Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.08.2021, Blaðsíða 6
Morgunblaðið/Ómar
N
okkrum sinnum á ævinni
hef ég reynt að þreyta próf
í frjálshyggjuhagfræði. Í
hvert sinn hef ég fallið á prófinu.
Frjálshyggjuhagfræðin kennir að
vel smurðu markaðsþjóðfélagi megi
líkja við vél. Ef fiktað er í vélinni af
kunnáttuleysi segi það fljótlega til
sín í höktandi hagkerfi og þar af
leiðandi þjóðfélagi sem hættir að há-
marka velsæld. Látum alveg liggja
á milli hluta velsæld hverra, enda
kemur okkur það ekki við. Það hafi
einmitt verið þegar menn fóru að
trufla gangverkið í vélarrúmi sam-
félagsins með það að markmiði að
búa til eitthvað sem héti réttlæti að
fór að halla undan fæti.
Nóbelsverðlaunahafinn í frjáls-
hyggjuhagfræði, Austurríkismað-
urinn Friedrich A. Hayek, vakti á
þessu athygli í frægri bók sem út
kom um miðja síðustu öld og hét á
frummálinu Der Weg zur Knecht-
schaft, Leiðin til ánauðar, í þýðingu
Hannesar Hólmsteins Gissurar-
sonar.
Út á þetta gengur sem sagt frjáls-
hyggjuhagfræðin,
að skilja gangverk
markaðsþjóð-
félagsins og læra
að koma auga á
hvenær afskipti af
því eru þess eðlis
að þau séu beinlín-
is truflandi, að
ekki sé nú minnst
á það ef afskiptin
verða slík að veg-
ferðin leiði til glöt-
unar.
Þessa dagana verðum við vitni að
sýnikennslu í frjálshyggjuhagfræði.
Slíkar kennslustundir fylgja alltaf
gerð kjarasamninga eða endurnýjun
samninga. Þá ríður á að enginn falli
á prófi.
Tregustu nemarnir eru þegar
farnir að tjá sig um kaup og kjör,
verðlag á vöru og þjónustu og þá
einnig um vexti. Þeim er þá snar-
lega bent á að um vexti sé nátt-
úrlega alls ekki hægt að semja,
þetta eigi allt námsfólk að hafa lært
í leikskólanum fyrir löngu síðan.
Vextir séu verð fyrir leigu á pening-
um og eigi verðlagið að ráðast af
framboði og eftirspurn. Reyni menn
að setja þumalputtann í vaxta-
ákvarðanir þá sé voðinn vís og af-
leiðingarnar verstar fyrir þá sem
verst standa að vígi í samfélaginu .
Tossarnir í bekknum hafa haldið
því fram að ef húsnæðislán beri háa
vexti þá taki það í pyngjuna hjá fólki
sem sé að koma sér þaki yfir höfuð-
ið. Við þetta hefur kennarinn byrst
sig ögn og bent á að ef vextir séu
lágir eigi efnafólk ekki annarra
kosta völ en fara með peningana
sína á hlutabréfamarkað þar sem
betri ávöxtun sé að hafa. Það þýði
að hlutabréf hækki, hinir efnuðu
græði þá enn meira en áður og auk-
in fjárfesting þeirra í húsnæði fyrir
allan gróðann hækki svo aftur hús-
næðisverð. Kröfur verkalýðsfélaga
um lága vexti valdi með öðrum orð-
um aukinni misskiptingu í þjóð-
félaginu. Vilji verkalýðshreyfingin
virkilega að þetta gerist, og vill hún
hærra húsnæðisverð? Því verði
seint trúað.
Svo er því bætt við að sérstaklega
sé þetta varhugavert á kóvidtímum
þegar ekki hafi gefist ráðrúm til að
„leiðrétta“ eignarhald í þjóðfélaginu
og er þá sennilega átt við að enn séu
í rekstri fyrirtæki sem ættu með
réttu að vera farin á hausinn.
Skyldu það vera litlu fyrirtækin?
Varla Marriot-hótelin?
