Morgunblaðið - 02.07.2021, Blaðsíða 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 2021
Verið velkomin
í sjónmælingu
Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200
Opið: Virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14
PON er umboðsaðili
PON Pétur O. Nikulásson ehf.
Melabraut 21, 220 Hafnarfjörður
Sími 580 0110 | pon.is
Við bjóðum alla Jungheinrich eigendur velkomna!
GÆÐI OG ÞJÓNUSTA
VINNINGASKRÁ
30 9137 21414 29530 39303 46932 59929 71233
49 9158 21444 29557 39384 48291 61061 71324
366 9519 21821 29609 39975 48566 61114 72241
373 10550 21987 30009 40113 49310 61119 73122
651 10618 22134 30038 40691 49499 61557 73274
743 10935 22302 30334 40755 49683 61762 73319
1278 11212 22506 32361 40764 49705 62044 73611
1280 11515 22530 32518 40875 49844 62154 73745
1536 11528 22602 32683 40924 50350 62393 74281
1771 11828 22613 33048 41097 50399 62635 74311
1898 12067 22824 33341 41131 53519 63331 74514
1964 12219 23048 33413 41279 53767 63382 74900
2344 12419 23397 33681 41477 53769 64423 75198
2624 13759 23441 33687 41533 54209 64590 75261
3287 14224 23513 33920 41553 54365 64661 75378
3488 14234 23553 34485 41949 54403 64828 75401
3898 15413 23870 34533 42013 55269 65827 75605
4074 15466 23999 34987 42539 55623 66164 75620
4129 15676 24090 35124 42560 55736 66319 75651
4154 15732 24211 35140 42709 55744 66839 75988
4205 15855 24320 35348 42740 55875 67060 76052
4256 15882 24525 35379 42824 56101 67181 76317
4713 15993 24685 35513 43109 56674 67690 76909
4814 16839 24995 36236 43657 56917 67935 77432
4831 17291 25701 36247 44032 56935 68262 77871
4922 17441 26101 36312 44158 57017 69208 78539
5143 17779 26315 36575 44328 57027 69514 78596
5215 17910 26517 36604 44665 57306 69550 78633
5738 18020 26625 37294 45091 57363 69604 79128
5932 18029 27220 37774 45125 57385 69678 79292
6205 18486 27421 37853 46317 58189 69767 79760
6568 18935 27844 38023 46355 58863 70668
7420 19785 28273 38144 46388 58926 70678
8033 19835 28375 38465 46390 58946 70779
8155 19989 28960 38523 46474 59156 70834
8455 20106 29169 38527 46653 59485 71152
8794 21345 29318 39283 46846 59638 71208
924 11900 25813 31092 38953 45179 53195 62221
999 14371 26029 32252 39668 45376 53742 63416
3706 16926 26037 32477 40097 45580 55163 64301
4042 17011 26241 32563 40165 48097 55244 65339
4597 18053 26319 32856 41515 48181 55879 69555
5242 18181 26945 32868 42118 48506 55988 70226
6615 19398 26993 32933 42581 49473 56399 76635
7967 19859 27953 34177 43136 49487 60108 78789
8243 19985 29210 34323 43724 50135 60256 79655
8812 20125 29266 35944 43842 50833 60789
9621 23040 29983 36491 44070 50842 61264
10339 24957 30187 37711 44569 51702 61722
11223 25419 30403 38462 44717 52057 61747
Næstu útdrættir fara fram 8., 15., 22. & 29. júlí 2021
Heimasíða: www.das.is
Vinningur
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur)
Vinningur
Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur)
31851 41693 45291 67214 72863
Vinningur
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
450 11840 23318 37729 49578 70506
2928 14239 24186 37741 50684 75014
3889 19250 27493 37863 53207 77157
5177 19588 29290 48232 66981 78829
Aðalv inningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
5 4 7 3 6
9. útdráttur 1. júlí 2021
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
HVAR ER NÆSTA
VERKSTÆÐI?
LEB – Lands-
samband eldri borg-
ara hefur unnið öt-
ullega í sínum hópi,
þ.e. með aðildarfélög-
unum 55, félögum
eldri borgara um allt
land, að setja fram
skýrar kröfur um
áherslur í sínum mál-
um sem þau vilja sjá
að verði að veruleika
á næsta kjörtímabili.
Þessi áhersluatriði voru sam-
þykkt á fjölmennum formanna-
fundi LEB fyrr á árinu og síðan
endanlega á landsfundi LEB sem
haldinn var 26. maí sl. Mikill ein-
hugur ríkti meðal landsfundarfull-
trúa sem komu frá öllum lands-
hornum um áhersluatriðin og voru
þau samþykkt einum rómi.
Forystufólk LEB hefur verið öt-
ult að kalla á fund sinn fulltrúa
þeirra stjórnmálaflokka sem nú
eiga sæti á Alþingi og gera þeim
skýra grein fyrir hvað eldra fólk
setur á oddinn í komandi alþing-
iskosningum. Þegar önnur stjórn-
málaöfl hafa formlega skráð sig til
leiks í komandi alþingiskosningum
munu þau einnig verða kölluð til
fundar við forystufólk LEB.
