Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.08.2021, Qupperneq 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.08.2021, Qupperneq 6
Morgunblaðið/Ómar N okkrum sinnum á ævinni hef ég reynt að þreyta próf í frjálshyggjuhagfræði. Í hvert sinn hef ég fallið á prófinu. Frjálshyggjuhagfræðin kennir að vel smurðu markaðsþjóðfélagi megi líkja við vél. Ef fiktað er í vélinni af kunnáttuleysi segi það fljótlega til sín í höktandi hagkerfi og þar af leiðandi þjóðfélagi sem hættir að há- marka velsæld. Látum alveg liggja á milli hluta velsæld hverra, enda kemur okkur það ekki við. Það hafi einmitt verið þegar menn fóru að trufla gangverkið í vélarrúmi sam- félagsins með það að markmiði að búa til eitthvað sem héti réttlæti að fór að halla undan fæti. Nóbelsverðlaunahafinn í frjáls- hyggjuhagfræði, Austurríkismað- urinn Friedrich A. Hayek, vakti á þessu athygli í frægri bók sem út kom um miðja síðustu öld og hét á frummálinu Der Weg zur Knecht- schaft, Leiðin til ánauðar, í þýðingu Hannesar Hólmsteins Gissurar- sonar. Út á þetta gengur sem sagt frjáls- hyggjuhagfræðin, að skilja gangverk markaðsþjóð- félagsins og læra að koma auga á hvenær afskipti af því eru þess eðlis að þau séu beinlín- is truflandi, að ekki sé nú minnst á það ef afskiptin verða slík að veg- ferðin leiði til glöt- unar. Þessa dagana verðum við vitni að sýnikennslu í frjálshyggjuhagfræði. Slíkar kennslustundir fylgja alltaf gerð kjarasamninga eða endurnýjun samninga. Þá ríður á að enginn falli á prófi. Tregustu nemarnir eru þegar farnir að tjá sig um kaup og kjör, verðlag á vöru og þjónustu og þá einnig um vexti. Þeim er þá snar- lega bent á að um vexti sé nátt- úrlega alls ekki hægt að semja, þetta eigi allt námsfólk að hafa lært í leikskólanum fyrir löngu síðan. Vextir séu verð fyrir leigu á pening- um og eigi verðlagið að ráðast af framboði og eftirspurn. Reyni menn að setja þumalputtann í vaxta- ákvarðanir þá sé voðinn vís og af- leiðingarnar verstar fyrir þá sem verst standa að vígi í samfélaginu . Tossarnir í bekknum hafa haldið því fram að ef húsnæðislán beri háa vexti þá taki það í pyngjuna hjá fólki sem sé að koma sér þaki yfir höfuð- ið. Við þetta hefur kennarinn byrst sig ögn og bent á að ef vextir séu lágir eigi efnafólk ekki annarra kosta völ en fara með peningana sína á hlutabréfamarkað þar sem betri ávöxtun sé að hafa. Það þýði að hlutabréf hækki, hinir efnuðu græði þá enn meira en áður og auk- in fjárfesting þeirra í húsnæði fyrir allan gróðann hækki svo aftur hús- næðisverð. Kröfur verkalýðsfélaga um lága vexti valdi með öðrum orð- um aukinni misskiptingu í þjóð- félaginu. Vilji verkalýðshreyfingin virkilega að þetta gerist, og vill hún hærra húsnæðisverð? Því verði seint trúað. Svo er því bætt við að sérstaklega sé þetta varhugavert á kóvidtímum þegar ekki hafi gefist ráðrúm til að „leiðrétta“ eignarhald í þjóðfélaginu og er þá sennilega átt við að enn séu í rekstri fyrirtæki sem ættu með réttu að vera farin á hausinn. Skyldu það vera litlu fyrirtækin? Varla Marriot-hótelin? Þegar hér er komið sögu er ég náttúrlega löngu fallinn á prófinu og farinn að spyrja spurninga sem valda því að ég mun að öllum lík- indum aldrei útskrifast úr hagfræði- skólanum. Til dæmis hef ég spurt hvers vegna ekki sé hægt að gera sömu kröfu til efnafólks og gerð er til launafólks um samfélagslega ábyrgð; að það sætti sig við minni ávöxtun á peningum sínum og hætti að sækja í hámarksgróða. En hvað er þá rétta svarið á prófinu í frjálshyggju- skólanum? Rétta svarið er mér sagt að sé eftirfarandi: Ekki má hækka laun hinna lægstu því það raskar ró hinna hæstu og alls ekki lækka vexti þá geti sá lægsti ekki lengur komist yf- ir húsnæði. Best sé að láglaunafólk láti lítið fyrir sér fara, þá fari líka allt vel eða eins vel og hægt sé að ætlast til. En þótt ég sé fallisti, og kannski þess vegna, get ég ekki stillt mig um að spyrja lærimeistara markaðs- hyggjunnar, hvort ekki megi líta á það sem lögmál um láglaunafólk, svipað og þeir vilja hafa um hina efnameiri, að ef meira þurfi að taka úr launaumslaginu til þess að borga háa vexti þá hljóti að koma að því að setja verði fleiri krónur í umslagið. Með öðrum orðum, að við endur- skoðun samninga verði að hækka kaupið ef leyft er að hækka vextina. Fallistinn Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is ’ Þessa dagana verð- um við vitni að sýnikennslu í frjáls- hyggjuhagfræði. Slíkar kennslustundir fylgja alltaf gerð kjarasamn- inga eða endurnýjun samninga. Þá ríður á að enginn falli á prófi. Ögmundur spyr í grein sinni hvers vegna ekki sé hægt að gera sömu kröfu til efnafólks og gerð er til launafólks um samfélagslega ábyrgð. VETTVANGUR 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.8. 2021 Vísindamenn við dýralæknadeild háskólans í Utrecht rannsaka nú hræ af langreyði, sem fannst á perulaga stefni skips í höfninni í Terneuzen í Hollandi á þriðju- dag. Maðurinn á myndinni hefur komið sér rækilega fyrir í innyflum dýrsins og mundar þar verkfæri sín til sýnatöku. Vísindamenn telja að skipið hafi siglt á hvalinn og hann hafi verið á lífi þegar það gerðist og segja að blæðing undir húð hans þar sem skipið lenti á honum sé til marks um það. Hvalurinn hafði greinilega nýverið gleypt átu og var hún ekki öll komin niður í maga. Telja þeir það vísbendingu um að dýrið hafi ekki verið veikt. Bendir allt til að hvalurinn hafi drepist við áreksturinn við skipið og einhvern veginn fest á perunni, sem er neðst á stefninu. Langreyðurin var 15 metrar á lengd, en þær geta orðið allt að 27 metrar og vegið 80 tonn. Mannfjöldi safnaðist saman til að fylgjast með þegar hvalurinn var dreginn á land og vildu einhverjir fá sýnishorn. Vísindamennirnir tóku það ekki í mál, enda væri teg- undin í útrýmingarhættu og bannað að vera með hval eða hluta af hval í sínum fórum án sérstaks leyfis. AFP Sigldi með langreyði á stefninu Speglaframlenging Kerrulás Hitablásarar Reiðhjólafestingar á bíl Tjalds Flugnanet fyrir börn og fullorðna Rafmagnspumpa Farangursteygjur og strekkibönd ikföng Allt í ferðalagið frá 3.845 4.485 2.995 frá 4.999 1.995 995 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 2.995Rafmangskælibox frá 9.999

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.