Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.08.2021, Qupperneq 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.08.2021, Qupperneq 29
öðrum myndum hefur aukist tals- vert síðustu 30 árin. Árið 1993 voru tvær af 20 tekjuhæstu myndunum byggðar á öðrum myndum en árið 2018 voru þær 16 og árið 2019 voru allar 10 tekjuhæstu myndirnar byggðar á öðrum kvikmyndum. Stóra ástæðan fyrir þessari þróun virðist vera áhættufælni kvikmynda- stúdíóa. Gífurlegar fjárhæðir fara í framleiðslu stærstu kvikmynda heims og ef kvikmyndin er byggð á efni sem vitað er að dregur marga í bíó tekur framleiðandinn um leið mun minni áhættu. Þetta hefur gef- ist vel eins og árangur kvikmynd- anna sem byggðar eru á söguheimi Marvel-myndasagnanna sýnir. „Þú einblínir á efni þar sem fólk hefur tilfinningu fyrir söguhetjunum og hefur tilfinningu fyrir framvind- unni, fyrir söguþræðinum,“ sagði Walt Hickey, sérfræðingur í dæg- urmálum hjá FiveThirtyEight við ABC-fréttastofuna árið 2017. Þetta er auðvitað ástæðan fyrir því að svo vinsælt hefur orðið að gera fram- haldsmyndir en einnig að endurgera gamlar myndir eða sjónvarpsþætti sem hafa notið vinsælda hjá einni kynslóð og vonast er til að geri hið sama hjá annarri. Virðist þarna búið að finna ákveð- inn eiginleika mannlegs eðlis: við viljum sjá eitthvað sem við þekkjum. Við viljum ekki sjá sömu myndina aftur og aftur heldur sömu persón- urnar að takast á við ný vandamál eða sömu söguna í nýjum búningi. Má segja að þetta sé að einhverju leyti tilkomið af okkar eigin áhættu- fælni; við veljum frekar það sem við könnumst við og vitum að verður allavega ágætis afþreying frekar en að taka áhættuna og sjá það sem við þekkjum ekki. Ekkert ferskt á sumrin Að byggja kvikmyndir á höfundar- réttarvörðu efni er auðvitað ekkert nýtt í kvikmyndaiðnaðinum. Árið 1905 gaf Thomas Edison út mynd sem byggði á röð ljósmynda á póst- kortum. Fjöldinn allur af myndum um leðurblökumanninn leit dagsins ljós á níunda og tíunda áratugnum og fengu fjórir að leika ofurhetjuna á aðeins átta ára tímabili. Þá verður No Time To Die, sem kemur í kvik- myndahús í haust, 25. myndin um njósnara hennar hátignar, James Bond. Í gegnum kvikmyndasöguna hafa framleiðendur einnig treyst á vinsældir ákveðinna leikara og leik- kvenna sem fólk vill sjá í nýju hlut- verki. Nú er hins vegar svo komið að á sumrin, þegar stærstu myndir árs- ins koma út, fara ekki myndir í kvik- myndahús nema þær treysti annað hvort á leikara, leikkonu eða leik- stjóra sem nýtur mikilla vinsælda eða þær byggist á öðru efni, sagði Hickey við ABC. Það hefur ekki allt- af verið svo. „Það að Steven Spiel- berg, þegar hann var enn nokkurn veginn óþekktur, gæti gert Jaws og átt miðasöluna það sumarið, á heima í fortíðinni,“ sagði Hickey. Ómerkilegri myndir? En er þessi þróun slæm? Kvik- myndaunnendur vilja margir meina svo, enda verður þessi endurvinnsla á efni oft til þess að kvikmyndirnar verða fyrirsjáanlegar og óspenn- andi. Of mikið er einblínt á að skila hagnaði frekar en að búa til góðar kvikmyndir og fer stór hluti fjár- magns í Hollywood í myndir sem vit- að er að verða vinsælar. Erfiðara er því fyrir aðra að komast að með sín- ar hugmyndir og þurfa þeir oft og tíðum að gera það án hjálpar kvik- myndavera. Aðrir benda þó á að myndir sem njóta vinsælda hjá stórum hópi aðdáenda skapi tengsl á milli þeirra og samfélög myndist jafnvel. Þá má einnig spyrja sig hvort kvikmynd sé ómerkilegri fyrir þær sakir að hún innihaldi karaktera eða byggist á sögu úr öðrum myndum eða sjón- varpsefni. Að lokum má nefna að þótt minni líkur séu á því að myndum byggðum á öðru efni vegni illa í miðasölu er ekkert víst í þeim efnum. Frægasta dæmi síðustu ára er líklega myndin Cats, byggð á samnefndum söngleik, sem fékk hræðilega dóma meðal gagnrýnenda fyrir tveimur árum og náði ekki upp í framleiðslukostnað með miðasölu. Þá hafði myndin Bay- watch, byggð á samnefndum þátt- um, stóran aðdáendahóp og fræga leikara en náði aldrei neinu flugi í miðasölu þegar hún kom út árið 2017. Ljósmynd/Marvel Studios Scarlett Johansson leikur Svörtu ekkjuna í samnefndri kvikmynd sem kom út í ár. Myndin er sú 24. í röðinni um Marvel-ofurhetjurnar. 