Morgunblaðið - 02.07.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 02.07.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 2021 Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Áfram verða eldsneytisdælur við Álfabakka í Mjódd í Reykjavík, enda þótt þjónustustöð fyrirtækisins þar víki samkvæmt samkomulagi við borgina sem gengið var frá í síðustu viku. Bensínstöðin við Álfheima er svo á útleið samhliða uppbyggingu á borgarlínu. Fækkun bensín- stöðva í borginni hefur lengi verið í deiglunni og á næstu árum munu minnst fimmtán slíkar fara úr rekstri. Svæðin sem stöðvarnar taka í dag verða nýtt undir aðra starfsemi, svo sem ýmsa hverfistengda þjón- ustu eða íbúðir. Fyrir sjálfstæði í orkumálum „Núna verður losað um stöðvar sem eru inni í íbúðahverfum og nærri gönguleiðum og skólum. Umhverfis- sjónarmið ráða hér og svo er þetta líka þýðingarmikið þegar kemur að sjálfstæði Íslendinga í orkumálum,“ segir Dagur B. Eggertsson, borgar- stóri í Reykjavík. „Í stað þess að flyja inn eldsneyti verða rafbílarnir sem sífellt fjölgar knúnir innlendri orku. Þetta er þróun sem ekki verður stöðvuð og allir vissu að fækkun væri fram undan þótt fáir hefðu búist við að við gætum strax tekið svona stór skref. “ Svigrúm er veitt Margvíslegt svigrúm er veitt í samningum Reykjavíkurborgar við olíufélögin, sbr. framangreind atriði sem að Olís snúa. Lóð félagsins við Álfabakka liggur við hlið Stekkja- bakka 2-4 sem er í eigu Haga. Þessar lóðir verða þróaðar samhliða og verð- ur heimild til að setja niður tvær dæl- ur en fleiri möguleikar á verslun eru einnig til staðar, segir Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olís. Fyrir- tækið hefur einnig áfram ráð yfir reitnum í Álfheimum, en ákvörðun um hvaða starfsemi verður þar er seinni tíma mál. Þá víkur sjálfsaf- greiðslustöð ÓB á horni Snorra- brautar og Egilsgötu fyrir annarri starfsemi. Í staðinn fær Olís heimild til þess að setja upp fjölorkustöð á Esjumelum á Kjalarnesi auk þess að setja upp eina sjálfsafgreiðsludælu í Skeifunni og er þá horft til svæða við Hagkaup eða Bónus. „Vilji borgarinnar til fækkunar bensínstöðva er skýr, en jarðefna- eldsneyti verður þó áfram næstu ára- tugina heimsbyggðinni mikilvægur orkugjafi. Ég hef jafnframt fulla trú á því að verkfræðiþekking sé slík að finna megi lausnir sem dregið geta enn meira úr skaðlegum útblæstri og gróðurhúsaáhrifum,“ segir Jón Ólaf- ur. „En hvað varðar stöðvarnar við Álfabakka og Álfheima sem verður lokað á næstu árum má benda á að á þeim báðum hefur verið veitt mikil- væg þjónusta fyrir tvö fjölmenn íbúðahverfi. Því má velta fyrir sér hvort íbúar verði jafnsettir um þjón- ustu, enda þótt rafbílum og hleðslu- stöðvum fjölgi stöðugt.“ Samið við N1 og Skeljung Samkomulag borgar og Festar, móðurfélags N1, gerir ráð fyrir að fjórar bensínstöðvar félagsins víki; það er við Ægisíðu, Stóragerði, Skógarsel og Elliðabraut. Fyrst fer Ægisíðustöðin, það er í byrjun ársins 2023. Þá liggja drög að sérstöku sam- komulagi vegna lóðarinnar Hring- brautar 12, bensínstöðvarinnar sem er skammt frá BSÍ. Ekki liggur enn fyrir hvort sú stöð víki en er þó senni- legt, segir Hinrik Bjarnason fram- kvæmdastjóri N1. Enn fremur er gert ráð fyrir að eldsneytisstöð verði sett upp fyrir utan verslun Krónunn- ar við Fiskislóð á Granda. Þá hefur verið samið við Skeljung um stöðvar félagsins við Birkimel, Skógarhlíð 16 og Suðurfell. Á síðast- nefnda staðnum verður þó áfram sjálfsafgreiðsla á ýmsum orkugjöf- um. Stöðvar víkja fyrir sjálfsafgreiðslu - Áfram eldneytissala í Álfabakka og Suðurfelli - Hugsanleg þjónustuskerðing í fjölmennum hverfum - N1 stefnir á stöð við Krónuna á Granda - Lausnir dragi meira úr