Morgunblaðið - Sunnudagur - 01.08.2021, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 1.8. 2021
LESBÓK
Mikið úrval lita
bæði á áklæði
og grind.
Sérsmíðum
allt eftir
pöntunum.
Íslensk hönnun og
framleiðsla frá 1960E60
Sólóhúsgögn ehf. Gylfaf löt 16-18 112 Reykjavík 553-5200 solohusgogn. is
Stóll E-60 orginal kr. 38.600
Retro borð 90 cm kr. 142.000
(eins og á mynd)
PILLUR Leikararnir Hugh Jackman og Ryan Reynolds
halda áfram að senda hvor öðrum pillur á samfélags-
miðlum en nú síðast var það Jackman sem grínaðist í
Reynolds. Jackman og Reynolds hafa hæðst að hvor öðr-
um í nokkur ár en upphafið virðist mega rekja til þess
þegar Reynolds lék Wade Wilson í myndinni X-Men
Origins: Wolverine þar sem Jackman lék titilhlutverkið.
Árið 2016 mætti Reynolds með grímu af Jackman á
frumsýningu Deadpool þar sem hann lék aðalhlut-
verkið. Nú á dögunum setti Jackman inn mynd af sér
með leikstjóra myndarinnar Free Guy, Shawn Levy,
sem Reynolds leikur í. Sagðist Jackman vera staddur í
veislu hjá Levy sem hefði gleymt að bjóða Reynolds sem
sæti eftir heima með sárt ennið.
Reynolds ekki boðið
Jackman og
Reynolds eru
miklir mátar.
AFP
JAFNRÉTTI Óskarsverðlaunaleikkonan Geena Dav-
is segir ofurhetjumynd Marvel, Black Widow, þar
sem Scarlett Johansson fer með titilhlutverkið, vera
skref í rétta átt fyrir Hollywood er varðar jafnrétti
kynja. Davis, sem er hvað þekktust fyrir leik sinn í
myndinni Thelma and Louise, hefur síðustu árin vak-
ið athygli á kynjamisrétti innan kvikmyndaiðnaðar-
ins, þá sérstaklega hve fá hlutverk eru í boði fyrir
konur. Þó að hafa konu í aðalhlutverki í eins stórri
mynd og Black Widow sé skref í rétta átt segir Davis
enn margt hægt að bæta. „Það eru mjög fá hlutverk
fyrir konur á mínum aldri og eldri,“ sagði hún við
CBS á dögunum. Mun fleiri hlutverk séu í boði fyrir
eldri karla.
Skref í rétta átt
Geena Davis er óhrædd við að tjá sig.
AFP
Matt Damon snýr aftur í hlutverki
ónefnds leikara Ásgarðs.
Endurkoma
Damons
ENDURKOMA Matt Damon mun
snúa aftur í litlu hlutverki í næstu
mynd um þrumuguðinn Þór, Thor:
Love and Thunder, sem kemur út á
næsta ári. Damon lék leikara frá
Ásgarði sem lék Loka í leikriti sem
sett var upp til heiðurs honum í
þriðju myndinni um þrumuguðinn,
Thor: Ragnarok. Taika Waititi leik-
stýrði myndinni og kom með fersk-
an blæ inn í kvikmyndaröð Marvel
með sínum einstaka húmor. Waititi
mun einnig leikstýra þeirri næstu
og fóru tökur fram í Ástralíu fyrir
stuttu. Sást þar til Damons og þeg-
ar hann var spurður út í málið stað-
festi hann endurkomu sína sem
hinn ónefndi leikari.
Þ
egar litið er yfir framboð kvik-
mynda í kvikmyndahúsum
hér á landi um helgina er eitt
sem stendur upp úr. Í dag, sunnu-
dag, eru 11 myndir í boði í bíóhúsum
Sambíóanna. Af þeim eru allar nema
ein, teiknimyndin Flummurnar,
byggðar á áður útgefnu efni. Myndin
sem sýnd er oftast er myndin Jungle
Cruise sem byggð er á tæki í
skemmtigarðinum Disneylandi. Sjö
af myndunum 11 eru byggðar á öðr-
um kvikmyndum, þ.e. eru fram-
haldsmyndir eða endurgerðir af
gömlum myndum.
Þetta framboð virðist endurspegla
þróun sem hefur átt sér stað í Holly-
wood síðustu ár og áratugi; fram-
leiðslufyrirtækin virðast stóla á
kvikmyndir byggðum á efni sem
áhorfendur kannast við og reyna
þannig að nýta sér vinsældir þess.
Gamlir karakterar í nýjum að-
stæðum eða nýir karakterar í þekkt-
um aðstæðum. Ekkert kemur á
óvart, allt fylgir sömu formúlunni.
Við lifum á tímum hagnaðarsjónar-
miða en kvikmyndir sem listform
eiga undir högg að sækja.
Hræðast áhættu
Ef litið er á 20 tekjuhæstu kvik-
myndir hvers árs á heimsvísu sést að
fjöldi þeirra mynda sem byggjast á
Hvarf
frumleikans
Fjölgun framhaldsmynda og annarra kvikmynda
sem byggjast á öðrum myndum hefur líklega far-
ið framhjá fáum kvikmyndaunnendum. Hvað
veldur og þarf að snúa þróuninni við?
Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is
Stórmyndir eins og Jaws, þar sem óþekktur leikstjóri með frumlega hugmynd
að kvikmynd er við stjórnvölinn, heyra líklega sögunni til.
Ljósmynd/Universal Studios
Kvikmyndaheimur Marvel (MCU) er líklega hvað þekktasta dæmið
um röð kvikmynda sem byggja á hver annarri. Árið 2008 kom
myndin Iron Man með Robert Downey Jr. í hlutverki járnkarlsins út
og markaði upphaf gullaldar ofurhetjumynda, allavega þeirra sem
byggja á myndasögum Marvel. Eru myndirnar orðnar 24 á aðeins
13 árum og eru að minnsta kosti 14 aðrar á mismunandi stigum
framleiðslu. Það má varla blikka augunum og þá er komin ný mynd
um ævintýri Þórs úr norrænni goðafræði eða þriðji þríleikurinn um
kóngulóarmanninn farinn af stað.
Tekist hefur ótrúlega vel til við gerð
þessara mynda ef litið er til miðasölu.
Hhver mynd hefur að meðaltali halað inn
tæpan milljarð bandaríkjadala á heims-
vísu, en framleiðslukostnaðurinn, sem
hefur þó verið gríðarlegur, er langtum
lægri. Þó má ekki bara skrifa árangurinn á
ást kvikmyndaunnenda á ofurhetju- og
framhaldsmyndum því mun verr hefur
tekist til hjá myndasögurisanum DC.
Tæpur milljarður á mynd
Herlegheitin
hófust með
Járnkarlinum
árið 2008.