1.8. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 PENINGAR Scarlett Johansson hefur kært Disney fyrir brot á samningi sínum fyrir leik sinn við myndina Black Widow sem kom út fyrr í sumar. Vegna kórónuf- araldursins hafa nokkur kvikmyndastúdíó brugðið á það ráð að gefa kvikmyndir sínar út á streymisveitum á sama tíma og þær eru frumsýndar í kvikmyndahúsum. Þetta var gert þegar Black Widow kom út þar sem hún fór á Disney+ er hún var frumsýnd í bíóhúsum. Samningur Joh- ansson var bundinn við miðasölu og því telur hún sig hafa tapað um 50 milljónum dollara vegna útgáfu myndarinnar á Disney+. Segir farir sínar ekki sléttar Johansson fer í hart við Disney. AFP BÓKSALA 21.-27. JÚLÍ Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Fimmtudagsmorð- klúbburinn Richard Osman 2 Bréfið Kathryn Hughes 3 Litla bókabúðin við vatnið Jenny Colgan 4 Palli Playstation Gunnar Helgason 5 Leyndarmál Sophie Kinsella 6 Slétt og brugðið Árelía Eydís Guðmundsdóttir 7 Iceland The Land of Fire and Ice Chris McNab 8 Sagnalandið Halldór Guðmundsson 9 Risasyrpa – rokkstjörnur Disney 10 Iceland Visual Explorer Guide Chris McNab 1 Palli Playstation Gunnar Helgason 2 Risasyrpa – rokkstjörnur Disney 3 Handbók fyrir Ofurhetjur 6 Elias/AgnesVahlund 4 Depill heimsækir afa og ömmu Eric Hill 5 Lyftimyndir Sveitin Setberg 6 Harry Potter og viskusteinninn J.K. Rowling 7 Múmínsnáðinn og Jónsmessuráðgátan Tove Jansson 8 Gírafína og Pellinn og ég Roald Dahl 9 Litli prinsinn Antoine de Saint-Exupéry 10 Íslandsbók barnanna Margrét Tryggvadóttir Allar bækur Barnabækur Fyrsta vonda minningin: Rifin af mér bók. Ég var rúmlega þriggja ára. Síðan sílesandi, nú mest sagn- fræði og ljóð. Uppáhaldið eru kerlingar! Emily Dickinson, Sylvia Plath, Ingunn Jónsdóttir, Ólína Jónasdóttir, Ingi- björg Haraldsdóttir, Anna Akhmatova og margar, margar fleiri. Áratugum saman, las ég aldrei glæpasögur en Jakob Benedikts- son sagði að ég yrði að lesa döm- ur. Svo ég las P.D. James og síðar féll ég kylliflöt fyrir Donnu Leon sem skrifar um ham- ingjusömu lögguna Brunetti í Fen- eyjum. Hún er sölu- hæst í Þýskalandi skv. upplýs- ingum í Der Spiegel. Ekki má gleyma sænsku krimm- unum eftir Sjöwall og Wahlöö um Martin Beck. Mér finnst enn eftir tíðan endurlestur að Maðurinn á svöl- unum, þar sem engu orði er ofaukið og persónusköpun einstaklega skýr, sé fyrirmynd allra glæpasagna. Því miður halda nú- tímahöfundar ekki sjónarmið þeirra í heiðri. Nýju glæpabæk- urnar eru lengri og menn teygja lopann endalaust að mínu mati! Skrif sagnfræðinga hafa heldur betur breyst, nú skrifa menn eins og Simon Schama feimnislaust um ævi og athafnir stjórnmála- manna í A History of Britain í þremur bindum. Álíka upplýsandi og fróðleg bók er Vermeer’s Hat eftir Timothy Brook sem fjallar um kynni Evr- ópumanna af heiminum á 17. öld. Þar er m.a. frásögn af landstjór- anum í Manila sem bað Spánar- konung um 70 hermenn til að hann legði Kína undir Spán. Hroki fáfræðinnar á sér engin takmörk. Neil Price gaf mér nýja sýn á vík- ingaöldina í frá- bærri bók: Children of Ash and Elm. Bókin fékk mig til að lesa Orkney- ingasögu aftur. Stórkostleg bók Bergsveins Birg- issonar, Svarti víkingurinn, um Geirmund heljarskinn staðfesti hugmyndir mínar um upphaf land- náms þannig að sagnfræði nú- tímans er ekki lengur upptalning á karlmannsnöfnum! Fyrst þegar ég las Enten eller eftir Sören Kirkegaard, vissi ég ekki að þetta var heimspeki. Stíll- inn hreif mig og þó ég skildi ekki fjarstæðu eigin tilveru. Ég las síðar öll hans verk mér til heilla. Annar heimspekingur, Ludwig Wittgenstein sem kom til Íslands 1913, segir í Tractatus: „wovon man nicht sprechen kann, dar- über muß man schweigen.“ Orðin takmarka hugsunina. Nú finnst mér mest gaman af bókum sem ég les aftur og aftur. Ein slíkra er Tregahandbókin eftir Magnús Sigurðsson. Það var eitt sinn bráðskemmti- legur garðyrkjustjóri að vestan í Reykjavík. Hann sagði: moldin borgar, mennirnir ekki! Mér finnst líkt með bókina, góð bók sem upplýsir og fræðir, bregst aldrei. ERNA ER AÐ LESA Teygja lopann endalaust Erna Arn- grímsdóttir er sagnfræðingur.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.