Morgunblaðið - 02.07.2021, Side 11

Morgunblaðið - 02.07.2021, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 2021 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Hugsjónir mínar eru raunverulegt lýðræði; mannréttindi; réttlæti og sanngirni,“ segir Álfheiður Eymars- dóttir sem skipar efsta sætið á lista Pírata í Suðurkjördæmi í alþingis- kosningum í haust. „Ég er ekki föst í kreddum. Opinber rekstur virkar best í mörgu en markaðurinn og frjáls samkeppni eru ágæt lausn á öðru. Ég sé ekkert að því að einhver græði peninga svo lengi sem leik- reglum er fylgt. En ofurgróði er engum hollur.“ Fólkið velur kosningamálin Um sl. helgi kom fólkið sem skip- ar forystusveit Pírata saman til ráðagerða um áherslur og kosninga- mál. Ný stjórnarskrá, auðlinda- stjórnun og loftslagsmál í stærra samhengi voru þar í deiglu sem og sjávarútvegsmál. „Augu fleiri eru að opnast fyrir ranglæti, göllum fisk- veiðistjórnunar, samþjöppun, hvernig farið er í kringum kvótaþak, ójafnræði og að strandveiðikerfið er meingallað,“ segir Álfheiður. „Mikilvægt er að færa íslenskt samfélag í nútímalegt velsældar- hagkerfi sem bætir kjör fólks í sátt við náttúru og loftslag. Slíkt þarf að koma í stað hagvaxtar- og hvalreka- hagkerfis þar sem skammtímagróði á kostnað auðlinda og loftslags ræð- ur ríkjum. Þá koma heilbrigðismálin sterk inn, geðheilbrigðisþjónusta og breytingar á skólakerfinu í takt við samfélagið. Á endanum er það svo alltaf fólksins í landinu að að velja stóru kosningamálin. Þannig virkar lýðræðið.“ Píratar áorkað miklu Komist Píratar til valda í haust verða stjórnarskrármál sett í for- gang, segir Álfheiður. Gerð nýrrar stjórnarskrár verður strax sett í málsmeðferð innan þings til að tryggja innleiðingu hennar. Bragar- bót á almannatryggingakerfinu með afnámi skerðinga á öryrkja og eldri borgara er sömuleiðis mál sem brýnt er að bæta úr sem fyrst. End- urreisn atvinnulífs í kjölfar Covid í gegnum breytingar á fiskveiði- stjórnun, styðja betur við einyrkja og styrkja umhverfisvænan land- búnað. Gefa verulega í samgöngu- bætur og hefja strax nauðsynlegar aðgerðir í loftslagsmálum. „Ekkert hálfkák og blaður. Við ætlum ekki að tala við almenning í gegnum blaðamannafundi í Hörpu þar sem er borinn á borð hálfsann- leikur, hentugleikatölfræði og lúðra- þytur. Við viljum tala við almenning á mannamáli. Raunar er ótrúlegt hverju við Píratar höfum áorkað. Við buðum fyrst fram til Alþingis árið 2013 og höfum – þrátt fyrir að vera í minnihluta – gjörbreytt um- ræðunni þegar kemur að skaðam- innkun, skilyrðislausri framfærslu eða borgaralaunum “ segir Álfheið- ur og heldur áfram. „Svo höfum við beitt okkur fyrir nýsköpun og rannsóknum, upplýs- inga- og tjáningarfrelsi, vernd upp- ljóstrara og rannsóknarblaða- mennsku. Aukið gagnsæi í ríkisrekstri, aðgangur að fyrir- tækjaskrá og ársreikningum fyrir- tækja eru sömuleiðis mikilvæg mál sem aldrei hefðu náð í gegn hefðu Píratar ekki látið til sín taka. Ég held til dæmis að gagnsæi, upplýs- inga- og tjáningarfrelsi sé besta leiðin til að vinna gegn spillingu.“ Mörg stefnumála Pírata segir Álf- heiður að skipti byggðirnar úti á land og fólkið þar miklu. Að völdin séu færð til nærsamfélagsins með íbúalýðræði sé í raun dæmigert landsbyggðarmál. „Samgöngu- bætur á landi, láði og legi eru mik- ilvægar fyrir okkur öll. Við höfum talað lengi fyrir bættri heilbrigð- isþjónustu í Vestmannaeyjum en íbúar þar þurfa að reiða sig á flug og ferju og þar er engin fæðingarþjón- usta. Dagleg verkefni og þjónusta í nærsamfélaginu eru ekki hallæris- leg mál heldur raunveruleiki allra. Við erum á móti kjördæmapoti en viljum tryggja fullnægjandi þjón- ustu og innviði.