Morgunblaðið - 02.07.2021, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 02.07.2021, Qupperneq 28
Verkefnið Flam- enco á Íslandi er nú hafið í þriðja sinn. Í því koma saman spænskir og íslenskir lista- menn og leika flamenkólistir sínar, leika á gít- ara og syngja. Flamenkógítar- leikarinn Reynir Hauksson er þar í fararbroddi og eru sex sýningar fram undan. Í kvöld kemur hópurinn fram í Valhöll á Eskifirði kl. 21, 3. júlí í Fjarðarborg á Borgarfirði eystri kl. 20.30, í Gamla bíói 8. júlí kl. 21, í Frystiklefanum á Rifi 9. júlí kl. 21, á Hvanneyri Pub 10. júlí kl. 21 og í Alþýðuhúsinu í Vestmannaeyjum 11. júlí kl. 21. Tilefni sýninganna er útgáfa fyrstu íslensku flamenkóplötunnar, El Reino de Granada, sem gefin var út af Reyni sem kallar sig Reynir del Norte. Hann býr og starfar í Granada á Spáni og hefur hin síð- ustu ár flutt til Íslands spænska flamenkólistamenn til að kynna þá fögru list fyrir landanum. Auk Reynis koma fram Paco Fernández, Jorge el Pisao, Jacób de Carmen og Josue Heredia „Cheito“. Flamenkóhópur á ferð um landið Reynir Hauksson 28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 2021 Sýningaropnun laugardaginn 3. júlí kl. 14 LYSET FRA FJELDET Opið virka daga 10–18, laugardaga 12–16 Lokað á sunnudögum ÖSSUR MOHR Sýning í Gallerí Fold 3.-17. júlí Hólmfríður María Ragnhildardóttir hmr@mbl.is „Þegar hann ýtti á hnappinn til að eyða var það ákveðið áfall og eigin- lega hálffyndið augnablik. Við eydd- um öllum stafrænum skrám og nú er í raun ekkert til af þessari plötu,“ segir Hildur Maral, útgáfustýra plötufyrirtækisins Mercury KX, sem á í samstarfi við klassíska, skoska tónlistarmanninn Erland Cooper sem leggur nú af stað í nýstárlegt verkefni með ófyrirséða út- komu. Cooper skrifaði nýlega undir samning hjá fyrirtækinu um útgáfu nýrrar plötu sem er at- hyglisverð fyrir þær sakir að eng- inn hjá Mercury KX hefur heyrt tónverkin sem á henni. Þess í stað hefur tónlistar- maðurinn eytt öllum stafrænum skrám og grafið eina eintakið af verkunum á formi segulbands djúpt ofan í jörðu á ótilgreindum stað á Orkneyjum við Skotland. Að þremur árum liðnum verður segulbandið grafið aftur upp og plata gefin út með lögunum í því ástandi sem þau finn- ast. Mun Cooper í framhaldinu gera tilraun til að flytja lögin á tónleikum í tilheyrandi ástandi en ómögulegt er að spá fyrir um lokaútkomuna eða hvort verði yfirhöfuð hægt að spila segulbandið. „Það veit enginn hvernig veðrátt- an eða jörðin mun hafa leikið segul- bandið þegar það verður loks dregið upp og því ákveðin áhætta sem felst í þessu verkefni,“ segir Hildur. Vill kanna áhrifin Undanfarið hefur Cooper verið af- ar afkastamikill í útgáfu tónlistar en hann hefur gefið út nýja plötu á nokkurra mánaða fresti síðastliðin ár. Segir Hildur þetta nýja uppátæki meðal annars til komið til að kanna áhrif samtímans á listsköpun og einnig rannsaka hvaða áhrif þessi þriggja ára bið muni hafa á hann sem tónlistarmann. „Hann er spenntur að sjá hvort hann verði enn hrifnari af verkinu þegar það kemur upp úr jörðinni eða hvort áhuginn dvíni. Svo er þetta einnig spennandi verkefni í ljósi þess tíma sem við erum uppi á núna, það er svo mikið offramboð af tónlist. Það verður áhugavert fyrir aðdáendur hans að sjá hvernig þeim mun líða eftir að hafa beðið eftir verkinu í þrjú ár,“ segir Hildur. Fjársjóðsleit á Orkneyjum Til að bæta spennu í leikinn geta áhugasamir leitað segulbandsins á eyjunum út frá fjársjóðskorti og vís- bendingum sem birtar verða á nokk- urra mánaða fresti. Leitin verður þó strembin, að sögn Hildar, og eru lík- ur á að einungis þeir sem eru kunn- ugir staðháttum geti lesið úr fyrir- mælunum. Cooper biðlar til þeirra sem ætla sér að leita segulbandsins að skila því aftur til hans ef svo færi að það skyldi finnast. Myndi hann í framhaldinu