útblæstri, segir forstjóri Olís Morgunblaðið/Sigurður Bogi Breiðholt Olís við Álfabakka í Mjódd er ein fimmtán bensínstöðva í Reykjavík sem fara úr rekstri á næstu árum. Jón Ólafur Halldórsson Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Nýtt mastur fyrir siglingaljós verður í næstu viku sett upp á varðskipinu Óðni, hvar það liggur við bryggju við Grandagarð sem hluti af sýningu Sjóminjasafnsins í Reykjavík. Gamla mastrið hefur nú verið tekið niður, ryðgað og ónýtt, og hið nýja er komið til landsins. „Við eigum eftir að ganga frá smáatriðum svo hægt sé að setja nýtt mastur í krana og hífa yfir á þilfar skipsins. Þar verður það rafsoðið við dekkið,“ segir Ingólfur Kristmundsson vél- stjóri, sem er einn liðsmanna Holl- vinasamtaka Óðins. Mastrið nýja er gjöf frá Mirai- skipasmíðastöðinni í Kesennuma í Japan. Þar er skipasmiðurinn Takeyoshi Kidoura forstjóri. Gjöf- in er þakklætisvottur til Íslendinga fyrir liðsinni í kjölfar mannskæðra jarðskjálfta og sjávarflóða sem skullu á ströndum í norðaustur- hluta Japans í mars árið 2011. Í eftirleik þess tóku japanskar kon- ur á Íslandi sig til og prjónuðu ull- arfatnað sem svo var sendur til bágstraddra landa þeirra í austri. Ein þessara kvenna er Yoko A. Þórðarson, sem með eiginmanni sínum, Agli Þórðarsyni loftskeyta- manni, fór austur til Japan um sumarið umrætt ár og tóku þau þátt í sjálfboðaliðastarfi á flóða- svæðum. Ferðirnar urðu fleiri og í einni þeirra kynntust Egill og Kidoura, sem hefur komið hingað til lands. Hann skoðaði þá meðal annars gamla Óðin og fregnaði síðar að nýtt siglingaljósamastur þyrfti. Leið svo ekki á löngu uns Kidoura gaf út að fyrirtækið sem hann stýrir myndi gefa nýtt mast- ur, sem þakklæti fyrir ullarflík- urnar góðu og annað sem Íslend- ingar lögðu til hjálparstarfsins á sínum tíma. Mastrið er nú komið og bíður á bryggju í Reykjavík. „Við mældum mastrið og stallinn sem það verður fest á og allt passaði upp á milli- metra. Þá erum við búnir að skrúfa ljós og setja lagnir í mastr- ið nýja svo þetta er allt að smella saman,“ segir Ingólfur Krist- mundsson. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Óðinn Ingólfur Kristmundsson vélstjóri hér við mastrið nýja sem sett verður upp einhvern tíma á næstu dögum. Nýtt mastur á Óðni vin- áttuvottur frá Japönum - Varðskip fær viðhald - Sending úr austri - Smellpassar Andrés Magnússon andres@mbl.is Vörður – fulltrúaráð sjálfstæðis- félaganna í Reykjavík fundar í Val- höll í dag kl. 16.00, en þar verða framboðslistar fyrir alþingiskosn- ingar í haust ákveðnir. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður kjör- nefndar, segir vel hafa gengið að gera tillögur þar um í samræmi við prófjörsúrslit. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins voru niðurstöður í próf- kjörinu látnar gilda um átta efstu sæti þó aðeins tveir frambjóðend- anna hafi náð bindandi kosningu í sæti, þau Áslaug Arna Sigurbjörns- dóttir og Kjartan Magnússon. Samkvæmt því verða Guðlaugur Þór Þórðarson, Diljá Mist Einars- dóttir, Brynjar Níelsson og Kjartan efst í Reykjavík norður en Áslaug Arna, Hildur Sverrisdóttir, Birgir Ármannsson og Friðjón R. Frið- jónsson efst í Reykjavík suður. Kjörnefnd gerir tillögu um næstu sæti fyrir neðan óháð prófkjörs- úrslitum, en öðrum frambjóðendum munu hafa verið boðin sæti mun neðar á lista. Meðal frambjóðenda í næstu sætum, sem sum verða að líkindum varaþingmannssæti, mun eldri borgurum vera gert hátt undir höfði, enda drjúgur hluti kjósenda. Þar mun einnig vera að finna yngra fólk og einn núverandi borgarfull- trúa. Listar í Reykjavík bornir upp í dag - Fulltrúaráð sjálfstæðismanna fundar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.