Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.08.2021, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.8. 2021
ÁR
1921-2021
Í Y
KKA
R ÞJÓNUSTU
10%
afsláttur
fyrir 67 ára
og eldri
08.00 Uppskriftir fyrir svanga
birni
08.02 Laugardagsklúbburinn
08.05 Rita og krókódíll
08.10 Regnbogasögur
08.12 Ég er fiskur
08.15 Veira vertu blessuð
08.16 Örstutt ævintýri
08.17 Ást er ást
08.19 Hérinn og skjaldbakan
08.20 Lærum og leikum með
hljóðin
08.24 Litli Malabar
08.28 Blíða og Blær
08.50 Monsurnar
09.00 Víkingurinn Viggó
09.10 Adda klóka
09.35 It’s Pony
09.55 K3
10.10 Mörgæsirnar frá Mada-
gaskar
10.30 Angelo ræður
10.40 Lukku láki
11.05 Ævintýri Tinna
11.25 Angry Birds Toons
11.30 Top 20 Funniest
12.15 Nágrannar
14.05 Friends
14.30 First Dates
15.20 Impractical Jokers
15.40 Bump
16.15 Cyrus vs. Cyrus Design
and Conquer
16.50 60 Minutes
17.35 Supernanny
18.26 Veður
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.50 Rax – augnablik
19.10 Páll Óskar í höllinni
20.40 Echo in the Canyon
22.05 War of the Worlds
22.55 Timber Creek Lodge
ÚTVARP OG SJÓNVARP
Sjónvarp Símans
RÚV
Rás 1 92,4 . 93,5
Omega
N4
Stöð 2
Hringbraut
20.00 Sjá Suðurland – Þáttur
4
20.30 Tónlist á N4
18.30 Ísrael í dag
19.30 Jesús Kristur er svarið
20.00 Blönduð dagskrá
22.30 Gegnumbrot
23.30 Tónlist
24.00 Joyce Meyer
20.00 Fréttablaðið í 20 ár (e)
20.30 Mannamál – Katrín Júl-
íusdóttir (e)
21.00 Suðurnesja-magasín
Víkurfrétta (e)
21.30 Fréttablaðið í 20 ár (e)
10.40 The Block
11.45 Bachelor in Paradise
13.10 The Bachelorette
15.10 The Biggest Loser
15.55 The Biggest Loser
16.50 The King of Queens
17.10 Everybody Loves Ray-
mond
17.35 Ný sýn
18.05 Með Loga
19.05 The Block
20.10 Pabbi skoðar heiminn
20.45 Skandall
21.35 The Take
23.05 Love Island
23.55 Kidnap
01.30 Love Life
02.00 Seal Team
02.45 Love Island
03.35 Síminn + Spotify
06.55 Bæn og orð dagsins.
07.00 Fréttir.
07.03 Hringsól.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 Söngvamál.
09.00 Fréttir.
09.05 Stutt langt stutt.
10.00 Fréttir.
10.15 Bók vikunnar.
11.00 Guðsþjónusta í Reyk-
holtskirkju.
12.00 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
12.50 Augnablik um sumar.
13.00 Sögur af landi.
13.55 Súrt, sætt og allra-
handa.
15.00 Er það eitthvað ofan á
brauð?.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Kynsegin.
17.00 Spæling: Smásaga.
17.25 Orð af orði.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Ástarsögur.
18.50 Veðurfregnir.
18.53 Dánarfregnir.
19.00 Óskastundin.
19.40 Þar sem ennþá Öxará
rennur.
20.30 Djassþáttur.
21.30 Úr gullkistunni.
22.00 Fréttir.
22.05 Veðurfregnir.
22.10 Á reki með KK.
