Morgunblaðið - 02.07.2021, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 2021
starfsliðinu fullbólusettir en hinir
þurfa að fara í sóttkví,“ sagði Ólaf-
ur.
Stór hluti leikmannahóps Fylkis
er nú í sóttkví og verður það
næstu daga.
„Styrktarþjálfarinn okkar er
kominn í sóttkví og eins og staðan
er núna eru átján leikmenn einnig
í sóttkví. Það gæti breyst eitthvað
en ég geri fastlega ráð fyrir því að
alla vega helmingur leikmanna-
hópsins þurfi að vera í sóttkví
næstu daga.
Það er ekkert sem klikkar hjá
okkur og við höfum fylgt öllum
reglum hingað til. Þetta atvikaðist
bara þannig að það áttu einhverjir
eftir að fá seinni sprautuna sína af
bóluefni og þar af leiðandi var all-
ur leikmannahópurinn ekki full-
bólusettur.“
Lítið spil á æfingum
Þetta er í þriðja sinn sem leik-
menn Fylkis þurfa að fara í sóttkví
vegna kórónuveirufaraldursins.
„Við ætlum okkur að æfa með
þeim strákum sem mega æfa og
við stefnum á að æfa með alla vega
fimm leikmönnum í dag. Það verð-
ur lítið um spil á æfingunni en ég
get lofað þér því að við munum
finna okkur eitthvað skemmtilegt
að gera.
Þegar allt kemur til alls er þetta
í þriðja sinn sem það kemur upp
smit í kringum okkur og það er
auðvitað það sem fer mest í taug-
arnar á manni. Á sama tíma er
þetta staðan hjá okkur í dag og við
þurfum bara að takast á við hana
eins og hún er.“
Líkt og flestir Íslendingar var
þjálfarinn farinn að sjá fyrir end-
ann á kórónuveirufaraldrinum.
„Það var algjört sjokk að fá
þessar fréttir, ég get alveg við-
urkennt það, og maður hélt fyrst
að um lélegan brandara væri að
ræða. Við stóðum í þeirri trú að
þessi blessaði faraldur væri loks-
ins búinn en fengum það svo sann-
arlega í bakið.
Vonandi leysist þetta hratt og
núna vonum við bara að allir haldi
heilsu og verði klárir í næsta leik
sem gæti verið í næstu viku gegn
HK. Það eru einhverjar vangavelt-
ur um að fresta leiknum gegn KA
sem á að fara fram um þarnæstu
helgi og við myndum þá spila við
HK um miðja næstu viku,“ bætti
Ólafur við í samtali við Morgun-
blaðið.
Í gær bárust svo fréttir af því að
tveir leikmenn karlaliðs Víkings úr
Reykjavík væru komnir í sóttkví
eftir að hafa umgengist smitaðan
leikmann Fylkis en leikur Víkings
og ÍA í úrvalsdeildinni á Víkings-
velli, næstkomandi mánudag, mun
fara fram samkvæmt áætlun.
Ólafur hélt að um lélegan
brandara væri að ræða
- Fylkismenn í sóttkví - Leikmaður liðsins greindist með kórónuveiruna
Ljósmynd/Kristinn Steinn Traust
Smit Leikmaður Fylkis úr Árbæ greindist með kórónuveiruna á þriðjudag
og er stór hluti leikmannahópsins í sóttkví auk sjúkraþjálfarans.
FRÉTTASKÝRING
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Mikill meirihluti karlaliðs Fylkis í
knattspyrnu er kominn í sóttkví
eftir að leikmaður liðsins greindist
með kórónuveiruna á þriðjudag-
inn.
Til stóð að Fylkir myndi mæta
HK í úrvalsdeild karla í knatt-
spyrnu, Pepsi Max-deildinni,
sunnudaginn 4. júlí í elleftu um-
ferð deildarinnar en þeim leik hef-
ur verið frestað.
Fylkismenn hafa verið á ágæt-
isskriði í undanförnum leikjum eft-
ir brösótta byrjun en liðið vann
3:1-sigur gegn ÍA í Árbænum hinn
20. júní og gerði svo jafntefli við
Íslandsmeistara Vals á Hlíðarenda
27. júní.
„Þetta er mjög slæmt og þessar
fréttar koma ekki á góðum tíma
enda hefur okkur gengið vel í und-
anförnum leikjum,“ sagði Ólafur
Stígsson, annar þjálfari Fylk-
ismanna, í samtali við Morgun-
blaðið.