“ Heimurinn breytist í þorp Álfheiður Eymarsdóttir er fædd árið 1969, Hornfirðingur að upp- lagi en fluttist í Garðabæ 12 ára gömul. Hefur búið á Selfossi frá 2015, á tvö börn og fjölbreytilega samsetta stórfjölskyldu. Álfheiður er menntaður stjórnmálafræðingur en hefur starfað mest í tæknigeir- anum. „Ég varð hugfangin af internet- inu. Sá tækifæri til að fólk kynntist og það myndi tryggja alþjóða- samvinnu, auka skilning á mismun- andi menningarheimum og stuðla að friði og meiri samkennd. Að heimurinn breyttist í þorp þar sem allir hjálpuðust að. Ég hef ekki enn misst þá von. Störf mín við nútíma- væðingu þjónustu með tæknilausn- um hafa gefið mér dýrmæta reynslu sem mun vonandi nýtast þjóðinni þegar ég mæti á Alþingi í haust.“ Íbúalýðræði er dæmigert landsbyggðarmál - Álfheiður leiðir framboðs- lista Pírata í Suðurkjördæmi Frambjóðandi Færa íslenskt sam- félag í velsældarhagkerfi, segir Álf- heiður hér í viðtalinu. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Vestmannaeyjar Þjónusta í nærsamfélaginu er ekki hallærislegt mál held- ur raunveruleiki allra, segir Álfheiður um verkefnin í Suðurkjördæmi. Hluthafafundur Hluthafafundur Icelandair Group hf. verður haldinn rafrænt föstudaginn 23. júlí 2021. Streymt verður frá Hilton Reykjavík Nordica og hefst fundurinn kl. 16:00. 1. Tillaga um að auka hlutafé félagsins í tengslum við áskriftarsamning við Blue Issuer Designated Activity Company. 2. Tillaga um útgáfu áskriftarréttinda í tengslum við áskriftarsamning félagsins við Blue Issuer Designated Activity Company. 3. Kosning stjórnarmanns með fyrirvara um samþykki 1. – 2. liðar. 1. A proposal to increase the Company’s share capital in relation to a subscription agreement made with Blue Issuer Designated Activity Company. 2. A proposal to issue Warrants in relation to a subscription agreement made with Blue Issuer Designated Activity Company. 3. Election of a Board Member subject to approval of items 1 – 2. Hluthafar sem hyggjast sækja fundinn skulu skrá sig með 3 daga fyrirvara. Skráning á fundinn fer fram á www.icelandairgroup.is/agm Hluthafar eiga rétt á að leggja fram mál og/eða ályktunartillögur fyrir fundinn ef gerð hefur verið skrifleg eða rafræn krafa um það eigi síðar en 10 dögum fyrir fund, þ.e. í síðasta lagi kl. 16 þriðjudaginn 13. júlí 2021. Hafi hluthafar krafist þess að tiltekið mál eða ályktun verði tekið fyrir verða endanleg dagskrá og tillögur uppfærðar á vefsíðu félagsins eigi síðar en þremur dögum fyrir fund. Réttur hluthafa til að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar og kosning Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja fundinn geta veitt öðrum skriflegt umboð eða greitt atkvæði skriflega. Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér annan hvorn þessara kosta er bent á að kynna sér hvernig þeir skuli bera sig að á fundarvef félagsins www.icelandairgroup.is/agm . Þar er að finna leiðbeiningar um skráningu atkvæða, form skjala og hvernig þeim skuli skilað til félagsins. Aðgangur að fundinum á Hilton Reykjavik Nordica verður opinn en allar kosningar og umræður fara þó fram rafrænt. Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar. Aðrar upplýsingar Öll skjöl sem lögð verða fyrir fundinn, þ.m.t. ársreikningur félagsins, upplýsingar um heildarfjölda hluta og atkvæðafjölda í félaginu á boðunardegi sem og allar aðrar tillögur, eru hluthöfum tiltæk á heimasíðu félagsins www.icelandairgroup.is/agm Hluthöfum er bent á að skv. samþykktum félagsins skal tilkynna skriflega, minnst sjö dögum fyrir hluthafafund, um framboð til stjórnar. Skal framboðstilkynningum skilað til stjórnar í síðasta lagi föstudaginn 16. júlí 2021 kl. 16:00. Hægt er senda inn framboð á netfangið compliance@icelandairgroup.is Endanleg dagskrá verður birt á heimasíðu félagsins tveimur vikum fyrir fundinn, föstudaginn 9. júlí. Allar nánari upplýsingar um fundinn er að finna á vefsíðu félagsins, www.icelandairgroup.is Reykjavík, 02. júlí 2021. Stjórn Icelandair Group hf. Frekari upplýsingar: Ari Guðjónsson, yfirlögfræðingur Netfang: ari@icelandairgroup.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.