23.10 Frjálsar hendur.
07.15 KrakkaRÚV
07.16 Refurinn Pablo
07.21 Hið mikla Bé
07.43 Poppý kisukló
07.54 Stuðboltarnir
08.05 Klingjur
08.16 Hvolpasveitin
08.39 Hrúturinn Hreinn
08.46 Úmísúmí
09.09 Robbi og Skrímsli
09.31 Eldhugar – Agnodice –
kvensjúkdómalæknir
09.35 Sammi brunavörður
09.45 Landakort
09.55 ÓL 2020: Frjálsíþróttir
12.55 ÓL 2020: Badminton
14.00 ÓL 2020: Hjólreiðar
15.30 ÓL 2020: Golf
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 KrakkaRÚV
18.01 Stundin okkar
18.25 Vísindahorn Ævars
18.30 Vísindin allt í kring
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.30 Veður
19.40 Ólympíukvöld
20.20 Sumarlandinn
20.55 Victor Hugo, óvinur rík-
isins
21.45 Ég man þig
23.30 Leitin að Livingstone
23.50 ÓL 2020: Frjálsíþróttir
03.00 Ólympíukvöld
03.35 Ólympíuafrek – Peking
2008 – fyrri hluti
04.05 Ólympíuafrek – Peking
2008 – seinni hluti
04.30 ÓL 2020: Körfubolti
06.40 Dagskrárlok
9 til 13 100% helgi með Stefáni Valmundar Stefán
spilar góða tónlist og fer yfir valið efni úr morgun- og
síðdegisþáttum K100.
13 til 16 100% helgi með Þór Bæring Þór Bæring
og besta tónlistin á sunnudegi.
16 til 18 Tónlistinn Topp40 Dj Dóra Júlía fer yfir 40
vinsælustu lög landsins á eina opinbera vinsældalista
Íslands sem er unninn í samstarfi við félag hljóm-
plötuframleiðenda.
Draumar geta svo
sannarlega ræst
og var það tilfellið
hjá unglingsstúlku
í Bandaríkjunum,
en alla sína ævi
hafði hana dreymt
um að eiga hvolp.
Móðir stúlk-
unnar kom henni
heldur betur á
óvart nú á dög-
unum þegar hún kom með lítinn og ofurkrúttlegan
hvolp heim án þess að dóttirin hefði hugmynd um
hvað í vændum var. Hvolpinum hafði verið bjargað úr
holræsi þegar hann var fjögurra vikna gamall og vant-
aði góða fjölskyldu.
Lestu meira um málið og sjáðu myndbandið á
K100.is.
Bjargað úr holræsi
og fékk nýja fjölskyldu
Los Angeles. AFP. | Í nýrri ævin-
týramynd frá Disney, sem nefnist
Jungle Cruise (Frumskógarferðin)
og byggir á æsireið úr skemmtigörð-
um Disney frá sjötta áratug liðinnar
aldar, er óvænt atriði þar sem ein
aðalpersónan segist vera samkyn-
hneigð.
Í atriðinu ræðir persónan McGre-
gor Houghton, sem Jack Whitehall
leikur, kynhneigð sína við Frank,
skipstjóra báts á fljótinu Amazon,
sem Dwayne „the Rock“ Johnson
leikur. Samtal þetta brýtur vissu-
lega ekki blað í sögu kvikmyndanna,
en markar hins vegar breytingu hjá
Disney, sem þekkt er fyrir íhalds-
semi.
McGregor notar ekki orðið sam-
kynhneigður, en útskýrir að hann
hafi slitið trúlofun við þrjár konur
vegna þess að hann hafi hamingju-
samlega hneigst í aðrar áttir. Þegar
hann segir aðrar áttir skálar skip-
stjórinn.
„Mér fannst þetta atriði vera ná-
kvæmlega það sem það var, sem var
tveir menn að tala um það sem þeir
elska og hverja þeir elska,“ sagði
Johnson, sem er hæst launaða kvik-
myndastjarna heims um þessar
mundir, á blaðamannafundi í vik-
unni.
Gagnrýni úr öllum áttum
Líklegt var talið að þessi orðaskipti
myndu valda usla þegar myndin yrði
sett í dreifingu á föstudag (sýningar
á henni eru þegar hafnar hér á
landi). Í hvert skipti sem Disney hef-
ur fetað sig í þá átt að fjalla um mál-
efni hinsegin fólks á undanförnum
árum hefur kvikmyndaverið verið
harðlega gagnrýnt heima og erlend-
is og ekki bara af hinum íhaldssömu.
