Morgunblaðið - 02.07.2021, Page 4
4 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 2021
Parque Santiago Apartments
Ameríska ströndin
TENERIFE
09. - 20. júlí
Flug og vinsæl fjölskyldu
íbúðagisting á besta stað
verð frá 105.900kr.
á mann miðað við 2 fullorðna og 2 börn
www.sumarferdir.is | info@sumarferdir.is | 514 1400
11 DAGA
FERÐ
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
„Nú er þétt raðað við bryggjurnar,“ segir
Hafsteinn Garðarsson, hafnarstjóri í Grund-
arfirði. Í gær voru þar í höfn Samherjatog-
ararnir Björg og Björgólfur EA og úr þeim
var landað 120 tonnum af afla. Þá kom inn
skemmtiferðaskipið Le Dumont D’Urville
sem er í reglulegum siglingum umhverfis
landið. Nú var það í þriðja sinn á sumrinu í
Grundarfirði og varð fyrst skemmtiferða-
skipa til að leggjast að nýjum 130 metra
löngum viðlegukanti, en framkvæmdum við
gerð hans er að ljúka. Einnig eru við bryggju
þrír bátar heimaútgerða í Grundarfirði sem
eru í sumarstoppi. „Þessi dagur, 1. júlí, verð-
ur einn sá stærsti hjá okkur í sumar. Hér er
mikið að gera,“ segir Hafsteinn. sbs@mbl.is
Ljósmynd/Sverrir Karlsson
Skemmtiferðaskip og togarar fylltu Grundarfjarðarhöfn
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Miklir vatnavextir voru víða á norð-
anverðu landinu í gær vegna leys-
inga. Kolmórauðar ár og bólgnir
lækir fossuðu til sjávar og mátti sjá
greinileg skil þar sem litað vatnið
mætti bláum sjónum.
Veðurstofan spáði í gær áfram-
haldandi auknum leysingum í hlý-
indum á norðan- og austanverðu
landinu. Mikið rennsli var í gær og í
fyrradag í ám sem renna í Eyja-
fjörð. Rennsli í Bægisá fór langt yfir
200 ára flóð en rennsli í Hörgá var á
við 25 ára flóð og flæddi hún upp á
tún. Fnjóská flæddi yfir bakka sína
og á tjaldstæðið í Vaglaskógi. Eins
var mjög mikið rennsli í Hvalá í
Ófeigsfirði á Ströndum og í Hjalta-
dalsá og Austari-Jökulsá í Skaga-
firði. Sömuleiðis var mjög mikið
rennsli í Svartá í Bárðardal.
„Vorið var kalt og það er mikill
snjór til fjalla. Svo komu þessi miklu
hlýindi og þá fór allt af stað,“ sagði
Hulda Rós Helgadóttir, náttúruvár-
sérfræðingur á Veðurstofu Íslands.
Spáð var hlýindum áfram og því erf-
itt að segja til um hvenær dregur úr
leysingunum. Talsverður snjór er
enn til fjalla eins og t.d. á Trölla-
skaga. Hulda bendir á að vatnasvið
Fnjóskár sé talsvert stórt og sama
eigi við um Hörgá.
„Það má búast við því að það muni
hækka í ám á Austurlandi. Þar er
talsverður snjór til fjalla og mikil
hlýindi,“ sagði Hulda. Þar var tals-
vert mikið í lækjum og ár mórauðar.
Vegir grófust í sundur
Vatnavextirnir skemmdu vegi og
trufluðu umferð á nokkrum stöðum
á Norðausturlandi í gær og í fyrra-
dag. „Þetta er ígildi 50-100 ára
flóðs,“ sagði Heimir Gunnarsson,
þjónustustjóri Vegagerðarinnar á
Akureyri. Hann fór um í gær þar
sem vatnavextir höfðu verið til
vandræða. Þá var um 20°C hiti og
blástur á svæðinu. Hann sagði að
ástandið í gær hefði verið svipað og í
fyrradag.