„Það er aldrei jákvætt þegar
maður þarf hálfpartinn að stoppa
æfingar bara allt í einu. Við vorum
einmitt á leið á æfingu á þriðju-
daginn þegar við fáum tilkynningu
um það að einn af leikmönnum
liðsins hefði smitast af kórónu-
veirunni.
Í kjölfarið hættum við við æf-
inguna og allir eru sendir beint
heim. Smitrakningarteymið setur
sig svo í samband við félagið og
við sendum þeim lista yfir alla
leikmenn liðsins. Það eru ein-
hverjir í leikmannahópnum og
Knattspyrnukonan Sigríður Lára
Garðarsdóttir hefur yfirgefið her-
búðir Vals og er gengin í raðir FH á
nýjan leik. Sigríður kom til Vals
fyrir tímabilið og hefur komið við
sögu í öllum leikjum liðsins á tíma-
bilinu til þessa. Þrátt fyrir það er
hún aftur komin í FH sem leikur í 1.
deildinni, Lengjudeildinni. Eyja-
konan á að baki 167 leiki í efstu
deild fyrir ÍBV, FH og Val þar sem
hún hefur skorað 24 mörk. Þá hef-
ur hún leikið 20 A-landsleiki.
FH er í þriðja sæti Lengjudeild-
arinnar með 15 stig eftir sjö leiki.
Frá Hlíðarenda
í Hafnarfjörð
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
FH Sigríður er mætt aftur í Hafnar-
fjörðinn eftir stutt stopp hjá Val.
Guðrún Ósk Ámundadóttir hefur
sagt upp sem þjálfari bikarmeist-
ara Skallagríms í körfubolta í
kvennaflokki. Guðrún Ósk, sem er
34 ára gömul, stýrði Skallagrími í
tvö tímabil og gerði Borgnesinga
að bikarmeisturum í fyrsta sinn í
sögu félagsins á sínu fyrsta tíma-
bili. Liðið endaði í sjötta sæti Dom-
inos-deildarinnar á nýliðnu tíma-
bili. Guðrún lék með Skallagrími
áður en hún tók við þjálfun liðsins
en hún hefur einnig leikið með
Haukum og KR á ferlinum og varð
tvívegis Íslandsmeistari.
Sagði upp í
Borgarnesi
Morgunblaðið/Eggert
Hætt Guðrún Ósk hefur stýrt
Skallagrími undanfarin tvö tímabil.
_ Atvinnukylfingurinn Guðrún Brá
Björgvinsdóttir úr Keili komst ekki í
gegnum niðurskurðinn á Big Green
Egg Open sem fram fer á Ros-
endaelsche-vellinum í Hollandi en
mótið er hluti af Evrópumótaröðinni.
Guðrún Brá lék fyrsta hringinn á
tveimur höggum undir pari en annan
hringinn á átta höggum yfir pari. Hún
var samtals á sex höggum yfir pari eft-
ir fyrstu tvo keppnisdagana í 66.-72.
sæti en niðurskurðarlínan miðast við
fimm högg yfir pari.
_ Karlalið KA í fótbolta mun áfram
leika heimaleiki sína á Dalvíkurvelli á
meðan heimavöllur liðsins á Akureyri
er ekki klár. KSÍ staðfesti í gær að leik-
ur KA og KR á mánudaginn kemur
verður leikinn á Dalvíkurvelli. KA hefur
leikið alla þrjá heimaleiki sína í sumar
til þessa á Dalvíkurvelli og unnið einn
þeirra og tapað tveimur.
_ Þýska knattspyrnufélagið Dort-
mund hefur staðfest að félagið hafi
náð samkomulagi við Manchester
United um kaup á enska sóknarmann-
inum Jadon Sancho. United greiðir 73
milljónir punda fyrir Sancho, sem er
uppalinn hjá grannaliðinu Manchester
City. Hann hefur leikið með Dortmund
frá árinu 2017 og skorað 38 mörk í 104
leikjum í þýsku 1. deildinni þrátt fyrir
að vera aðeins 21 árs.
