Morgunblaðið - 02.07.2021, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 02.07.2021, Qupperneq 32
Hljómsveitin GÓSS mun fagna sumri, líkt og í fyrra, og halda tónleika víða um land. Í kvöld kemur þríeykið fram í bragganum á Ásbrekku í Skeiða- og Gnúpverja- hreppi og hefjast tónleikarnir klukkan 19. Í GÓSS eru þau Sigurður Guðmundsson, Sigríður Thorlacius og Guðmundur Óskar. Fyrsta plata tríósins, Góssentíð, vakti mikla athygli og var meðal annars tilnefnd sem plata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum í fyrra. Tríóið GÓSS heldur sveitatónleika í bragganum á Ásbrekku í kvöld FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 183. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. „Þetta er mjög slæmt og þessar fréttar koma ekki á góðum tíma enda hefur okkur gengið vel í undan- förnum leikjum,“ segir Ólafur Stígsson, annar þjálfari karlaliðs Fylkis í knattspyrnu, meðal annars í samtali við Morgunblaðið í dag. Mikill meirihluti liðsins er kominn í sóttkví eftir að leikmaður þess greindist með kórónuveiruna á þriðju- daginn. Fyrir vikið hefur næsta leik liðsins á Íslands- mótinu verið frestað en þetta er í þriðja sinn sem Fylk- ismenn fara í sóttkví vegna faraldursins. »27 Fylkismenn í sóttkví sem kemur ekki á góðum tíma fyrir liðið ÍÞRÓTTIR MENNING Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Guðrún Stefanía V. Ingólfsdóttir er einn þeirra landvarða Vatnajökuls- þjóðgarðs sem í sumar standa vakt- ina á Heinabergssvæðinu, sem er skammt vestan við Höfn í Horna- firði. Ýmis áhugaverðir staðir eru á þessum slóðum; svo sem jöklarnir sem stöðugt gefa eftir. „Ég var fyrst á landvarðavaktinni hér árið 2015 og munurinn sem ég sé til dæmis á Hoffellsjökli frá þeim tíma er mikill. Stöðugt er nýtt land að koma undan snjófarginu,“ segir Guðrún sem er öllum aðstæðum á þessum slóðum kunnug. Hún býr á Hornafirði og hefur verið starfs- maður þjóðgarðsins í um tíu ár. Er yfirlandvörður og í fullu starfi árið um kring, enda þótt mest sé um- leikis yfir sumartímann. Þögn í dalnum „Svæðið hér við Hornafjarðar- jöklana, sem við köllum svo, er stór- brotið. Hér sjáum við hverjar af- leiðingar af hlýnun jarðar geta verið, en einnig að náttúran er svip- ul og maðurinn hefur litla stjórn á framvindunni. Ár geta færst í nýjan farveg hvar þær flæmast hér fram um sanda. Svo er svæðið framan við Heinabergsjökul eins konar hvilft eða dalbotn, þögnin sem þarna ríkir er sérstök,“ segir Guðrún. Alla virka daga kl. 11 nú í júlí og eitthvað fram í ágúst verður boðið upp á fræðsluferðir um Heina- bergssvæðið. Frá þjóðvegi 1 er veg- slóði frá Hringveginum, um 1,5 km austan við brúna yfir Kolgrímu og um 3 km fyrir vestan Flatey á Mýr- um. Skilti og skýrar merkingar eru á staðnum, svo enginn ætti að vill- ast. Brúarsmíðin var óþörf Sagan sem á þessum slóðum gerðist er sú að vorið 1947 var reist 38 metra löng brú yfir Heinabergs- vötn. Fáum misserum eftir að brúin var tekin í notkun færði fljótið sem kom úr Heinabergsvatni sig yfir í farveg Kolgrímu. Síðan þá er talað um Þurrubrú; mannvirki sem hefur staðið á þurru í 74 ár; er áminning um forgengileika verka mannanna og að öfl náttúrunnar eru engu lík. Í bókinni 151 Ísland eftir Pál Ás- geir Ásgeirsson segir að staðkunn- ugur Skaftfellingur hafi á sínum tíma fundið út að Heinabergsvötn myndu finna sér nýjan farveg fyrr eða síðar. Brúarsmíðin væri óþörf. Á þau varnaðarorð var ekki hlustað – og gráglettin náttúran lék á manninn. Allt átti þetta sér orsakir í hopi skriðjökla, sem nú verður á miklu meiri hraða en áður. Svo gæti því farið í fyllingu tímans að fleiri brýr verði á þurru landi eða eitt- hvað ámóta gerist. Fjöll, gróður og fuglar „Náttúran hér við sunnanverðan Vatnajökul er engu lík; er stór- brotin og breytist stöðugt. Fjöllin eru svipsterk, gróðurinn fallegur og fuglalífið fjölbreytt. Ferðamenn spyrja margs um þetta, bæði þeir sem við landverðir hittum úti í þjóð- garðinum og svo þeir sem koma til okkar í upplýsingamiðstöð okkar í Gömlubúð á Höfn í Hornafirði,“ segir Guðrún Stefanía að síðustu. Ljósmynd/Guðný Gígja Benediktsdóttir Þjóðgarður Guðrún Stefanía við brúna sem er á þurru eftir að Heinabergsvötn fóru í nýjan farveg fyrir 73 árum. Landið breytist stöðugt - Landvörður er á vaktinni við brú og bráðnandi jökul

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.