Vegurinn í Fnjóskadal var í gær-
morgun farinn í sundur um 500
metrum sunnan við afleggjarann að
Illugastöðum. Illugastaðavegur fór í
sundur og lokaðist um tveimur kíló-
metrum sunnan við Illugastaði í
fyrradag. Reynt var að gera við þá
skemmd um kvöldmatarleytið í
fyrrakvöld en svo hratt hækkaði þá í
ánni að menn urðu frá að hverfa.
Heimir fór einnig um Eyjafjarð-
arsveit í gærmorgun. Þá hafði að-
eins sjatnað í ám og lækjum frá því í
fyrradag. Þegar leið á daginn virtist
sækja í sama horfið.
Á Eyjafjarðarbraut eystri við
Þverá rann frá ræsi og var umferðin
færð á gamla brú með þungatak-
mörkun upp á tíu tonn. Þar komust
því aðeins minni bílar. Aðrir þurftu
að aka lengri leið. Hinum megin í
dalnum hrundi úr Finnastaðavegi
við ræsi en það var ekki alvarlegt og
í góðu lagi að fara þar um. Þá var
ökuhraði lækkaður tímabundið í 30
km/klst. í Ljósavatnsskarði þegar
fór að flæða inn á veginn. Hraðatak-
mörkuninni var aflétt um leið og
vatnið sjatnaði og vegurinn þornaði.
Lögreglan á Norðurlandi eystra
beindi því til íbúa að vera ekki á
ferðinni á þjóðvegum að óþörfu og
að sýna aðgát við ár og vötn. Íbúar á
Akureyri voru beðnir um að vera
ekki á ferðinni á göngustígum og í
lægðum í kringum Glerá.
Áfram spáð leysingum
fyrir norðan og austan
- Vatnselgur gróf í sundur vegi í Fnjóskadal og Eyjafirði
Ljósmynd/Vegagerðin
Fnjóskadalur Vegurinn fór í sundur nærri afleggjara að Illugastöðum í gær
og fór líka í sundur og lokaðist um 2 km sunnan við Illugastaði í fyrradag.
Ljósmynd/Almannavarnir
Skemmdir Vatnsflaumurinn gróf undan sporði gömlu brúarinnar í Fnjóska-
dal. Mikill vöxtur var í ám og lækjum á svæðinu og urðu víða skemmdir.
Hópslys varð á Akureyri í gær þar
sem 63 börn voru inni í hoppukast-
ala þegar hann fauk upp í loft
nokkra metra frá jörðu. Var hann
staðsettur við Skautahöllina á Ak-
ureyri. Sjö voru fluttir á Sjúkra-
húsið á Akureyri til nánari skoðunar
og var einn þeirra fluttur í kjölfarið
með sjúkraflugi til Reykjavíkur.
Hinir sex voru sagðir minna slas-
aðir.
Lögreglan á Norðurlandi eystra
rannsakar nú tildrög slyssins, en
svo virðist sem óvæntur sviptivind-
ur hafi komist undir eitt horn
hoppukastalans og lyft því frá jörðu
með þeim afleiðingum að festing-
arnar gáfu sig.
Gunnar Rúnar Ólafsson, vara-
slökkviliðsstjóri á Akureyri, sagði í
samtali við mbl.is í gær að allt til-
tækt lið hefði verið kallað út og lék
grunur á að margir krakkar væru
fastir í kastalanum. Segir Gunnar
Rúnar að mikið þrekvirki hafi verið
unnið á vettvangi. Veita þurfti fjölda
fólks áfallahjálp, sem varð vitni að
slysinu, en margt fólk er nú statt á
Akureyri vegna N1-mótsins í knatt-
spyrnu drengja.
Gunnar Gunnarsson, forstjóri
Perlunnar, sem sá um hoppukast-
alann, sagði í samtali við mbl.is í
gær að atvik sem þessi ættu ekki að
geta gerst. Stendur ekki til að opna
hoppukastalann aftur.
Barn flutt suður
með sjúkraflugi
- 63 börn voru í hoppukastala sem fauk