_ Körfuknattleiksdeild Tindastóls
hefur gengið frá samningi við Banda-
ríkjamanninn Javon Bess og mun
hann leika með Skagfirðingum á
næstu leiktíð. Bess er 25 ára og 198
sentimetrar. Hann getur bæði leikið
sem bakvörður og framherji. Hann
kemur til Tindastóls frá Erie Bay
Hawks úr þróunardeild NBA. Hann var
liðsfélagi Ingva Þórs Guðmundssonar
hjá St. Louis Billikens í bandaríska há-
skólaboltanum. Tindastóll hefur á síð-
ustu dögum gengið frá samningum við
Sigtrygg Arnar Björnsson, Sigurð
Gunnar Þorsteinsson og írska lands-
liðsmanninn Taiwo Badmus.
_ Phoenix Suns er komið í úrslit NBA-
deildarinnar í körfuknattleik í fyrsta
skipti frá árinu 1993 eftir sannfærandi
130:103-útisigur á Los Angeles Clip-
pers í borg englanna.
Chris Paul fór á kostum hjá Phoenix
og skoraði 41 stig og gaf átta stoð-
sendingar. Devin Booker skoraði 22.
Marcus Morris gerði 26 stig fyrir Clip-
pers. Kawhi Leonard, besti leikmaður
Clippers, lék ekkert í einvíginu vegna
meiðsla.
Phoenix hef-
ur aldrei
orðið
NBA-
meistari en í
tvígang komist í
úrslit. Árið 1993 tap-
aði liðið fyrir Michael
Jordan og félögum í
Chicago Bulls og árið
1976 beið liðið lægri
hlut gegn Boston Cel-
tics. Annaðhvort Mil-
waukee Bucks eða
Atlanta Hawks bíður
Phoenix-liðsins í úr-
slitunum.
Eitt
ogannað
KNATTSPYRNA
1. deild kvenna, Lengjudeildin:
Kórinn: HK – Grindavík ...................... 19.15
Víkingsvöllur: Víkingur R. – FH ........ 19.15
Vivaldi-völlur: Grótta – Augnablik ..... 19.15
Í KVÖLD!
Grindavík stöðvaði sigurgöngu
Fram þegar liðin mættust í 1. deild
karla í knattspyrnu, Lengjudeild-
inni, á Framvelli í Safamýri í 9.
umferð deildarinnar í gær. Leikn-
um lauk með 2:2-jafntefli en Laur-
ens Symons fór mikinn í liði
Grindavíkur og skoraði bæði mörk
Grindjána. Þrátt fyrir jafnteflið
eru Framarar með 25 stig í efsta
sætinu og Grindavík er í því þriðja
með 17 stig.
_ José Enrique Sito skoraði tví-
vegis fyrir ÍBV þegar liðið tók á
móti Selfossi á Hásteinsvelli í
Vestmannaeyjum en leiknum lauk
með 3:2-sigri Eyjamanna. ÍBV er
með 19 stig í öðru sætinu en Sel-
fyssingar eru í því tíunda með 8
stig.
_ Kairo Edwards-John skoraði
þrennu fyrir Þrótt úr Reykjavík
þegar liðið heimsótti Víking frá
Ólafsvík á Ólafsvíkurvöll en leikn-
um lauk með 7:0-stórsigri Þróttara
sem eru með 7 stig í ellefta sætinu
en Víkingar eru með eitt stig á
botni deildarinnar.
_ Pedro Vázquez skoraði sigur-
mark Aftureldingar þegar liðið
vann 2:1-sigur gegn Gróttu á Fag-
verksvellinum að Varmá en Aftur-
elding er með 12 stig í sjöunda
sætinu en Grótta er í því níunda
með 8 stig.
_ Þá gerðu Þór frá Akureyri og
Vestri 1:1-jafntefli á SaltPay-
vellinum á Akureyri en Þórsarar
eru með 11 stig í áttunda sætinu en
Vestri er í því sjötta með 13 stig.
_ Fjölnir og Kórdrengir gerðu
svo markalaust jafntefli á Extra-
vellinum í Grafarvogi en Fjölnir er
með 14 stig í fimmta sætinu og
Kórdrengir eru með 16 stig í fjórða
sætinu.
Grindavík stöðvaði
toppliðið í Safamýri
- ÍBV í annað sæti eftir nauman sigur
Morgunblaðið/Eggert
Skalli Haraldur Einar Ásgrímsson og Dion Acoff eigast við á Framvelli.