Morgunblaðið - 02.07.2021, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 02.07.2021, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 2021 Skoðið fleiri innréttingar á innlifun.is Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700 Opið 11-18 virka daga innlifun.is ALVÖRU ELDHÚS BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Samkvæmt ríkisreikningi var af- koma síðasta árs neikvæð um 144 milljarða en jákvæð um 42 milljarða árið 2019. Tekjur án fjármunatekna drógust saman úr 830 milljörðum í 802 milljarða en rekstrargjöld jukust úr 809 milljörðum í 990 milljarða. Bjarni Bene- diktsson fjár- málaráðherra segir að eins og vænta mátti hafi verið mikill halli á ríkissjóði vegna kórónuveirufar- aldursins en tekjustofnar reynst sterkari en áætlað var í verstu spám. Botninum hefur verið náð „Þannig er ótvírætt að við fundum botninn undir lok síðasta árs og kannski á fyrri hluta þessa árs. Því verður mjög fróðlegt að sjá hversu mikill kraftur verður í hagkerfinu þá mánuði sem lifa eftir af árinu. – Nú hafa sérfræðingar Íslands- banka og Analytica endurmetið hag- vaxtarspár í ár til hækkunar. Hafa líkur á mýkri lendingu aukist? „Ég tel reyndar að okkur hafi tek- ist að verja heimilin og fyrirtækin ótrúlega vel miðað við þær hamfarir sem gengu yfir. Og já, mér sýnist, ef horft er á afkomu ríkissjóðs, að útlit sé fyrir að afkoman verði örlítið skárri en við gerðum ráð fyrir. En þetta er samt gríðarlegur halli.“ – Hvaða afleiðingar mun sá halli hafa á næstu árum? „Við horfum ekki síst á atvinnu- stigið og hagvaxtartölurnar. Það skiptir miklu máli að landsfram- leiðslan nái hærra stigi strax á næsta ári. Við tökum það þá með okkur inn í framtíðina og höfum, ef vöxturinn verður meiri, þá ekki sömu þörf fyrir aðhald á næstu árum. Þetta er í raun það sem okkar áætlanir hafa gengið út á – að ná landsframleiðslunni upp örar en spálíkön gera ráð fyrir. Til þess hafa allar okkar efnahagsráð- stafanir verið smíðaðar.“ – Þannig að forgangurinn er að ná upp landsframleiðslunni og með því ná niður atvinnuleysinu? „Já, það er einmitt málið.“ Minni skuldir en útlit var fyrir – Hvernig sérðu fyrir þér þróun ríkisskulda á næstu árum? „Við horfum til þess að þær stefni í að vera töluvert minni en við gerðum ráð fyrir. Við lukum fjármálaáætlun til fimm ára undir lok síðasta árs og lögðum hana svo aftur fram um páskana. Horfur um þróun skulda höfðu í millitíðinni batnað og það er í mínum huga raunhæft að ná frum- jöfnuði og stöðva skuldasöfnunina á næstu fimm árum og þá verður skuldastaðan sjálfbær. Ég hef talað fyrir því að þá sé mikilvægt að byrja að lækka skulda- hlutföllin að nýju svo við höfum við- námsþrótt til að takast á við áföll í framtíðinni. Einn helsti lærdómur- inn af niðursveiflunni hlýtur að vera sá hversu dýrmætt það var að geta beitt ríkisfjármálum til að takast á við hana. Við munum ekki geta gert það nema við lækkum skuldahlutfall- ið að nýju eftir að hafa náð jöfnuði.“ – Hreinar skuldir ríkissjóðs voru um 20% af landsframleiðslu í febrúar í fyrra en síðan hefur hlutfallið hækkað í 30%. Er raunhæft að sjá svona hlutföll aftur og þá hvenær? „Já, það er raunhæft að setja markið á 20% [skuldahlutfall] að nýju og okkur er reyndar að takast það. Ég tel það vel geta náðst á innan við áratug. Ég held að það sé mik- ilvægara fyrir þetta hagkerfi en mörg önnur að halda skuldahlutföll- unum lágum, vegna þess hversu við- kvæm við getum verið fyrir sveiflum. Við erum með tiltölulega fábrotið efnahagslíf. Sá er munurinn á skuldabyrðinni fyrir nokkrum árum og nú að við njótum nú mun betri kjara á lána- mörkuðum – alla vega sem stendur en getum ekki treyst á það til allrar framtíðar – og það munar gríðarlega mikið um það. Þannig að skuldahlut- föllin sem við horfum fram á næstu ár verða miklu léttari en hefði verið fyrir nokkrum árum.