gaman
Fyrir valinu varð Codarts, alþjóðlegur
listaháskóli í Rotterdam í Hollandi, og lærir
Ísabella þar dans til B.A.-prófs, en námið er
fjögur ár.
„Skólinn sérhæfir sig í dansi, tónlist og
sirkuslistum. Dansdeildin er mjög þekkt víða.
Ég fann að ég var tilbúin að fara út og sendi
þeim myndband af mér að dansa og komst
inn. Ég var þá nýorðin sautján ára. For-
eldrar mínir studdu mig í þessu því þau vita
að ég hef stefnt á það að verða atvinnudans-
ari síðan ég var kríli, en auðvitað var erfitt
að sjá á eftir mér því ég var í raun enn
barn.“
Hvernig er búið að vera í skólanum?
„Þetta er búið að vera ofboðslega krefjandi
en rosalega gaman. Ég er yngst þarna, sem
er svolítið erfitt stundum. Svo er líka krefj-
andi að þurfa að sjá um sig sjálf og vera ein
og sjálfstæð. Það er alveg erfitt í nýrri borg,
og ekki bætti Covid úr skák,“ segir Ísabella.
„Þarna eru krakkar alls staðar að úr heim-
inum og ég hef eignast fjölda vina. Það hefur
verið svo gaman að læra um þeirra menning-
arheima,“ segir hún, en enska er töluð í skól-
anum.
„Á fyrsta ári bjó ég ein, en mamma,
amma, afi og frænka mín hafa komið og ver-
ið mér til stuðnings. Foreldrar mínir vildu
ekki alveg sleppa af mér hendinni svona
ungri. En núna verð ég aðeins frjálsari, því
ég er að fara að búa með vinkonu minni sem
er frá Frakklandi. Það verður mjög gaman,
en við munum búa saman í gamaldags íbúð
rétt við miðbæinn.“
Það sem ég elska að gera
Hvernig sérðu fyrir þér ferilinn í framtíð-
inni?
„Ég er með mjög opinn huga. Mér finnst
skemmtilegust þessi fína lína sem er á milli
balletts og nútímadans. Nútímadans er mjög
tæknilegur og ég vil helst fara út í það.
Klassískur ballett er ekki alveg minn tebolli,“
segir Ísabella og segir samkeppni ríkja í
bransanum en þó meiri samstaða en sam-
keppni.
„Þetta er svo lítið samfélag og það er góð-
ur stuðningur frá öðrum, þó það sé líka smá
samkeppni.“
Ísabella æfir dans um fimm til sex tíma á
dag í skólanum, en auk þess stundar hún
bóklegt nám sem tengist dansinum. Hún seg-
ir álagið nokkuð mikið en þó ekki meira en
hún ráði við.
„Auðvitað koma tímabil þar sem maður er
alveg útkeyrður og búinn á því. En ef maður
vill komast langt í þessum bransa þarf mað-
ur að fórna mjög miklu. Það er ákvörðun
sem maður tekur sjálfur, hvort það sé þess
virði. Mér finnst það þess virði því þetta er
það sem ég elska að gera,“ segir Ísabella og
segir fórnirnar helst vera þær að félagslífið
situr á hakanum.
„Vinir mínir eru eiginlega allir dansarar
þannig að þar er líka mitt félagslíf.“
Ísabella segist stefna hátt og að hún sjái
fyrir sér framtíð í dansinum.
„Svo er það ekki heimsendir ef ég vil ein-
hvern tímann gera eitthvað annað. En í dag
myndi ég ekki vilja gera neitt annað. Ég hef
metnað fyrir þessu.“
„Mér finnst skemmtilegust þessi fína lína sem er á milli balletts og nútímadans,“ segir dansarinn Ísabella Tara Antonsdóttir.
Morgunblaðið/Ásdís
„Ég var alltaf dansandi“
Ísabella Tara Antonsdóttir fór
aðrar leiðir í lífinu en flest
ungmenni, en hún fór aðeins
sautján ára gömul í listahá-
skóla í Hollandi þar sem hún
lærir dans.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Ísabella stefnir hátt í dansheiminum.
Ísabella æfir sig utandyra í
Rotterdam.
Hér má sjá Ísabellu litla í ballettkjól.