Morgunblaðið - 02.07.2021, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 2021
vottun reynsla
ára
ábyrgð
gæði
miðstöðvarofnar
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - sími 577 5177 - ofnasmidja.is
Eigum úrval af
miðstöðvar- og handklæðaofnum
hafðu það notalegt
„ÉG HEF VERIÐ Í 34 TOMMU
MITTISSTÆRÐ FRÁ ÞVÍ ÉG VAR
UNGLINGUR.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að koma heim.
ÉG LÆRÐI EINU SINNI
LÁTBRAGÐSLEIK
EN ÞAÐ GEKK
EKKI NÓGU VEL …
ÉG FESTIST ALLTAF INNI Í
ÓSÝNILEGA KASSANUM!
JÓN,
JÓN
JÓN.
HVORT MYNDIRÐU FREKAR VILJA … HUNDRAÐ
MIÐLUNGSGÓÐA BARDAGAMENN …
EÐA TÍU AFBRAGÐS-
BARDAGAMENN?
ÉG MYNDI FREKAR VILJA EINN
VELLAUÐUGANÆTTINGJA!
„HERRA DÓMARI, HANN GAT BARA EKKI
LÁTIÐ ÞETTA TÆKIFÆRI FRAMHJÁ SÉR
FARA. “
Kópavogi, f. 28.5. 1962. Foreldrar
hennar eru hjónin Jón Þórarinn
Bergsson járnsmíðameistari, f. 7.9.
1923, d. 8.12. 2007, og Sigrún Auður
Sigurðardóttir, f. 22.1. 1934, d. 16.4.
2021.
Dætur Guðmundar og Oddnýjar
eru 1) Berglind Rósa Guðmundsdóttir,
f. 14.7. 1984, með B.Ed. í leikskóla-
kennarafræðum. Hún stundar tamn-
ingar, þjálfun, ræktun og keppnir á
eigin hrossaræktarbúgarði í Svíþjóð.
Maki hennar er Daníel Ingi Smárason,
sem vinnur við tamningar, þjálfun,
ræktun og keppni hesta. Börn Berg-
lindar og Daníels eru Almar Orri, f.
2008, Drífa Lind, f. 2015, og Kolbeinn
Nói, f. 2020. 2) Guðný Birna Guð-
mundsdóttir, f. 13.6. 1991, verkefna-
stjóri með BS í sálfræði og MS í mark-
aðsfræðum og alþjóðaviðskiptum.
Maki hennar er Eyþór Bergvinsson
málarameistari og þau eiga soninn
Frosta Leó, f. 2016, og búa í Kópavogi.
3) Valdís Björk Guðmundsdóttir, f.
16.8. 1997, með BS í reiðmennsku og
reiðkennslu frá Háskólanum á Hólum.
Hún starfar við tamningar og þjálfun á
Brekku í Biskupstungum. Maki henn-
ar er Jón Óskar Jóhannesson, tamn-
ingamaður og reiðkennari frá Háskól-
anum á Hólum og starfar við
tamningar og þjálfun hesta á Brekku í
Biskupstungum.
Systur Guðmundar eru Guðbjörg
Skúladóttir aðalbókari sem býr í
Reykjavík, f. 18.12. 1959, og Sigríður
Helga Skúladóttir sjúkraliði, f. 30.6.
1965, sem býr í Borgarnesi.
Foreldrar Guðmundar eru hjónin
Skúli Ögmundur Kristjónsson, f. 18.2.
1935, d. 17.1. 2000, og Rósa Guð-
mundsdóttir, f. 16.12. 1937. Þau voru
bændur á Svignaskarði í Mýrasýslu í
Borgarfirði, en síðar búsett í Borg-
arnesi, þar sem Rósa býr enn.
Guðmundur
Skúlason
Aðalheiður Baldvinsdóttir
húsfreyja á Kjarna í Möðruvallaklausturs-
sókn, Eyj., síðar í Kjarna á Galmaströnd, Eyj.