bjóða viðkomandi ein- staklingi að fara með sér í hljóðver þar sem þeir myndu hlusta á loka- útkomu verksins saman. Yrði platan gefin út í kjölfarið, óháð því hvort þrjú ár verða liðin. Cooper ólst upp á Orkneyjum og hefur því persónulega tengingu við landssvæðið en verkið hans var sam- ið til að fagna ljóðskáldinu George Mackay Brown sem hefði orðið 100 ára gamall á árinu og er einnig frá Orkneyjum. Gefa út plötuna sama hvað Spurð að því hvers vegna þrjú ár hafi orðið fyrir valinu segir Hildur ákvörðunina að hluta til tilviljunar- kennda, „en það er líka eitthvað við þrennuna sem er góð tímasetning. Hann er mjög hrifinn af þrenningum og hefur áður gefið út þríleik af tón- list. Svo táknar þetta líka upphaf, miðju og endi, svo það eru einhverjir þættir sem spila inn í,“ segir hún. Mercury KX hefur skuldbundið sig við að gefa út verkið nákvæmlega eins og það mun hljóma þegar það kemur upp úr jörðinni en stefnt er á að gefa plötuna út í júní 2024. „Það er afar sjaldséð að útgáfufyr- irtæki geri samning án þess að hafa heyrt eina nótu af plötunni. Eina fólkið sem hefur heyrt lögin er Erland sjálfur og þeir sem komu að gerð laganna. Við leggjum gífurlegt traust á hann enda höfum við mikla trú á tónlistarhæfileikum hans og þessu verkefni,“ segir Hildur. Forsalan er nú þegar hafin en Hildur segist ekki vita til þess að önnur forsala hafi staðið yfir í jafn langan tíma. Segulbandið liggur nú í jörðu í kassa ásamt fiðlu, bogastreng og nót- unum af upprunalega verkinu. Ein- ungis þrjú önnur eintök af nótunum eru til í heiminum og verða þau einu vísbendingar um hvernig lögin hljómuðu ef allt fer á versta veg. Í jörðu Segulbandið komið ofan í holu á ónefndum stað á Orkneyjum þar sem Erland Cooper er fæddur og uppalinn. Eina eintakið grafið í jörðu - Hildur Maral gefur út merkilegan listgjörning Erlands Cooper - Segulbands- upptaka af plötu hans verður grafin í jörðu á Orkneyjum í þrjú ár og þá gefin út Hildur Maral „Tunglið, tungl- ið taktu mig“ er yfirskrift tón- leika saxófón- leikarans og tónskáldsins Stefáns S. Stef- ánssonar og dóttur hans Unu Stef sem haldnir verða í Bókabúð Máls og menningar að Laugavegi 18 í kvöld kl. 21. Stefán flytur eigin lög með Unu og hljómsveit en hana skipa, auk feðginanna, píanóleikarinn Vignir Þór Stef- ánsson, bassaleikarinn Gunnar Hrafnsson og trommuleikarinn Einar Scheving. Miðasala fer fram í bókabúð Máls og menningar. Feðgin og hljóm- sveit í bókabúð Una Stef Listatvíeykið SÚL_VAD frumflytur í dag kl. 16-18 hljóð- og mynd- bandsinnsetninguna „vatnaveran mín“ í Listasal Mosfellsbæjar. SÚL_VAD eru myndlistarkonan Ásdís Birna Gylfadóttir og tón- skáldið Ragnheiður Erla Björns- dóttir, báðar fæddar 1993 og æsku- vinkonur úr Mosfellsbæ. „SÚL_VAD hefur strax frá upp- hafi samstarfsins árið 2017 vakið mikla athygli. Listakonurnar hafa sýnt bæði hérlendis og víða erlend- is, unnið til fjölda verðlauna og tek- ið þátt í virtum samstarfsverk- efnum,“ segir í tilkynningu og að í „vatnaverunni minni“ rannsaki tvíeykið áhrif mannsins á umhverfi sitt og mengun sjávar. Í mynd- rænan hluta verksins notist Ásdís Birna við líkamann sem myndlík- ingu fyrir sjálfið þar sem hreyf- ingar og efnisval eigi stóran þátt. Hljóðveröld verksins er tónverk í fimm hlutum fyrir þverflautu, rödd og rafhljóð, samið af Ragnheiði Erlu, að því er fram kemur í til- kynningu. Segir að hér sé á ferðinni „kjörið tækifæri til að heimsækja þann dularfulla krika sem hljóð- og myndbandsverk eru innan list- arinnar og upplifa þar ferska strauma SÚL_VAD“. Sýningu lýkur 30. júlí. Listasalur Mosfellsbæjar er inn af Bókasafni Mosfellsbæjar í Þverholti 2. Vatnavera Stilla úr hljóð- og myndbandsinnsetningunni „vatnaveran mín“. SÚL_VAD sýnir vatna- veruna sína í Mosfellsbæ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.