LEB hefur jafnframt talað skýrt
um, að því sé ekkert að vanbúnaði
að stofna sérstakt stjórnmálaafl ef
því er að skipta til að koma
áhersluatriðum sínum í höfn. Enda
þarf eldra fólk ekki frekar en aðrir
lögráða Íslendingar að
spyrja sitjandi stjórn-
málaflokka leyfis til
þess. Er það miður að
LEB hafi verið gerðar
upp skoðanir þess efn-
is, eins og birtust í
greinarkorni Haf-
steins Sigurbjörns-
sonar í Morgun-
blaðinu mánudaginn
28. júní sl. Það er með
öllu óskiljanlegt hvað-
an hann hefur þá óra
og vísar LEB þeim til
föðurhúsanna: Hafsteins Sigur-
björnssonar.
Hér eru þau fimm áhersluatriði
sem LEB setur á oddinn og hvetur
öll stjórnmálaöfl, eldri sem ný, að
fylkja sér bak við og koma til
framkvæmda á komandi kjör-
tímabili.
1. Eldra fólk fái að vinna eins og
það vill.
Almennt frítekjumark verði
100.000 kr. Eftirlaunafólk fái að
vinna eins og því sýnist án skerð-
inga í almannatryggingakerfinu og
njóti afraksturs vinnu sinnar eins
og aðrir. Lágmarkslífeyrir verði
aldrei lægri en umsamin lágmarks-
laun á almennum vinnumarkaði.
Ellilífeyrir og frítekjumörk hækki
árlega samkvæmt launavísitölu
Hagstofu Íslands.
2. Starfslok miðist við færni en
ekki aldur.
Það er réttlætismál að eldra fólk
fái að miða starfslok sín við áhuga,
færni og getu en þurfi ekki að
hætta virkri þátttöku í atvinnulíf-
inu eingöngu vegna aldurs. Aldurs-
tengdar viðmiðanir sem fara í bága
við jafnræðisreglu stjórnarskrár-
innar ætti að fella úr allri laga-
setningu, en leggja þess í stað
áherslu á þekkingu, reynslu, hæfni
og menntun fólks óháð aldri.
3. Heilsugæslan verði vagga
öldrunarþjónustunnar.
Til að eftirlaunafólk geti lifað
mannsæmandi lífi heima hjá sér
með reisn þurfa ríki og sveitar-
félög að stórauka samvinnu sína
með það að markmiði að heilsu-
gæslan verði vagga öldrunarþjón-
ustunnar. Öll fjárframlög taki mið
af þessu. Heilsugæslan nálgist
eldra fólk fyrr á lífsleiðinni með
samhæfðri teymisvinnu lækna,
hjúkrunarfræðinga og fé-
lagsþjónustu sveitarfélaga og
haldi því sambandi. Velferðar-
tækni ætti að vera mikilvægur
þáttur í öryggi og bættri aðstöðu
í heimahúsum eldra fólks. Þáttur
aðstandenda verði metinn til
launa með umönnunarálagi. Stofn-
un öldrunargeðdeildar fyrir fólk
með sértækar þarfir er forgangs-
mál.
4. Millistig milli heimilis og
hjúkrunarheimilis.
Ljóst er að búseta á eigin heim-
ili hentar ekki öllum, þótt þeir
þurfi ekki dvöl á hjúkrunarheim-
ili. Búsetuúrræði fyrir eldra fólk
eru hins vegar allt of fábreytt.
Það vantar millistig milli búsetu á
eigin heimili og hjúkrunarheimili.
Brýnt er að byggja upp þannig
búsetuform til hagsbóta fyrir
eldra fólk og þá ekki síður fyrir
velferðarkerfið, sem er á forræði
ríkis og sveitarfélaga.
Fjármunum Framkvæmdasjóðs
aldraðra verði einungis varið til
byggingar stofnana fyrir aldraða
og til að mæta kostnaði við nauð-
synlegar breytingar og end-
urbætur á húsnæði sem notað er
til þjónustu við þá eins og kveðið
er á um í lögum.
5. Ein lög í stað margra laga-
bálka.
Um málefni sem varða eldra
fólk sérstaklega gilda of margir
og of sundurleitir lagabálkar, þar
á meðal almannatryggingalögin.
Einfalda þarf lagaumhverfið og
gera það skilvirkara, meðal ann-
ars með því að skilja að lög um
eldra fólk og öryrkja. Tryggja
þarf aðkomu eldra fólks að þeirri
endurskoðun.
Eldra fólk vill hafa
áhrif á eigið líf
Eftir Helga
Pétursson
» „LEB er ekkert að
vanbúnaði að stofna
sérstakt stjórnmálaafl
til að koma áherslu-
atriðum sínum í höfn.
Þarf ekki að spyrja
neinn um leyfi til þess.“
Helgi
Pétursson
Höfundur er formaður
Landssambands eldri borgara.
formadur@leb.is
Atvinna