Helgi Valdimarsson
bóndi á Kjarna í Möðruvallaklausturssókn,
Eyj., síðar í Kjarna á Galmaströnd, Eyj.
Sigríður Helgadóttir
vinnukona á Kjarna,
Möðruvalla-
klausturssókn Eyj.
Guðmundur Rósinkarsson
frá Kjarna í Arnarneshreppi, Eyj.
Rósa
Guðmundsdóttir
húsfreyja á
Svignaskarði í
mýrarsýslu
Þorgerður Septína Sigurðardóttir
húsfreyja íÆðey á Ísafjarðardjúpi og í Kjarna í
Arnarneshreppi
Rósinkar Guðmundsson
formaður íÆðey á Ísafjarðardjúpi, síðar b. á
Kjarna í Arnarneshreppi og víðar
Guðrún Stefánsdóttir
vinnukona á Höll í Þverárhlíð og
víðar. Síðast vinnukona í Svignaskarði
Guðmundur Kristjánsson
bóndi á Sleggjulæk, Stafholtssókn, Mýr.
Sigurborg Guðmundsdóttir
húsfreyja á Svignaskarði
Kristjón Ögmundsson
bóndi á Svignaskarði
Dýrfinna Kristjánsdóttir
vinnukona á Svínhóli í Sauðfellssókn, á
Fjósum og víðar
Ögmundur Jónsson
tökubarn á Breiðabólsstað, Dal., vinnumaður á Svínhóli í
Sauðafellssókn og húsmaður á Fjósum og víðar í Dal.
Úr frændgarði Guðmundar Skúlasonar
Skúli Ögmundur
Kristjónsson
bóndi á Svignaskarði
í mýrarsýslu, síðast
búsettur í Borgarnesi
Á Boðnarmiði var skemmtilega
kveðist á nú í vikunni, – ekki
þó undir rímnaháttum. Sigrún Har-
aldsdóttir byrjaði:
Hann Sigvaldi sjálfhverfi á Bala
var sífellt að blaðra og mala
sá hlandhaus og sleði
hlaut af því gleði
að hlusta á sjálfan sig tala.
Sigurlín Hermannsdóttir sagðist
einu sinni hafa ort um frænda hans:
Þið munið hann Manga á Hala
það var mikið sem hann þurfti að tala.
Var flinkur í frönsku
og flæmsku og dönsku
en skildi baun samt í bala.
Hallmundur Guðmundsson bað
Sigrúnu að fyrirgefa, – „en ég má
til því þetta rímorð er búið að mala
í hausnum á mér í nokkra daga“:
Þegar kötturinn Malli malar
og meybarn í vöggunni hjalar,
þá heldur er leitt
að heyr’ ekki neitt
þegar Sigrún talar og talar.
Anna Dóra Gunnarsdóttir:
Systir hans Sigvalda á Bala
sængar hjá Manga á Hala.
Þau hoppa og hjala
og hætta að mala,
Mangi og vinkonan, Vala.
Sigrún Haraldsdóttir:
Konan hans Sigvalda ’ún Solla
safnaði málverkum Tolla.
Hún aðdáun vakti
með einstæðum takti
enda ansi hreint lausholda bolla.
Hér skaut Sigrún inn at-
hugasemdinni „þetta er nú meira
bullið“.
Jón Atli Játvarðarson hélt áfram:
Hún Dórótea á Tjörnum
á talsvert af velgerðum börnum,
en kvöldi í maí
var kastað á glæ
er kom hún við getnaðarvörnum.
Og að lokum Sigrún Haralds-
dóttir:
Fíngerða frúin á Tjörn
fyrtist við manninn sinn Björn
hún dálítið reiddist
því dauð- henni –leiddist
að dröslast með öll þessi börn
Sigurður Breiðfjörð orti:
Ég er eins og veröldin vill
velta, kátur, hljóður,
þegar við mig er hún ill
ekki er ég heldur góður.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Sigvaldi sjálfhverfi og
fleira gott folk