“ Erfitt að spá um viðnámið – Við ræddum nýjar hagvaxtar- spár. Ertu farinn að leyfa þér meiri bjartsýni um viðsnúning í ár? „Já. Reynslan sýnir að það er sveigjanleiki í íslenska hagkerfinu. Og eitt og annað bendir til að það sé erfitt að spá fyrir um hversu mikill viðnámsþróttur er í íslenska hag- kerfinu. Það fellur ekki vel að lík- önum sem lögð eru til grundvallar í langtímaspám. Og það hefur sýnt sig, aftur og aftur, að þegar við erum komin á skrið er ofboðslegur slag- kraftur í íslensku atvinnulífi. Þetta sýndi sig til dæmis þegar við fórum fram úr öllum spám um vöxt ferða- þjónustunnar mörg ár í röð og er mögulega að sýna sig nú þegar á þessu ári, þegar við virðumst ætla að fara fram úr eldri spám. Og ég hef haft trú á því að ferðaþjónustan muni til dæmis rétta hraðar úr kútn- um en margir hafa spáð fyrir um til næstu tveggja þriggja ára,“ segir Bjarni Benediktsson. Efnahagsbatinn umfram spár 80% 60% 40% 20% 0% Skuldir ríkissjóðs frá ársbyrjun 2014, ma.kr. Þróun skulda ríkissjóðs frá febrúar 2020 1.600 1.200 800 400 0 Milljarðar króna Feb. 2020 Maí 2021 Óverðtryggðar skuldir 395 730 Verðtryggðar skuldir 268 270 Erlendar skuldir 192 343 Samtals 854 1.343 ...sem% af VLF* 27,5% 42,9% Hrein skuld ríkissjóðs 596 928 ...sem% af VLF 19,2% 29,6% 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 *Nafnverð með áföllnum verðbótum Heimild: Markaðsupplýsingar Lánamála ríkisins Hreinar skuldir Heildarskuldir Heildarskuldir sem% af VLF Hreinar skuldir sem% af VLF Feb. 2020 Maí 2021 - Heildarskuldir ríkissjóðs hafa aukist um tæplega 500 milljarða frá upphafi kórónuveirufaraldursins - Fjármálaráðherra segir minni skuldasöfnun en útlit var fyrir munu draga úr þörf fyrir aðhald Bjarni Benediktsson andlit vörumerkisins á Íslandi en State Energy samdi við hann um kynningu til rúmlega fjögurra ára. Drykkurinn er framleiddur í Danmörku og inniheldur meðal annars koffín, grænt te, B-vítamín og palatínósa en síðastnefnda sykr- an er sögð tryggja hægari hækkun blóðsykurs en venjulegur sykur. Að sögn Þórarins þróuðu fé- lagarnir Jon Andersen og Kim Have drykkinn með það í huga að hann veiti íþróttafólki orku lengur en hefðbundnir íþróttadrykkir. Markhópurinn sé ekki síst fólk sem stundi íþróttir og hreyfingu. Þórarinn segir Raritet hafa boð- ist að gerast umboðsaðili fyrir State Energy síðasta haust. Það hafi gengið eftir og var samið við Gylfa Þór í kjölfarið. Mikil sam- keppni sé í sölu orkudrykkja á Ís- landi en Raritet selji jafnframt drykki og aðrar vörur frá Functio- nal Nutrition. baldura@mbl.is Þórarinn Þórhallsson, einn eigenda heildsölunnar Raritet, segir orku- drykknum State Energy hafa verið vel tekið á Íslandi. Salan hófst í Hagkaupum og víðar í Reykjavík í febrúar og hafa síðan Nettó og Ice- land og fleiri verslanir hafið sölu á orkudrykknum. Markaðssetningin hefur vakið at- hygli en Gylfi Þór Sigurðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, er Sá tækifæri í orkudrykkjunum - Gylfi Þór samdi við danskt félag Morgunblaðið/Unnur Karen Í Hagkaup Þórarinn við kælinn. 2. júlí 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 123.22 Sterlingspund 170.72 Kanadadalur 99.51 Dönsk króna 19.701 Norsk króna 14.403 Sænsk króna 14.488 Svissn. franki 133.42 Japanskt jen 1.115 SDR 175.79 Evra 146.5 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 177.7318 Hrávöruverð Gull 1757.8 ($/únsa) Ál 2518.5 ($/tonn) LME Hráolía 74.67 ($/fatið) Brent Þórhildur Ólöf Helgadóttir, for- stjóri Íslands- pósts, segir ákvörðun Póst- og fjarskipta- stofnunar leggja skyldur á herðar félaginu sem það muni uppfylla. Spurð hvenær Pósturinn hygg- ist breyta verðskrá á pakkasend- ingum, allt að 10 kg, vísar hún til þess að umrædd ákvörðun kveði á um að Pósturinn þurfi að breyta henni eigi síðar en 1.11. 2021. „Í ákvörðuninni kemst PFS að þeirri niðurstöðu að gjaldskráin hafi verið í samræmi við lög frá 1. janúar 2020 sem svarar fullyrðingum um ólögmæti gjaldskrár Íslandspósts.“ Mun breyta gjaldskrá Þórhildur Ólöf Helgadóttir - Forstjóri Póstsins vísar til ákvörðunar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.