Kristilegu samtökin Ein milljón
mæðra (One Million Moms eða
1MM) skipulögðu sniðgöngu á
myndinni Leikfangasaga 4 (Toy
Story 4) 2019 vegna þess að þar var
stutt atriði þar sem tvær mæður
koma með barn sitt í skólann. Sök-
uðu samtökin Disney um að gera
börn berskjölduð fyrir umdeildum
málefnum.
Örstuttur lesbískur koss var í
myndinni Stjörnustríð: Ris geim-
gengilsins. Hann var klipptur úr
þeim útgáfum af myndinni, sem
sýndar voru í Singapúr og Dúbaí,
vegna þess að þar eru hjónabönd
samkynhneigðra ólögleg.
Kossinn í stjörnustríðsmyndinni
var hins vegar einnig gagnrýndur af
samtökum, sem berjast fyrir rétt-
indum hinsegin fólks, fyrir að vera
bara til málamynda. Atriði í mynd-
inni Avengers: Endataflið þar sem
samkynhneigður maður tekur þátt í
stuðningshópi var gagnrýnt á sömu
forsendum.
Í Frumskógarferðinni er gengið
lengra. Persóna Whitehalls útskýrir
að hann hafi slegist í för með systur
sinni, vísindamanni sem Emily
Blunt leikur, til Brasilíu vegna þess
að hún hafi staðið með sér þegar
aðrir í London útskúfuðu hann
vegna þess hverja hann „elskaði“.
Mikið upp úr lagt
„Þetta var atriði sem við lögðum
mikið upp úr að ná réttu,“ sagði
Whitehall, sem varð þekktur fyrir
gamanmál en hefur snúið sér að leik.
Whitehall er gagnkynhneigður.
Hann sagði við tímaritið Variety
að hann vonaði að þetta atriði skipti
máli og mikil hugsun og umræða
hefði farið í það.
„Ég vona að áhorfendur hafi gam-
an af þessu atriði og ég fann, þegar
við gerðum það, vissulega fyrir stolti
yfir verki okkar,“ sagði hann og von-
aði að það væri jákvætt fyrir hinseg-
in börn í hópi áhorfenda.
Á félagsmiðlum er hins vegar þeg-
ar komin fram gagnrýni á að orðið
samkynhneigður skuli ekki vera not-
að í myndinni. „Disney gerir allt til
að forðast að nota orðið samkyn-
hneigður í meginstraumsefni sínu,
ekki satt,“ skrifaði Declan Cashin,
sem starfar hjá Twitter.
Jeremy Blacklow, sem starfar hjá
GLAAD, hagsmunasamtökum hins-
egin fólks, sagði í yfirlýsingu til AFP
að þetta samtal „fullt af hlýju“ væri
„öflug viðbót í dýrri mynd sem
myndi ná til áhorfenda um allan
heim“.
Hins vegar færi það sem gefið
væri í skyn í atriðinu hæglega fram
hjá þeim, sem ekki væru að fylgjast
grannt með, eða ungu fólki, sem
skildi ekki vísunina.
Myndin fjallar um systkini, sem
ráða dularfullan og heillandi báts-
eiganda til að sigla upp Amazon í leit
að undratré með lækningamátt.
Frumskógarferðir hafa verið í
skemmtigörðum Disney, sú fyrsta í
Disneylandi í Kaliforníu. Frumskóg-
arferðunum í Kaliforníu og Flórída
var breytt vegna þess að ekki þótti
við hæfi að draga upp myndir af inn-
fæddum, sem veifuðu spjótum og
seldu þurrkuð höfuð.
Jack Whitehall og Dwayne Johnson leika í Disney-ævintýramyndinni Frum-
skógarferðin. Atriði þar sem þeir tala um samkynhneigð hefur vakið umræður.
AFP
Óvænt atriði í
Disney-mynd
AFP
FJALLA UM SAMKYNHNEIGÐ EN NEFNA HANA EKKI