Þegar hér er komið sögu er ég
náttúrlega löngu fallinn á prófinu og
farinn að spyrja spurninga sem
valda því að ég mun að öllum lík-
indum aldrei útskrifast úr hagfræði-
skólanum. Til dæmis hef ég spurt
hvers vegna ekki
sé hægt að gera
sömu kröfu til
efnafólks og gerð
er til launafólks
um samfélagslega
ábyrgð; að það
sætti sig við
minni ávöxtun á
peningum sínum
og hætti að sækja
í hámarksgróða.
En hvað er þá
rétta svarið á prófinu í frjálshyggju-
skólanum? Rétta svarið er mér sagt
að sé eftirfarandi:
Ekki má hækka laun hinna
lægstu því það raskar ró hinna
hæstu og alls ekki lækka vexti þá
geti sá lægsti ekki lengur komist yf-
ir húsnæði. Best sé að láglaunafólk
láti lítið fyrir sér fara, þá fari líka
allt vel eða eins vel og hægt sé að
ætlast til.
En þótt ég sé fallisti, og kannski
þess vegna, get ég ekki stillt mig um
að spyrja lærimeistara markaðs-
hyggjunnar, hvort ekki megi líta á
það sem lögmál um láglaunafólk,
svipað og þeir vilja hafa um hina
efnameiri, að ef meira þurfi að taka
úr launaumslaginu til þess að borga
háa vexti þá hljóti að koma að því að
setja verði fleiri krónur í umslagið.
Með öðrum orðum, að við endur-
skoðun samninga verði að hækka
kaupið ef leyft er að hækka vextina.
Fallistinn
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@ogmundur.is
’
Þessa dagana verð-
um við vitni að
sýnikennslu í frjáls-
hyggjuhagfræði. Slíkar
kennslustundir fylgja
alltaf gerð kjarasamn-
inga eða endurnýjun
samninga. Þá ríður á að
enginn falli á prófi.
Ögmundur spyr í grein sinni hvers vegna ekki sé hægt að gera sömu kröfu til
efnafólks og gerð er til launafólks um samfélagslega ábyrgð.
VETTVANGUR
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.8. 2021
Vísindamenn við dýralæknadeild háskólans í Utrecht
rannsaka nú hræ af langreyði, sem fannst á perulaga
stefni skips í höfninni í Terneuzen í Hollandi á þriðju-
dag. Maðurinn á myndinni hefur komið sér rækilega
fyrir í innyflum dýrsins og mundar þar verkfæri sín til
sýnatöku. Vísindamenn telja að skipið hafi siglt á
hvalinn og hann hafi verið á lífi þegar það gerðist og
segja að blæðing undir húð hans þar sem skipið lenti
á honum sé til marks um það.
Hvalurinn hafði greinilega nýverið gleypt átu og
var hún ekki öll komin niður í maga. Telja þeir það
vísbendingu um að dýrið hafi ekki verið veikt. Bendir
allt til að hvalurinn hafi drepist við áreksturinn við
skipið og einhvern veginn fest á perunni, sem er
neðst á stefninu.
Langreyðurin var 15 metrar á lengd, en þær geta
orðið allt að 27 metrar og vegið 80 tonn. Mannfjöldi
safnaðist saman til að fylgjast með þegar hvalurinn
var dreginn á land og vildu einhverjir fá sýnishorn.
Vísindamennirnir tóku það ekki í mál, enda væri teg-
undin í útrýmingarhættu og bannað að vera með
hval eða hluta af hval í sínum fórum án sérstaks leyfis.
AFP
Sigldi með langreyði á stefninu
Speglaframlenging
Kerrulás
Hitablásarar
Reiðhjólafestingar
á bíl
Tjalds
Flugnanet fyrir
börn og fullorðna
Rafmagnspumpa
Farangursteygjur
og strekkibönd
ikföng
Allt í ferðalagið
frá 3.845
4.485
2.995
frá 4.999
1.995
995
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
2.995Rafmangskælibox
frá 9.999